Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Side 23
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 Birna Willardsdóttir ásamt stúlkunni sem farðaði hana daglega fyrir mynda- tökur. Sigurvegari keppninnar, Veronica Blume frá Spáni, þykir sláandi lík Birnu Willardsdóttur. Birna ásamt Lovisu og Bob Ruesch sem hún bjó hjá fyrir og eftir keppn- ina. „Þau tóku frábærlega vel á móti mér.“ Supermodel of the World: Lærdómsrík og skemmtileg keppni - segir Bima Willardsdóttir sem er nýkomin heim frá Flórída Birna í hópi nokkurra stúlkna sem þátt tóku í keppninni. „Þetta var alveg frábær ferð og skemmtileg reynsla. Mér fannst samt að ég væri ekki nógu vel undirbúin, sá eftir að hafa ekki farið í einhverja líkamsrækt," segir Birna Willards- dóttir, Fordstúlkan sem er nýkomin heim frá Orlando í Flórída þar sem hún tók þátt í keppninni Supermodel of the World. „Þetta var allt mjög framandi. Ég bjó hjá hjónunum Lo- vísu og Bob Ruesch, en þau reka ferðaþjónustu fyrir íslendinga, í tvo daga áður en ég hitti keppendur. Það var mjög gótt því þá gat ég vanist hitanum. Þau tóku mjög vel á móti mér. Strax og ég mætti til keppni hófst mikill undirbúningur. Við þurftum að máta föt og ljósmyndatökurnar byrjuðu. Þetta var allt vel skipulagt. Að sumu leyti fannst mér þetta þó erfitt þar sem ég var svo mikill ný- hði í þessu,“ segir Birna. • Hún segir þó að undirbúningurinn hafi verið léttari en hún hafði búist við. „Við þurftum ekki að vakna fyrr en sjö til átta á morgnana. Þá fórum við í förðun og undirbúningur fyrir daginn byrjaði. Við fengum þó ekki að borða hvaö sem við vildum því á öllum veitingahúsum sem við kom- um á var sérstakur heilsumatseðill fyrir okkur. Maður varð því að sætta sig við salat og kjúklinga," segir Bima. Sú spænska sigraði Alls vom 38 keppendur frá jafn mörgum löndum sem tóku þátt í keppninni sem fram fór í Disney- MGM stúdíóinu í Orlando. Stúlkurn- ar mættu í keppnina 28. júh en hún fór fram að kvöldi 5. ágúst. Sigurveg- ari reyndist vera spænsk stúlka, Ver- onica Blume, 16 ára. Hún fékk í verð- laun tæplega átján mihjóna króna (250 þúsund dala) samning við Ford Models skrifstofuna í New York og ítalska skartgripi að verðmæti átján hundmð þúsund krónur (25 þúsund dala). Stúlkan sem varð í öðru sæti, Magdalena Wrobel frá Póllandi, fær samning upp á tíu mihjónir króna og enska stúlkan, Michelle Be- hennah, fær samning upp á rúmar fimm mhljónir. Keppninni um súpermódelið var sjónvarpað um Bandaríkin en þátt- urinn er einnig sýndur í Frakklandi. Kynnar kvöldsins vom Fordfyrir- sætan fræga Rachel Hunter, sem er ekki síst fræg fyrir að vera eiginkona Rods Stewart, og Walt WiUey leikari í þáttunum AU My ChUdren. Fransk- ur kynnir var Veronica Webb. „Það vom talsverðar æfingar hjá okkur fyrstu dagana. Við þurftum að velja réttu kjólana og athuga hvort þeir pössuðu. Síðan vorum við settar í alls kyns Hollywoodbúninga með miklu skrauti, farðaðar mikið og sett á okkur gerviaugnhár í kynn- ingaratriði fyrir sjónvarpsþáttinn. Það var æðislega skemmtílegt. Reyndar var mjög heitt og svitinn lak af manni í öllu fjaðraskrautinu þarna í Disneygarðinum þar sem þetta var tekið upp.“ AUar stúlkumar vora einnig ljós- myndaðar sem fyrirsætur. Bima var bæði mynduð htið förðuö og eðlileg og svo aftur mikið förðuð og skreytt. Mér fannst auðveldara að vera sú mikið málaöa heldur en ég sjálf,“ segir hún. Góðarvinkonur Birna segir að keppendur hafi kynnst ágætlega meðan á öUu þessu stóð. Sumar töluðu ekki ensku og áttu því erfitt með að gera sig skUjan- legar. Birna kynntist best stúlkunum frá Belgíu, Singapore og Króatíu. Þetta vom „mínar týpur" en aðrar voru eins og þær væru búnar að vinna við fyrirsætustörf í mörg ár og áttu auðvelt með að trana sér fram. Ég held að ég hafi verið frekar bakatil," segir Birna. „Við bjuggum á mjög flottu hóteh sem var við Disneygarðinn. Flesta daga vorum við í garðinum sjálfum enda fóru allar tökurnar fram í hon- um. Það fór líka talsverður tími í að æfa innkomuna á sviðið fyrir úrslita- kvöldið. Okkur var skipt í hópa og í raun var hver látin sigra einu sinni þannig að allar væru vissar um hvað gera skyldi á sigurstundu," heldur Birna áfram. Á úrshtakvöldinu var troðfuUur salur af fólki að horfa á keppnina og meðal áhorfenda vom móðir Birnu, amma, bróðir hennar, móðursystir og fólkið sem þau bjuggu hjá, Lovísa og Bob. „Það var mjög gott að vita af þeim í salnum," segir Birna. „Við höfðum ákveðið að eiga nokkra daga eftir keppnina til að skoða okkur um og það voru líka skemmtilegir dagar. Við skoðuðum alla skemmtigarðana og höfðum nóg að gera í þá tíu daga sem við vorum úti. Mér finnst ég hafa séð-svo margt að ég gæti hafa verið úti í marga mánuði," segir hún. Starf í Hamborg Soni Ekvall, sem rekur umboðs- skrifstöfu í Hamborg í samvinnu við Ford Models, hefur boðið Birnu aö senda til sín myndir og gæti komiö th greina að hún fengi starf hjá henni. Soni hefur verið dómari í Su- permodel of the World frá upphafi og hafa nokkrar íslenskar stúlkur starfað hjá henni. Má þar nefna Fordstúlkurnar Helgu Melsted og Ágústu Hilmarsdóttur. Þá hafði Eile- en Ford á orði aö Birna væri velkom- in til New York en fyrst þyrfti hún að léttast. Eileen er mjög ströng á að fyrirsætur hennar séu í „réttri“ þyngd. „Mér fannst mjög gaman að kynn- ast þessu öllu. Ég get vel ímyndað mér að starf fyrirsætna sé spennandi en erfitt. Ég kunni vel við það fólk sem ég kynntist, t.d. ljósmyndara. Vissulega er þetta þó allt mjög ólíkt því sem ég þekki. En ég gæti vel hugsað mér að leggja starfið fyrir mig,“segirBirna. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.