Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Page 25
LAUGARDAGUR 20. MARS1993
25
Hópur 3-4 ára barna í lok eins tímans ásamt foreldrum, sem tóku þátt í æfingunum, og þeim Karli og Auðuni sem
eru lengst til endanna. DV-myndir gk
Þriggja til sex ára böm í íþróttaskóla á Akureyri:
Emm ekki að búa
til íþróttastjömur
gera þeim gott. Við leggjum nokkra
áherslu á að fjölbreytni sé í öllum
þeim hreyfingum sem við látum
börnin fást við. Þetta gefur þeim
taekifæri til að hreyfa sig mikið, þau
verða öll miklu öruggari með sig í
allri framkomu og læra að stjórna
hreyfingunum betur.
Við kennum þeim að kasta bolta,
sparka bolta, grípa bolta, þau gera
æfmgar sem auka jafnvægið, kiifra í
rimlum og sveifla sér í köðlum sem
eykur öryggistilfinningu þeirra og
við sjáum ótrúlega mikinn mun á
bömunum núna miðað við þaö er
þau voru að koma í fyrsta tímann.
En við leggjum áherslu á að við erum
ekki að þessu til þess að búa til
íþróttastjömur og afreksfólk."
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Það er óhætt að segja að á laugar-
dagsmorgnum sé líf og fjör í Glerár-
skóla á Akureyri. Þar fer fram starf-
semi íþróttaskóla bama sem rekinn
er í samvinnu íþróttáfélagsins Þórs,
Karls Frímannssonar íþróttafræð-
ings og Auðuns Eiríkssonar íþrótta-
kennara og það er eitt og annað sem
krakkarnir taka sér fyrir hendur, í
fylgd pabba eða mömmu að sjálf-
sögðu.
Bömunum er skipt í tvo hópa, ann-
ars vegar 3-1 ára og hins vegar 5-6
ára. Þegar DV leit inn í Glerárskóla
voru 3-4 ára börn í salnum og þar
léku þau sér af lífi og sál. Sum em
þó ansi lítil í sér og fara ekki langt
frá pabba eða mömmu, og það er
reyndar stutt í grátinn ef eitthvað fer
öðruvísi en best verður á kosið. Það
er reyndar eftirtektarvert hversu
mikinn þátt foreldrarnir taka í því
sem fram fer með krökkunum og það
eitt út af fyrir sig er ávinningur.
Kynntist
þessu í Noregi
„Ég var í íþróttaháskóla í Noregi
og kynntist þessu þar. Þegar ég fór
að kanna það að koma svona starf-
semi í gang á Akureyri þá var
íþróttafélagið Þór í sömu hugleiðing-
um svo við slógum þessu saman,“
segir Karl Frímannsson.
„Þetta gefur krökkunum mjög
margt að mínu mati og hlýtur að
„Hún var
eins og lítil
mús fyrst"
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyii
„Mér finnst þetta gera krökkun-
um mjög gott. Stelpan mín var eins
og lltil mús hérna í fyrsta tímanum
og þorði ekkert að gera en ég finn
mikinn mun á henni,“ sagði Inga
Runólfsdóttir sem var í leiktíma
með þriggja ára dóttur sína, Sigur-
björgu Auðbjörgsdóttur.
Inga sagði að dóttir sín væri
miklu fijálsari í umgengni við hina
krakkana en hún var fyrst. „Þetta
er mjög gott fyrir böm sem eru lít-
il í sér, þau verða öraggari með sig
og svo kynnast þau líka aga. Svo
má ekki gleyma því að hingað
koma foreldramir með bömunum
sínum og fá að leika sér með þeim.
Það er líka mjög skemmtilegt,"
sagði Inga.
Inga og Sigurbjörg dóttir hennar í „frjálsum æfingum'*.
Þegar pabbi eða mamma er með í „húla-hringnum“ er öllu óhætt.
Það er gott að geta haldið í höndina
á mömmu þegar maður tekur sér
svona hættulegt verkefni fyrir hend-
ur.
Sumir pabbanna urðu ungir í annað
sinn og rifjuðu upp Tarzanleiki
gömlu góðu daganna.
Spennusaga af gamla skólanum þar sem engin
leið er að gera upp á milli hinna grunuðu fyrr en
kemur að sjálfu lokaatriðinu þar sem lesandinn finn-
ur spennuna, regnið og myrkrið jafn glöggt og hann
væri sjálfur á staðnum.
Bók þarf ekki að kosta 2000 krónur
til að vera góð!
Úrvalsbækur kosta
aðeins kr. 790,-
og ennþá minna í áskrift
Á næsta sölustað
eða í áskrift í síma
«^1163-27*00