Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1993, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 1993 5 Fréttir Umboðsfyrirtækinu Fylki Ltd. veitt greiðslustöðvun vegna rekstrarörðugleika: 20 milljóna af li ógreiddur - ekki komið til þess ennþá að setja fyrirtækið í gjaldþrot, segir Jón Olgeirsson ViöskiptabanM umboösfyrirtækis- ins Fylkis Ltd. í Grimsby hefur veitt fyrirtækinu greiöslustöðvun til 1. júní -vegna mikilla fjárhagsörðug- leika. Að undanfómu hafa íslenskar útgerðir „brunnið inni“ með afla sinn í Grimsby vegna þess að fyrir- tækið hefur ekki getað staðið við greiðslur - m.a. vegna þess að yflr- dráttarreikningur þess hefur farið fram úr heimildum. Jón Olgeirsson hjá Fylki segir fyrirtækið ekki hafa getað greitt íslenskum útgerðum um 20 milljónir króna fyrir fisk sem landað hefur verið ytra undanfarið. Jón segir ljóst að fasteignir, m.a. einn bátur, verði seldar á næstunni til að hafa upp í greiðslur. Nýtt fyrirtæki, sem hefur aðsetur í sama húsnæði og Fylkir, Icebrit, hefur verið stofnað. Eigendur þess eru Páll Sveinsson og eiginkona Um 450 fá ókeypis í leikhúsin Fastráðið starfsfólk leik- húsanna, félag- ar í Félagi ís- lenskra leikara og leikstjóra, félagar í Rithöf- undasambandi íslands, nemar í Leikhstarskólanum, forseti íslands, ráðherrar, þjóöleikhúsráð og gagn- rýnendur fjölmiðla, svo einhveijir séu nefndir, fá ókeypis á sýningar í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu á hveijum vetri, alls um 400 til 500 manns. „Það er engin leið að meta það af hversu miklum tekjum leikhúsið verður með því aö gefa þessu fólki ókeypis inn. Það er ábyggilega innan við helmingur sem nýtir sér þetta. Það er spurning hversu margir hefðu komið og borgað sig inn,“ segir Sig- urður Hróarsson, leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu. „Þetta er ekki mikil upphæð í okk- ar bókhaldi, ekki einu sinni nokkur hundruð þúsunda. Þetta er allt eftir vissum reglum. Fólk verður að hringja og panta samdægurs. Það fær miða ef ekki er uppselt," segir Sig- urður. Stefán Baldursson, leikhússtjóri í Þjóðleikhúsinu, segir að hfiðstæðar reglur séu í gildi í báðum leikhúsun- um. Þjóðleikhúsið hafi breytt reglum sínum, skýrt þær og hert. Nú þurfi menn að framvísa stimpluðu skír- teini við innganginn til að komast inn. -GHS Norrænahúsið: Tveir íslending- arsækjaum Tveir íslend- ingar hafa sótt um stöðu for- stjóra Norræna hússins í Reykjavík. Það eru þau Ragn- heiður Þórarinsdóttir, cand. mag. í þjóðháttafræði frá háskólanum í Ósló, og Þorleifur Friðriksson, dokt- or í sögu frá háskólanum í Lundi. Ragnheiður og Þorleifur eru í hópi 84 umsækjenda þar sem Danir eru flestir, 29. Ákveðið verður hver fær stöðuna á fundi í Reykjavík í dag en húnerlausfrááramótum. -hlh hans, Sigurlaug Bjarnadóttir. Fyrir- tækið mun annast sölu á fiski fyrir íslenskar útgerðir og fiskvinnslur, jafnt ferskum fiski sem frystum. Páll hefur starfað hjá Fylki frá því í árs- byijun 1992. Jón segir að næstu vikur verði notaðar í að vinna að því að fá greidd- an a.m.k. hluta af 50 milljóna króna útistandandi skuldum sem fyrirtæk- ið á hjá íslenskum útgerðum. „Við vorum á fundi með fulltrúum viðskiptabankans okkar á fostudag. Þeir hafa ákveðið að veita okkur greiðslustöðvun fram til mánaða- móta maí/júní til að sjá hvað hægt er að innheimta af þessum skuldum á íslandi. Það er því ekki búið að setja fyrirtækið í gjaldþrot ennþá. Bankamenn töldu að með þessu færu saman hagsmunir bankans og stjómar fyrirtækisins og ekki síst þeirra sem eiga inni hjá fyrirtæk- inu,“ sagði Jón við DV. „Við munum kanna hvað hægt er að innheimta. Menn á íslandi eru þegar famir að reyna að senda fisk og láta aflann fara upp í skuldir við- koma’ndi. Menn hafa haldið áfram að senda gáma. Þannig séð hafa ver- ið góð viðbrögð. Ég held að menn geri sitt besta og hef fengið munnleg loforð þess efnis," sagði Jón. Jón kvaðst hafa fyrirbyggt að ís- lenskar útgerðir fái ekki greitt fyrir þann fisk sem sendur verður utan á næstunni enda hafi viðskiptabank- inn opnað fyrir reikninga þess á ný eftir að fyrirtækinu var veitt greiðslustöðvun.-ÓTT Akureyrí 6.230 Egilsstaðir 8.200 Hornafjörður 7.270 Húsavík 7.010 ísafjörður 5.830 Patreksfjörður 5.660 Sauðárkrókur 5.630 Þingeyri 5.600 Vestmannaeyjar 4.7 60 N0HH.... KEMUR A 0VART Miðað er við að greitt sé fyrir báðar leiðir, fram og til baka, með a.m.k. tveggja daga fyrirvara og að dvalið sé lengur en þrjár nætur. Bókunum er ekki hægt að breyta. Flugvallarskattur, 330 krónur, er inni- falinn og sætaframboð er takmarkað. Það hefur aldrei verið jafnhagstætt að fljúga innanlands. FLUGLEIDIR þjóðbraut innanlands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.