Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 Fréttir 3 Framlög til sjúkrastöðva SÁÁ skorin niður um 15 milljónir: Hættum að geta meðhöndlað fðlk svo bindindið haldi - segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir hjá SÁÁ: „Þaö alvarlega er að síðustu tvö árin hefur verið skorið mest niður á virkum meðferðarstofnunum fyrir áfengissjúklinga. 30 milljóna niður- skurður hjá okkur kostar 30 vistrými eða meira en 400 áfengismeðferðir á ári sem er tvöfalt meira en með- höndlað er á Vífilsstöðum. Framlög til okkar voru skorin niður um 15 milljónir í ár og því varð að loka Vík um mitt ár. Ef framlögin eru skert um 15 milljónir til viðbótar getum við engan veginn haldið Staðarfelli opnu allt næsta ár, við neyðumst þá til að loka því í byijun aprO. Þetta veit heilbrigðisráðherra og þetta vita skrifíinnamir í ráðuneytinu og þetta vita þingmenn Vesturlands. Guð- mundur Árni hefur lofað okkur að hann ætli að lagfæra þetta,“ sagði Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir sjukrastöðvar SÁÁ. í fjárlögum næsta árs er boðaður 8 prósenta niðurskurður á fjárfram- lögum til sjúkrastöðva SÁÁ, úr 185,9 milljónum í 170,6. Vegna niðurskurð- arins á þessu ári hefur sjúkrastöð SÁÁ að Vík verið lokuð frá 1. júlí til þess eins að halda mætti sjúkrastöð- inni að Staðarfelli opinni. Miðað við að boðaður niðurskurður nái fram að ganga verður Staðarfelli lokað í lok mars á næsta ári. Þá verða ein- ungis sjúkrastöðvamar Vogur og Vík í gangi, auk göngudeilda í Reykjavík og á Akureyri. „Þegar niðurskurður á stofnunum, sem hafa með áfengissjúklinga að gera, er skoðaður kemur í ljós að verið er að framfylgja áætlun sem fór af stað fyrir þremur ámm. Síðan hefur niðurskurðinum ekki linnt. Það er ekki hægt að skilja þetta öðm- vísi en að ráðamenn telji að þessi starfsemi hafi verið of mikil. I dag getur SÁÁ annaö skyndiþjónustu ágætlega en með boðuðum niður- skurði hættir sjúkrastöðin að geta meðhöndlað fólk þannig að bindindið haldist til frambúðar. Það er aðal- vandinn, “ sagði Þórarinn. -hlh Miðvikudag - Fimmtudaq - Föstudag - Lauqardag 6.-9. oktober : ! /maaaas kynnir Kringlukast IFJORADAGA j[om(Ju iKringlubst Gorouæyintyraiefa 200 kaup Yfir 3l tuþpðípyjumyörpi | Mpnau eftirjftora-afslætti | Aoeins pessa liora daga ^WAÍ,s KRINGWN Afgreiðslutími Krínglunnar. Mánudaga til fimmtudaga 10 -18.30 föstudaga 10 - 19, laugardaga 10 - 16. ........

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.