Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993
DV heimsækir sr. Halldór Reynisson í Hruna, fyrrverandi forsetaritara:
Þá gætum við alveg
eins haft trúða
- Halldór í viðtali um íslenska fjölmiðla, preststarfið og lífið í sveitinni
Hrunadansinn
ið“ í Hruna. Á fáum dögum tókst
Halldóri að kynna sig fyrir Hruna-
mönnum og svo fór að hann náði
kosningu, var með nokkrum atkvæð-
um meira en næsti maður.
Aðspurður sagði Halldór að for-
setaritarastarfið hefði verið mjög
ánægjulegt og einkar gott að vinna
með Vigdísi. I starfinu kynntist Hall-
dór fjölda fólks, m.a. í forsetaheim-
sóknum innanlands og erlendis. Sá
atburöur sem stendur upp úr í huga
Halldórs er leiðtogafundurinn í
Höfða í október 1986. Halldór sagði
að sér hefði komið mest á óvart hvað
Reagan Bandaríkjaforseti hefði verið
lítilfjörlegur persónuleiki og Gorb-
atsjov hreinlega borið af í saman-
burði. „Reagan var algjörlega stjóm-
aö af hans aðstoöarmönnum. Á um-
ræðufundum var hann meö miða frá
aðstoðarmönnunum með því sem
hann átti að segja. í kurteisisheim-
sókn á Bessastöðum tók hann t.d.
upp miða sem á stóð að Flugleiðir
hefðu nýlega hafið áætlunarflug til
Baltimore í Bandaríkjunum. Hann
fór að tala um hvaö þetta væri nú
gott mál og þar fram eftir götunum.
Þessu var allt öðruvísi farið með
Gorbatsjov. Hann talaði frá hjartanu
og þurfti enga aðstoðarmenn til að
segja sér hvað hann ætti að segja,“
sagði Hallór.
í fullum gangi
Kirkjusetrið ber með sér að þar býr
athafnafólk. Búið er að færa tfi veg,
sem nánast lá í gegnum íbúðarhúsið,
og girða aö nýju. Hrunakirkja og
umhverfi hennar hefur verið tekið í
gegn. Nýtt safnaðarheimili er í bygg-
ingu og þannig mætti lengi telja.
HaUdór og íjölskylda hafa í umsjá
stóra jörð, alls 500 hektara, og þau
búa með 40 kindur, nokkur hross og
hænsn.
Launakjör presta hafa oft verið til
umræðu en Halldór vildi ekki vera
að úttala sig um þau. Hann sagði að
mönnum, sem færu í guðfræði og
ætluðu sér að verða prestar,' ætti að
vera það Ijóst að þeir væru að fara
út í störf sem væru ekki sérstaklega
vel launuð. Þess vegna þyrfti líka
töluverða hugsjón til.
Með prestsstarfinu hefur Halldór
að sjálfsögðu sinnt búskapnum og
stundað kennslu. Þá hefur hann
haldið við þekkingu sinni og reynslu
á sviði fjölmiðla með þáttagerð fyrir
útvarp og greinaskrifum í blöð.
Staðfestulaust
þjóðfélag
Þar eð Halldór býr fjarri hringiðu
stjómmálanna í Reykjavík var hann
KORTHAFAR
fá 15% afslátt eins og þeir sem greiða smáauglýsingar út í hönd
með beinhörðum peningum. Það eina sem þú þarft að gera er
að hringja og smáauglýsingin verður færð á kortið þitt. Það er
gamla sagan: Þú hringir, við birtum og það ber árangur!
Smáauglýsingadeild DV er opin:
Virka daga kl. 9.00-22.00
Laugardaga kl. 9.00-16.00
Sunnudaga kl. 18.00-22.00
Athugið:
Auglýsing í helgarblað DV þarf að berast
fyrir kl. 17.00 á föstudag.
SMAAUGLYSINGAR
SÍMI 63 27 00
Þingeyingar Suður-
lands
Til að byrja með var ekki úr vegi
að spyria Hrunaklerkinn hvernig
fiölskyldunni liði í sveitinni. „Flutn-
ingurinn í sveitina sýndi að okkur
vantaði ákveðinn lit í litrófið. Þetta
er algjörlega nýr heimur og ný
reynsla fyrir mig, borgarbúann. Lífið
og hugsunarháttur fólks er á margan
hátt ólíkt hér og í borginni. Maður
kemur inn í aðrar aðstæður og mér
finnst gaman að glíma við þær.“
Halldór segir að það sé gott að
starfa með Hrunamönnum. „I þeim
býr stolt og metnaður. Enda hefur
verið sagt um Hrunamenn að þeir
séu Þingeyingar Suðurlands því það
er nú stundum sagt að Þingeyingar
séu ánægðir með sig og stoltir. Það
er svolítið til í þessu því hér býr
mikið dugnaðarfólk og góðir bænd-
ur.“
Fjölskyldan í Hruna bregður á leik þar sem Hrunadansinn á að hafa verið stiginn á sínum tíma. Fremst fer tíkin Fóa og á eftir henni, frá vinstri, koma Guðrún
Þ. Björnsdóttir, eiginkona Halldórs, Björn Reynir, 4 ára, barnfóstran Lilja Kaye, Nanna Hlín, 8 ára, sr. Halldór og Bjarki Gunnar, 12 ára. , DV-myndir GVA
Halldór þjónar á sjöunda hundrað
sóknarbörnum í tveimur sóknum
auk þess sem hann messar nokkrum
sinnum á ári í Tungufellskirkju. Sú
kirkja er sérstök að því leyti að
Tungufell er sá bær á landinu sem
stendur fiarst sjó.
Heimildir eru fyrir því að kirkja
hafi fyrst risið í Hruna í kringum
1200. Kirkjan sem þar stendur núna
var reist 1865 og verður því 130 ára
eftir tvö ár. Pjölmargir þekktir kapp-
ar hafa búið í Hruna. Meðal þeirra
skal nefna Þorvald Gissurarson og
son hans Gissur jarl sem þar bjuggu
á síðari hluta 12. aldar og fyrri hluta
13. aldar. Þekkt þjóðsaga segir frá
dansinum í Hruna er kölski á að
hafa dregið gömlu kirkjuna niður
með öllum sem þar voru. Þegar kom-
ið er upp á klettahæðina, sem staður-
inn dregur nafn sitt af og þar sem
kiijan á að hafa staðið, sést óneitan-
lega móta fyrir dæld í hæðina. En
hvort það sannar nú þjóðsöguna skal
ósagt látið, a.m.k. vildi HaUdór fara
varlega í að samþykkja það!
Framkvæmdir
Skammt frá Flúðum er hinn forni
og merki kirkjustaður, Hruni í
Hrunamannahreppi. Þar hýr sr.
Halldór Reynisson, fyrrum forseta-
ritari, og fiölskylda hans. Halldór
hefur verið prestur í Hruna í 6 ár,
síðan hann hætti sem forsetaritari
um áramótin 1986-87. Þegar DV-
menn voru á ferð á Flúðum á dögun-
um þótti tilvalið að taka hús á Hall-
dóri og fiölskyldu. Hann er hér í
spjalli við helgarblað DV um prests-
starfið, forsetaritaratíðina, fiölmiðla,
lífið í sveitinni og margt fleira.
Áður en Halldór tók prestvígslu í
desember 1986 hafði hann verið rit-
ari Vigdísar Finnbogadóttur forseta
í ein 5 ár og blaðamaður þar áður á
Tímanum og Vísi. Auk þess að vera
guðfræðingur er Halldór með mast-
ersgráðu í fiölmiðlafræði frá Indi-
ana-háskóla í Bandaríkjunum. Hall-
dór er kvæntur Guðrúnu Þ. Bjöms-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
Leiðtogafundurinn '
Stökkið var óneitanlega mikið fyrir
Halldór fyrir 6 árum. Hann fór nán-
ast beint frá leiðtogafundi Reagans
Bandaríkjaforseta og Gorbatsjovs,
leiðtoga Sovétríkjanna sálugu, í
stutta kosningabaráttu um „brauö-