Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1993 23 Dauði dóttur forsætísráðherra Dana: Lífið varð henni ofraun „Hún er stúlkan í lífi mínu, sú sem stendur hjarta mínu næst,“ var Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Dana, vanur að segja þegar hann var spurður um sambandið við Signe dóttur sína. Nú er Signe látin, féll fyrir eigin hendi mn helgina meðan faðir hennar var í opinberri heim- sókn á Grænlandi. Dönum komu þessi tíðindi að vísu ekki á óvart því að allir vissu að Signe átti við þunglyndi að stríða og var oft rúmfost þess vegna. Samt eru Danir slegnir. Fólk setur hljóðan við þessi tíðindi og menn bíða eftir því að sjá hvernig forsætisráðherra þeirra reiðir af í sorginni. Poul Nyrup hafði alla tíð tekið sjúkleika dóttur sinnar nærri sér. Hann var reiðubúinn að fóma starfs- frama sínum fyrir hana og fyrir nokkrum árum hafnaði hann boði um ömggt þingsæti vegna þess hve dóttir hans var iila haldin. Poul Nymp var þá stjarna á upp- leið í flokki danskra jafnaðarmanna en vildi ekki dreifa kröftunum þegar kom að því að velja milh stjómmála- frama og fjölskyldunnar. Oðm sinni tók hann sér frí frá opinberum störf- um í hálft ár til að aðstoða dóttur sína við lestur undir stúdentspróf. Skilnaðarbam Á síðasta ári flutti Signe að heiman og ætlaði að reyna að standa á eigin fótum eftir að hafa verið upp á fóður sinn og Önnu, síðari konu hans, komin um árabil. Hún hafði búiö hjá Helle Moliemp, móður sinni, fram til 1985 en ákvað að teysta eftir það á foður sinn. Signe hóf nám í líffræði við Kaup- mannahafnarháskóla í fyrra en í haust var lífsbarátta hennar á enda. Lífið varð henni ofraun. Hún varö 24 ára gömul. Menn velta því fyrir sér hvort hjónabandsmál Pouls Nymp valdi einhverju um aö dóttirin lenti í mikl- um erfiðleikum í lífinu. Hann er tví- skihnn og býr nú með Lone Dybkj- ær, flokkssystur sinni. Þessi þáttur harmsögunnar verður þó aldrei skýrður að fuhu; það eina sem menn vita er að Signe álasaöi fóður sínum aidrei svo að vitað sé fyrir að hafa sagt skihð við móður hennar. Signe notaði eftirnöfn beggja foreldra sinna og skrifaði sig Nymp Mohemp. Örlög Signe kunna að hafa óvænt áhrif á dönsku ríkisstjómina. Bæði óttast menn að Poul Nymp hætti þátttöku í stjómmálum og eins voru tveir ráðherrar í stjóminni nánir vinir hennar. Það em þau Mogens Lykketoft fjármálaráðherra og Jytte Ifilden menntamálaráðherra. Þau hafa að sögn tekið dauða Signe mjög nærri sér. Mogens hefur síðustu daga tekið að sér að svara opinberlega spumingum um framtíðaráform for- sætisráðherrans. Hann fullyrðir að aht verði óbreytt. Ósnertanlegur Stjórnarandstæðingar hafa til- kynnt að nú verði vopnahlé í dönsk- um stjórnmálum. Hans Engeh, leið- togi íhaldsmanna, lýsti dauða Signe sem hræðilegum hamileik og í opin- berri yfirlýsingu frá Vinstri flokkn- um sagði að póhtískar deilur væm ómanneskjulegar eins og á stæði. Menn hugsa einnig til þess að að- eins eru hðnir þrír mánuðir frá því að Olof, faðir Pouls Nymp, lést. Hann var 83 ára gamall og þá sáu menn ekki ástæðu til að gefa forsætisráð- herranum grið. Hann átti í aht sumar í höggi við sína eigin flokksmenn vegna væntanlegs fj árlagafmmvarps og andstæðingarnir vönduðu honum ekki kveðjumar að venju. Nú velta Danir því fyrir sér hvort stjórnmáhn séu ekki orðin ómann- eskjuleg þegar dauðsfoh í fjölskyld- um stjómmálamanna breyta engu Feðginin í (immtugsafmæli Pouls Nyrup í sumar. um hörkuna sem þeir era beittir. í sumar virtist enginn hugsa út í þaö en nú era allir á einu máh um að tími sé kominn th aö gera vopnahlé. Nú um helgina verða danskir jafn- aðarmenn á ráðstefnu um fjárlögin. Poul Nyrup er nú kominn í sömu aðstöðu og Gro Harlem Brundtland var í innan norska Verkamanna- flokksins. Þeir fáu flokksmenn Pouls Nymp sem hafa tjáð sig beint um stöðuna segja að hann muni standa þetta áfah af sér og halda áfram að leiða flokk- inn. Jafnframt neitar enginn að sam- skipti forsætisráðherrans og flokks- manna hans verða ekki söm og áður því stjómmálamaður, sem orðið hef- ur fyrir miklu áfalh, verður um leið ósnertanlegur. -GK Signe Nyrup Mollerup var 24 ára þegar hún lést. Hún hafðl um árabll átt við þunglyndi að stríða og um siðustu helgi ákvað hún að stytta sér aldur. Gro Harlem Brundtland, forsæt- Isráðherra Noregs. PouINyrup sporumog Gro Harlem Böm tveggja forsætisráöherra á Noröurlöndum hafa framið sjálfsmorð á skömmura tíma. At- vik voru með sama hætti í báðum thvikum og afleiðingamar gætu einnig orðið þær sömu. Gro Harlem Bmndtland, for- sætisráðherra Noregs, bar harm sinn vel eftir að sonur hennar styiti sér aldur síðasta sumar. Hún ákvað að iáta sem allt væri óbreytt. Þar kom þó aö þvi að stíflan brast á flokksþingi norska Verkamannaflokksins í vor. Þá gerði hún flokkssystkinum sínum grein fyrir hvemig henni væri innanbtjósts og sagði af sér formennsku í flokknum. Flokks- menn voru steini lostnir og um- ræður fóm ahar út og suöur. Eft- ir á var hún sökuð uro að hafa nýtt sér samúðina tíl að þagga niður í andstæðingum sínurn inn- an flokksins. Flestum þótti þó hla gert að geta sér þess th. Nú er Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráöherra Dana, í sömu aöstöðu. Hann hefur misst dóttur sviplega. Það var eina barnið hans en Gro á þó þijú á lífi. í báðum tilvikum hefur sjúk- leika verið kennt um dauða barn- anna en nú velta menn bæði í Danmörku og Noregi þvi fyrir sér hvort börn æöstu manna alist ekki upp við ómanneskjulegar aðstæður. ” „HEYRÐU“ ~ Innritun er hafrn í símum 642535 og 641333 BARNADANSAR og leikir, bamajaZZ og leikir (3 ára yngst). SAMKVÆMIS- og GÖMLU DANSARNIR barna, einstaklings- og hjónahópar, byrjendur og framhald. SALSA OG SUÐRÆNIR heitir tímar fyrir alla. SVING, TJÚTT, ROKK mikið fjör. JAZZ/FUNK f/unglingana. NÝTT NÝTT tímar fyrir alla fjölskylduna sam- an um helgar, samkvæmis-, gömlu dansarnir og það nýja! DISKÓ fyrir fyrrum unglinga! SEPTEMBERTILBOÐ leikfimi/eróbikk, 10 tímar ljós 7.500 kr. Fjöl- skyldu- afsl. Gesta- kennari VERNON KEMP. KENNSLUSTAÐIR: KÓPAVOGUR, Smiðjuvegur 1, 2 salir. HAFNARFJÖRÐUR, íþróttahús v/Strandg. SELTJARNARNES, Austurströnd 3 ÁLFTANES, íþróttahús „DANSARINN“ Supadance skór, fatnað- ur, tónhst, sala/leiga. Dansskólinn Dagný Björk & Óli Geir DSÍ - DÍ - ICBD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.