Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Side 50
58
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993
fFrá Borgarskipulagi
Reykjavíkur
Athafnasvæði Laugarnesi
Tillaga að deiliskipulagi á athafnasvæði sem afmark-
ast að vestan að vesturmörkum lóðar Tollvöru-
geymslunnar í Reykjavík, að norðan að nýrri götu
sem mun tengja saman Héðinsgötu og Sundagarða,
að austan að austurmörkum lóðarinnar Sundagarðar
2 og sunnan að Sæbraut. Tillagan er auglýst sam-
kvæmt grein 4.4 í skipulagsreglugerð.
Uppdrættir og greinargerð verða til sýnis hjá Borgar-
skipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð, kl. 9.00
til 16.00 alla virka daga frá 23. ágúst til 17. septemb-
er.
Athugasemdum, eða ábendingum, skal skila skriflega
til Borgarskipulags fyrir 17. september.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests
teljast samþykkir tillögunni.
Sjúklingar með mikinn læknis-
og lyfjakostnað, athugið!
Umsóknarfrestur vegna endur-
greiðslu er til 1. sept. nk.
Sjúklingum, sem orðið hafa fyrir miklum útgjöldum
vegna læknisþjónustu og lyfja fyrstu sex mánuði
ársins 1993 er bent á að snúa sér til Tryggingastofn-
unar ríkisins eða umboða hennar og sækja um endur-
greiðslu á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 1. sept.
nk. Umsókn þurfa að fylgja kvittanir vegna útgjalda
fyrir læknishjálp og lyf. Kvittanir þurfa að bera með
sér nafn útgefanda, tegund þjónustu, fjárhæð
greiðslu sjúklings, greiðsludag, nafn og kennitölu
sjúklings. Ef til endurgreiðslu kemur verður endur-
greitt, að hluta eða fullu, fyrir hálft ár í hvert sinn.
Öllum umsóknum verður svarað.
Við mat á því hvort umsækjandi eigi rétt á endur-
greiðslu er tekið tillit til heildarútgjalda vegna læknis-
hjálpar og lyfja hérlendis, auk tekna hlutaðeigandi.
Tryggingastofnun ríkisins
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Siglufirði skorar hér með á gjaldend-
ur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru álögð
1990, 1991, 1992 og 1993 og féllu í gjalddaga til og
með 15. ágúst 1993 og eru til innheimtu hjá ofangreind-
um innheimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki
síðar en 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Gjöldin eru þessi: tekjusk'attur, útsvar, eignaskattur,
sérstakur eignaskattur, slysatryggingagjald vegna
heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnað-
armálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. 1. nr.
67/1971, slysatryggingagjald atvinnurekenda skv. 36.
gr. sömu laga, atvinnuleysistryggingagjald, kirkju-
garðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur
af verslunar- og skrifstofuhúsnaéði, launaskattur, bif-
reiðaskattur, slysatryggingagjald ökumanna, þunga-
skattur skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagning
söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskattur og
miðagjald, virðisaukaskattur af skemmtunum, trygg-
ingagjald af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum,
vinnueftirlitsgjald, vörugjald af innlendri framleiðslu,
aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld, verðbætur á
ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á ógreitt útsvar,
virðisaukaskattur, staðgreiðsla og tryggingagjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum
frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur íjárná-
msgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald-
anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000
fyrir hverja gerð. Þinglýsingargjald er kr. 1000 og
stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs
kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að
gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostn-
að. Jafnframt mega þeir, sem skulda virðisaukaskatt,
staðgreiðslu og tryggingagjald, búast við að starfsstöð
verði innsigluð nú þegar.
Siglufirði, 20. ágúst 1993
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Fréttir
Eyjólfur Konráö Jónsson alþingismaður:
Seinagangur og
aðgerðaleysi í
Rockall-málinu
- segir brýnt aö na skjotri lausn
„Maöur skammast sín nú eiginlega
fyrir seinaganginn og hvað lítið hef-
m- verið gert í málefnum Rockall-
svæðisins frá hendi okkar íslend-
inga,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson
alþingismaður þegar DV innti hann
eftir viðbrögðum við fréttum DV um
að Færeyjar og RockaU-kletturinn
myndijarðfræðilegaheild. „Núverð-
ur að láta hendur standa fram úr
ermum.
Eyjólfur sagði langt síðan samn-
ingaviðræður hófust. íslendingar
hefðu í upphafi haft frumkvæði í
máhnu, löngu áður en náttúruauð-
lindir fundust á svæðinu. Við hefðum
þá boðið Færeyingum að samninga-
borðinu eftir þeim leiðum sem þeir
mættu sjálfir ráða. Áhugi á svæðinu
væri nú stóraukinn og brýnt væri
að ná landi sem fyrst í þessu núkil-
væga máh. Þjóðimar yrðu þó að hafa
samstarf um lausn og sagði Eykon
málamiðlanir vel koma til greina. „í
upphaflega tUboðinu fólst meðal
annars að Færeyingar gætu valið
geröardóm." -DBE
Milljónatjón á skólabyggingu á Selfossi:
Gallar í hlerum stærsta
glugga landsins
Kristján Emaisson, DV, Selfossi:
Bygging Fjölbrautaskóla Suður-
lands státar af stærsta glugga á ís-
landi og er hann rúmlega 1000 m2.
Þetta ferlíki samanstendur af glugga-
skífum sem hver er 3,10x1,17 metrar
og vegur báknið 70 tonn. 28 límtrés-
sperrur halda svo þessu öllu uppi og
vegur hver sperra 3,5 tonn.
Aðeins helmingur hússins hefur
verið tekinn í notkun. Fyrir innan
glerið era gluggahlerar sem leika á
ás þannig að snúa má þeim eftir því
hvemig sóUn skín. Hleramir eru 320
og er þessi „gardína" nokkuö fyrir-
ferðarmikU.
Nýlega var komið að einum hleran-
um sem hafði falUð úr festingum á
gólfinu. Þegar orsakir voru kannað-
ar kom í ljós að Umið, sem heldur
hleranum saman, hafði þomað það
mikið að límingin varð gagnslaus.
Hleramir eru byggðir upp eins og
innihurð en eru nokkuð stærri. Það
er sýnt að alUr hlerarnir em ónýtir
og er búið að taka þá niður. Smíöa
veröur nýja hlera.
Verktakinn sem smíðaði göUuðu
hlerana er hættur starfsemi og ekki
mögulegt að krefja hann um nýja
hlera. Aætlaður kostnaður á nýjum
hlerum er um 2 millj. króna.
Límið, sem heldur hleranum saman, hafði þornað það mikið að límingin
varð gagnslaus. DV-mynd Kristján
Niöurskuröartillögur ráöuneytanna:
Enginn af hausaður en
engum heldur hlíft
- segir Ólafur G. Einarsson menntamálaráöherra
HeUdamiðurskurður mennta-
málaráðuneytisins er fyrirhugaður
600 núlljónir talið frá fjárlögum þessa
árs, miðaö við innbyggðar hækkanir.
Að sögn Ólafs Garðars Einarssonar
menntamálaráðherra samsvarar
þetta um 4% niðurskurði hjá ráðu-
neytinu.
„Það verða engir afhausaðir en
engum heldur hlíft," segir Ólafiu- og
fuUyrðir að ekkert í tiUögum sínum
eigi að valda neinum stórfeUdum
vandamálum. „Um er að ræða al-
mennar aðhalds- og hagræðingarað-
gerðir. Auðvitað verður að leggja
niður einhveija starfsemi." •
í gmnnskólanum verður unnið eft-
ir sömu heimUdum og áður. Enn
verður frestað aukningu vikulegs
kennslutíma og sömu reglur gUda
um ^ölda í bekkjum. Fé tU sér-
kennslu heldur sér þótt sparnaður
þar sé langtímamarkmið. Einhverjar
sameiningar minni skóla verða á
landsbyggöinni. í því felst þó ekki
umtalsverður spamaður fyrir ráðu-
neytið.
Framlög til HÍ verða ekki lækkuð.
Hins vegar má gera ráð fyrir lægri
útgjöldum tU LIN vegna færri um-
sókna um lán en áður. Ekki er gert
ráð fyrir frekari skólagjöldum við
skólann.
Ráðherra boðar þó hagræðingu á
öllum skólastigum. í framhaldsskól-
um verður námsframboði stýrt
þannig að dýrar námsbrautir verða
ekki til boða í hverjum skóla.
Engar róttækar breytingar era í
farvatninu varðandi menningar-
stofnanir. Einkavæðingar eða sölu-
hugmyndir eru ekki á borðum ráð-
herra.
-DBE