Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
Erlendbóksjá
Metsölukiljur
Bretland
SkáldsÖgur:
1. Sue Townsend:
The Queen and I.
2. John Grisham:
The Firm.
3. Joanna Trollope;
The Men and the Girls.
4. Donna Tartt:
The Secret Hlstory.
5. Danielle Steel:
Jewels.
6- Michaet Crichton:
Jurassic Park.
7. Len Deighton:
City of Gold.
8. John Grisham:
The Pelícan Brief.
9. Robert James Waller:
The Bridges of Madison
County.
10. Maeue Binchy:
The Copper Beech.
Rit almenns eölis:
1. Jung Chang: «a-
Wild Swans.
2. James Herriot:
Every Living Thíng.
3. Nick Hornby:
Fever Pitcb.
4. Peter de la Billiére:
Storm Command.
5. Brian Keenan;
An Evil Cradling.
6. Antonia Fraser:
The Six Wives of Henry VIII.
7. J. Peters 8i J. Nichol:
Tornado Down.
8. Míchael Caíne:
What's It All aboút?
9. P.J. O'Rourke:
The Road ahead.
10. Bill Bryson:
The Lost Continent.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Míchael Crichton:
Jurassic Park.
2. Daphne du Mauríer:
Rebecca.
3. Peter Heeg:
Fortællinger om natten.
4. Knut Hamsun:
Sværmere.
5. Ib Michael:
Vanillepigen.
6. Per Hoeg:
Forestillinger om det 20.
árhundrede.
7. Herbjorg Wassmo:
Dínas bog.
(Byggt á Politiken Sondag)
Sex skáldsögur
Margir eru kallaðir en fáir útvaldir
til bresku Booker-verðlaunanna. Síð-
ustu mánuðina hefur fimm manna
dómnefnd lesið 110 tilnefndar skáld-
sögur, samtals um 40 þúsund blaðsíð-
ur. Úr þessum mikla bunka hefur
nefndin nú vaiið sex skáldsögur í
úrslitakeppnina.
Fyrirfram höfðu spámenn og spek-
ingar talið nánast víst að A Suitable
Boy, 1349 blaðsíðna skáldsaga eftir
indverskan höfund, Vikram Seth,
fengi þessu eftirsóttu verðlaun í ár
en hún komst ekki einu sinni í sex
bóka úrvalið.
Annars er listinn að mörgu leyti
frekar hefðbundinn. Þar er t.d. ekki
að fmna verk eftir „enskan" rithöf-
und. Sá sem kemst næst því er Tibor
Umsjón
Doyle.
Malouf.
Elías Snæland Jónsson
Fischer sem fæddist í Stockport árið
1959 en foreldrar hans voru ung-
verskir flóttamenn.
Tveir höfundanna teljast kanadísk-
ir - Michael Ignatief og Carol Shi-
elds, sem fæddist reyndar í Chicago
í Bandaríkjunum en hefur búið í
Kanada síðan 1957. Caryl Philhps er
frá Vestur-Indíum, David Malouf frá
Ástralíu og Roddy Doyle, sem er
kunnastur þessara sex höfunda, er
að sjálfsögðu íri.
Ólík verk
Hvemig eru svo þessar sex skáld-
sögur sem berjast um Booker-verð-
launin í ár og þar með um á þriðju
milljón króna og stóraukna sölu?
Roddy Doyle, sem er kunnastur
fyrir The Commitments, fjallar í
sinni sögu, Paddy Clarke Ha Ha Ha,
Phillips.
Fischer.
um börn sem alast upp í Dublin.
Söguhetjan, Paddy, er tíu ára dreng-
ur sem lendir í margvíslegum uppá-
komum með félögum sínum en býr
líka til einkaveröld með auðugu
ímyndunarafli sínu á sama tíma og
samheldni fjölskyldunnar er að
bresta.
Remembering Babylon eftir David
Malouf gerist í Ástralíu snemma á
síðustu öld. Söguhetjan er ungur
maður sem varð skipreika bam að
aldri og hefur dvalist með frum-
byggjum fjarri hvítum mönnum í
sextán ár. Allt í einu kemur hann til
byggða hvítra manna í Queensland
og veldur þar miklu umróti.
Carol Shields segir í The Stone
Diaries frá ævi konu sem bíður dauð-
ans á elliheimili, níræð að aldri. Saga
hennar hefst árið 1905 í kanadísku
þorpi. Höfundurinn birtir bréf,
blaðaúrklippur, ræður og jafnvel
mataruppskriftir!
Scar Tissue eftir Michael Ignatieff
fjallar um sjúkdóm og dauða. Sagt
er frá konu sem þjáist af Alzheimer-
sjúkdómi. Sonur hennar, sögumaður
bókarinnar, lýsir því hvernig henni
hrakar sífellt uns dauðinn nálgast.
Crossing the River eftir Caryl
Philhps gerist á ólíkum tímaskeiðum
- allt frá miöri átjándu öld fram til
okkar tíma. Meginþema sögunnar er
óhkar hhðar þrælahalds.
Saga Tibor Fischers, Under the
Frog, gerist í Ungverjalandi á árun-
um eftir síðari heimsstyrjöldina og
fram að uppreisninni árið 1956. Þetta
er fyrsta skáldsaga höfundar og hef-
ur þegar unnið til verðlauna. Sögu-
hetjumar era nokkrir félagar í ríkis-
reknu körfuboltafélagi. Þeir reyna
að bjarga sér og njóta lífsins undir
ömurlegri ráðstjórn. Þess má geta að
foreldrar höfundarins voru atvinnu-
menn í körfubolta í Ungverjalandi á
umræddum árum.
Álit veðbanka
Booker-verðlaunin verða afhent 26.
október næstkomandi.
Breskir veðbankar hafa þegar spáð
í spihn og telja mestar líkur á að
Doyle hreppi verðlaunin - hkurnar
séu 2 á móti 1. Næst kemur Shields
(5:2), þá Malouf (7:2), Ignatieff (5:1)
og Phhhps (7:1). En það er dómnefnd-
in sem ræður.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grisham:
The Pelican Brief.
2. Sidney Sheldon:
The Stars Shine down.
3. Dean Koontz:
Dragon Tears.
4. Michael Crichton;
Rising Sun.
5. John Grísham;
The Firm.
6. John Grisham:
A Tíme to Kill.
7. Michael Crichton:
Congo.
8. Anne Rice:
TheTaleofthe BodyThief.
9. Michael Crichton:
Sphere.
10. Michael Crichton:
Jurassic Park.
11. Jayne Ann Krentz:
Hidden Talents.
12. Anne Rivers Siddons:
Colony.
13. Donna Tartt:
The Secret History.
14. Patricia D. Cornwell:
All That Remains.
15. Diane Carey:
The Great Starship Race.
Rit almenns eölis:
1. Rush Limbaugh:
The Way Things Ought
to Be.
2. Robert Fulghum:
Uh-oh.
3. Ross Perot 8< Pat Choate:
Saue Your Job, Save Our
4. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
5. Maya Angelou:
I Knowwhythe Caged Bird
Sings.
6. Martin L. Gross:
The Government Racket.
7. Gail Sheehy:
The Silent Passage.
8. Peter Mayle:
A Year in Provence.
9. Jean P. Sasson:
Princess.
10. K. Le Gifford & J. Jerome:
I Can't Believe I Said That!
11. James Herriot:
Every Living Thing.
12. David McCullough:
Truman.
13. Anne Rule:
A Rose for Her Grave.
Country.
14. Peter Mayie:
Toujours Provence.
15. Troops for Truddi Chase:
When Rabbit Howls.
(Byggt á New York Times Book Review)
Vísindi
Ofát er ólæknandi fíkn
Löngunin i góöan og mikinn mat verður óviðráðanleg ánetjist menn ofátinu
einu sinni.
Merarhjarta
Innan fárra ára kann svo að
fara að menn gangi um stoltir
með merarhiarta í brjósti. Hjá
bandaríska fyrirtækinu DNX er
nú unnið að tilraunum með upp-
eldi á dýrum til að fá úr þeim lif-
færi til ígræðslu í menn.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
segja að innan firnm ára verði
þessi gamla hugmynd orðin aö
veruleika. Miklir líftæknilegir
örðugleikar eru á aö ílytja líffæri
milli lítt skyldra dýra.
Listadella
Hópur sátfræðinga í New York
hefur komist aö þeirri niðurstöðu
að allir sannir listamenn séu
snarklikkaöir. Þeir sem ekki eru
bilaðir á geði eru ekki listamenn.
Þeir benda á Vincent Van Gogh
sem besta dæmið um þetta.
Sálfræðingarnir ætla nú að
bjóða upp á meðferð til að afrugla
listamenn. Þeir telja meðferö sé
nauðsyuleg fyrir listamenn sem
vilja teljast í húsum hæfir.
Venusábraut
Bandaríski stærðfræðingurinn
Alexander Albin vill að eldflaug-
ar verði notaðar til að færa reiki-
stjörauna Venus á heppilegan
stað í sólkerfinu.
Albin hefur áður lagt til að
tunghð verði sprengt í loft upp til
að laga braut jarðar. Ekki hefur
orðiö úr framkvæmdum.
Umsjón
Gísli Kristjánsson
Nýjar bandarískar rannsóknir
benda til að ofát sé ekki aðeins sjúk-
dómur heldur einnig ólæknandi fíkn
sem í besta falli er hægt að halda
niðri með ótakmörkuðum viljastyrk.
Þetta eru ekki uppörfandi niður-
stöður fyrir þá sem eiga í stöðugri
baráttu við aukakílóin. Baráttan er
nær vonlaus. Með rannsókninni
tókst einnig að skýra út af hverju
megrunarkúrar eru gagnslausir.
Það er sálfræðiprófesorinn Ann
Kelley við háskólann í Wisconsin
sem á heiðurinn af rannsókninni.
Hún ályktar sem svo að ofát sé ekki
síður vanabindandi en eiturlyf eins
og kókaín og heróín. Það geti verið
jafn erfitt að vinna bug á fíkn í mat,
áfengi og eiturlyf.
Eins og
taminn hundur
Kelly segir að fíknin í mat eða eit-
urlyf stafi af skilyrðingu en ekki af
eitrinu eða matnum sjálfum. Þannig
meðtaki heili manns, sem þjáist af
ofáti, stóra skammta af mat eins og
verðlaun. Það sama gerist í heila
mannsins og hjá vel tömdum hundi
sem þiggur sætindi að launum fyrir
að gera eins og húsbóndinn segir.
Skilyrðing af þessu tagi breytir
starfsemi heilans á þann veg að lík-
aminn er stöðugt að krefjast verð-
launa og maðurinn lætur undan
löngun sinni. Hann finnur ósjálfrátt
til löngunar í mat þótt hann sé ekki
svangur.
Löngunin er sterkust við aðstæður
þar sem venja er að neyta matar. Séu
menn t.d. vanir að borða fyrir fram-
an sjónvarpið kallar það eitt að
kveikja á imbakassanum á mat jafn-
vel þótt ríkuleg máltíð sé að baki.
Fíkn af þessu tagi myndast vegna
breytinga á starfsemi hefians. Viss
atriði í sjálfstjórninni glatast og
ósjálfráð viðbrögð taka ráðin af fólki.
Eiturlyíjaneytandi finnur t.d. tíl
fíknar löngu eftir að hann er hættur
neyslu ef hann sér efnið sem hann
notaði. Eins hlýðir hundur kalh
fyrsta húsbónda síns jafnvel þótt þeir
hafi ekki sést árum saman.
Þegar um ofát er aö ræða breytist
starfsemi heUans með sama hætti og
hjá eiturlyfjaneytandanum. Sjálf-
stjórnin verður að víkja fyrir ósjálf-
ráðum viðbrögðum og matargatið
helhr sér út í hömlulaust át án þess
aö vUja það.
Mergrunarkúrar kunna að duga
skamma stund en þeir breyta ekki
því sem aflaga hefur farið í heilanum.
Ánetjist menn einu sinni ofátinu
verða þeir háðir því aUa ævi rétt eins
og alkóhólistar verða alltaf háðir
áfengi þótt þeir ráði við löngunina
um lengri eða skemmri tíma.
Dauðans al-
vara verður
að dellu
Eru kjameðlisfræðingar svo
geislavirkir að þeir ijómi í
myrkri? Eru s voleiðis menn alltaf
aðkjúfaatóm?
Svörin við þessum spurningum
eru víst neitandi en kjameðlis-
fræðingar höfðu á árunum eftir
seinna stríð miklar áhyggjur af
því að almenningur misskildi
starf þeirra. Þess vegua var fyrsti
tölvuleikurínn fundinn upp!
Sermileg vantar nokkuð upp á
samhengið í þessari sögu en hún
er sönn samt. Árið 1958 þegar
kjarnorkukapphlaup stórveld-
anna var í algleymingi ákváðu
bandarísk stjórnvöld að bæta
ímynd vísindamanna landsins.
Helsta ráöið var aö bjóða al-
menningi að fylgjast með vinnu
þessara dularfullu manna. Hug-
myndin féll í góðan jarðveg en
fólk sannfærðist þó fljótt um að
kjaraeðlisfræði væri ekki sérlega
spennandi á aö horfa. Það eina
sem sæist væru vísmdamenn að
bogra yfir tækjum.
Willy Higinhotham, einum
þeirra sem varrn að rannsóknun
á kjamorku ýið háskólann í
Chicago, hugkvæmdist þá að búa
til leik sem lokkaði fólk að.
Hann notaöi frumstæða tölvu
til að sýna depil á breyfingu á
sjónvarpsskjá. Willy tókst aö gera
úr þessu leik sem líktist borð-
tennis. Leikurinn vakti athygli
og gestir visindamannanna áttu
loks erindi á rannsóknarstofum-
ar - allir vildu kynnast nýja
leiknum, Með tíð og tíma varð
úr þessu della sem ekki sér fyrir
endann á.