Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1993, Page 31
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1993
39
Trimm
degl á Flúðum, Þá ákváðum vlð
að fara 1 nektarstökk, stökkva
naktir. Þetta er svona ákveðin
tilfinning og menn gera þetta
mikíð úti í heimi. Fimm fóru í
flugvélina og vorum við fjórir
búnir að koma okkur saman um
að stríða þeim fimmta. Við vorum
1 búnir að æfa ákveðna punkta og
mikil alvara var í öllu. Við vorum
aliir úti á væng í einu og vorum
: búnir að raða okkur á ákveðinn
hátt og sá fimmti var ystur og
þurfti að klifra lengst út. Síðan
er alltaf kállað ready, set og go
til þess aö allir sleppi jafnt. Við
fjórir hrópuðum í þetta sinn re-
ady, set en létura vera að hrópa
go og félagi okkar lét síg gossa
niður. Viö vorum búnir aö stýra
vélinni talsvert frá flugvellinum
þannig að hún var nærri þ vi beint
yfir Flúðum. Félagi okkar þurfti
að ganga nakinn talsverða vega-
lengd til þess að koma sér niður
á völl og þar á raeðal i gegnum
bæinn. Það var heldur skondin
sjón sem blasti við Flúöamönn-
um er þeir sáu kviknakinn fall-
hlífastökkvara á harðaspretti
með fallhlífina sína ut á flugvöll.
KEE
Á Ftóðum fór i fallhlíf nakinn
íyr sem úr flugvél var hrakinn
fötunum sínum úr
sendu í þennan túr
þeir kættust en ekki makinn.
JBH
Kristján E. Einarsson, formaður Fallhlífaklúbbs Reykjavíkur:
Fjörið er þegar fallhlífin
hefur enn ekki opnast
Hér á landi er keppt í tveimur grein-
mn fallhiifarstökks. Fiögurra manna
mynsturflugi og nákvæmnisstökki.
Yfirleitt er stokkið úr 10.000 fetum.
Það gefur okkur 40 sekúndur áður
en við opnum fallhlifina. Við stund-
um mynsturflugiö á þessum 40 sek-
úndum. íslandsmetið í mynsturflugi
var sett 1991 á Akureyri en þá mynd-
uðu 16 manns saman stjömu. Mynst-
urflugið fer því fram á 10.000 fetum
og niöur í 3000-2000 fet. Á meðan á
þessu stendur er hraðinn niöur 200
km. í nákvæmnisstökki er hins vegar
stokkið úr 3000 feta hæð og menn
eiga að lenda sem næst ákveðnu
marki. Á íslandsmótinu 1 hittifyrra
náði einn stökkvarinn 0 í refsistig í
þremur stökkum í nákvæmnisflugi
sem er árangur á heimsmælikvarða
mælti viðmælandi Trimmsíðunnar,
Kristján E. Einarsson, formaður
Failhlífaklúbbs Reykjavíkur.
Kennsluaðferðir
Kennsluaðferðir eru þijár. Það er
hægt að fara svokallað statiklínu-
stökk. Þá er farið í 3000 feta hæð og
lína bundin í fallhlífina. Stökkvarinn
stekkkur út og fallhlífin opnast strax.
Þetta er hið raunverulega fallhlífar-
stökk. Fyrir þetta námskeið þarf
tveggja kvölda undirbúning í sam-
bandi við neyðaraðgerðir og slíkt.
Síðan er námskeið sem heitir hrað-
þjálfun í fijálsu falli (H.F.F.). Þá fara
tveir kennarar með einn nemanda í
1200 fet og þeir halda í hann og stýra
honum og sleppa honum ekki fyrr
en fallhlífin hefur opnast. Nemand-
inn er þannig sjáifur að fljúga og
hefur mínútu til að læra og gera viss-
ar æfingar og meðal annars að sýna
að hann geti opnað falihlífina sjálfur
en geri hann það ekki er kennarinn
alveg við opnunarútbúnaðinn og
sleppir nemandanum ekki fyrr en
hann hefur opnað fallhlífina. Geri
hann það hins vegar ekki opnar
kennarinn fallhlífina. Það eru 7 stig
af þessari hraðaþjálfun og þegar
menn klára þau öll kannski í 10
stökkum eru þeir orðnir stökkvarar
og mega fara að stökkva sjálfir. Að
-lokum er svokallað farþegastökk
sem þarf nánast engan undirbúning.
Þá er farþeginn hengdur í ólum utan
um stökkvarann sem hefur réttindi
til þess að stökkva og þeir fljúga í
sömu fallhlífinni sem er þá sérstak-
lega stór. Það er gott að prófa þetta
í byijun. Hraöaþjálfunin kostar 30-36
þús. Farþegastökkið kostar 9800 en
námskeiðið í statiklínunni kostar
15.000 tvö stökk og svo tveggja kvölda
námskeið, bækhngur og allur útbún-
aöur. Útbúnaðurinn kostar svo á bil-
inu 70-120 þús. sem viðkomandi fær
sér eftir að hann er fullnuma. Eftir
þetta kostar stökkið úr 10.000 fetum
1000 kr. en úr 12.000 fetum 1200 kr.
Hættulegra
aðkeyrabíl
Aldurstakmark til að læra fallhlíf-
arstökk er 17 ár. Viö ráðleggjum
mönnum sem eru yfir 100 kg einnig
frá því að stunda fallhiifarstökk.
Ástæðan er sú að þungir menn falla
hraöar niður. Þegar þú stekkur úr
flugvél í ákveöinni hæð nærö þú
ákveðnum hámarkshraða sem bygg-
ist á þyngd og flatarmáli. Litlir, feitir
menn falla miklu hraöar niöur held-
ur en stórir, léttir. Ef falihlífin opn-
ast á yfir vissum hraöa meiöir fafi-
hlífarstökkvarinn sig og fallhlífin
getur hreinlega skemmst og línur
- tilfinning sem ekki er hægt að lýsa
Stjarna mynduð á 200 km fallhraða
á Flúðum. DV-mynd S.H.
geta shtnað og efni rifnað. Fallhlífar-
stökk er ekki hættuleg íþrótt. Við
höfum núna verið að stökkva síöustu
3 árin þetta 3000 stökk og ekkert hef-
ur komið fyrir. Tölfræðilega er
hættulegra að keyra bíl. Viö fljúgum
alltaf með varafallhlíf með okkur og
öryggiskröfur eru mjög miklar, bæði
hvað varðar útbúnað og eftirht. Þeg-
ar við opnum fallhlífina í 2000 feta
hæð er það gert til þess að komast
að því hvort aðalfallhlífin virkar. Ef
hún gerir þaö ekki höfum við vara-
fallhlífina sem viö getum þá opnað í
1000 feta hæð.
Fallhlífarstökk
tekur 5 mínútur
Við þurfum alltaf aö sjá niður á
þann staö sem við ætlum að lenda
á. Fallhlífar í dag eru ferkantaðar og
eru úr efni sem hleypir engu lofti í
gegnum sig. Þessar faUhlífar eru eins
og flugvélavængur. Þegar fallhlífin
opnast er fallhraðinn þetta 20-25
mílur og stökkvarinn lendir alveg
eins og flugvél gerir, lyftist upp við
lendingu og dregur þannig smám
saman úr hraðanum. Fyrst þegar
maður er aö byija að læra fallhlífar-
stökk er mest heillandi held ég að
henda sér út út flugvél. En fyrir hina
sem eru lengra komnir er þaö tíminn
sem líöur þar til þú hendir þér út úr
flugvélinni og þar til fallhlifin opnast
sem er mest heillandi. Það er alveg
óvenju skemmtilegur tími. Það hafa
margir reynt að lýsa þessu en það
gengur ekki, menn verða bara aö
prufa þetta sjálfir. Menn eru aldrei
að stökkva einir. Yfirleitt eru menn
að stökkva með tveimur eða þremur.
Eitt fallhlífarstökk tekur tæpar 5
mínútur.
Þæqileq föndurlím
Það er leikur einn að iöndra með Tesa límum.
Þau eru sterk og auðvelt er að bera þau á límílötinn.
Límin eru án uppleysiefna og hægt er að þvo þau
úr íötum með köldu vatni.
Tesa iöndurlímin eru þægileg lím á góðu verði
íyrir skólaíólk og aðra þá sem íást við iöndurvinnu.
IJ, S. Helgason hf Draghilsi 4. Símit 91- 68 51
fX/