Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
Útlönd
Bandarísk yfirvöld
á móti hvalveiðum
Bandaríkjastjóm tilkynnti í gær að
hún myndi áfram styðja algjört bann
við hvalveiðum í hagnaðarskyni en
bannið gekk í gildi 1986.
Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna,
Ron Brown, sagði að hann væri ekki
þeirrar skoðunar að rétt væri að af-
létta banninu þar sem hann héldi að
slíkt væri ekki gott fyrir hvalastofn-
inn.
„Bandaríkjamenn hafa í mörg ár
lýst andstöðu sinni á hvalveiðum og
ég er sammála þeirri afstöðu," sagði
Brown í tilkynningu sem ráöuneytið
gaf út.
Tilkynningin kemur skömmu fyrir
fund Alþjóöa hvalveiðiráðsins sem
haldinn verður í Kyoto í Japan
10.-14. maí nk.
Talsmaður viðskiptaráðuneytisins
sagði að Bandaríkjamenn myndu
ekki styðja veiðar í hagnaðarskyni
ef hvalveiðiráðið færi að ræða slíkt
á fundinum.
Grænfriðungar kættust mjög við
yfirlýsingu Browns en hvöttu jafn-
framt bandarísk' stjómvöld tÚ að
ganga lengra með því að styðja við-
skiptabann gegn Norðmönnum og
öðmm þjóðum sem virtu ekki hval-
veiðibannið en Norðmenn hafa þegar
hafið hvalveiðar að nýju í vísinda-
skyni og Japanir hafa fuUan hug á
því að hefja hvalveiðar að nýju.
„Þessi opinbera afstaða, sú fyrsta í
12 ár, sendir þau ským skilaboð til
Alþjóða hvalveiðiráðsins að Banda-
ríkin munu vera óhagganleg í af-
stöðu sinni tíi að vemda hvali,“ sagði
grænfriðungurinn Gerald Leape.
„En án loforðs um viðskiptaþvingan-
ir vantar yfirlýsinguna alian kraft til
að tryggja að Noregur og Japan fari
að alþjóðalögum um þessi mál,“ sagði
Leape. Reuter
Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau muni styðja áframhaldandi bann við hvalveiðum.
inn skapar
vinnu í Noregi
Atvinnuleysi hefur fariö
minnkandi í Finnmörku, nyrsta
fylki Noregs, að undanfómu
vegna þess hVe mikill þorskur frá
rússneskum togurum berst þar á
land. Fyrir ári var atvinnuleysi
hvergi meiri í landinu en í Finn-
mörku en það er nú komið niður
í 5,4 prósent. Fyrirtæki í grein-
inni keyptu 90 þúsund tonn af
þorski af Rússum í fyrra og trygg-
ir hann þrjú þúsund störf.
Austur-evrópsk
kjarnorkuver
vandiheimsins
Hættan, sem stafar af sænska
kjamorkuverinu í Barsebáck, er
í lágmarki ef miðaö er við hina
tjölmörgu kjamakljúfa af
Tsjemobyl-gerðinni sem eru I
Austur- og Mið-Evrópu.
Þetta er skoð-
un Svends Au-
kens, umhverf-
isráðherrá
Danmerkur.
Hann ræddi
vanda austur-
evrópsku
kjamorkuver-
anna á fundl með orkumálanefnd
danska þingsins í gærmorgun.
Hann sagði Dani ekki ráða eina
við vandann.
NTB og Ritzau
Heymæði algengari í stórborgum en sveitum:
Útblástur bifreiða
talinn sökudólgurinn
Talið er líklegt að útblástur bifreiða
eigi mikla sök á því að tilfellum af
heymæði og öðrum astmasjúkdóm-
um hefur snarlega fiölgað í breskum
borgum.
Robert Davies, sérfræðingur í önd-
unarsjúkdómum hjá St. Bart-
holomews sjúkrahúsinu í London,
sagði að læknar beindu nú meira
augum sínum að útblæstri bifreiða
sem hugsanlegri orsök fiölgunar
astmatílfella.
Þó að magn frjókorna í andrúms-
loftinu sé hærra úti í sveitum en í
stórborgum eru fleiri með heymæði
í borgunum en í sveitum. Þetta hefur
gert þaö að verkum að læknar telja
nú líklegra að um megi kenna mik-
illi umferð á vegum frekar en frjó-
komunum.
„Við höldum að nítrógen díóxíð
valdi tilfellunum á vetuma en á
sumrin sé það ósonið eða mengunar-
ský sem séu skaðvaldarnir. En hvort
tveggja er afurðir bensínvélarinnar,"
sagði Davies.
Opinberar tölur í Bretlandi sýna
að Bretum með heymæði hefur fiölg-
að gífurlega á 25 ámm. Árið 1956
voru aðeins 5,1 af hverjum 1000 íbú-
um með sjúkdóminn en árið 1981
vom það 19,7 af hverjum 1000. Von-
ast er til að hraðaö verði rannsókn-
umá„hreinni“bílvélum. Reuter Ta|ið er að útblástur bifreiða geti valdið heymæði.
ummafíutengsl
Giulio
Andreotti,
fyrrum forsæt-
isráðherra ítal-
íu, vísaði í gær
á bug ásökun-
umumaðhann
heíði haldið
hlifiskildi yfir
mafíunni og sagði þær mjög
óréttlátar. Hann sagöi að sak-
sóknarar, sem vildu að hann
kæmi fyrir rétt, hefðu engar
sannanir til að styðja ásakanir
sínar með.
„Ég er að reyna að skilja hvern-
ig þetta gerðist allt saman,“ sagði
Andreotti á fundi með frétta-
mönnum, hinum fyrsta frá því
harrn ákvað að reyna ekki aö
koma í veg fyrir aö þinghelgi
hans yrði aflétt.
Kjaftatífur mafíimnar, sem
vinna raeð yfirvöldum, hafa sak-
að Andreottí um að vera helsta
vemdara sinn meðal sfiórnmála-
mannaíRóm. Reuter
Stuttar fréttir
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, segir
það hafa verið mjög óviturlegt af
þingi Bosmu-Serba aö hafna frið-
aráætlun fyrir Bosníu.
Vararviðbiódbaði
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði i morgun
aö tíl alvarlegra blóðsúthellinga
gæti komið vegna þess að þing
Bosníu-Serba hafnaöi friðaráætl-
unum SÞ.
Bakslagíviðræður
Bakslag kom í friðarviðræður
um Mið-Austurlönd í Washing-
ton þegar Palestínumenn lögðu
niður vinnuhóp um mannrétt-
indi. Þeir sögðu ísraelsmenn ekki
taka vinnuna alvarlega.
Fufidað um Kambódíu
Fulltrúar þriggja af fiórum
stríðandi fylkingum í Kambódíu
komu saman til neyðarfundar i
Peking í morgun. Rauðu khmer-
amir mættu ekki til leiks.
Major i skærum
John Major, forsætísráðherra
Bretlands, á i skærum i þinginu
vegna Maastricht-samningsins
um samruna EB-ríkja.
Kúbverjar vilja aðstoð
Stjómvöld á Kúbu hafa farið
fram á læknisaöstoð vegna tauga-
veikifaraldurs sem veldur blindu.
Rúmlega 25 þúsund Kúbverjar
hafa fengið sjúkdóminn.
Viðurkennir njósnír
Starfsmaöur bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins hefur viður-
kennt að hafa látið Grikkjum í té
rúmlega 240 leyniskjöl.
löggurdrepnar
Vopnaðir menn drápu fióra lög-
regluþjóna í fyrirsát í blökku-
mannabænum Soweto í Suður-
Afríku.
Flúði gjaldþrotið
Asil Nadir, gjaldþrota við-
skiptajöfur, stakk af frá Englandi
í einkaþotu og er á norðurhluta
Kýpur þar sem bresk réttvísi nær
ekki til hans.
Vextir lækkaðir
Franski seðlabankinn lækkaði
vextí í morgun, í fimmta sinn á
eínummánuði. Reuter