Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1993, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 24. MAÍ 1993
Fréttir________________________________________________________________________dv
Kópavogur:
Vandræðagangur vegna
ráðningar yfirverkstjóra
Bragi Mikaelsson bæjarfulltrúi sækir hart aö fá starfið
„Ég hef ekki hótaö því að fella
meirihluta bæjarstjórnar en því er
ekki að neita að ég er einn umsækj-
enda um starfið og ég vona að félagar
mínir í bæjarstjóm velji hæfasta
umsækjandann. Ég tel að stjóm-
málamenn eigi ekki að þurfa að
gjalda þess að vera stjómmálamenn.
Það er ekki þægilegt fyrir þá að þurfa
að sækja um vinnu á atvinnumark-
aöi,“ segir Bragi Mikaelsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn
Kópavogs. Bragi er einn rúmlega
þrjátíu umsækjenda um stöðu yfir-
verksfjóra áhaldahúss bæjarins sem
auglýst var til umsóknar í vetur.
„Ég hef rætt við mína menn og við
höfum komist að niðurstöðu. Ég veit
hvorki hvenær bæjarráö tekur af-
stöðu til málsins né hver verður ráö-
inn í starfið. Ég hef ekkert skipt mér
af þessu máli,“ segir hann. Búist er
við að Bragi taki viö stöðu forseta
bæjarstjórnar í byijun næsta mánað-
ar en skipt hefur verið um formenn
bæjarstjórnar og bæjarráðs árlega
undanfarin ár.
Bæjarfulltrúar minnihlutans stað-
festu í samtali við DV að heyrst hefði
að Bragi hefði hótað að fella meiri-
hluta bæjarstjómar ef hann fengi
ekki stöðuna. „Hann hefin- ekki hót-
að þessu í mín eyru en ég veit ekki
hvað er að geijast í kollinum á hon-
um,“ segir Amór L. Pálsson, núver-
andi forseti bæjarstjómar. Bragi hef-
ur leitað fyrir sér víöar en hjá bæn-
um og einnig hefur verið leitað fyrir
hann: „Ég er ekkert viss um nema
þaö geti gengið," segir Amór.
„Ráðningin var á dagskrá bæjar-
ráðs fyrir tæpum hálfum mánuði og
ég baö um frest í viku til að geta htið
yfir gögnin. Ég átti von á því aö
máhð yrði tekið fyrir á miðvikudag-
inn og því kom mér á óvart að svo
var ekki,“ segir Guömundur Odds-
son, bæjarfuhtrúi Alþýðuflokks.
Guðmundur segir að bæjarfulltrú-
ar meirihlutans hafi virst mjög
ákveðnir í aö ganga frá ráðningu
umsækjanda með nafnleynd í starfið
og hafi það verið í samræmi við
umsagnir embættismanna bæjarins.
„Það er greinilega mikih vand-
ræðagangur í meirihlutanum út af
þessu máh og ég býst við að þeir leysi
þetta með einhverri bráðabirgða-
lausn. Ef Bragi lýsir sig óbundinn
af ákvörðunum meirihiutans þá tel
ég að meirihlutinn sé fahinn. Öh mál
falla á sléttu og þá verður að mynda
nýjan meirihluta," segir Valþór
Hlöðversson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalags. -GHS
Malaví-
skipið
flutt utan
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri:
Shppstöðin Oddi á Akureyri er
þessa dagana aö ljúka smíði á rann-
sóknarskipi fyrir Malavímenn en
skipið er annað tveggja sem smíðað
hefur verið í stöðinni og fer th
Malaví.
Fyrra skipið og skipið, sem smíði
er að ljúka á núna, hafa bæði verið
flutt th Malaví í nokkrum hlutum
og þar eru þau síðan sett saman. Nú
í vikunni var einmitt verið að skipa
stýrishúsi rannsóknarskipsins út á
Akureyri og aðrir hlutar skipsins
verða fluttir út á næstunni.
DV-mynd gk
Skrokkur skipsins sem nú bfður fiutnings til Maiaví.
Biskupinn samþykkti, Signý
Sen neitaði. Böðvar heimilaði
RúRek djasshátiðin er hafin. Það
runnu hins vegar tvær grímur á
aðstandendur hátíðarinnar þegar
lögreglustjóraembættið setti þeim
stólinn fyrir dyrnar með loka-
kvöldið sem verður laugardaginn
fyrir hvítasunnu, 29. maí. Eins og
margir hafa rekið sig á má ekki
stofna th opinberra skemmtana
laugardag fyrir páska og laugardag
fyrir hvítasunnu og hefur þessi
gamh lagakrókur fariö fyrir brjóst-
iö á mörgum á undanförnum árura.
„Við töldum okkur gulltryggö
fyrir þessari reglu, segir Vemharð-
ur Linnet einn af forsvarsmönnum
hátíöarinnar. „Áður en við hófum
að setja hátiðina á blað," höíðum
við Ieitað eftir álíti Biskupsstofu.
Þar sáu biskupsritari og Ólafur
Skúiason biskup ekkert athugavert
við að hafa lokatónleikana á Hótel
Sögu þetta kvöld, enda væri þeim
lokið fyrir miönætti. Við sóttum
því um leyfi fyrir þessum tónleik-
um i góðri trú hjá Lögreglustjóra-
embættinu. Þar hittum við fyrir
Signýju Sen sem hefur með þessi
mál að gera og hún neitaði okkur
um leyfið, Erfitt var að sætta sig
við þetta og fórum við í dómsmála-
ráðuneytiö með máhð. Þar var okk-
ur sagt að ekki væri hægt að
hnekkja úrskurði lögreglustjóra-
embættisins. Að lokura gengum við
á fund borgaryfirvalda en Reykja-
vik er einn þeirra aðila sem stend-
ur að hátíðinni. Borgin fór fram á
þaö við lögreglustjórann i Reykja-
vík að heimila lokatónleikana 29.
maí og lyktir urðu þær að lögreglu-
stjóri hefur gefið leyfi fyrir tónleik-
unum.“
-HK
í dag mælir Dagfari___________
Kollsteypuvörn
Merkilegir kjarasamningar hafa
verið gerðir. Þeir eru svo merkileg-
ir að forsætisráðherra kahar þá
tímamótasamninga. Aðrir tala um
„langan skammtímasamning" og
forseti Alþýðusambandsins segir
að þetta sé kohsteypuvöm, hvað
svo sem það þýðir.
En hvað er það þá sem vömin
felur í sér?
Jú, vömin er fólgin í því að láta
ríkisstjómina lofa því að borga
nokkra milijaröa, án þess að eiga
þessa miHjarða. Ríkisstjómin ætlar
að lækka vextina en auka hallann
á ríkissjóði í staðinn, sem auövitaö
er kohsteypa sem enginn hefur tek-
ið áður.
Ríkisstjórnin lofar að halda geng-
inu fóstu, sem þýöir aö tapið hjá
sjávarútveginum heldur áfram og
væntanlega verður verkalýðs-
hreyfingunni og íslensku röds-
stjóminni að mæta ef einhveijum
öðmm þjóöum dettur í hug að
breyta hjá sér genginu sem gerir
gengisbreytingar óhjákvæmhegar
hér heima. Þá bhar kjarasamning-
urinn og ríkisstjómin verður að
taka kohsteypu og súpa hveljur í
leiðinni.
En samningamir em merkhegir
fyrir fleiri hluta sakir. Þannig lofar
ríkisstjórnin að aflaheimhdir verði
þær sömu á næsta ári og þær vom
í ár. Sem þýðir að ríkisstjómin
hefur ákveðið það í kjarasamning-
um að afli muni ekki skerðast!
Sama hvað þorskurinn í sjónum
segir, sama hvað þeir hjá Hafró
segja og sama hvað veiöist mikið
upp úr sjónum. Aflinn skal vera sá
sami, vegna þess að það er búiö að
skrifa undir það í kjarasamning-
um!
Ekki nóg með það. Ríkisstjómin
hefur lofað því að fiskur hækki um
þrjú prósent og haldist að minnsta
kosti í því verði út samningstíma-
bihð. Þannig ætlar ríkisstjómin
bæði að ákveða vextina með hand-
afh, gengið með handafli og verð-
lagið með handafli. Svo ekki sé tal-
að um þaö vald sem ríkisstjórnin
hefur á þorskgöngunum, að hún
telur sér fært að ákveða meö samn-
ingum við verkalýðinn að þorskur-
inn veiðist hvaö sem hver segir.
Og jafnvel þótt hann finnist ekki á
miðunum.
Notabene, sjómenn fá ekki að
taka þátt í þessum samningum,
enda kemur þeim ekki við hvað
aflast eða hvað fæst fyrir fiskinn.
Sjómenn verða aö semja sér, enda
skipta þeir greinilega engu máh um
næstu framtíð og afkomu og em th
hhðar eins og opinberir starfs-
menn. Þessar stéttir em núh og nix
á vinnumarkaðnum og þegar menn
ræða og ákveða fiskveiðar og fis-
kverð.
Þetta er tímamótasamningar og
góðir að því leyti að þeir tryggja
vinnufrið í eitt og hálft ár. Þó er
þess aö geta aö segja má samning-
unum upp ef gengið breytist eða
ef vextirnir breytast ekki eða ef
verðlag á fiski fer lækkandi. Það
er með öðrum orðum verið að
semja th langs tíma en stutts tíma
ef forsendur samninganna stand-
ast ekki. Forsendur samninganna
eru á þeim forsendum að forsend-
urnar standist og ef forsendumar
standast ekki em forsendumar
brostnar fyrir samningum og þá
má segja samningunum upp. Þess
vegna era þetta stuttir langtíma-
samningar og vöm gegn kohsteypu
fyrir launþega, sem fá nú þrjá miihj-
arða úr tómum ríkissjóði sem ætlar
að lækka vextina með þvi að auka
eftirspurn sína eftir lánsfé.
Auðvitað ber að fagna svona
samningum. Samingar eru ailtaf
samningar og jafnvel þótt forsend-
ur bresti og samningamir séu ekki
annað en samningar um að segja
samningum upp, þá em þetta
samningar sem marka tímamót, aö
því leyti að ríkisstjórnin hefur lofað
ýmsu sem hún getur alls ekki stað-
ið við, en ætlar þó að standa við th
að menn haldi ekki að hún sé aö
skrifa undir samninga sem ekkert
er að marka.
Vinnuveitendur em afar ánægðir
meö þennan samning og segja að
hann sé módel fyrir aðra samninga
og það komi ekki th greina að skrifa
undir annað en nú hefur verið sam-
ið um. Rétt er að taka fram í þessu
sambandi aö vinnuveitendur eru í
fyrsta skipti að skrifa undir samn-
inga sem kveða á um að viðsemj-
endur þeirra fái ekki neitt annað
en að fá segja upp samingnum ef
ekkert er að marka hann. Að því
leyti em þetta líka tímamótasamn-
ingar. Dagfari -