Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Side 13
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
13
Merming
Sambíóin-Flóttamadurinn: ★★★
Læknir gegn ofurefli
Flóttamaðurinn, með David heitn-
um Janssen í aðalhlutverki, er án
efa einhver vinsælasti mynda-
flokkurinn sem íslenska sjónvarp-
ið hefur sýnt fyrr og síðar. Sjálfsagt
er svipaða sögu að segja frá öðrum
löndum. Aðdáendur Kimbles lækn-
ir hljóta því að fagna mjög að menn
vestur í Ameríku hafa nú dustað
af honum rykið og gert heila bíó-
mynd um þessa miklu hvxmnda-
gshetju.
Eins og í sjónvarpsþáttunum er
Richard Kimble í upphafi ákærður
og síðan dæmdur til dauða fyrir að
hafa myrt Helenu eiginkonu sína á
hinn hrottalegasta hátt. Hann veit
þó að hann er saklaus og að hinn
seki er einhentur maður sem hann
veit ekki frekari deili á.
Harrison Ford í vanda staddur i
Flóttamanninum.
Á leið í fangelsið verða samfang-
ar Kimbles þess valdandi að rútan,
sem flytur þá í ríkisfangelsið, velt-
ur og lendir á járnbrautarteinum
skömmu áður en lest kemur aðvíf-
andi. Kimble læknir sleppur og
Kvikmyndir
Guðlaugur
Bergmundsson
upphefst þar með flótti hans og til-
raunir til að sanna sakleysi sitt.
Alríkislögregluforinginn Samuel
Gerard fær það hlutverk að elta
flóttamanninn uppi og handsama
hann. Og ekki gefst hann upp þótt
Kimble snúi hvað eftir annað á
hann og gangi honum úr greipum.
Að sjálfsögðu tekst Kimble að
hreinsa mannorð sitt og finna ein-
henta manninn sem enginn nema
hann trúði að væri til. Um leið flett-
ir hann ofan af heljarinnar miklu
samsæri sem hér skal ósagt látið
hvert er.
Richard Kimble er enginn venju-
legur læknir í mynd þessari, heldur
virtur og dáöur æðaskurðlæknir.
Hann er heldur enginn venjulegur
maður þegar á reynir, heldur hug-
prúður og fífldjarfur riddari sem
vílar ekki fyrir sér að beriast nán-
ast einn og óstuddur gegn ofurefl-
inu, eins og allar alminlegar hetj-
ur.'til þess að sannleikurinn fái að
koma í ljós.
Andrew Davis leikstjóri er ekki
óvanur hasarmyndagerð eins og
hann sýnir okkur hér. Hann keyrir
atburðarásina og leikarana mis-
kunnarlaust áfram nánast alla
myndina út í gegn og tekst yfirleitt
bara allvel upp.
Tveir framúrskarandi leikarar
fara hér með aðalhlutverkin, þeir
Harrison Ford í hlutverki læknis-
ins góða og Tommy Lee Jones í
hlutverki löggunnar einörðu. Hvor
tveggja skilar sínu verki eins vel
og hægt er, en óneitanlega saknar
maður þess að þeir hafi haft úr
meiru að moða, að ekki skuli hafa
verið meira kjöt á beinum þessara
burðarása.
En það verður ekki á allt kosið
og þegar allt kemur til alls ættu
aðdáendur Kimbles o'g Harrisons
Ford ekki að verða fyrir vonbrigð-
um. Myndin er jú ákaflega spenn-
andi og skemmtileg að horfa á.
Flóttamaðurinn (The Fugitive).
Kvikmyndataka: Michael Chapman.
Handrit: Jeb Stuart og David Twohy.
Leikstjóri: Andrew Davis.
Leikendur: Harrison Ford, Tommy Lee
Jones, Sela Ward, Joe Pantoliano,
Andreas Katsulas, Jeroen Krabbe,
Daniel Roebuck.
Viltu góða *bg Islqemmtilega tónlist, stuð,
dans, örlíftið rokk ö'g*»góðaa Jíling? ‘Bf svo
er þá ^JÉaltu f ara út í næstu pTötúibúq^ og
fá geislalötuna eða kassettun^AL@JÖRTx^
MÖST^. Því það er algjört iipút.jag; 4>ú verður
ekki fyrir vonbrigðum, JTddbKobil^^BS Sól, ^
eúltu^e Beat, Leila JK., .Terence Trent
D1 arby , *Söul AsyJ-um, £ Un3»imíted, Suede,
French Connecjtlon, Cáptain Hollywood,\
Manic Stree€ Preaqjiers, Freedom Williams /
IVIUSI
ENGIN SKULDBINDING,
BARA ÞJÓNUSTA OG
BÓNUSVERÐ.
LÁTTU SKRÁ ÞIG STRAX íSÍMA
(91) -11620 • (91)-2 83 19
OG (91)-67 90 15
eða næst þegar verslað er í
verslunum okkar.
AUSTURSTRÆTI22 s:2 8319 / S
ÁLFABAKK114. (Mjódd) s: 7 4848^ *
BORGARKRINGLAN s: 67 90 15
"RETKJÁ VÍKURVEGUR 64 (þánagij.) s: 65 14 25
PÓSTKRQFUSÍMÍRN ERS1-116 2tf" v
f! Í'W j n
mobile & . sssól
ps. ALGJÖRT MÖST er fáanleg bæði á geislaplötu og kassettu