Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Page 30
38
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER Í993
Skemmtilegasta sumarmyndin:
Skilafresturinn
rennin út eftir viku
- úrslitin verða kynnt 24. september
Þá fer hver aö verða síðastur að
senda inn myndir í keppnina um
bestu sumarmyndina því að aðeins
er ein vika þar til skilafrestur renn-
ur út, þann 15. september. Nú þegar
hefur mikiU fjöldi skemmtilegra
sumarmynda borist og verður því
vandasamt fyrir dómnefndina að
velja úr öllum þeim bunka. Verð-
laun verða veitt í flórum flokkum
og auk þess fem unglingaverðlaun.
Niðurstaða mun liggja fyrir þann
24. september og verður þá tilkynnt
hverjir hafa hlotið hin eftirsóttu
verðlaim.
Fyrstu verðlaun keppninnar er
mjög fullkomin ljósmyndavél, Can-
on EOSlOO, sem flesta ljósmyndara
dreymir um, en hún kostar 69.900
krónur. Það er því til mikils að
vinna.
Fyrir myndir sem teknar era á
ferðalagi innanlands verða veitt
þrenn ferðaverðlaun í áætlunar-
flugi Flugleiða innanlands og fyrir
bestu myndimar teknar á ferðalög-
um erlendis verða veitt þrenn verð-
laun í áætlunarflugi Flugleiða til
útlanda.
Sérstök unglingaverðlaun verða
síðan veitt fyrir flórar bestu mynd-
imar sem teknar era af unglingum
15 ára og yngri. Verðlaunin era
Prima 5 Ijósmyndavél.
Dómnefiidin, sem velja mun
verðlaunamyndimar, er skipuð
þeim Gunnari V. Andréssyni og
Brynjari Gauta Sveinssyni, ljós-
myndurum DV, og Gunnar Finn-
bjömssyni frá Kodak-umboðinu.
Þeir sem ætla sér að vera með í
keppninni ættu því að drífa filmur
sínar í framköllun hjá næsta Kod-
ak-umboði og velja þær skemmti-
legustu í keppnina. Það er síðan
aldrei að vita hveijir þeir heppnu
verða sem hljóta hin eftirsóttu
verðlaun. Munið að merkja mynd-
imar með nafni, heimilisfangi og
símanúmeri. Mjög gaman er að
gefa myndunum heiti og láta fylgja
með sögu ef einhver er. Þá er líka
skemmtilegra að segia hvað þær
manneskjur heita sem á myndun-
um era.
Á síðunni gefur að líta brot af
þeim flölmörgu myndúfn sem bor-
ist hafa í keppnina. Eins og sjá má
era þær úr öllum áttum, jafnt tekn-
ar í ht sem svarthvítu. Aliir geta
tekið skemmtilegar sumarmyndir
og þær koma úr öhum áttum eins
og sjá má.
Merkið hveija þeirra mynda sem
þið sendið í keppnina með nafni og
heimihsfangi, shngið þeim í um-
slag og sendið til DV. Utanáskriftin
er:
Skemmtilegasta sumarmyndin
DV, Þverholti 11
105 Reykjavík.
„Ég held að hann sé að glaðna til“ hefur Ijósmyndarinn, Rudolf Adolfs- „Sólbaðsæfingar i takt“ nefnum við þessa mynd sem Helga P. Finnsdóttir, Snorrabraut 56, Reykjavík, tók
son, Suðurgötu 8, nefnt sína mynd. við Varmahlíðarlaug í Skagafirði, líklegast eina sólardaginn sem þar hefur komið í sumar.
Jóhanna Hauksdóttir, Fögrubrekku
43 i Kópavogi, tók þessa kátu sum-
armynd og nefnir hana „Fjör á
þjóðhátíð".
Einbjörn og tvíbjörn og tvíbjörn og
þríbjöm ... eða allir í sólskins-
skapi. Það var Sigrún Sigvalda-
dóttir, Urðarvegi 51 á ísafirði, sem
tók þessa ævintýralegu mynd.
Þetta er afladrottningin Margrét
Sif sem hér sýnir veiði sína, stolt
og ánægð. Myndina tók Elfa Sif
Jónsdóttir, Álfholti 2a í Hafnar-
firði, við Meðalfellsvatn.
„Góðir vinir hvila sig“ er heitið á þessari skemmtilegu sumarmynd sem
tekin var á Kaldármelum. Það var Ágúst I. Sigurðsson, Brautarholti 17,
Ólafsvik, sem tók myndina.