Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1993, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993
61
Sigurjón Ólafsson
listasafn
Sigurjóns
í dag kl. 15 verður opnuð sýning
sem ber heitið Hugmynd-Högg-
mynd, Úr vinnustofu Sigurjóns
Ólafssonar, í safni hans á Laugar-
nesi.
Úrval verka frá ólíkum tímabil-
um í list Sigurjóns hefur verið
sett upp og í ljósmyndum og text-
um er reynt að lýsa mismunandi
vinnslustigum verkanna.
Sýningar
Verkfæri og ýmsir munir úr
vinnustofu listamannsins eru
einnig sýnd til að varpa ljósi á
ferlið frá hugmynd til listaverks.
Um þessar mundir eru liðin
fimm ár frá því Listasafn Sigur-
jóns var vígt og opnað almenn-
ingi þann 21. október 1988.
Sýningin Hugmynd-Höggmynd
mun standa fram á vor og er sér-
staklega skipulögð með skólafólk
í huga. í vetur er svo áformað að
bjóða upp á dagskrá fyrir börn
og foreldra þeirra.
Sýningin verður opin á laugar-
dögum og sunnudögum frá kl.
14-17 og er kaffistofan opin á
sama tíma.
Hvað ætli þessi sé þung?
Skrítið
sauðfé
Þyngsta sauðkind, sem heim-
ildir greina frá, var gamall hrútur
af Leicester Longwool-kyni, er vó
214 kg.
Smávaxnasta sauðfjárkyn er
soay-kynið, er lifir nú einungis á
eynni Hirta í St Kilda eyjaldas-
anyum í Suðureyjum í Skotlandi.
FuUorðnar kindur vega 25-27,2
kg.
Blessuð veröldin
Þyngsta nýborið lamb
Þyngsta nýborið lamb, sem
heimildir greina frá, vó 17,2 kg.
Það kom í heiminn í Clearwater
í Kansas í Bandaríkjunum árið
1975 en hvorki ær né lamb lifðu
burðinn af.
Fjórlembingar
Ær af Suffolk- og Border Leic-
ester-kyni í eigu Major Cazenove
í Northamptonshire á Englandi
bar lifandi fjórlembingum er
vógu samtals 19,5 kg.
Austan gola eða kaldi
B’úist er við stormi á norðurdjúpi. Á
landinu verður austlæg átt, víðast
gola eða kaldi í nótt og fram eftir
Veðrið í dag
degi en sums staðar stinningskaldi
síðdegis. Þokuloft og dálítil rigning
eða súld öðru hverju austanlands og
einnig norðan til á Vestfjörðum en
skýjað og úrkomulítið á Norður og
Vesturlandi. Veður-fcr lítið eitt kóln-
andi.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austan gola eða kaldi. Skýjað en að
mestu þurrt. Hiti 7-11 stig.
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyrí alskýjað 8
Egilsstaðir þokumóða 8
Galtarviti úrkoma 8
Keílavíkurflugvöliur úrkoma 11
Kirkjubæjarklaustur rigning 9
Raufarhöfn þokmnóða 8
Reykjavík þokumóða 11
Vestmannaeyjar þoka 9
Bergen skýjað 12
Helsinki léttskýjað 9
Ósló skýjað 8
Stokkhólmur skýjað 8
Þórshöfn alskýjað 10
Amsterdam rigning 14
Barcelona skýjað 22
Berlín léttskýjað 11
Chicago alskýjað 14
Frankfurt skýjað 17
Glasgow rigning 11
Hamborg skýjað 10
London rigning 13
Madrid skýjað 17
Malaga skýjaö 24
Mallorca hálfskýjað 23
Montreal léttskýjað 3
New York léttskýjað 9
Oríando léttskýjað 17
París skúr 15
Valencia skýjað 22
Vin léttskýjað 17
Wirmipeg snjóél 1
\
Tr úbadorinn víðfórli Siggi Bj örns
eða Siggi Bé eins og hann kýs að
kalla sig núna er kominn aftur til
landsins og ætlar að spila á Café
: Amsterdam í kvöld. y '
Siggi er búinn að vera að spila á
Skemmtanalífið
Borgundarhólmi i allt sumar en
ætlar nú að taka mánaðarsnúning
: á landanum og kynna um leið nýj-
an geisladisk sem hann er með í
farteskinu en hann nefnist Siggi
B-Live at Sörens.
Þann 8. og 9. október mun Siggi
Bé skemmta á Tálknafirði og þann
15. veröur hann staddur í Víkurbæ
í Bolungarvik.
•_______• r
Myndgátan
Dauðafæri
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
Sam Neill
Píanó
Regnboginn sýnir nú myndina
Píanó sem var sigurvegari Cann-
es hátíðarinnar á þessu ári.
Myndin gerist á síðustu öld og
íjallar um mállausa breska konu,
Adu, sem kemur til afskekkts
héraðs í Nýja-Sjálandi til að gift-
ast landnema sem hún hefur
aldrei séð. Með henni er níu ára
gömul dóttir hennar og píanó.
Bíóíkvöld
Eiginmaðurinn tilvonandi neitar
að flytja píanóið heim og Ada
neyðist til þess að skilja það eftir
í fjörunni þar sem þess bíður að
verða næsta stórstraumi að bráð.
Nágranni Adu bjargar píanóinu
gegn því að hún kenni sér að spila
en það er yfirskin því hann hefur
meiri áhuga á henni en hljóðfær-
inu. Seinna hefst svo funheitt ást-
arsamband á milli þeirra.
Nýjar myndir
Laugarásbíó: Hinir óæskilegu
Bíóhöllin: Flóttamaðurinn
Stjörnubíó: í skotlínu
Regnboginn: Píanó
Háskólabíó: Skólaklíkan
Bíóborgin: Tina
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 237.
1. október 1993 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 69,860 70,060 69,680
Pund 104,280 104,570 104,920
Kan. dollar 52,360 52,520 52,610
Dönsk kr. 10,5570 10,5890 10,5260
Norsk kr. 9,7490 9,7790 9,7660'
Sænsk kr. 8,6110 8,6370 8,6380
Fi. mark 11,9530 11,9890 12,0180
Fra. franki 12,2260 12,2630 12,2600
Belg. franki 1,9705 1,9765 1,9905
Sviss. franki 48,8100 48,9500 48,9600
Holl. gyllini 37,9200 38,0400 38,0400
Þýskt mark 42,6100 42,7300 42,7100
it. líra 0,04391 0,04407 0,04413
Aust. sch. 6,0520 6,0730 6,0690
Port. escudo 0,4139 0,4153 0,4153
Spá. peseti 0,5283 0,5301 0,5295
Jap. yen 0,65680 0,65880 0,66030
írskt pund 99,750 100,050 99,720
SDR 98,39000 98,69000 98,53000
ECU 80,8500 81,0900
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
TVeir
leikir í
hand-
bolta
Tveir leildr fara fram i Evrópu-
keppni í handbolta í dag.
Valur leikur gegn KH Tatra frá
Tékklandi í Evrópukeppni meist-
íþróttir í dag
araliða karla og hefst leikurinn
kl. 16.30 í Laugardalshöll. Þáspiia
Valur og Landhaus Post frá Aust-
urríki í Evrópukeppni bikarhafa
kvenna og hefst leikurinn kl. 18
í Laugardalshöil.