Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1993, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
13
Neytendur
Hvemig á að taka slátui?
- uppskriftir að blóðmör og lifrarpylsu
Nú fer sláturtíðin í hönd og því ekki
úr vegi að fjalla örlítið um slátur-
gerð. Við fengum einfaldar og góðar
uppskriftir að lifrarpylsu og blóðmör
hjá Áslaugu Kristjánsdóttur mat-
reiðslukonu til að birta hér á síðunni.
Einu slátri fylgir 1 vömb, 1 keppur,
I lifur, 1 hjarta, 2 nýru, mör, einn
haus og blóð. Algengt er að hægt sé
að ná fimm sláturkeppum út úr einni
vömb, eða alls sex keppum úr slátr-
inu, svo þar má reikna með þremur
máltíðum. Svo er auðvitað hægt að
nota hin innyflin (hjartað og nýrun)
og hausinn í aðrar máltíðir.
í fyrra kostaði hvert slátur 566 kr.
í Hagkaupi og er reiknað með að það
verði á svipuðu verði í ár. Þetta er
því bæði ódýr matur og góður sem
hægt er að fá í mörgum verslunum
frá og með deginum í dag.
Blóðmör
II blóð
Zi 1 vatn
30 g salt
1 kg rúgmjöl
1 kg mör
1 hnefi hveiti
1 hnefi haframjöl
Mælið blóðið og sigtið það. Hellið síð-
an vatninu í gegnum sigtið líka og
saltið blóðið síðan. Bætið helmingn-
um af mörnum út í og hrærið mjölinu
saman við. Hrærið þar til það er
jafnt, best er að hræra með hend-
inni. Setjið síðan afanginn af möm-
um saman við.
Vambakeppirnir eru rúmlega hálf-
fyltir, saumað fyrir og jafnað vei út
í þeim. Keppirnir eru settir í sjóðandi Skemmtilegast er að taka slátur með öðrum og búa þannig til sérstaka stemningu í kringum sláturgerðina.
vatn og soðnir í 3 klst. eri munið að
pikka vel í þá áður með sláturnálinni
svo að þeir springi ekki. Hafið salt í
vatninu og snúið keppunum oft.
Lifrarpylsa
1 kg lifur
450 g rúgmjöl
150 g haframjöl
150 g hveiti
30 g salt
% 1 mjólk
1 kg mör
Lifrin er þvegin og himnurnar og
allt slím tekið af þeim. Skorin í bita
og hökkuð í hakkavél 2-3 sinnum.
Saltinu og mjólkinni hrært vel sam-
an við. Mjölinu og mömum hrært
saman við þar til hræran er jöfn.
Látið í keppina og soðið á sama máta
og blóðmörinn en ekki jafn lengi.
-ingo
Slátur-
súpa
Hægt er að búa til súpu úr soð-
inu af vambakeppum eins og viða
var gert í gamla daga. Þá er hris-
grjónum eða hafragijónum bætt
út í soðið klukkutíma áður en
slátrið er fullsoðið og jafnvel soön-
um rófum og káli með. Þetta er
borðaö með heitu slátri. -ingo
Rotvarnarefni í
McDonald' s brauðum
- íslensku brauðin eru án slíkra efna
Umræða hefur skapast um hvort
hamborgarabrauðin hjá McDonald’s
innihaldi rotvamarefni og hefur
neytendasíðunni m.a. borist fyrir-
spum þess efnis. Þegar haft var sam-
band við Kjartan Örn Kjartansson,
eiganda McDonald’s, taldi hann full-
víst að svo væri ekki. Hann bauðst
til að fá innihaldslýsingu hamborg-
arabrauöanna senda til sín að utan
og símsendi hana síðan til okkar.
Samkvæmt þeirri lýsingu eru engin
rotvamarefni í brauðunum.
Neytendasíðan hafði þá samband
við Ástu Sigurðardóttur hjá Holl-
ustuvernd ríkisins og sagðist hún
vera búin að yfirfara allar vörar frá
McDonald’s og vera í nánu samstarfi
við þá. „Ég fékk þessi hamborgara-
brauö inn á borð til mín til rannsókn-
ar og komst að því að þau innihalda
eingöngu leyfileg efni í leyfilegu
magni,“ sagði Ásta. Hún sagðist í
fyrstu vilja láta fyrirtækinu eftir að
svara því hvort brauðin innihéldu
rotvamarefni en þegar gengið var á
hana sagðist hún hafa fundið rot-
varnarefnið Propion í brauðunum.
„Það var í leyfilegu magni og er á
engan hátt skaðlegt."
Þyrí - Valdimarsdóttir, matvæla-
fræðingur á fæðudeild RALA, hefur
kannað um 1000 brauðuppskriftir hjá
30-40 bakaríum hér á landi m.t.t.
innihalds og komist að því að ekkert
þeirra notar rotvamarefni. Hún
sagði brauðin hins vegar geymast
mislengi eftir rakainnihaldi, hráefn-
um og hreinlæti. „Því blautari sem
brauðin eru og því meiri sykur sem
er í þeim, eins og t.d. í rúgbrauði, því
meiri er hættan á skemmdum. Einn-
ig skiptir hreinlæti miklu máli. Hjá
Myllunni og Samsölunni er t.d. allt
vélvætt og mannshöndin kemur
hvergi nærri. Þá minnkar hættan á
örveram í brauðunum og þau geym-
astlengur." -ingo
Verðstríð
áólafs
Helgi Jónssan, DV, Ólafafiiðl'
Undanfarið hefur geisað hart
verðstríð á milli Brauðvers, bak-
arís sem ung hjón reka á Ólafs-
firöi, og Brauðgeröar KEA á Ak-
ureyri sem selur brauð í Kaupfé-
laghru.
Fyrir nokkru auglýsti Kaupfé-
lagið matarbrauö á 99 kr. stykkið
en skömmu síðar bauð Brauöver
sitt brauð á 95 kr. stykkið. Matar-
brauðin kostuðu 160-170 kr. „fyr-
ír stríð" og er lækkunin því 40%.
-sparaðu með
kjaraseðlum
Supertech
ferðatæki
með geislaspilara
AFSLÁTTUR
Verð án kjaraseðils
kr. 18.900,-
Verð með kjaraseðli
kr. 14.900,-
(Hl Heimilistæki hf
rT*' Sætúni 8 Sími 6915 00 ■ Fax 691555