Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1993, Qupperneq 32
F R ÉTTAS KOTIÐ
fiO | OR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
FÖSTUDAGUR 23. APRlL 1993.
Tveirfengu
á’ann
Gyffi Kiistjánason, DV, Akureyrt
Tveir menn þurftu aðhlynningu á
slysadeild eftír tvenn slagsmál á
Akureyri í fyrrinótt. Báðir fengu
kjaftshögg frá andstæðingum sínum
og þurfti m.a. að sauma saman sár.
Að öðru leyti var rólegt hjá lög-
reglu. Einn var þó tekinn grunaður
um ölvunarakstur en sá hefur aldrei
tekið bílpróf, og annar var tekinn á
102 km hraða á Glerárgötu og sviptin-
ökuleyfi.
KnúturHálIsson:
Vil ekkert segja
„Ég vil ekkert um þetta segja. Mál-
ið er í heild sirmi í skoðun hjá Ríkis-
endurskoðun. Ég hef ekkert um þetta
að segja á þessu stigi,“ segir Knútur
Hallsson, fyrrverandi ráöuneytis-
stjóri, um atíiugasemd menntamála-
ráðuneytisins vegna ummæla hans í
blaöaviðtölum undanfarið.
Ráðuneytið segir staðhæfingar
Knúts rangar og að bréfið til Norr-
æna kvikmyndasjóðsins, afgreiðsla
og undirbúningur þess, hafi alfarið
veriðíhanshöndum. -GHS
Svartasti dagur
minjavörslu hér
„Þetta er ekkert annað en
íkveikja og ég verð að segja það að
þetta er svartasti dagur í minja-
vörslu á íslandi. Þarna hafa farið
forgörðum fomminjar sem ekki
verða bættar og bróðurpartur báta-
safns Þjóðminjasafnsins er brunn-
inn,“ sagði Guðraundur Magnús-
son þjóðminjavörður í raorgun.
I morgunbrann geymsluhúsnæði
Sjóminjasafnsins, sem heyrir undir
Þjóöminjasfn íslands, til kaldra
kola. Allt tiltækt lið slökkviliðsins
í Reykjvik var kallað að Vesturvör
14 f Kópavogi klukkan 4.16 í morg-
un en þá stóð geymsluhúsnæðiö,
360 fermetra bárujárnsklætt tré-
grindarhús sem byggt var fyrir
tveimur árum, í Ijósum logum. Viö
hiið skemmunnar sem brann
stendur önnur skemma sem hýsir
Tækniminjasafn Þjóðminjasafns-
ins og var hún aldrei í hættu að
sögn Guðmundar.
Ekkert rafmagn var í húsinu og
haföi enginn verið þar frá því á
miðvikudag en þegar slökkviliðið
kom á vettvang stóðu dyr á suöur-
hlið skemmunnar opnar.
í geymsluhúsnæðinu voru
geymdir 18 bátar frá síðustu öld,
þurrkhjallur frá Vestfjörðum og
rekaviöur sem var 1 eigu húsafriö-
unamefhdar. Allt brann þetta til
kaldra kola og er skemman gjör-
ónýt eftir brunann.
„Þetta er auðvitað ómetanlegt
tjón. Kannski eru til sambærilegir
bátar einhvers staðar á iandinu en
þeim verður ekki safnað saman í
einhverja eldgildru. Þaö væri
skárra aö geyma bátana úti. viö en
í húsnæði sem þessu,“ segir Bjöm
Bjömsson, forstööumaöur Sjó-
minjasafhs islands.
Guömundur segir að unnið hafi
verið markvisst aö þvi að finna
lausn á húsnæðismálum Sjóminja-
safnsins undanfarið og svo hafi
virst á dögunum að úr þeim hefði
ræst og hægt yrði að flytja munina
úr þessu bátaskýli en sú lausn heföi
reynst ófullnægjandi.
Aðspm-ður um hvort betur hefði
mátt standa að geymslu munanna
sem brannu sagöist hann ekkert
geta sagt um það en bætti við:
„Maður má sín lítils ef það er ásetn-
ingur manna að eyöíleggja svona
hluti.“ -pp
Andrésar andar leikarnir hófust í blíöskaparveðri i Hlíðarfjalli við Akureyri i gær. Um 800 krakkar viðs vegar af
landinu keppa þar I ýmsum skíðaíþróttum og keppnisgleðin er I fyrirrúmi. Myndin sýnlr einn sjö ára leggja af stað
i svigkeppni, einbeittan á svip. - Sjá úrslit gærdagsins á bls. 16 og 33. DV-simamynd gk
Endurálagnlng a yflrtryggingalækni:
Greiði skattinum
um 9,4 milljónir
Embætti Ríkisskattstjóra hefur
gert Bimi Önundarsyni, yfirtrygg-
ingalækni hjá Tryggingastofnun rík-
isins, að greiða tæplega 9,4 milljónir
í skatt vegna tekna sem ekki voru
gefnar upp á áranum 1989 til 1991.
Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir
að vantaldar tekjur Bjöms á þessum
áram hafi numið um 20 milljónum
króna.
Meint skattsvik Bjöms og þriggja
annarra tryggingalækna hafa rúmt
ár verið til rannsóknar hjá embætti
Ríkisskattstjóra og í hálft ár hjá RLR.
Samkvæmt heimildum DV er þess
nú beðið innan RLR að skattayfir-
völd ljúki endurálagningu á alla
læknana. í kjölfarið verði mál þeirra
sent til Rikissaksóknara.
í febrúar síðastliðnum lauk end-
urálagningu á Stefán Bogason, lækni
hjá Tryggingastofnun, vegna tekna
sem hann taldi ekki fram á sama
tímabili. Honum var gert að greiða
tæplega 3,4 milljónir og hefur hann
þegar gert þá upphæð upp við skatta-
yfirvöld.
Eftir því sem DV kemst næst er
endurálagningu hins vegar enn ólok-
ið hjá Jónasi Hallgrímssyni, prófess-
or og trúnaðarlækni Sjóvá-
Almennra, og Atla Þór Ólasyni, trún-
aðarlækni VIS. Samkvæmt heimild-
um DV nema vantaldar tekjur þess-
ara manna milljónum.
Hvorki skattayfirvöld né RLR hafa
viljað tjá sig um rannsóknina. Þessir
aðilar hafa þó hafnað þeirri skýringu
sumra heimildarmanna DV að kerfið
verndi þessa menn. Seinagangurinn
hefur þó sætt furöu margra enda ljóst
aö undandrátturinn nemur mörgum
tugum milljóna.
Tildrög skattrannsóknarinnar
vora ítrekuð fréttaskrif DV um tekj-
ur læknanna. Blaðið komst yfir upp-
lýsingar frá tryggingafélögum um að
greiðslur þeirra til læknanna væra
ekki gefnar upp til skatts. Um er að
ræða greiðslu vegna vinnu við ör-
orkumat, útgáfu vottorða og fleira
af því tagi.
-kaa
LOKI
Haldi þetta áfram
verður Þjóðminjasafnið að
fara að smíða fornminjar!
Veðriðámorgun:
Kaldi eða
stinnings-
kaldi
Á morgun verður norðaustan-
átt, víðast kaldi eða stinnings-
kaldi á stöku stað. É1 norðan- og
norðaustanlands en viða bjart í
veðri um sunnanvert landið.
Veðrið í dag er á bls. 44