Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1993, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1993, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993 Utlönd Leitaðrúss- neskumsjó- mönnum hætt Skipulagöri leit alþjóðlegra björgunarsveita að 28 rússnesk- um sjómönnum sem saknað er í Suður-Atlantshafmu hefur nú verið hætt en skip frá Georgíu var enn á: leitarsvæðinu í gær. Menniriiir yfirgáfu skip sitt á fóstudag á leið frá Argentínu til Suður-Afríku. Skipiö var þá statt um 2200 sjómílur suövestur af Höfðaborg, á svæði sem þekkt er fyrir mikinn veðraham. Skip náði tveiraur mönnum úr sjónura á sunnudag en annar þeirra lést skömmu síðar. Bresk flugvél sá til fimm manna í sjón- um á laugardag en síðan hefur ekkert til þeirra spurst. NormaMajor beygirsigog bukkarítehúsi Norma Maj- or, eiginkona breska forsæt- isráðherrans, bukkaði sig og beygði \ið heiðbundna te- drykkju í frægu tehúsi í Tokýo í gær. Þar var henni boðið upp á grænt te og temeistarinn var af fjórtánda ætthð. Teathöfnin á rætur sínar að rekja til ársins 1191 þegar búdda- munkur einn sneri heim írá Kína. Reuter Maiita Petersen, lögmaður Færeyja, skammar forsætisráðherra Dana 1 bréfi: Við viljum að Danir haldi sig á mottunni - segir í einu harðorðasta skeyti sem farið hefur á milii Færeyinga og Dana „Sendinefndin er velkomin til Færeyja. Við tökum vel á móti þing- mönnunum en það eru takmörk fyrir hvað fulltrúar þings Dana geta geng- ið langt í afskiptum af efnahags- og stjómmálum í Færeyjum," segir í bréfi sem Marita Petersen, lögmaður Færeyja, hefur skrifað Poul Nyrup Rasmússen, flokksbróður sínum og forsætisráðheiTa Dana. Efni bréfsins er einhver harðorð- asta sending sem gengið hefur milli Færeyinga og Dana og á að undir- strika sjálfstæðisvilja Færeyinga. Tilefnið er aö efnahagsnefnd danska Marita Petersen lögmaður. þingsins hefur óskað eftir að fá að taka þátt í umræðum færeyskra þingmanna um efnahagsmál. Nefnd- in er væntanleg í kynnisferð til Fær- eyja. Færeyska útvarpið skýrði í gær- kvöldi frá efni bréfsins. Athygli vek- ur hvað það er harðort; lögmaður Færeyja hefur ekki áður sagt dönsk- um stjórnmálamönnum berum orð- um að halda sig á mottunni. Óvíst er með viðbrögð í Danmörku við bréfinu. Færeyingar eru mjög upp á Dani komnir og væru nú gjald- þrota ef fjárframlag frá dönsku stjórninni hefði ekki komið til á síð- asta ári og þessu. Danir hafa því í reynd öll völd á eyjunum en Marita vill undirstrika aö þaö er landsstjórnin og Lögþingið sem fara með valdið; danskir þing- menn geta ekki skipt sér af ráðagerð- um Færeyinga. Verði ekki upphlaup út af bréfi lög- mannsins í dag kemur danska þing- nefndin til Færeyja á morgun. Þá reynir á hvort Danir hafa það tak á Færeyingum að þeir geti skipt sér af stjórnmálum þar með beinum hætti. Ritzau Raquel Welch gef ur baðföt Leikkonan Raquel Welch ætlar að styrkja upprennandi leikara meö því aö selja baðfót sem hún notaöi í myndinni Myra Breckinridge. Baö- fótin þóttu á sínum tíma klæðislítil fyrir mikinn barm og vakti myndi aö vonum athygli. Reuter Æ Netkerfi fyrir heilsugæslustöðvar í Reykjavík Tilboð óskast í netkerfi fyrir heilsugæslustöðvar í Reykjavík. Út- boðsgögn eru seld á 1.000 krónur á skrifstofu vorri að Borgar- túni 7, Reykjavík. Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 f.h. 5. október 1993 í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTUNI 7. 10S REYKJAVIK V Aukablað um tísku / \ Miðvikudaginn 29. september mun aukablað um nýjungar í tískuheiminum fylgja DV. Fjallaö verður um tisku í víðum skilningi. Föt, snyrtivörurog lylgihlutireru i brenni- depli. Stiklað veröur á stóru í fréttum úr tiskuheiminum. Auk þess veröa birtar stutt- ar greinar um tiskutengtefni ogýmsar hag- nýtar leiöbeiningar. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á aö auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi sambandi við Svanhviti Valgeirsdóttur, aug- lýsingadeild DV, hið lýrsta, í síma 63 27 23. Vinsamlegastathugið aö síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 23. sept. ATH.I Bréfasimi okkar 63 27 27. Raquel Welch býr sig undir að koma fram við uppboð hjá Christies í New York þar sem föt úr eigu hennar eru til sölu. Andvirði gjafa hennar rennur til leikskólans Actors Studio. Simamynd Reuter Evrópubandalagið: Málamiðlun um landbúnað Jean Puech, landbúnaðarráðherra FrakMands, sagði í morgun að í málamiðlun sem ráðherrar Evrópu- bandalagsins komust að í nótt í Brussel væri komið til móts við kröf- ur Frakka um að gera breytingar á landbúnaöarsamningi EB og Banda- ríkjanna. Samkomulagið gerir ráð fyrir því að háttsettur embættismaður EB fari vestur um haf til viðræöna við bandarísk stjórnvöld. Samkomulagið frá í nótt ætti að ryðja úr vegi einni hindruninni að nýju GATT-samkomulagi um heims- verslun sem margir telja einu leiðina Óttinngrípurum sigíSukhumi Eldtungur og glóðarkúlur lýstu upp næturhimininn í Svartahafs- borginni Sukhumi, höfuðborg Abk- hazíuhéraðs í Georgíu, þegar sveitir aðskilnaðarsinna og Georgíuhers börðust þar af mikilli heift. Pjöldi bygginga var lagður í rúst og íbúarn- ir flúðu í skelfmgu sinni í kjaOara húsa sinna. „Gætir þú búið hér?“ spuröi ör- vingluð kona sem hafði leitaö skjóls í neðanjarðarbyrgi. „Látið Abkhaz- ana koma og ég skal sko segja þeim til syndanna. Af hverju varpa þeir ekki bara kjamorkusprengju og ganga frá þessu fyrir fullt og allt?“ AðskOnaðarsinnar hvöttu stjórn- arhermenn í gær til aö yfirgefa Suk- humi þar sem frekari andspyrna af þeiira hálfu væri gagnslaus. Uppreisnarmenn hafa þegar lagt undir sig úthverfi í norður- og vest- urhluta héraöshöfuðborgarinnar og sveitir þeirra eru umhverfis hana alla. Uppgjafartónn er kominn í varnarmenn borgarinnar. Reuter Jean Puech. fyrir ríki heims til aö rífa sig upp úr efnahagslægðinni. Reuter Timman 4 FIDE CENS UNA SMUS Karpov 5 Jaf ntefli eftir mikla baráttu Stórmeistararnir Anatóli Karpov og Jan Timman sættust á jafiitefU í rúundu skákinni í hinu opinbera heimsmeistaraein- vigi i Hollandi i gær. Skákin þótti þó fjörug og stóö í hálfan sjöunda klukkutima. Timman kom Karpov í opna skjöldu með Torre-afbrigöinu. Átti Karpov lengi í miklum erfiðleikum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.