Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 20. MARS1993 21 Menning Leikur að fonni Á íslenskum hönnunardegi ’93 þann 4. mars sl. sýndu 29 íslenskir hönnuðir verk sín á vegum 12 fyrir- tækja í húsgagna- og innréttinga- framleiðslu. í tengslum við daginn voru veitt sérstök verðlaun fyrir áhugaverðustu nýjungina frá síðasta hönnunardegi. Hönnunarverðlaunin hiaut að þessu sinni Pálmar Krist- mundsson arkitekt, fyrir fatahengi og lampa úr áh, sem hann hefur þró- að og unnið að mestu leyti sjálfur. Að auki hlutu viðurkenningu Guð- björg Magnúsdóttir innanhússarki- tekt fyrir sófasettið „Þema“, og inn- anhússarkitektarnir Guðrún M. Ól- afsdóttir og Oddgeir Þórðarson fyrir margháttað framlag sitt á sviði hús- gagna- og innréttingahönnunar, en verk þeirra voru til sýnis í þremur fyrirtækjum. Pálmar Kristmundsson er kunnur fyrir innréttingar sínar fyrir ÁTVR í Mjódd, á Eiðistorgi og í Austur- stræti og var vegglampinn á sýning- unni í Epal upphaflega hannaður sem hluti af síðasttöldu innrétting- unni. Hugmyndin á rætur í efninu sem er hið sama og í lofti og veggjum verslunarinnar í Austurstræti, óhtað ál. Eiginleikar þess eru kannaðir í ýmsum útfærslum í lömpum Pálm- ars og tilraunir gerðar með notkun staðlaðra efnisprófíla og vélahluta sem hráefni til nýsköpunar. „Þema“ - sófsett Guðbjargar Magn- úsdóttur - var fyrst kynnt á hönmm- arsýningu í Perlunni á sl. ári en hér var það sýnt með nýju sófaborði úr stáU og gleri eftir sama höfund. Ein- föld, hrein-kúbísk grunnform minna að sumu leyti á framsækna hús- gagnahönnun 3. og 4. áratugarins, kennda við De Stijl og Bauhaus. Ekki spilUr að sófmn og stólarnir eru sér- lega þægilegir ásetu. Guðrún M. Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson hafa víða komið við á sviði húsgagna- og innréttingahönnunar og er skemmst að minnast sófans sem þau unnu með Ustmálaranum ToUa árið 1987. Frá árinu 1989 hafa þau unnið að hönnun „Brúnás“- innréttingahnunnar fyrir Miðás hf. á Egilsstöðum. Það samstarf er af- rakstur vöruþróunarverkefnis á veg- um íðntæknistofnunar er hófst árið 1988. Afraksturinn er vönduð og stíl- hrein íslensk innréttingaUna með margvíslegum valmöguleikum í út- færslum og efnisvaU sem stenst fylU- lega samanburð við hið besta í inn- fluttum innréttingum. Auk Brúnás- innréttinga sýndu Guörún og Odd- geir sófa og fleiri hluti í versluninni Casa, undir vörumerkinu „GO-4“, og er sú framleiðsla kostuð af hönnuð- unum sjáifum. Loks sýndi Epal hf. nýjan 2ja manna sófa og stól, „EGÓ“, sem hannaður er sérstaklega af þeim Guðrúnu og Oddgeiri með þarfir stofnana og fyrirtækja í huga. Vinnustofan GLÁMA sf. er hlaut verðlaun hönnunardags ’91 fyrir vín- skápinn „Dreka", sýndi að þessu sinni frumgerð að fjölnotahirslum undir vörumerkinu „Kastor". Um er að ræða hirslur samsettar úr skenk, skilrúmi (baki) og færanlegum hill- Kastor, fjölnota hirsla. Hönnuðir: Gláma sf. Framleiðandi: Epal hf. Brúnás-innréttingar. Hönnuðir: Guðrún M. Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðar- son. Framleiðandi: Miðás hf. Þema-sófasett. Hönnuður Guðbjörg Magnúsdóttir. Framleiðandi: Exó. Hönnim Pétur H. Ármannsson um, sem staðið geta upp við vegg eða úti á gólfi. Efnisval er fjölbreytt, ryðf- rítt stál, lakkaðar og spónlagðar plöt- ur og nautshúð. Formuppbygging „Kastor“-hirslnanna er mjög áhuga- verð og býður upp á ýmsa möguleika á frekari úrvinnslu og þróun. Fram- leiðandi er Epal hf. Fyrirtækið Lúmex hf., er sérhæfir sig í ljósahönnun, kynnti nýja lamp- alínu, „Júpíter", í húsakynnum verslunarinnar Júnik. Höfundar eru Tryggvi Tryggvason arkitekt og Helgi Kr. Eiríksson lýsingarhönnuð- ur. Nafnið er skírskotun til stjörn- unnar með tungl sín, sem einstakir lampar ínnan línunnar eru kenndir við: Europa, 10, Galimede og Gallisto. Júpíter-hnan byggist á tveimur grunnformum: málmlykkju sem heldur utan um sjálfan ljósgjafann og harðviðar-linsu sem sniðin er eftir ákveðinni geometríu. Þessum grunn- formum er síöan telft saman á ýmsa vegu svo úr verður vegglampi, stand- lampi eða borðstofuljós. hæð í Kringlunni hefur Hagkaup opnað markað á fötum og skóm þar sem hver vara kostar aðeins 999 krónur eða þaðan af minna. Þarna má i gera ævintýraleg góð kaup á hinum bestu I vörum. I Komdu á þriðju hæðina í Kringlunni og 0- skoðaðu 999-markaðinn. HAGKAUP gœöi úrval þjónusta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.