Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Side 28
28
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1993
íslensku bræðurnir Arnar, 11 ára, og Rúnar, 12 ára, slá í gegn í Noregi:
, ,The Boys" - æðið
í algleymingi
Það var þröng á þingi þegar strákarnir árituðu geisladisk sinn að kvöldi útgáfudagsins, sl. þriðjudag.
Það fór vel á meö Donnu Summer og strákunum sem sungu með henni
tvö aukalög við mikinn fögnuð áheyrenda á Momarken. Þarna eru þau
ásamt tveim dætrum Donnu, stjórnanda sjónvarpsþáttarins, Rune Larsen
og Tor Endresen. DV-myndir Tom Erik Holland o.fl.
Tveir ungir, íslenskir piltar eru að
gera allt vitlaust 1 Noregi. Dagblöðin
birta viðtöl við þá dag eftir dag, út-
varpsstöðvamar eru undirlagðar af
viðtölum og söng þeirra og fyrsta
platan þeirra, sem kom út síðastlið-
inn þriðjudag, hafði verið pöntuð fyr-
irfram í 73.000 eintökum. Slíkt er al-
gjört einsdæmi í Noregi. Norskir
fjölmiðlar tala um „The Boys-feber“,
eða „Boys-æðið“ og útvarpsstöðvar
efna til sérstakrar „Boys-viku“. Póst-
urinn neitar að bera bréfaflóðið frá
aðdáendum strákanna heim til
þeirra, það sé svo mikiö að foreldr-
arnir verði að sjá um flutninginn.
Símanúmerið þeirra gengur kaupum
og sölum, einkum milii ungra
stúlkna, og gangverðið er 10 krónur
norskar. Og síminn á heimilinu
stoppar ekki allan liðlangan daginn.
Þessir tveir piltar, sem hafa sett
Noreg á annan endann, heita Rúnar,
12 ára, og og Amar, 11 ára. Þeir em
synir hjónanna Halldórs Kristins-
sonar og Eyrúnar Antonsdóttur sem
búsett em í Þelamörk í Noregi. HaU-
dór þekkja flestir sem Dóra í Tempó
og síðan í Þrem á palli. Eyrún hefur
einnig staðið á sviði því hún lék á
sínum tíma í ævintýraleiknum Litlu
Ljót eftir Hauk Ágústsson og fór þar
með aðalhlutverkið. Þetta leikrit var
feiknavinsælt á sínum tíma og muna
vafalaust margir eftir því.
Sækja söngnáttúruna
til foreldranna
Það var 4. janúar 1987 sem fjöl-
skyldan flutti út til Noregs. Eyrún
hafði áður dvalið þar um hríð og
langaði alltaf til að setjast þar að um
stundarsakir að minnsta kosti. Það
tók hana fimm ár að telja Halldór á
að slá til. Svo fór að fjölskyldan tók
sig upp flutti út og býr nú í Skjelsvik.
Halldór er framkvæmdastjóri fyr-
irtækis sem selur símabúnað, tölvu-
og skrifstofubúnaö og fleira af því
tagi til Afríku. Eyrún er lyíjatæknir
og vinnur í sjúkrahúsapóteki í Skien.
„Ég hugsa að strákamir sæki þessa
söng- og sviðsnáttúm til beggja for-
eldranna," sagði Eyrún við DV. „Þeg-
ar ég var lítil var ég alltaf að búa til
leikrit, troða upp og selja inngang í
bUskúmum heima.“
Hún er uppaUn í Efstasundinu,
dóttir Jarþrúðar Pétursdóttur og
Antons L. Friðrikssonar. HaUdór eig-
inmaður hennar, sonur Kristins Sig-
urjónssonar og Rögnu Halldórsdótt-
ur, ólst fyrst upp á Snorrabrautinni
og síðan í Alfheimunum. Hann
stundaði einnig aö búa tíl heUu leik-
ritin og söngleikina og selja svo
krökkum í nágrenninu aðgang. Svo
óx hann upp úr leikritunum og stofn-
aði hljómsveitina Tempó. Honum
dugði ekki að æfa í bUskúrnum hjá
sínum foreldmm, heldur lagði einnig
undir sig bUskúr foreldra Eyrúnar
sem hann þekkti vel þá. Hann var
því heimagangur á heimih foreldra
stelpunnar sem hann átti eftir að gift-
ast nokkmm ámm síöar. Þá grnnaði
engan að örlögin myndu haga því
þannig aö afkvæmi þessara tveggja
fyrrverandi bUskúrsUstamanna
myndu snúa öUu við í Noregi. En sú
er raunin oröin.
Mikið fyrir klassík
Það var raunar snemma ljóst hvert
stefna myndi með þá Amar og Rún-
ar. Þeir em aldir upp við að hlusta
á aUar tegundir tónlistar og eru mjög
mikið fyrir klassík. Grieg er í miklu
uppáhaldi hjá þeim og Pavarotti setja
þeir gjaman á fóninn. Af hinum
vængnum koma svo Bítlamir sem
þeir fengu beint í æð sem ungböm
þar sem faðir þeirra var mikiU Bítla-
aðdáandi.
Þegar Rúnar var þriggja eða fjög-
urra ára fór hann að fljúgast á við
stóran gítar sem pabbi hans á í þeim
tilgangi að fá einhverja tóna út úr
gripnum. Strengimir vom aðeins
þrír sem var feikinóg fyrir svo stutta
putta. Fyrir þrem árum fór HaUdór
svo að kenna honum fyrir alvöra.
Yngri sonurinn, Arnar, fylgdi í kjöl-
farið. •
Þegar bræðumir vom 10 og 11 ára
tóku þeir þátt í árlegri sönghæfi-
leikakeppni Varden/Busk í Þelamörk
í Noregi. Þessi keppni er afar vinsæl
og hefur verið mikil þátttaka í henni
í gegnum árin. Að þessu sinni tóku
um 400 krakkar þátt og samkeppnin
var hörö. Takmarkið var að komast
í hæfileUcasönghóp Varden/Busk,
sem ferðast vítt og breitt um Þela-
mörk og heldur tónleika. Bræðumir
vom meðal átta krakka sem valdir
vom í þann hóp, eins og helgarblað
DV greindi frá á sínum tíma, og þar
með rúUaði boltinn af stað. Tarje
WaUe Busk útgefanda, sem keppnin
er kennd við, leist svo vel á þá að
hann gerði við þá samning tU þriggja
ára. Kveður sá samningur á um að
minnsta kosti þrjár plötur. Sú fyrsta
kom út síðastUöinn þriðjudag, raun-
ar geisladiskur og kassetta, á 6000
stöðum í Noregi samtímis. Sú útgáfa
hefur þegar fengið gífurlega góðar
viðtökur. Þess skal getið að geisla-
diskurinn og kassettan verða tíl sölu
hér en það er Skífan sem mun sjá
um dreifinguna.
„HaUdór aðstoðaði strákana við
gerð plötunnar," sagði Eyrún. „Hann
hefur lagt upp tóntegundir fyrir þá
og sungið raddimar fyrir þá inn á
spólu því þeir lesa ekki nótur. Þann-
ig læra þeir raddimar sínar og
syngja svo saman á eftir. Þeir æfðu
þrjá tíma á dag í nokkrun tíma fyrir
upptökuna og hespuðu henni svo
bara af á einni og hálfri viku.“
Lögin sem Rúnar og Arnar syngja
eru gamalkunn, Bye Bye Love, Wake
Up Little Susie og She Loves You, svo
dæmi séu nefnd. Þessir söngvar, sem
Everly Brothers, Bítlamir og fleiri
sungu svo eftirminnUega, slá nú aft-
ur í gegn í Noregi, að þessu sinni í
flutningi íslensku strákanna með
skæm raddimar og gítarana.
Þeir segjast spenntir að vita hversu
Arnar og Rúnar bregða á leik í her-
berginu heima.
mörg eintök af plötunni seljist fyrstu
vikuna eftir að hún er komin út. „Ég
vona að hún seljist vel,“ segir Rúnar,
„því þá veit ég að fólkinu finnst gam-
an að henni.“
Minnisstætt kvöld
Laugardagskvöldið 21. ágúst 1993 á
vafalaust eftir að verða þeim Arnari
og Rúnari minnisstætt um aldur og
ævi. Þá komu þeir fram í vinsælasta
sjónvarpsþætti Norðmanna á Mo-
marken. Rauöi krossinn í Noregi afl-
ar fiár í tengslum við þennan þátt
þar sem fram koma mjög vinsæUr
skemmtikraftar, erlendir sem inn-
lendir. Að þessu sinni var safnað tíl
hjálpar bömum sem hafa orðið fyrir
kynferðislegri misnotkun. Sviðið á
Momarken er hið stærsta í Skandin-
avíu og þar hafa skemmt heimsfræg-
ir skemmtíkraftar, svo sem Bing
Crosby, Tina Turner, CUff Richard
og fleiri. Að þessu sinni vom um
25.000 manns á staðnum en um tvær
miUjónir fylgdust með útsending-
unni í sjónvarpinu. Þaö var ekki
laust við aö strákamir fengju skjálfta
í hnén þegar þeir komu fram á sviðið
og sáu iðandi mannhafiö fyrir fram-
an það.
„Það var búiö að segja okkur að
það yrði margt fólk þarna," segir
Rúnar, „en við vissum ekki að það
yrði svona margt. Mér brá þegar ég
kom fram á sviðið en viö byrjuðum
strax að syngja svo að ég náði ekki
að verða mjög taugaóstyrkur.“
„Þeir stóðu sig alveg glimrandi,
strákamir," sagði Eyrún. „Þeir voru
á nýjum skóm sem vom dálítið hál-
ir. Þegar þeir tóku upp á því að ganga
um sviðið var ég alveg viss um að
þeir myndu renna til og detta kyUi-
Qatir í beinni útsendingu. En sem
betur fer gerðist það nú ekki. Þeim
var fagnað alveg rosalega þegar þeir
voru búnir að syngja og sumir fjöl-
miðlar sögðu að þeir heföu stolið sen-
unni þetta kvöld."
Aðrir sem skemmtu á Momarken
að þessu sinni vora m.a. Donna
Summer, gamla barnastjaman Ro-
bertino og söngkonan Niamh Kava-
nagh sem vann Evróvision-keppnina
1992. Þau höfðu greinilega gaman af
að hitta þessa tvo hressUegu pilta
með skæm raddimar. Robertíno
spjallaði við þá og sýndi þeim mynd-
ir af börnunum sínum. „Við vorum
mest með honum,“ segir Rúnar. „Við
fómm út með honum til að hægt
væri að taka af okkur myndir fyrir
útsendinguna. Þá kom fullt af stelp-
um og þyrptíst að okkur. Svo kom
bara allt í einu einhver kona og sagði
við Robertino: „O, ert þetta þú, ég
elska þig.“ Svo hætti hún ekki fyrr
en hún fékk mynd af sér með honum.
Donna Summer tók tvö aukalög og
fékk þá Arnar og Rúnar til þess að
syngja með sér. Þá ætlaði bókstaflega
allt um koU að keyra. Áhorfendur
blístmðu, hrópuðu, stöppuðu og
klöppuðu hver sem betur gat. Á eftir
bauð Donna strákunum upp á her-
bergið sitt á Hotel Plaza, en á því
hóteh bjuggu þeir einnig meðan þeir
dvöldu í Osló. Þeir spjölluðu drykk-
langa stund Donnu og tvær dætur
hennar sem voru með henni. Norsku
blöðin gerðu mikið úr þessu og birtu
myndir af Arnari og Rúnari ásamt
þessum frægu gestum. Skriðan var
komin af stað og nú ganga allir ungl-
ingar sem eitthvert vit er í með
Boys-derhúfur og í bolum merktum
The Boys. Útvarpsstöðvarnar hafa
hringt linnulaust dag eftir dag og
tekið við þá viðtöl í síma sem send
hafa verið beint út.
„Mér finnst allt í lagi þegar hringt
er í okkur frá útvarpsstöðvunum.
Stundum spyrja útvarpsmennimir
okkur fáránlegra spuminga og
stundum skil ég ekki allt sem þeir
segja," segir Arnar. „En þá útskýra
þeir það bara fyrir mér og þá er þetta
allt í lagi.“
„Okkur finnt þetta rosa skemmtí-
legt,“ segir Rúnar. „Við emm stund-
um dálítið taugaóstyrkir og hræddir
um að gera eitthvað vitlaust. Stund-
um vöndum við okkur svo við söng-
inn að við gleymum gripunum. En
við jöfnum okkur alltaf í fyrsta lag-
inu.“
„Það er dálítið erfitt að læra radd-
irnar,“ bætir Amar við, „en það er
ógeðslega skemmtilegt að syngja. Ég
er alveg hættur að vera taugaóstyrk-
ur því ég er orðinn svo vanur að
syngja opinberlega."
Skólinn gengur fyrir
En lífið er ekki bara söngur og nú
eru bræðumir komnir á fullt í skól-
anum sem byrjaði 18. ágúst. Þeir
segja að lærdómurinn gangi fyrir
öllu öðm þótt það sé stundum svolít-
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1993
37
Það er mikið sungið á heimilinu, einkum á sunnudagsmorgnum. Þá sest fjölskyldan saman og íslensku lögin eru tekin með trukki. F.v. Rúnar, Halldór, Eyrún og Arnar.
ið erfitt að einbeita sér þegar mikið
standi til. Frægðin eltír þá alla leið
inn í skólastofu því fyrir skömmu
gerði skólastjóri Amars sér htið fyr-
ir og færði honum blóm í tilefni af
velgengni hans á Momarken.
Fram tíl þessa hefur Rúnar starfað
meö skátunum og Arnar æft fótbolta.
Auk þess hafa þeir báðir verið í skák-
klúbbi. Þeir gera ráð fyrir að þurfa
að hætta því núna.
„Við höfum ekki tíma til þess að
mæta á æfingar og skátafundi," segja
þeir. En þeir bæta hvor öðrum þetta
upp því þeir eru mjög samrýndir.
„Við getum samt ekki leikið okkur
eins mikið núna og áöur,“ segir Arn-
ar. „Rúnar var að byrja í unglinga-
skólanum og nú þarf hann að læra
svo mikið heima að hann hefur
minni tíma til að vera með mér. Okk-
ur kemur ágætlega saman en stund-
um rífumst viö þó ef Rúnar má gera
eitthvað sem ég má ekki gera.“
Eyrún segir að það sé passað vel upp
á piltana. Eigi það ekki einungis við
um foreldrana heldur einnig um
Busk útgefanda og konu hans. Raun-
ar eru piltamir komnir með umboðs-
mann þar sem útgefandinn treysti
sér ekki til að sjá einn um málin fyr-
ir þá þar sem þetta er orðið svo um-
fangsmikið. Umboðsmaðurinn heitir
Viggo Lund og hefur á sínum snær-
um alla helstu skemmtikraftana í
Noregi.
„Þessi umboðsmaður er mjög áreið-
anlegur og við treystum honum í
hvívetna,“ sagði Eyrún. „Það hefur
allt að segja að hafa gott fólk í kring-
um okkur. Við erum alls ekkert
hrædd um að þetta sé of mikið fyrir
strákana. Eins og þetta er lagt upp
þá ganga skólinn og námið fyrir og
síöan kemur söngurinn. Viö emm
alltaf með þeim þegar þeir em að
syngja og pössum að ekkert komi
fyrir.“
Það er eins gott því komið hefur fyr-
ir að strákamir hafi átt fótum fjör
að launa. Það gerðist t.d. þegar þeir
komu fram í sjónvarpsþætti Tande-P.
vinsælasta sjónvarpsmanns í Noregi
sunnudaginn 29. ágúst sl. Sjónvarpað
var frá útitónleikum og þegar strák-
amir vom búnir að syngja gerðu
áhorfendur nánast atlögu að þeim. Á
endanum urðu foreldrarnir að fá
verði til þess að veija þá í troðningn-
um og ryðja þeim leið. „Þetta vom
alveg rosaleg læti,“ segir Eyrún.
Eins og fyrr sagði gera aðdáendur
Rúnars og Arnars vart viö sig heima
hjá þeim. Síminn hefur ekki stoppað
undanfarna daga og símanúmerið
hefur hækkað um 100 prósent á fá-
einum dögum. Áður var það selt á 5
krónur norskar en nú kaupa stelp-
urnar það hver af annarri á 10 krón-
ur. Þá hafa blómvendir streymt frá
aödáendum.
„Stelpurnar hringja mjög rnikið,"
segir Rúnar. „Svo virðast afiir þekkja
okkur á götu. Sumir stoppa okkur
og biðja okkur um eiginhandarárit-
un.“
„Stelpurnar em meira á eftir Rúnari
en mér,“ segir Arnar. „En það var
samt ein fimmtán ára sem spurði
hvort hún gæti orðið kærastan mín.
Ég var fljótur að segja nei því hún
var svo gömul.“
Þrátt fyrir vinsældir strákanna úti
segjast þeir sakna íslands svolítið.
„Við söknum ömmu og afa og frænd-
systkina okkar,“ segja þeir. „Svo
sakna ég nammisins," bætir Rúnar
viö. „Mig langar oft í Lindu-buff eða
staur eða eitthvað svoleiðis. Hér er
flest nammið svo súrt.“
Ýmislegt framundan
Það er ýmislegt framundan hjá
þeim Arnari og Rúnari. í kvöld eru
þeir í beinni útsendingu á hinni
norsku Stöð 2 þar sem ungfrú Noreg-
ur verður krýnd. Skömmu síðar
verða þeir á TV Norge, í þættí sem
nefnist Casino. Þá fara þeir milh
markaða og plötuverslana og árita
plötuna sína auk þess sem til stendur
að stofna aðdáendaklúbb um þá með
öhu því tilstandi sem því fylgir. Þann
22. október halda þeir svo upp í fimm
vikna hljómleikaferð um Noreg
þveran og endhangan. Þá bendur
ýmislegt th þess að þeir komi innan
skamms fram hér heima, bæði í Sjón-
varpinu og á Stöð 2. Það verður
sumsé í nógu að snúast hjá þeim
bræðrum og eitt er vist: - þeir hafa
ekkisungiðsinnsíðastasöng. -JSS
Kfempedebut
for Tlie Botys
I »v&
l.nkktM »»g Í1-«H*I smnliiirti
i»|»> -*■ »■». 1«
*.-»» 1
hos plateselgere
|*|| JENS M SgRENSSN
En utrolig pangstart med
tilnermet Norges-rekord.
Det opplever "The Boys”,
Arnar og Runar Halldor-
son, fra Porsgrunn. Etter
den TV-scndtc opptrcdc-
fra UnnnA.Xt .i.«
holdning somlag. “The Boy*“
»k»l dra et p»r liter fr» tin fiarMe
e gang Ar-
utcn V»r-
tK-TV og
. Guttenc
lorsk TV 2
og de tk»l ogti tilbake til TV-
Norge. I koen ttir ogti ukebUdcr
ogavitcr.
. lin »Éi»nHukttJúi<ililÍHft.nrn
pUte, og det bltr fortt
nar og Runar opptrer
dcn/Butk-gjengen. Nl
TV-Norge er betokt
tlutl i mincdiikiflet i i
h*rt, 'íhé Bíícttes.
fí rh« HoKis. Mutwx
»« fð» »>ad»öbö)ft*t 81 ís
sem bor S»viá
a« vk*f wiift
>it tfe?}$e dentsc
mcfcikkso. \rnai oy
twMiylí
iíK»>S pé4wkl ri<í
ifek-wn ijppst* Nls iofaíft
Í* o Fofsgroftft ' 8ye,
rní*Mt
, Do to u^^útíóOft (fti
tk ttroki W<f*s me«
5íít«».;0!í*p}8»>9 Jo,
kfjlole' fCÖt haf
iT *r. *
»í r< ,í:< TV-
ílk iU «<» "JN B>;>
íirýúnh?** ttto <■■■< oppooUn : TV
Ni>rftí, ftv 4>*e*<»>d. tii MasjKSte** <«■
K<•<#.■*«« >!*. «»» t.:íK> :>*K*t
í> WM tcem »>K1 ektKttgK-V-t Vs«
• '>. >:<£rt. >*»<»r,«»t><rsír n*r »t»i. tVxt>
~uiUwt>»*r*<* v»:« látmsæ **<
N *»>• N»í*»
?*o#irr.- Dtrsitf tób TV i U-r sx:, ism íf*
IV ot ”1 ' pi Uii-si fe»»u :
■:*• «:• >>'».'<( <*„■■ W«» ivniiiti
»•>:» »<>:,' ixktx liHMSte* : skr r
r.hS>*lU<&A*t, «■ ht-ftf 11
■ Kl'l.t LlTEK
- iNcrfH' «v ««B» 8«P »»'*f
fevfc. !tt*
- I x Í >'«*< tis. tr «■>
*** </>!»**< >*><£*> Trj* »«**»*««
<«: «*w »fe<f< « 5 i#** Vtjusr- Scsi
>»>;•:'fUíí. Nl «fe» »*■•: *» * »
* *■:*•* »:» «>*bk kof*»:»«:
vflíC ft» h*«Sí K»»g« tMDOWSgtMðre:
■MttMœti st tk « heti8»
<«*<; m .*» ’*m
m **»•<:. *KS «»;»«:>* »*< ío«»wi<ses» :>í
O.SMítlns-1 itr.r.i u« :>:<**<*
írsm- >«: ••<< 8í«fe«. •Vcw: N 8*?»»:.
««Wt *Aí fe>:< ÍWf UffA
«> pKXfeðtt osrrftxfer. Wfi) *•<» «* iii
fos Ttírtito mff
-fifem*n-
. iva»,- * *»- »»<•* :< r» a$*< Unm*
: »i<su-< ,*t **« v«w« <»»» ÍV. trx «<t
•>::« l»i: :<-«1 V«rs<r.'»;t.\». Mrs 4* v
*>■■> WS )í> i t<*»k« x»'«>4:«(S
«:»<» '■%*' p:ií> í<+ *■<•>■ <te ll'.:>«
V«íO;i»"ft»k V.x»o:«f »:•> S «« (>:*.»■>.<*
i»*k'i>.» :t. S>í».v lv- ; N«»» : :< <.,<¥< *<
ftííiiKW. ftfcfi. íl.lft »».:< £tW*tíí'SM:
íf < »Vl>Jfe fJ !♦>«» IfeMtetli ft»
kfew««tififte», í(Mt vxí-ísíí <fc
m > ■: •KfcS <S tiMftiíg pv>* *:
>:<f l«)í 3»;*,.
iMftát- Í>« o
N-.'.zt. ýOii tfe«í t..
.. ” ÍH
:K
:■ );>
8 SANGPAMILÍfe
Mtt Ki< «<: <So íkfe: »x< <onrtoi» fexjjí
.fe fn ÍS AiUrf*
' - <a N
• «)ís«: «vr. sft.'s
... . <»t<fifte>«,
»<* >'w •>* «»st iv 4 isvtf tsgopams
<««tó' <*'<*&.N iv
• ■ 1 r»x>: !»<.:<!>« <>:<#>
osffUt'tn »>«#>i L»» ><*'>> «v «k »v
,<•»::<■>:» <1,S fcftgvfifi* »»ti k)rs»ys;:<s»:fc<:i
;> ,
<*>: »t <rv;W>íxr. svs: $t issfcátíni Si' íx :
CÍSMksrfftOl.
),:, -te fi» V»< » te. fííW- Sífts; vi X.
# KASsam
- V«<te' ÍIV »ps* >t',"<xs<-fc< ijswies,
<s u*r <ir )<> *:>*\> Wfe »•<$». > <* xxsw: «<
*<<:<»■> <«>: t •»'«« rvN'Asw >»«■ ftsfcf V
•1. y»;> < ■■i ' ■ !
. ,< . , ><$*<>:>>■:»;■ 4rs.*xv» ♦<.
itsfiiu, Tífti'W «».A
Norsk blöð hafa keppst um að hafa viðtöl við Arnar og Rúnar eftir að þeir komu fram á Momarken, eins og sjá má
af þessum sýnishornum.