Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1993, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 23. APRÍL1993
Útlönd
Færeyjar:
Verkfallskip-
sfjóra hefur lam-
aðatvinnulKið
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum:
VerkfaJl skipstjóra og stýrí-
manna hefur síöustu daga lamað
nánast allt atvinnulíf hér í Fær-
eyjum og var þó ekki á bætandi.
Nær öll skip sem landa heima
eru í höfn og geta ekki róiö fyrr
en samiö verður við yfirmenn.
Litlu sem engu hefur því veriö
landað af fiski í þessari viku og
liggur vinna aö mestu niöri í
frystihúsunum.
Einn rækjutogari fór á sjó í
morgun. Útgeröarmaðurinn er
þar sjálfur skípstjóri og sagðist
hann eiga um það aö velja aö
missa skipið eða aö brjóta verk-
fallið. Hann taldi siðari kostinn
betri.
Nokkur hluti flotans hefur ekki
komið í höfn eftir að verkfaliið
skall á. Þau stóp landa í erlendum
höfnum og stöðvast ekki nema
þau komi til Færeyja. Litlar líkur
eru enn á samkomulagi yfir-
manna og útgerðar.
Marita Petersen lögmaður myndar nýja landstjóm í Færeyjum á mettíma:
Samkomulag um að
f ara að ráðum Dana
- þjóðveldis- og sjálfstæðismenn taka við ráðherrastólum Fólkaflokksins
Jems Dalsgaard, DV, Færeyjum:
Maritu Petersen, lögmanni Fær-
eyja, hefur tekist að mynda nýja
landstjórn á mettíma eftir að stjóm-
arsamstarfinu við Fólkaflokkinn var
formlega slitið í fyrradag. Fólka-
flokkurinn víkur úr stjóm en í stað
hans koma Þjóðveldisflokkurinn,
sem hefur fjóra þingmenn, og Sjálf-
stæðisflokkurinn með þrjá þing-
menn.
Samtals hefur stjómin þá 17 þing-
menn aö baki sér en það er minnsti
mögulegur meirihluti. Almennt var
búist við að kjósa þyrfti áður en ný
stjóm tæki við. Sambandsflokkur-
inn, stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn, vildi ekki styðja nýja stjórn
án undangenginna kosninga. Hann
verður áfram í stjórnarandstöðu.
Nýja stjórnin hefur ekki af löngum
stjómarsáttmála að státa. Eina máhð
sem einhverju skiptir er hvort farið
veröur að ráðum Dana í atvinnumál-
um og eitt risafyrirtæki stofnað til
að annast nær allan atvinnurekstur
í eyjunum. Um þetta er samkomulag
þótt þjóðveldismenn séu tregir til.
Jafnvel er búist við að tilkynnt verði
um nýju stjómina í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn er að hluta
klofningur úr flokki jafnaðarmanna
og þar er Helena Dam í forystusveit.
Vel kemur til greina að hún verði
ráðherra en ráðherralistinn hefur
Marita Petersen lögmaður.
enn ekki verið birtur. Hún er dóttir
Atla Dam, fyrrum lögmanns og
helsta stjómamálaleiðtoga í Færeyj-
um um árabil.
Fólkaflokkurinn vildi láta setja lög
sem bönnuðu stofnun fyrirtækis sem
ætti meira en 20% af útgerð og fisk-
vinnslu. Jafnaðarmenn em þessu
andvígir og segja að óraunhæft sé að
ætla að færeysk útvegsfyrirtæki lifi
án samruna.
Sjálfstæðismenn eru á sömu skoð-
un og jafnaðarmenn og öllum á óvart
virðist þjóðveldismenn taka í sama
streng. Þeir hafa verið á móti ráðstöf-
unum Dana í fjármálum Færeyja en
vilja nú sýna ábyrgð og reyna að
hafa áhrif á eftirleikinn.
Stuttar fréttir
Serbar munu höría
Philippe Morillon, hershötðingi
Sameinuöu þjóðanna í Bosníu,
sagði í gær að sveitir Serba
mundu hörfa írá Srebrenica um
leið og þeir væru fullvissir um
að öll vopn hefðu verið flutt af
svæðinu.
Hægrisinni deyr
Aðskilnaðarsinninn Andries
Treumicht, leiðtogi hins hægri-
sinnaða íhaJdsflokks í Suður-
Afríku, lést úr hjartaslagi í gær.
Hann var 72 ára.
Vextár lækka
Þýski seðlabankinn lækkaði
miUibankavexti í gær mun meira
en búist haíöi verið við. Franski
seðlabankinn fór að dæmi hans í
morgun.
Hetttrúarmenn dæmdr
Egypskur herdómstóll hefur
dæmt sjö íslamska bókstafstrúar-
menn til dauða fyrir árásir á
ferðamenn og samsæri um að
steypa stjóm landsíns. Lögfræð-
ingar óttast aukið ofbeldi ef dóm-
unum verður framfylgt.
Twelrsjússarávlku
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
vísar á bug ásökuuum andstæð-
inga sinna um að hann drekki
mikiö. Hann segist ekki hafa tíma
nema fyrir svona tvo sjússa á
viku.
Katt bað fyrtr kynlífið
Breskur vísindamaður segir að
kalt bað geti aukið getu manna
til kynlífs og komíð í veg fyrir
sjúkdóma. Hann varar fólk þó við
því að fara í ískalt baðið óundir-
búið.
Sjáffsljámíaugsýn
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, segir i viðtali sem
birtist í dag að hann búisí við
samkomulagi tun sjálfstjórn Pal-
estínumamxa þegar friðarviðræð-
umar um Miðausturlönd hefiast
aftur í næstu viku.
Aho bjartsýnn
Esko Aho, forsætisráðherra
Finnlands, sagðist í gaer vera
bjartsýnn á að stjórn sinni tækist
að leysa efhahagsvandræði þjóö-
arinnar. Hann sagöi að bata-
merkin væra þegar farin að koma
ÍljÓS. Reuter
Íslamadrengurinn Saed Bekric frá Srebrenica er kominn á sjúkrahús í Westwood i Kaliforníu þar sem gert veröur
að sárum hans. Hann missti bæði augun í bardögunum um heimabæinn. Saga hans heiur vakið heimsathygli
enda dæmi um grimmdina í stríðinu í Bosníu. Símamynd Reuter
Carl Bildthélt
naumlega velli
Ríkisstjórn
Carls Bildt í
Svíþjóð heldur
enn naumlega
velli eftir að
henni tókst að
fástuðningNýs
lýðræðis við
stefnu sína í
efnahagsmálum. Bildt hefur orð-
ið að treysta á Nýtt lýðræði í vet-
ur þótt honum sé það óljúft.
Nú var tekist á um verulegan
niðurskurð á fiárlögum. Þing-
menn Nýs lýðræðis töldu ófært
að leggjast gegn þessum áformum
enda fylgjandi niðurskurði.
Saf n um helf ör
gyðingaopnaðí
Washington
Safn til minningar um helfór
gyðinga í heimsstyrjöldinni síð-
ari var opnað í Washington í gær
og við það tækifæri minntust við-
staddir þeirra hörmunga sem nú
eiga sér stað í Bosníu og víðar.
Elie Wiesel, handhafi friðar-
verðlauna nóbels fyrir árið 1986
og einn þeirra sem komust lifs
af úr fangabúðum nasista, notaði
tækifærið og minnti umheiminn
á að vísbendingar um dauðabúðir
nasista hefðu verið látnar sem
vindumeyruþjóta. Reuter
Bretar efast um að Vilhjálmur ríkisarfi sé holl fyrirmynd barna:
Næst skýtur Byssu-Villi Bamba
Vilhjálmur skotglaði.
Bresk blöð halda því fram að fyrr
eða síðar verði að grípa í taumana
og beina uppeldi Vilhjálms ríkisarfa
inn á hollari brautir en verið hefur
síðustu misseri, ef þjóðin á ekki að
sitja uppi með hálfruglaðan konung
fram á miðja næstu öld.
Ástæðan fyrir þessum ótta er
byssugleði Vilhjáims, sem nú er kall-
aður Byssu-Vilh eftir fræga veiðifór
í Skotlandi þar sem sex kanínur
mættu örlögum sínum augliti til aug-
htis við prinsinn, tíu ára gamlan.
Enn aðrir vflja gefa honum viður-
nefnið „skotglaði" til samræmis viö
forfóður hans og nafna sem kallaður
var hinn sigursæli. Enn aörir vilja
vita hvort prinsinn hafi fengið leyfi
hjá ömmu sinni til að drepa rétt eins
og James Bond.
Blöðin segja að venjuleg böm alist
upp við að elska og virða Kalla kan-
ínu og hans líka. Aftur á móti sé
Villi látinn elta dálæti bamanna uppi
og skjóta það.
Og nú vilja menn vita hvort Villi
verður ekki, áður en langt um líður,
sendur á dádýraveiðar. Þá sé komið
að bamavininum Bamba að falla fyr-
ir kúlum verðandi þjóðhöfðingja.
Eina vonarglætan sem menn sjá
er að skilnaður Karls og Díönu, for-
eldra Vilhjálms skotglaða, leiði til
þess að henni verið falið uppeldi
prinsins. Því megi treysta að hún
taki fyrir allar veðiferðir enda er
Díana kunn fyrir áhuga á dýravemd.
Karl prins hefur að vísu látið sig
náttúruvemd miklu skipta en hann
hefur líka mikið dálæti á veiðum eins
og ættmenn hans flestir.
Bambi i skotfæri