Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1993, Síða 13
I
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1993
13
Neytendur
Hvemig á að halda sér í formi?
Vel yfirleitt
einfalda
matargerð
- segir Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona
„Við hjónin hættum að borða kjöt
fyrir 6-7 árum síðan og sjáum ekki
eftir því. Það kom nú eiginlega af
sjálfu sér því starfsins vegna er
slæmt fyrir okkur að borða þungar
kvöldmáltíðir," sagði Tinna Gunn-
laugsdóttir leikkona sem beðin var
um góð ráð varðandi mataræði.
Tinna segist borða fisk og græn-
meti 4-5 sinnum í viku og einstöku
sinnum fuglakjöt. Hún er hrifin af
grófum brauðum og ávöxtum og
borðar yfirleitt mush í morgunmat.
„Ég borða líka dálítið mikið af ostum
og nota rjóma mikið í mat en ijóma-
ostur þykkir t.d. sósur og kemur í
stað hveitijafnings. Yfirleitt vel ég
einfalda matargerð eins og grænmet-
isrétti, grænmetisbökur og pasta.
Allt sem maður er lengi að melta og
losa sig við held ég að sé likamanum
óhollt," sagði Tinna sem ræktar sitt
eigið grænmeti úti í garði.
„Þegar ég var unglingur var
makróbíótískt fæði hluti af hippa-
heimspekinni og ég fylgdi því matar-
æði algjörlega í eitt ár, lagði t.d.
baunir í bleyti og borðaði eingöngu
brún hrísgrjón. Nú er ég ekki mjög
stíf á því en reyni frekar að velja
grófari, hollari og ferskari mat og
sleppi kjöti.“
Tinna sagði að það væru yfirleitt
aldrei til sætindi eða gosdrykkir á
heimilinu en ef hún vildi dekra við
bömin eldaði hún stundum handa
þeim hamborgara þó hún borði þá
ekki sjálf. Hún fékkst til að gefa okk-
ur eftirfarandi uppskrift að nýrri
lúðu með fersku grísku salati.
Lúða með grísku salati:
Leggið tvö ný lúðuflök í eldfast fat.
Kreistið sítrónusafa yfir flökin og
nokkrar smjörkhpur og setjið undir
grill í ofni í 5-7 mínútur.
Gatið nýjar kartöflur með prjóni
2-3svar á hvorri hhð og raðið á disk
í örbylgjuofni. Bakið á mesta styrk í
15-19 mínútur (eftir stærð) og veltið
þeim einu sinni (eftir 7-8 mínútur.)
Sósan með: setjið 'A pela af ijóma,
50-100 g af ijómaosti, sítrónusafa, 1-2
pressuð hvítlauksrif og örhtið fiski-
krydd frá Pottagöldrum í eina skál.
Hitið að suðu í örbylgjuofni og hrær-
ið síðan í.
Salat: skerið niður 4-5 tómata, einn
salatlauk, avókadó og salathöfuð og
látið í skál. Bætið 50-100 g af niður-
skomum Feta-osti útí (fæst í Osta-
búðinni) og helhð u.þ.b. 4 msk. af
olífuohu út á og 2 msk. af hvítvínsed-
iki.
-ingo
Tinna ræktar salat, grænkál og steinselju í garðinum heima en næpur,
kartöflur og fleira I matjurtagarði foreldra sinna. DV-mynd ÞÖK
Skiptibókamarkaðir:
Hægtað
spara þús-
undir króna
I lauslegri könnun neytendasíð-
unnar kom í ljós að gífurlegur verð-
munur getur verið á bókaverði
skiptibókamarkaða. Munað getur
mörg hundmð krónum á sömu bók-
inni, aht efdr því hvaða markaður á
í hlut.
Einn viðmælandi blaðsins nefndi
sem dæmi að mannkynssögubók
kostaði 2.800 krónur á skiptibóka-
markaði einnar bókaverslunarinnar
þegar hún kostaði 2.400 krónur á
skiptibókamarkaði nemendafélags-
ins í skólanum. Enskubók kostaði að
sama skapi 1.187 kr. í bókabúðinni
þegar hún kostaði 840 kr. í skólanum.
Þama munar 347-400 krónum á bók-
ina og því hægt aðspara dágóða upp-
hæð ef verslað er á réttum stað.
Bækumar eru einnig keyptar á
mjög misjöfnu verði og getur einnig
munað rúmum 400 krónum þar á.
Það er því um að gera að vera vak-
andioggeraverðsamanburð. -ingo
Gífurlegur verðmunur getur verið á miili skiptibókamarkaða. Það borgar
sig því að gera verðsamanburð. DV-mynd GVA
Verslxmaf-
Nýlega 'tóku sjö verslanir á
landinu sig saman og mynduðu
verslunarkeðju sem starfa mun á
sviöi Jjósabúnaðar, heimilistækja
og annaira heimihsraffanga. Það
verður því samræmt vöruverð i
öhum verslununuin og áliersla
logö á vomúrval og hagstætt
Verslunarkeðjan hefur hlotið
nafnið Borgarljós-keðjan og sam-
anstendur af Borgarljósi hf. í
Reykjavík, Rafþjónustu Sigur-
dórs á Akranesi, Straumi hf. á
isafiröi, Radíóvmnustofunni á
Akureyri, Sveini Guömundssyni,
rafverktaka á Egilsstöðum, Ár-
virkjanum hf. á Selfossi og Reyni
-ingo
kaupauki
sparaðu með
kjaraseðlum
Kjaraseðillinn gildir í
þeirri verslun sem
tilgreind er hér til
hliðar.Einn seðill
gildir fyrir eitt eintak
af vörunni.
Þessi seðill gildir til:
20. september 1993
eða á meðan birgðir endast
u
1HENRI - LLOYD
LPUR
3.000l<r.
afsiáttur gegn framvísun
þessa kjaraseðils
NÆLON- OG VAXVARÐAR
veðrum. Góðar stæri
igarí
ðir.
þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJ ASLÓÐ 7 1 01 REYKJAVlK S. 91 -621 780
Kjaraseðillinn gildir í
versluninni sem
tilgreind er
hértil hliðar.
15% afsláttur gegn
framvísun þessa
kjaraseðils.
Þessi seðill gildir til:
12. september 1993
m Xillsoð
15% afsiáttur
af öilum vörum
gegn framvísun
kjaraseðiis.
© WÍItlBR
umboðið
Fiskislóð 92-Sími 625815
I