Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1993, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1993, Qupperneq 13
I FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1993 13 Neytendur Hvemig á að halda sér í formi? Vel yfirleitt einfalda matargerð - segir Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona „Við hjónin hættum að borða kjöt fyrir 6-7 árum síðan og sjáum ekki eftir því. Það kom nú eiginlega af sjálfu sér því starfsins vegna er slæmt fyrir okkur að borða þungar kvöldmáltíðir," sagði Tinna Gunn- laugsdóttir leikkona sem beðin var um góð ráð varðandi mataræði. Tinna segist borða fisk og græn- meti 4-5 sinnum í viku og einstöku sinnum fuglakjöt. Hún er hrifin af grófum brauðum og ávöxtum og borðar yfirleitt mush í morgunmat. „Ég borða líka dálítið mikið af ostum og nota rjóma mikið í mat en ijóma- ostur þykkir t.d. sósur og kemur í stað hveitijafnings. Yfirleitt vel ég einfalda matargerð eins og grænmet- isrétti, grænmetisbökur og pasta. Allt sem maður er lengi að melta og losa sig við held ég að sé likamanum óhollt," sagði Tinna sem ræktar sitt eigið grænmeti úti í garði. „Þegar ég var unglingur var makróbíótískt fæði hluti af hippa- heimspekinni og ég fylgdi því matar- æði algjörlega í eitt ár, lagði t.d. baunir í bleyti og borðaði eingöngu brún hrísgrjón. Nú er ég ekki mjög stíf á því en reyni frekar að velja grófari, hollari og ferskari mat og sleppi kjöti.“ Tinna sagði að það væru yfirleitt aldrei til sætindi eða gosdrykkir á heimilinu en ef hún vildi dekra við bömin eldaði hún stundum handa þeim hamborgara þó hún borði þá ekki sjálf. Hún fékkst til að gefa okk- ur eftirfarandi uppskrift að nýrri lúðu með fersku grísku salati. Lúða með grísku salati: Leggið tvö ný lúðuflök í eldfast fat. Kreistið sítrónusafa yfir flökin og nokkrar smjörkhpur og setjið undir grill í ofni í 5-7 mínútur. Gatið nýjar kartöflur með prjóni 2-3svar á hvorri hhð og raðið á disk í örbylgjuofni. Bakið á mesta styrk í 15-19 mínútur (eftir stærð) og veltið þeim einu sinni (eftir 7-8 mínútur.) Sósan með: setjið 'A pela af ijóma, 50-100 g af ijómaosti, sítrónusafa, 1-2 pressuð hvítlauksrif og örhtið fiski- krydd frá Pottagöldrum í eina skál. Hitið að suðu í örbylgjuofni og hrær- ið síðan í. Salat: skerið niður 4-5 tómata, einn salatlauk, avókadó og salathöfuð og látið í skál. Bætið 50-100 g af niður- skomum Feta-osti útí (fæst í Osta- búðinni) og helhð u.þ.b. 4 msk. af olífuohu út á og 2 msk. af hvítvínsed- iki. -ingo Tinna ræktar salat, grænkál og steinselju í garðinum heima en næpur, kartöflur og fleira I matjurtagarði foreldra sinna. DV-mynd ÞÖK Skiptibókamarkaðir: Hægtað spara þús- undir króna I lauslegri könnun neytendasíð- unnar kom í ljós að gífurlegur verð- munur getur verið á bókaverði skiptibókamarkaða. Munað getur mörg hundmð krónum á sömu bók- inni, aht efdr því hvaða markaður á í hlut. Einn viðmælandi blaðsins nefndi sem dæmi að mannkynssögubók kostaði 2.800 krónur á skiptibóka- markaði einnar bókaverslunarinnar þegar hún kostaði 2.400 krónur á skiptibókamarkaði nemendafélags- ins í skólanum. Enskubók kostaði að sama skapi 1.187 kr. í bókabúðinni þegar hún kostaði 840 kr. í skólanum. Þama munar 347-400 krónum á bók- ina og því hægt aðspara dágóða upp- hæð ef verslað er á réttum stað. Bækumar eru einnig keyptar á mjög misjöfnu verði og getur einnig munað rúmum 400 krónum þar á. Það er því um að gera að vera vak- andioggeraverðsamanburð. -ingo Gífurlegur verðmunur getur verið á miili skiptibókamarkaða. Það borgar sig því að gera verðsamanburð. DV-mynd GVA Verslxmaf- Nýlega 'tóku sjö verslanir á landinu sig saman og mynduðu verslunarkeðju sem starfa mun á sviöi Jjósabúnaðar, heimilistækja og annaira heimihsraffanga. Það verður því samræmt vöruverð i öhum verslununuin og áliersla logö á vomúrval og hagstætt Verslunarkeðjan hefur hlotið nafnið Borgarljós-keðjan og sam- anstendur af Borgarljósi hf. í Reykjavík, Rafþjónustu Sigur- dórs á Akranesi, Straumi hf. á isafiröi, Radíóvmnustofunni á Akureyri, Sveini Guömundssyni, rafverktaka á Egilsstöðum, Ár- virkjanum hf. á Selfossi og Reyni -ingo kaupauki sparaðu með kjaraseðlum Kjaraseðillinn gildir í þeirri verslun sem tilgreind er hér til hliðar.Einn seðill gildir fyrir eitt eintak af vörunni. Þessi seðill gildir til: 20. september 1993 eða á meðan birgðir endast u 1HENRI - LLOYD LPUR 3.000l<r. afsiáttur gegn framvísun þessa kjaraseðils NÆLON- OG VAXVARÐAR veðrum. Góðar stæri igarí ðir. þar sem ferðalagið byrjar! SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJ ASLÓÐ 7 1 01 REYKJAVlK S. 91 -621 780 Kjaraseðillinn gildir í versluninni sem tilgreind er hértil hliðar. 15% afsláttur gegn framvísun þessa kjaraseðils. Þessi seðill gildir til: 12. september 1993 m Xillsoð 15% afsiáttur af öilum vörum gegn framvísun kjaraseðiis. © WÍItlBR umboðið Fiskislóð 92-Sími 625815 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.