Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1993, Page 5
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1993 5 ... 1 1 1111 Mll> .■ ! ■■■II—■■■— M! .. .. I ■■■■ 1111.-.. ....................... dv___________________________________________________________________________________________________Fréttir Mistök við fæðingu drengs fyrir 7 árum á Sjúkrahúsi Suðurlands: Sjúkrahús dæmt til að greiða 5,5 milljónir í skaðabætur - drengurinn hlaut heilaskaða vegna súrefnisskorts og er 100 prósent öryrki Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi sem nú hefur verið dæmt í héraðsdómi til að greiða 5,5 milljónir króna í skaða- bætur til handa foreldrum drengs sem fæddist með varanlegan heilaskaða vegna súrefnisskorts á sjúkrahúsinu fyrir 7 árum. Heilaskaðann má, að mati dómsins, rekja til mistaka starfsfólks við fæðinguna. DV-mynd E.J. Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi hefur verið dæmt til að greiða 5,5 miiljónir króna í skaðabætur, með dráttarvöxtum, vegna mistaka sem urðu við fæðingu drengs fyrir 7 árum. Drengurinn hlaut varanlegan heilaskaða vegna súrefnisskorts við fæðingu og var metinn 100% öryrki. Jón Ragnar Þorsteinsson héraðs- dómari kvað upp dóminn í Héraðs- dómi Suðurlands ásamt Jóni Þor- geiri HaUgrímssyni og Amari Haukssyni, sérfræðingmn í kven- sjúkdómum. Málavextir eru þeir að laugardag- inn 9. ágúst 1986 fæddist drengur á sjúkrahúsinu á Selfossi. Drengurinn reyndist lífLítiIl við fæðingu. Næsta dag var hann sendur á bamaspítala Hringsins í Reykjavík og við örorku- mat var drengurinn metinn 100% öryrki vegna heilaskaða sem, sam- kvæmt læknisfræðilegu áhti, var tal- inn afjeiðing súrefnisskorts við fæð- ingu. Foreldrar drengsins töldu að heilaskaðann mætti rekja til mistaka starfsfólks sjúkrahússins við fæð- ingu drengsins og höfðuðu mál gegn sjúkrahúsinu á þeim forsendum. í héraðsdómi segir að ekki sé deilt um að drengurinn hafi haft heila- skemmdir frá fæðingu eða að varan- leg örorka hans hafi verið metin 100% frá fæðingu heldur deila máls- aðilar um hvort rekja megi heila- skemmdirnar til þess að starfsfólki sjúkrahússins hafi orðið á mistök við fæðingu drengsins. Aukið eftirlit lækna brást í niðurstöðu dómsins segir m.a.: „Ástand bamsins skömmu eftir fæð- ingu, sem lýst er í sérfræðiáhti bamalækna, og þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið á því, benda ein- dregið til þess að það hafi hlotið cd- varlegan súrefnisskort fyrir, í eða eftir fæðingu. Lok meðgöngu og fæð- ing móður var áhættusöm vegna hækkaðs blóðþrýstings, bjúgs og lík- amsþyngdar sem var 113,5 kíló við upphaf gangsetningar. Þetta krafðist aukins eftirhts af hálfu lækna en það brást. Af framlögðum gögnum máls- ins verður ekki annað ráðið en að móðirin hafi einungis verið skoðuð einu sinni af lækni, fjórum dögum áður en gangsetning var ákveðin. Yfirlækni bar að gefa nákvæm fyrir- mæh um hvemig staðið skyldi að fæðingunni áður en hann yfirgaf spítalann, þar á meðal á hvaða stigi leitað skyldi til hans eða annarra sem hæfir vora til að grípa inn í fæðing- una. Slík fyrirmæU komu ekki fram. Ofullnægjandi fyrirkomulag Eftir að yfirlæknirinn var farinn af spítalanum var móðirin í umsjá vaktlæknis sem bar að fylgjast vel með henni, enda gat komið til þess aö gera þyrfti ráðstafanir til að flýta fæðingunni, sem þó var ekki á hans færi eða ljósmæðranna. Gott eftirUt og markviss ákvarðanataka gat skipt höfuðmáU um framgang fæðingar- innar. Við áhættusama fæðingu, eins og hér var um að ræða, var ófull- nægjandi það fyrirkomulag að sækja þyrfti aðstoð um langan veg væri hennar þörf. Skriílegar starfsreglur gátu hér komið að gagni en vora ekki til. Konan var látin rembast of lengi (96 mínútur). Flýta bar fæðing- unni en það var ekki gert. Óvissa var stefnda í óhag Af því sem að framan er rakið verð- ur að telja að ekki hafi verið rétt stað- ið að fæðingu drengsins, einkum að því er varðar öryggisráðstafanir, og ákvarðanatöku. Af læknisfræðileg- um gögnum málsins kemur ekki fram, svo öraggt sé, hvenær skaði sá sem oUi örorku drengsins hafi orðið, fyrir, í eða eftir fæðingu. Sömu gögn benda hins vegar til þess að orsakasamband geti verið miUi þess sem úrskeiðis fór og heUaskaöa drengsins. Sönnunarreglur leiða til þess að stefnda beri halla af óvissu í þessum efnum.“ Héraðsdómur dæmir Sjúkrahús Suðurlands til að greiða drengnum og foreldram hans 5,5 milljón krónur i skaðabætur ásamt hæstu almenn- um innlánsvöxtum hvers tíma sam- kvæmt auglýsingu Seðlabanka ís- lands frá 25. maí 1990 til 26. júní 1991 en dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. Þá er sjúkrahúsið dæmt til að greiða aUan málskostn- að, rúmlega 800 þúsund krónur. -þjb RÐIR Spánn - Costa Brava - Playa Fanals - Lloret de Mar: Laugardaginn 12. júní hefst beint flug með Flugleiðum til Barce- lona og verður flogið vikulega. Við bjóðum glæsilegar gistingar á Alva Park, sem eru nýbyggðar íbúðir, nýtískulegar og útbúnar öllum þægindum sem hugsast getur. Hægt er að dveljast 1, 2, 3 eða 4 vikur. Tekið er á móti farþegum okkar í Barcelona og þeir fluttir til Alva Park. Einnig er þeim ekið til baka við lok ferð- arinnar. Playa Fanals er næsta vík að sunnan við Lloret de Mar, sem er Islendingum kunn frá fyrri tíð. Ströndin er skemmti- leg. Staðurinn er í einu fallegasta héraði Spánar, Katalóníu. Stutt er að fara til Gerona, upp í Pyreneafjöll og örstutt til frönsku landamæranna. Ibúðirnar eru með tveimur svefnherbergjum og henta vel tvennum hjónum, fjölskyldum með allt að fjórum börnum og fer verð ferðanna eftir því hvernig þær nýtast. Verð í 3 vikur er frá 50.550 - 71.550 miðað við fjóra í íbúð. Er þá inni- falið: flug, flugvallarskattur, akstur til og frá flugvelli við komu og brottför, gisting en ekki fæði. Veitingastaðir eru fjölmargir í næsta nágrenni og er matur bæði ódýr og góður, enda gengi spánska pesetans mjög hagstætt gagnvart íslenskri krónu. Það skapar mjög hagstæða möguleika á að versla í Barcelona sem er stærsta borg við Miðjarðarhaf og þekkt fyrir fjölbreyttar og góðar verslanir. Takmarkaður sætafjöldi er í hverja ferð og því nauðsynlegt að panta strax. Við sendum verðlista og bæklinga og lánum video- spólur. Þá viljum við minna á: 1) Ferðir okkar í ensku, frönsku, þýsku, spönsku og ít- ölsku skólana sem bjóða ungum sem öldnum styttra og lengra nám við þeirra hæfi á gullfallegum stöðum þar sem hægt er að tvinna saman orlof og hagnýta sér nám um leið. Vikulegar ferðir til Búlgariu um Frankfurt, Kaupmannahöfn eða London. Dvalist á góðum hótelum Grand hótel Varna, Dobrud- sja, Bratislava eða sumarhúsum Villa Yug. Þar er hægt að fá ódýrar tannviðgerðir, heilsurækt og versla ódýrt. Skoðunarferðir m.a. til Istanbul og Kaíró. íslenskur fararstjóri. Unnur Mila Þor- geirsdóttir, sem talar búlgörsku. CONfUMTÖ UíSIDFMCIAI Vinsælar ferðir til Ermarsundseyjanna Jersey og Guernsey, sem liggja skammt undan Frakklandsströnd, Bretagneskaga. Veðursælar, ágætar gistingar og matur. Enginn V.A.T., söluskattur, og því hagstætt að versla þar. Þá skipuleggjum við ferðir til Ungverjalands. Hægt að fara hvaða dag sem er, annaðhvort með SAS eða Flugleiðum og Malev. Við bjóðum úrval góðra hótela í Búdapest og hægt er að fara í skipulagðar ferðir með umboðsmönnum okkar í Ungverja- landi, Malevairtours, m.a. á Pústuna, þaðan sem gúllasið er upprunnið. Siglingar um Dóná. Kanaríeyjar: Við bjóðum ferðir þangað, til Playa del Inglés, allan ársins hring enda er þar eilíft sumar. Vetrarverðið er komið og getum við tekið á móti pöntunum nú þegar. Flogið er samdægurs í gegn- um Amsterdam með Flugleiðum og Transavia. Fjölbreyttar og góðar gistingar. Skíðaferðir til Austurrikis. Við bjóðum uþp á fjölda gistinga i St. Johann, Kitzbuhel, Zell am See eða Innsbruck næsta vetur. Nauðsynlegt er að panta snemma þar sem gistingar eru fáar. Að lokum viljum við minna á að við erum umboðsmenn Flug- leiða og fjölda ferðaskrifstofa um allan heim og getum því útveg- að yfirleitt flest það er beðið er um. Reynið viðskiptin. Engar aukasporslur í verði. Skrifstofa okkar er opin alla virka daga frá kl. 8.00-17.00 og laugardaga frá kl. 9.00-12.00. mi 68 62 55. Fax 688 518. Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.