Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Síða 28
40
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
Merming
RúRek-djass framundan:
Sven Asmussen og Freddie Hubbard
á slærstu tónlistarhátíð ársins
Nú fer senn að líða að hinni árlegu
RúRek djasshátíð sem hefur á und-
anfömum árum verið að vinna sér
fastan sess í tónlistarlífi hér á landi.
Umfang hátíðarinnar hefur farið
vaxandi með hverju ári, byijaði sem
norræn djasshátíð en hefur verið að
breiðast út og aldrei hefur breiddin
verið jafn mikil og í ár. Sveiflumeist-
arar koma frá mörgum löndum með
fjölbreyttan djass. Þekktustu nöfnin
eru tvímælalaust trompetleikarinn
Freddie Hubbard sem hefur látið
mikið að sér kveða í djassheiminum
undanfarin þtjátíu ár og sænski
fiðlusnillingurinn Svend Asmunds-
en sem orðinn 77 ára gamall. Hefur
hann verið að spila í 65 ár. Það er
mikill fengur að komu þessara snill-
inga og var marga aðdáendur farið
að lengja eftir komu Asmussen til
íslands. Báðir þessir heiðursmenn
koma með sínar eigin hljómsveitír
sem skipaðar eru valinkunnum
djassleikurum. Ber sérstaklega að
geta trommuleikara Hubbards, Louis
Heyes, sem margir kannast örugg-
lega við.
Það verður meira um góða gesti á
RuRek-djassi og er áhugaverð dag-
skrá framundan en hátíðin hefst 23.
maí með setningu í FÍH-salnum í
Rauðagerði. Strax fyrsta kvöldið eru
tónleikar á Sóloni íslandusi þar sem
meðal annars bandaríski gítarleikar-
inn Doug Raney leikur með Jazz-
kvartetti Reykjavíkur. Munu þeir
endurtaka tónleikana 24. maí.
Þriðjudaginn 25. maí eru tónleikar
Freddie Hubbards kvintettsins í
Súlnasal Hótel Sögu. Daginn eftir
halda japanski píanóleikarinn Hiros-
hi Minami, bassaleikarinn Masa
Kamaguchi og Matthías MD
Sven Asmussen. Fiðlusnillingur sem
leikið hefur djass í 65 ár og af mörg-
um talinn aldrei hafa verið betri.
Hemstock tónleika.
Tónleikar Svend Asmussen og
kvartetts hans verða síðan á fostu-
deginum í Súlnasal. Laugardagurinn
29. maí er lokadagur hátíðarinnar.
Verður stanslaus djass nær allan
daginn og lokatónleikamir verða á
Hótel Sögu. Þar verður margt á dag-
skrá sem teljast verður til viðburða.
Má nefna Kvartett Tómasar R. Ein-
arssonar, en með Tómasi og félögum
þetta kvöld leikur KK. Þá mun Egill
Ólafsson syngja með Kuran Swing
bandinu svo eitthvað sé nefnt.
Ríkisútvarpið verður í mikilli
djassfílingu þessa daga og er útverp-
að beint frá mörgum hljómleikum,
aðrir teknir upp og leiknir yfirleitt
sama kvöld og þeir eru.
Hér hefur aðeins verið stiklað á fáu
einu sem boðið verður upp á þessa
maídaga sem hátíðin stendur, margt
fleira er áhugavert og verða því gerð
nánari skil síðar.
-HK
Æf ingar haf nar á Þrettándu krossferðinni
Hjá Þjóðleikhúsinu er nú hafinn
samlestur á Þrettándu krossferðinni,
nýju leikrití eftir Odd Bjömsson sem
framsýnt verður í september. Leik-
ritið áttí að sýna á stóra sviðinu í
vetur en var frestað. Það er orðið
nokkuð langt síðan nýtt leikrit eftir
Odd hefur verið sett á svið. Hann var
í fararbroddi framúrstefnuhöfunda á
ámnum kringum 1960 og samdi þá
eftirminnileg stutt leikverk, meðal
annars Köngulóna, Jóðlíf og Tíu fil-
brigði, en á meðal seinni leikrita
hans em Dansleikur, Meistarinn og
Eftir konsertinn, allt verk sem Þjóð-
leikhúsið sýndi.
Þrettánda krossferðin hefur verið í
smíðum í rúman áratug og er afar
metnaðarfullt í hugsun og byggingu
og getur áreiðanlega taiist „grand
opus“ höfundar til þessa. Þrír her-
menn leggja upp í krossferð í leit að
„stríðinu". Þeir ferðast gegnum tíma
og rúm, eiga samskiptí við fom-gríska
heimspekinga, Spánarkóng á endur-
reisnartímanum, alþýðufólk í Frakk-
landi á miööldum. Þeir takast á við
íslensk tröll og eiga ástarfund með
álfkonum svo fátt eitt sé nefnt. Þetta
er hin ytri atburðarás verksins en er
talsverð einföldun því þama er fjailað
um veraldarsöguna í hnotskum eða
að minnsta kosti vegferð mannsins
gegnum heiminn og tímann.
Höfundur Þrettándu krossferðarinnar, Oddur Björnsson, fylgist með sam-
lestrinum. Bak við hann má sjá leikarana Eggert Þorleifsson, Arnar Jóns-
son og Gísla Rúnar Jónsson. Á innfeidu myndinni eru örn Árnason og
Erlingur Gíslason. DV-myndir ÞÖK
Hermennina þijá leika Baltasar
Kormákur, Eggert Þorleifsson og
Pálmi Gestsson. Aðrir leikarar í sýn-
ingunni em: Öm Ámason, Hilmar
Jónsson, Hjálmar Hjálmarsson,
Helga Bachmann, Gísli Rúnar Jóns-
son, Helgi Skúlason, Kristbjörg Kjeld,
Erlingur Gíslason, Amar Jónsson,
Bryndís Pétursdóttir og Þórey Sig-
þórsdóttir, Leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir. Frumsamin tónlist er
eftir Hjálmar H. Ragnarsson.
BÍL mótmælir ákvörðun útvarpsráðs:
KffN^Cl
Fyrirvaralaust var tekin út af
auglýstri dagskrá Sjónvarpsins á
þriðjudagskvöld þátturinn Hver á
að sýna? þar sem sú hugmynd er
reifuð aö komið verði á fót kvik-
myndahúsi sem sýni hstrænar
kvikmyndir. Stjórn Bandalags is-
lenskra listamanna hefur mótraælt
markmið að sýna islenskar kvik-
myndir og listrænar erlendar
myndir. Mikilvægt er að opinber
umraiða eigi sér stað um þetta mál
og þeim mun verra að fyrrnefndur
sjónvarpsþáttur, sem stjóm
Bandalagsins hefur séð, og fjallar
um slíkan rekstur, fáist ekki sýnd-
Sinfónían teflir fram ungum lista-
mönnum sem slegið hafa í gegn
opinberiega þessari ákvöröun og
gefið út tiJkynningu þar að lútandi.
Þar segir meðal annars:
„Bandalagið styður eindregið þá
hugmynd að komið veröi á fót kvik-
myndahúsi sem liafi það aðal-
ur í Ríkissjónvarpinu.
; Stjóra Bandalags íslenskra lista-
manna skorar á útvarpsráð að end-
urskoða afstöðu sina til sýningar
þessa þáttar."
-HK
í kvöld verða síðustu tónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands í rauðri
áskriftarröð á þessu starfsári. Á
þessum tónleikum teflir hljómsveitin
fram tveimur listamönnum sem hafa
slegið í gegn á síðustu árum.
Hljómsveitarstjórinn Pavo Járvi
kemur frá Eistlandi, er fæddur 1962.
Hann fluttist til Bandaríkjanna 1980
nam við Juliard og Curtis tónlistahá-
skólana þar sem hann var samnem-
andi Sigrúnar Eðvaldsdóttur. Pavo
Járvi hefur stjórnað fjölda hljóm-
sveita í Evrópu og Bandaríkjunum
við góðan orðstír og nú hefur hann
veriö ráðinn listrænn sljómandi við
sinfóníuhljómsveitina í Malmö.
Píanóleikarinn Leif Ove Andsnes
er fæddur í Karmoy í Noregi 1970.
Hann er tónleikagestum væntanlega
ekki ókunnur þar sem hann hefur
tvisvar áður haldið tónleika hér á
landi. Það má segja að frægðarferill
hans hafi byijað eftir að hann hlaut
1. verðlaun í keppni ungra norrænna
einleikara sem haldin var hér á landi
í október 1988. Síðan hefur sigur-
brautin verið bein og breið og er
hann þegar kominn í röð fremstu
píanóleikara heims.
Þijú verk em á tónleikunum, Jóns-
messuvaka eftir Hugo Alfvén, Píanó-
konsert eftir Edward Grieg og Sin-
fónía nr. 5 eftir Pjotr Tsjajkofskíj.
Upphaflega átti Leif Ove að leika
píanókonsert nr. 3 eftir Rachmanin-
off. Þar sem sá konsert krefst mikill-
ar líkamlegrar áreynslu og Leif Ove
hefur undanfarið mátt stríða við
eymsl í handlegg, treystí hann sér
ekki til að leika þann konsert.
-HK
í fyrra var Þráinn Bertelsson
komin í startstöðu með að kvik-
mynda handrit sitt Sigla bimin-
fley fyrir Sjónvarpiö en á síðustu
stundu var hætt við þar sem ekki
samdist við leikara. Þráinn ritaði
bók um sama efni og kom hún
út fyrir síðustu jól. Nú hefur aftur
rofað til og var undrritaður
samningur milli Ríkisútvarpsins
og Nýs lífs, fyrirtækis Þráins
Bertelssonar, um gerð sjónvarps-
myndarinnar sem mun verða í
tíórum hlutum. Fjármagniö til
kvikmyndagerðarinnar kemur
úr Norræna sjónvarpssjóðnum,
en jafnframt taka sjónvarps-
stöðvar hinna Norðurlandaþjóð-
anna þátt í fraraleiðslunni.
ansíListhúsinu
Kjartan Guðjónsson listmálari
hefur haldið margar málverka-
sýningar. Þessa dagana stendur
yfir sý'ning á teikningum og er
þetta í fyrsta skipti sem teikning-
ar hans prýöa sýningarveggi.
Kjartan segist hafa dundað sér
við teikningar lengur en elstu
menn muna en aldrei haldið sýn-
ingu á þeim einum sér. Kjartan
segist einnig lengi hafa átt sér
þann draum að mega myndlýsa
fallegar útgáfur af fornsögunum
og gert tilraun til að auglýsa sig
sem slikan teiknara en ekkert
gengið. Kjartan hefur mynd-
skreytt bækur og á sýningunni
má sjá fmmmi'ndir úr einhverju
skemmtilegasta verkefni sem
honura hefur hlotnast, teikningar
við Þorpið eftir Jón úr Vör.
Krisfjáití
Allir sem kaupa miða í Happ-
drætti DAS í fyrsta fíokki fá
geislaplötu meö Kristjáni Jó-
hannssyni. Það gefur því auga
leið að sjálfsagt verður um met-
upplag að ræða á geislaplötu hér
á landi. Ekki em á geisladiskin-
um nýjar upptökur heldur er um
að ræða úrval af plötum sem
hann söng inn á fyrir nokkrum
árum. Kristján hefur sjálfur valið
lögin, má þar nefna ítölsk sönglög
á borð við 0 sole mio og ariur
úr óperum eftir Verdi, Puccini,
Ðonizetti og fleiri. Krisfján gefur
allar ftytjendagreiðslur sem þýö-
ir að framlag hans til DAS og
málefha aldraöra er umtalsvert.
Tónarogljóðá
Sóloniíslandusi
Stutt er síöan Ijóðabókin Tima-
spor var gefin út en þar er aö
finna ijóð eftir Védísi Leifsdóttur
sem lést úr eyðni í janúar síðast-
liðnum. Védís iétmjögtilsíntaka
máiefni ainæmissjúkra og var
stofhaður sjóður í kringum út-.
gáfu bókarinnar og rennur hagn-
aöur af bókinni tíl styrktar Já-
kvæða hópnum. í kvöld veröur
efnt tii tónleikahalds og ljóðalest-
urs á Sóloni íslandusi þar sem
m.a. koma fram Bubbi Morthens,
Nýdönskog Djasskvailett Kristj-.
önu Stefánsdóttur sem flytja tón-
list. ijóðaiesturinn felst i að iesin
verða ijóð eftir Védis Leifsdóttur,
Elísabetu Þorgeirsdóttur, Elisa-
betu Jökulsdóttur og I>orstein frá
Hamri og fleiri. Aðgartgur er
ókeypis en Tímaspor verðm- til
sölu á staðnum.