Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Page 5
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
5
Fréttir
Fylgi Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í körmimum:
Hart barist
umfyrsta
Fylgi Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
- samkvæmt skoðanakönnunum á árinu 1993 -
sætið
Janúar Janúar Febrúar Febrúar Mars Mars Ap'ríi
DV Gallup Gallup Félagsvísinda- DV Gallup Gallup
stofnun
Þessi hafa hlutföllin verið milli Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins miðað við niðurstööur hinna ýmsu skoðanakannana síöan um
áramóL
Fylgi flokkanna hefur veriö óvenju
rokkandi samkvæmt skoðanakönn-
unum hinna ýmsu aðila á þessu ári.
Yfirleitt hefur ekki munað miklu á
fylgi Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknar það sem af er árinu, í barátt-
unni um fyrsta sætið. Þetta þýðir að
Framsókn hefur mjög sótt á og Sjálf-
stæðisflokkurinn dalað. Hafa skal
hugfast að í kosningunum síðustu
fékk Sjálfstæðisflokkurinn 38,6 pró-
sent atkvæða og Framsókn aðeins
18.9 prósent atkvæða. Foringjar sjálf-
stæðismanna hafa annaö veifið rekiö
upp kvein út af þessum könnunum.
Lítum á sveiflumar á fylgi flokka
samkvæmt skoðanakönnunum í ár.
Þessar kannanir eru að sjálfsögðu
ekki alveg sambærilegar en tökum
þær í röð. í DV-könnun í janúar, sem
olli miklum hvelh, fékk Sjálfstæðis-
flokkurinn 26,6 prósent og Framsókn
25,7 prósent af þeim sem tóku af-
stöðu. Enn fremur gerði DV kosn-
ingaspá í framhaldi skoðanakönnun-
arinnar og þar hafði Sjálfstæðis-
flokkurinn 20,5 prósent en Framsókn
27.9 prósent. Þetta er rétt að hafa í
huga, þegar málin eru skoðuð þessa
dagana í framhaldi skoðanakönnun-
ar Gallups þar sem Framsókn mæhst
með 32 prósent en Sjálfstæðisflokk-
urinn með aðeins 28,6 prósent í sam-
anburði.
Samkvæmt skoðanakönnun Gah-
ups í janúar fékk Sjálfstæðisflokkur-
inn 29,4 prósent og Framsókn 24,8
prósent. Samkvæmt GaUup-könnun
í febrúar fékk Sjálfstæðisflokkurinn
31.2 prósent og Framsókn 24,2 pró-
sent. í skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar í febrúar fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn 33,3 prósent og
Framsókn 23,9 prósent. í GaUup-
könnun í mars hafði Sjálfstæðis-
flokkurinn 35,5 prósent en Framsókn
25.2 prósent. í DV-könnun í mars
fékk Sjálfstæðisflokkurinn 37,3 pró-
sent og Framsókn 24,4 prósent.
Samkvæmt kosningaspá, sem DV
vann í framhaldi af skoðanakönnun-
inni í mars, hefði Sjálfstæðisflokkur-
inn hlotið 31,2 prósent fylgis en
Framsókn 26,6 prósent, hefðu þing-
kosningar fariö fram um það leyti.
Kjósendahópurinn er mjög reikull
um þessar mundir og tiltölulega Utið
þarf til að stórir hópar flytji sig.
-HH
Um J mánuðir eru nú liðnir síðan Nýherji setti
AMBRA tölvurnar á markað hérlendis. Á
þessum tíma hafa selst rúmlega 1200 AMBRA
tölvur og hafa þær reynst mjög vel. AMBRA
tölvurnar eru til í ýmsum stærðum og gerðum og
henta því námsfólki og heimilum jafnt sem
stórum og smáum fyrirtækjum. AMBRA
tölvurnar hafa fengið margs konar
viðurkenningar hjá mörgum virtum erlendum
tölvutímaritum sem hafa gefið AMBRA sína
bestu einkunn. Það eru því ekki aðeins okkar
orð þegar við segjum að AMBRA tölvan sé besti
valkosturinn í dag!
A M B R A
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 - SÍMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan
Nokkrir notaðir bílar
á ótrúlega góðu verðil
TEGUND ÁRGERÐ STAÐGR. ÚTSÖLU
VERÐ VERÐ
RENAULTNEVADA 1991 1.320.000,- 1.050.000,-
SAAB 900i 1987 790.000,- 690.000,-
VOLVO 244 1987 780.000,- 690.000,-
SUBARU COUPE 1988 700.000,- 550.000,-
CHRYSLER LEBARON 1985 590.000,- 490.000,-
MMC GALANT 1987 490.000,- 420.000,-
BMW 520i 1984 680.000,- 600.000,-
CHEVROLET MONZA 1987 440.000,- 350.000,-
VW JETTA 1986 420.000,- 340.000,-
PEUGEOT 309 GL 1987 390.000,- 330.000,-
TEGUND ÁRGERÐ STAÐGR. ÚTSÖLU
VERÐ VERÐ
TOYOTA COROLLA 1987 420.000,- 320.000,-
PEUGEOT 205 XL 1988 370.000,- 300.000,-
TOYOTA COROLLA 1985 370.000,- 300.000,-
FORD ESCORT XR3I 1984 410.000,- 290.000,-
SUZUKI SWIFT 1987 320.000,- 270.000,-
FORD ESCORT 1986 320.000,- 260.000,-
SUZUKI FOX 1982 390.000,- 240.000,-
SUBARUJUSTY 1986 290.000,- 240.000,-
LANCIA Y-10 SKUTLA 1988 270.000,- 220.000,-
PEUGEOT 205 1987 330.000,- 220.000,-
Þessa viku bjóöum við notaða bíla á
einstöku verði. _
ENGIN útborgun -Visa og Euro raögreiðslur - Skuldabréf til allt að 36 mánaða
Bflaumboðið hf. Krókhálsi 1 * Reykjavík * Sími 686633
Þú getur sparaö allt aö kr. 270.000,-
Beinn sími í söludeild
notaöra bíla er 676833.
Opið: Virkadagakl. 10-18
og laugardaga kl. 13-17