Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 20. MARS1993 Sérstæð sakamál Hann „sá" morðin framin George Wilkins. Susan Foster ásamt dóttur sinni. „Villa Jacaranda", einbýlishús við Turf Club-stræti í Rosettenvihe, sem er útborg Jóhannesarborgar í Suður-Afríku, hafði staðið mann- laust í um ár þegar Donald og Sus- an Foster keyptu það. Þau töldu sig heppin að hafa fengið einbýiishús af þessari stærð og á þessum stað fyrir um hálfvirði þess sem hlið- stæð hús í hverfinu kostuðu. Fast- eignasalinn gaf þá skýringu á verð- inu að húsið þarfnaðist viðgerða. Það var rétt, en nánari athugun leiddi hins vegar í ljós að viðgerð- irnar voru hvorki eins miklar né kostnaðarsamar og ætla hafði mátt af orðum hans. Susan og Donald önnuðust sjálf mestan hluta þeirra og nutu við það aðstoðar Georges Whkins, bróður Susan. Það var George sem varpaði ljósi á hvers vegna húsið hafði verið falt á um hálfvirði en þaö gerðist á sérstakan hátt. Hrollkuldi í eldhúsinu Dag nokkurn í maímánuði, skömmu eftir að Foster-hjónin höfðu keypt húsið, kom George í fyrstu heimsókn sína í það. Hann hafði samglaðst systur sinni og mági yfir hinum hagstæðu kaupum og leist vel á stofurnar og önnur herbergi sem hann gekk um í þess- ari skoðunarferð. En þegar George kom fram í eldhúsiö setti skyndi- lega að honum mikinn hroll og spratt fram á honum kaldur sviti. Um leið varð hann gripinn mikilli hræðslukennd og augnabliki síöar varð honum ljóst hver ástæðan var. Tvívegis áður hafði svipað komið fyrir hann og í bæði skiptin hafði orsökin verið sú sama. George var bara tíu ára þegar hann fór með fóður sínum í heim- sókn á sveitabæ skammt fyrir utan borgina Bloemfontain. Þar var tek- ið á móti þeim af gestrisni og sett- ist faðirinn að snæðingi. Þegar Ge- orge hafði lokið við að borða brá hann sér út fyrir í skoöunarferð. Leyndarmáliö í skóginum Eftir að hafa veriö í burtu í um klukkustund kom George aftur og sagði foður sínum að hann hefði orðið fyrir undarlegum áhrifum þegar hann hefði staðið við jaðar skógi vaxins svæðis sem var nokk- um spöl frá sveitabænum. Hann hefði ekki þoraö inn í skóginn vegna óþægindanna en þau hefðu svo horfið um leið og hann hefði gengið burt. „Eg veit að það er einhver dáinn þama inni í skóginum," sagði Ge- orge. „Ég held að það sé lítil stúlka og það er eitthvað bundið um háls- inn á henni. Þetta er faUeg stúlka, ljóshærð og bláeygð.“ „Hvemig getur þú vitað þetta?“ spurði einn af þeim sem sat á spjalli við foðurinn. „Ég veit það ekki. Ég finn það bara á mér,“ svaraði George. Fullorðnu mennimir í stofunni brostu en engu aö síöur ákváðu tveir þeirra að fara með George að þeim stað sem hann hafði nefnt. Þeir höfðu ekki mikla trú á því að drengurinn hefði rétt fyrir sér en skyndilega hrópaði annar maöurinn: „Góður guö, þetta er víst satt.“ Mennimir fundu lík milli Kathleen Bruwer Steyl. trjánna. Rannsókn leiddi í ljós að það var af Dorotheu van Eck, sem horfiö hafði frá sveitabæ í nágrenn- inu tuttugu og þremur árum áður. Enginn vafi lék á því að hún hafði verið myrt því um hálsliðinn var hálfrotiö reipi. Svo langt var hins vegar um liðið að ekki tókst að upplýsa hver morðinginn var. Atvikið á gistihúsinu Lögreglan sýndi George mikinn áhuga fyrst eftir þetta því hún leit svo á að hann væri einn af þeim fáu sem hefðu skyggnigáfu sem nýst gæti við rannsókn morðmála. Reynt var að fá hann til að „sjá“ meira en án árangurs. Sex ámm eftir atvikið 1 skóginum gerðist þó annaö sams konar atvik. George var þá á ferðalagi með for- eldrum sínum í Pretoríu. Þegar hann kom inn í herbergið sem hann átti að vera í á gistihúsinu fann hann til sömu óþægindanna og hann hafði fundið til við skógar- jaðarinn foiðum. Hann reyndi að fá annað herbergi en það tókst ekki því gistihúsiö var þéttsetið. Honum tókst loks að vinna bug á hræðslu- tilfinningunni og sofnaði. En um miðja nótt vaknaði hann í svita- baði. Hann yfirgaf þá herbergið, fór inn til foreldra sinna og fékk að sofa þar til morguns. Daginn eftir fór faðir Georges á fund gistihússtjórans, sagði honum söguna og bað um skýringu. Gisti- hússtjórin hlustaði undrandi á og skýröi síðan frá því að morð hefði verið framið inni í herberginu. Maður einn hafði ráðið unnustu sína af dögum þar. Hann hafði ver- ið handtekinn, dæmdur og hefði síðan verið tekinn af lífi í fangelsi skammt frá. Gistihússtjórinn var eini starfs- maðurinn sem þekkti þessa gömlu sögu. Leitað skýringa Enn á ný hafði komið fram aö George hafði óvenjulegan hæfi- leika til að skypja hvar morð höfðu verið framin, jafnvel þótt langt væri um liðið. Sögumar frá sveitabænum nærri Bloemfontain og gistihúsinu í Pre- toríu komu honum í hug er hann fékk kuldahrollinn í húsinu sem systir hans og mágur höfðu keypt í Rosettenville. Hann rifiaði þær nú upp í viðurvist Donalds og Sus- an og þegar þeim var fióst að eitt- hvað skelfilegt kynni að hafa gerst í húsinu ákváðu þau að fara á fund fasteignasalans og leita skýringa ef vera kynni aö haun þekkti sögu hússins. George varð einn eftir í húsinu þegar þau fóru. Hann tók í sig kjark, gekk fram í eldhús og settist þar á stól. Hann reyndi að einbeita sér að því að skynja hvað ylli þeirri óþægindatilfinningu sem hann varð fyrir. Og ekki leið á löngu þar til hann „sá“ skelfda, unga stúlku liggja á eldhúsgólfinu. Yfir henni stóð miðaldra kona og hélt hún fast um úlnliði hennar. Miðaldra mað- ur stóð hjá og hélt hann á eldhús- hnífi. Hann rak hann svo hvað eft- ir annað í stúlkuna. Síðan lyftu maðurinn og konan stúlkunni af gólfinu og báru út um eldhúsdyrn- ar og út í bakgarðinn. Stóð heima Fasteignasalinn gat skýrt þeim Donald og Susan frá því að árið 1938 hefði verið framið morð í hús- inu. Það hafði þá verið í eigu vel efnaðs kaupsýslumanns, sem var fimmtugur er atburðurinn gerðist. Nafn hans var Daniel Steyl. Forsagan var sú að Steyl hafði staðið í ástarsambandi við einka- ritara sinn, tuttugu og þriggja ára stúlku að nafni Gertrude Prinsloo. Hún varð ólétt. Þegar henni varð fióst ástand sitt fór hún á fund mannsins sem hún vann hjá og sagði honum hvernig komið var. Viðbrögð hans voru þau að segja henni upp starfinu. Þá reiddist stúlkan og hótaði að valda hneyksli með því að opinbera það sem gerst hafði. Undir því yfirskini að vilja ræða um hugsanlega lausn á vandanum fékk Steyl Gertrude til að koma heim til sín. Þar var þá fyrir kona Steyls, Kathleen Bruwer, sem var fiörutíu og sex ára er þetta gerðist. í sameiningu myrtu þau hjón stúlk- una og gerðist það á þann hátt sem George lýsti eftir að hafa setiö einn í eldhúsinu. Hæfileikar Georges rannsakaðir Daniel Steyl var handtekinn, dæmdur til dauða og hengdur en kona hans var dæmd í ævilangt fangelsi. Hún veiktist nokkru síðar og lést í fangelsinu árið 1941. Fasteignasalinn og fyrrverandi eigandi hússins féllust á að greiða Donald og Susan nokkrar bætur vegna þeirra óþæginda sem þau höfðu orðið fyrir vegna þess sem gerst hafði þama í húsinu forðum. Prestur var síðan fenginn til að fara með bæn í eldhúsinu og stökkva vigðu vatni á það. Eftir það fann George ekki til neinna óþæg- inda þar. Sálarrannsóknafélag Suður-Afr- íku kannaði allt sem tengdist þessu máh mjög nákvæmlega og á eftir var því lýst yfir að enginn vafi léki á því að George Wilkins hefði sér- stakan hæfileika til að skynja slæma „áru“ herbergja eða staða. Þótti hafið yfir allan grun að hann heíði „séð“ það sem gerst haföi í „Villa Jacaranda" löngu áður en hann fæddist. Sama niðurstaða fékkst þegar hin tvö málin voru rannsökuð. Sjálfur sýnir George ró þegar rætt er um þessi mál. Um hæfileika sína segir hann: „Ég leita ekki staða þar sem morð hafa verið framin. En þrisvar hefur það komið fyrir að ég hef komið á slíka staöi. Og í sannleika sagt vona ég að það komi ekki fyrir aftur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.