Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Síða 9
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993
9
/
Valgerður Helga Schopka tískuhönnuður er boðin í brúðkaup í Vatíkaninu
í haust þar sem hún mun hugsanlega hitta páfann. DV-mynd BG
íslenskur tí skuhönnuður vinnur til verðlauna í Róm:
Er boðin í brúð-
kaup í Vatí kan-
inu í haust
„Ég komst í kynni við stúlku úti í
Róm sem er læknismenntuð. Hún er
að fara að giftast syni einkalæknis
páfans og ég fékk boðskort í brúð-
kaupið hennar, en það fer fram í
Vatíkaninu. Ég mun að sjálfsögðu
mæta í þaö brúðkaup, enda verður
það eflaust upplifun," sagði Valgerð-
ur Helga Schopka, sem er að ljúka
háskólanámi í tísku- og búninga-
hönnun í Róm í haust. Valgerður
hefur unnið til verðlauna í námi sínu
á Ítalíu og vakið athygli fyrir hönnun
sína á fatnaði.
„Það mætir stór hluti yfirstéttar-
innar á Ítalíu í brúðkaup vinkonu
minnar, furstar, prinsar og annað
yfirstéttarfólk. Aðalhnn er fjölmenn-
ur á Ítalíu.
Það er ekki ljóst hver mun sjá um
að gefa brúðhjónin saman en til
greina kemur að það verði sjáifur
páfinn. Brúðkaupið er ansi umsvifa-
mikið, þegar ég síðast frétti voru
komnir 450 gestir á boðshstann.
Brúðurin er nú að láta sauma á sig
kjól sem mun kosta um 600 þúsund
krónur. Það er hátt verö á íslenskan
mæhkvarða en þykir ekki tiltökumál
þar.
Allir þeir gestir, sem ekki eru bú-
settir í Róm, verða hýstir á bestu
hótelum Rómaborgar á kostnað gest-
gjafa. Ahir karlmenn, sem mæta í
brúðkaupið, eru skyldaðir til að
mæta í viðhafnarklæðnaði sem geng-
ur næst kjólfatnaði að virðuleik."
Læknisnám eða
tískuhönnun
„Ég útskrifaðist úr náttúrufræði-
dehd MR. Þegar ég var yngri var ég
að velta því fyrir mér að læra annað-
hvort læknisfræði eða tískuhönnun
en þegar ég útskrifaðist úr mennta-
skóla var ég loks búin að gera upp
við mig að fara í tískuhönnunina.
Ég vann í eitt ár héma heima aö
loknu menntaskólanámi á meðan ég
aflaði mér upplýsinga um nám á ítal-
íu. Meö hjálp konsúlsins fékk ég fuht
af heimilisföngum og valdi skóla í
Róm sem mér leist vel á, þar sem
boðið var upp á fjögurra ára nám á
háskólastigi. Ég valdi nám í tísku-
og búningahönnun."
Eini útlendingurinn
„Mér hefur bara gengið nokkuð vel
í náminu. Á þriðja ári í skólanum
var haldin samkeppni meðal nem-
endanna og þar var ég valin besti
nemandinn af þeim sem voru á þriöja
ári. í lok fjórða ársins var haldin
tískusýning á vegum skólans sem
jafnframt var keppni meðal nemend-
anna.
Ég var eini útlendingurinn sem tók
þátt í þeirri sýningu, sneið og saum-
aði öh fötin sjálf. Mér tókst einnig
að vinna í þeirri keppni og er eini
útlendingurinn sem unnið hefur frá
upphafi. í framhaldinu fékk ég tvö
atvinnutílboð en var svo óheppin að
veikjast og af þeim sökum hef ég
verið nokkurn tíma frá námi:-
Ég er nú að vinna að lokaritgerð-
inni og mun ljúka henni nú í októb-
er. Lokaritgerð mín fjallar um kven-
hárgreiðslur á rókókótímabihnu á
dögum Loðvíks 16. Það er ómögulegt
að segja hvað tekur við hjá mér að
loknu námi, það getur vel verið að
ég starfi erlendis að faginu ef gott
thboð fæst og ég fæ ekkert að gera
heima," sagði Valgerður Helga.
Ifolvo - mest seldi vörubíll á íslandi.
Loksins alvöru 4x4 vörubíll á íslandi!
Kynnum Volvo FL-10 4X4 vörubílinn sem
beðið hefur verið eftir og HIAB 125-4
vörubílskfana með aukahlutum.
Þú getur reynsluekið Volvo FL-10
4x4 á eftirtöldum stöðum:
BRIMBORG
FAXAFENI8 • SIMI 91 - 68 58 70
23.8. Vík í Mýrdal
Kirkjubæjarklaustur
Höfn í Hornafirði
Djúpivogur
24.8. Breiðdalsvík
Stöðvarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Reyðarfjörður
Eskifjörður
Neskaupstaður
25.8. Seyðisfjörður
Egilsstaður
Vopnafjörður
Bakkafjörður
26.8. Þórshöfn
Raufarhöfn
Kópasker
27.8. Húsavík
Mývatnssveit
30.8. Akureyri
31.8. Dalvík
Ólafsfjörður
Siglufjörður
Hofsós
1.9. Sauðárkróku
Skagaströnd
Blönduós
Hvammstani
2.9. Borgarnes
Akranes
3.9. Grindavík
Keflavík