Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 Menning Metnaðarfullt verkefnaval á 20 ára afmælisári Viljum að allir f inni eitthvað við sitt hæf i Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri; „Það má tvímælalaust segja að verkefnaval okkar í vetur sé metnað- arfullt enda enun við í vetur að minnast þess að 20 ár eru síðan at- vinnuleikhús tók til starfa hér í bæn- um og enn er Leikfélag Akureyrar eina atvinnuleikhúsið utan höfuð- borgarinnar," sagði Viðar Eggerts- son, leikhússtjóri á Akureyri, er DV ræddi stuttlega við hann um verkefni leikársins hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikárið hófst fyrir skömmu og þá var brugðið út af venjunni og frum- sýnt utan Akureyrar. „Við vildum koma tii móts við þá sem hvað erfiö- ast eiga með að sækja leikhúsið og fórum því þá leið að frumsýna í Grímsey. Þar voru móttökur einstak- ar og verkið hefur síðan verið sýnt víða á Norðurlandi. Það fer einnig til Austurlands áður en sýningar hefj- ast hér á Akureyri," segir Viðar. Afturgöngur Næsta frumsýning er skammt und- an, en þar er á feröinni ein af perlum leikbókmenntanna, Afturgöngur eft- ir norska skáldjöfurinn Henrik Ibs- en. Afturgöngur hafa enn á ný slegið í gegn, því víða hafa verið teknar upp sýningar á þessu magnaða verki. Sveinn Einarsson hefur nú komið til liðs við Leikfélag Akureyrar og leik- stýrir þessari sýningu. Elín Edda Árnadóttir gerir leikmynd og bún- inga og er þetta í fyrsta sinn sem hún starfar með LA. Siguröur Karlsson fer með eitt hlutverkanna, en hann er fastráðinn hjá Leikfélagi Reykja- víkur sem lánar hann til þessa verk- efnis á Akureyri. Með önnur stór hlutverk fara Sunna Borg, Þráinn Karlsson, Kristján Franklín Magnús og Rósa Guðný Þórsdóttir. Tvö þau síðamefndu leika í fyrsta skipti með Leikfélagi Akureyrar. Léttleiki um jólin „Um jólin ætlum við að snúa blað- inu við með hláturvænum gleði- leik,“ segir Viðar Eggertsson. Þá verður frumsýndur skemmtileikur- - seglr Viöar Eggertsson leiMiússtjóri Sveinn Einarsson leikstýrir Afturgöngum. Hann er á myndinni ásamt Þráni Karlssyni, Rósu Guðnýju Þórsdóttur, Kristjáni Franklin, Sunnu Borg og Sigurði Karlssyni sem leika stærstu hlutverkin. inn „Ekkert sem heitir - átakasaga" og er eftir „heiðursfélaga" sem mun dyljast bak við þaö dulnefni eitthvaö fram í næsta mánuð. „Þetta fjallar um lítinn bæ þar sem alls kyns átök eru í gangi og þau leiða til átaka,“ segir Viðar. Hlín Agnarsdóttir verður leik- stjóri, Stígur Steinþórsson mun í fyrsta skipti sjá um leikmynd og bún- inga fyrir LA og í helstu hlutverkum verða Rósa Guðný Þórsdóttir, Dofri Hermannsson, Aðalsteinn Bergdal, Sigurveig Jónsdóttir, Arna María Gunnarsdóttir, Sigurþór Albert Hei- misson, Saga Jónsdóttir, Skúli Gautason og Sigurður Hallmarsson. Tvö með 14 hlutverk í lok janúar kemur svo næsta verk- efni á fjalirnar en það er „BAR- PAR“ eftir Jim Cartwright, höfund Strætis sem sýnt var við fádæma vin- sældir hjá Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári. Þar segir frá kvöldstund í.lífi hjóna sem reka bar og gestum þeirra. Sunna Borg og Þráinn Karlsson, tveir af máttarstólpum LA um ára- bil, munu sýna þar sínar bestu hliðar og þær ekki fáar. Þau verða í hlut- verki hjónanna og einnig allra gesta þeirra á barnum þessa kvöldstund. Guðrún Bachmann hefur þýtt verkið, Hávar Siguijónsson er leik- stjóri og Helga Stefánsdóttir sér um leikmynd og búninga en bæði Hávar og Heíga starfa nú í fyrsta skipti hjá LA. Óperuspaug í lokin Lokaverkefnið hjá LA í vetur er „Óperudraugurinn" (The Phantom Of The Opera), sem er mikið óperu- spaug með dularfullu ívafi, ást og aíbrýöi. „Leit að söngvurum hefur staðið yfir að undanfómu og er að ljúka þessa dagana. Þama er á ferö- inni mikið verk sem mjög víða hefur slegið í gegn,“ segir Viðar Egg- ertsson. Tónhstin er eftir Mozart, Donizetti, Weber, Gounod, Verdi og Offenbach. Vinsælar aríur úr mörgum þeirra þekktustu verka eru ofnar í sýning- una til að gera kvöldstundina ógleymanlega. Þórhildur Þorleifs- dóttir leikstýrir en hún sviðsetti síð- ast My Fair Lady hjá LA fyrir 10 árum sem sló þá öll aðsóknarmet. Tónlistarstjóri verður Gerrit Schuil en Siguijón Jóhannsson gerir leik- mynd búninga. Eltthvað fyrir alla „Það er ansi breitt sviðið sem við fömm yfir í vetur enda höfum við fjölgaö verkefnum og markmiðið er að eitthvað sé á boðstólum fyrir aUa með fjölbreyttu verkefnavali. Viö viljum að hver áhorfandi fmni a.m.k. eitt verkefni við sitt hæfi og helst fleiri," segir Viðar Eggertsson leik- hússtjóri. Ný djassplata frá Sigurði Flosasyni: Valdi þá sem ég vildi leika með íslenskar djassplötur era ekki margar og telst það ávallt til tíðinda þegar ein slík er gefm út. Gengið á lagið er ný djassplata með Sigurði Flosasyni og hljómsveit hans. Sig- uröur er meðal bestu djassleikara okkar og er virtur og þekktur út fyr- ir þröngan markaðinn á íslandi. Með Sigurði er samnorræn liljómsveit sem stofnuð var með þessa plötu í huga. Þar er valinn maður í hveiju rúmi. Auk Sigurðar, sem leikur á saxófón, leikur Ulf Adáker á tromp- et, Eyþór Gunnarsson á píanó, Lenn- art Ginman á bassa og Pétur Östlund á trommur. Tónhstina, sem prýðir plötu Sigurðar, mátti heyra á Lista- hátíðinni í Hafnarfirði. Sigurður er einn fárra íslenskra djassleikara sem leikur djass opin- berlega að staöaldri og því þótti mörgum tími til kominn að hann kæmi eigin tónlist á geislaplötu og Gengið á lagið er góð viðbót í fátæk- legt úrval íslenskra djassplatna. í stuttu spjalli var Sigurður spurður um lögin. „Á plötunni er öh tónhst eftir mig. Um er að ræða bæði ný og gömul lög. Þau.elstu era um það bU sex ára en önnur samin með þessa plötu í huga. Þetta er órafmagnaður djass þar sem bregður fyrir blúsum, völs- um, sömbum, ballöðum og ýmsu Ueiru. Þar sem ég stóð sjálfur að gerð plötunnar frá upphafi valdi ég þá menn sem mig langaði mest tU að leika með og er ég sérlega ánægður með útkomuna en platan var unnin á stuttum tíma. Við lékum pró- grammið á Listahátíö í Hafnarfirði og fleiri stöðum. Einn daginn drifum við okkur svo í hljóðver og þar var aUt tekið upp beint eins og við höfð- um flutt það á tónleikunum. Fyrsta platan undir eigin nafni Þetta er fyrsta platan sem kemur út undir mínu nafni en áður haföi ég leikiö á þremur öðrum djassplöt- um, fyrst með Nýja kompaníinu og síðan með Tómasi R. Einarssyni en í Nýja kompanhnu stigum við báðir, ég og Tómas, okkar fyrstu spor í djassinum." Sigurður var spurður hvort ætti að fylgja plötunni eftir: „Þaö er verið aö rembast við að halda útgáfutón- leika hér á landi en það er dýrt að fá þá þijá sem búa erlendis th lands- ins og þótt þeir séu aUir af vUja gerð- Siguröur Flosason. Fjölbreyttur órafmagnaöur djass á geislapiöt- unni Gengið á lagið. ir þá gengur það ekki að standa einn og óstuddur í að kosta þá hingað tfl hljómleikahalds. Ef þeir komast ekki mun ég að öUum hkindum halda tón- leUia með öðrum. En möguleikar era á að við sem skipuðum hljómsveitina gerum eitthvað saman á erlendum vettvangi. Það sem er aftur á móti framundan hjá mér nú er að kynna plötuna og koma henni á framfæri. Næsta verk- efni er síðan að leika á konsert í Norræna húsinu þar sem framflutt- ur verður lagaflokkur eftir danska tónskáldið og gítarleikarann Karsten Houmark við ljóðabálkinn Flower Faries of Autumn eftir Ciceley Mary Barker." Á þessum tónleikum koma fram auk Siguröar Eyþór Gunnars- son píanóleikari, EUen Kristjáns- dóttir söngkona, höfundurinn, Karsten Houmark, Torben West- ergárd bassaleikari og Sören Frost trommuleikari. Seinna í vetur mun Sigurður vera með í samnorrænu djassbandi sem verður á ferðalagi um Norðurlönd. í þessari hljómsveit verður meðal annars Ulf Adáker. Sigurður er spurður hvort hægt sé aö leika eingöngu tjjass á íslandi: „Það er hægt en það er ekki hægt að lifa á því að leika eingöngu djass. Það er fámennur hópur hér sem leggur þetta fyrir sig og er nauðsynlegt í bland að leika með útlendum djass- leikurum og fá þá hingað til landsins til að starfa með okkur og vinna að gefandi verkefni eins og þessi plata Fyrsta Ijóðabók Hannesar Péturs* sonarílOár Þaö er oröið langt síðan eitt af höfuðskáldum Islendinga, Hann- es Pétursson, sendi frá sér nýtt ljóðasafn, eða tíu ár. Aðdáendur hans geta nú glaðst yfir aö vænt- anleg er ný Ijóðabók, Eldhylur, frá Iðunni sem hefur að geyma ný ljóð Hannesar. Af öörum nýj- um íslenskum skáldverkum, sem Iðunn gefur út fyrir jólin, má nefna bækurnar Ástin fískanna eftir Steinunni Sigurðardóttur og Hafborg eftir Njörð P. Njarðvík. Auðurieikur einleikáfyrstu áskriftartónleikum Fyrstu reglulegu áskriftartón- leikar Sinfóníuhljómsveitar ís- lands verða í kvöld. Þar veröur meðal annars fluttur fiölukonsert eftir Carl Nielsen. Einleikari með hljómsveitinni er Auður Haf- steinsdóttir fiðluleikari Er þetta í fyrsta skipti sem hún leikur með hljómsveitinni. Auður átti að leika með hljómsveitinni í fyrra en ekki gat orðið af þvi. Auður hefur komiö fram sem einleikari í Bandaríkjunum, Japan, Kína, Svíþjóð og Kanada, svo einhver lönd séu nefnd. Aðalhljómsveit- arstjóri Sinfóníuunnar Osmo Vánska stjórnar hljómsveitinni í kvöld. Erlendtímarit fylgjastmeð Friðriki Nú er lokið tökum á nýjustu kvikmynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar, Bíódögum, og hefur mikiö verið fjallað um rayndina I fjölmiðlum hér á landi. En við erum ekki þeir einu sem fylgjast með hvað Fríðrik er að gera. Eft- ir sigurför Barna náttúrunnar á erlendri grand er fylgst með hon- um í erlendum kvikmyndatíma- ritum og hafa DV borist úrklipp- ur úr enskum og þýskum kvik- myndablöðum þar sem sagt er frá gerð Bíódaga og hvenær sýningar eru áætlaðar. Fáaren vandaðarbækur Öm & Örlygur gefur.út fyrir þessi jól fáar en vandaðar bækur og kemur ekki út neitt skáldverk eða viötalsbók frá útgáfunni. Meðal bóka sem verða gefhar út er Akureyri eftir Steindór Stein- dórsson, en verkið er byggt upp eins og bókaflokkurinn Reykja- vík - sögustaður viö sund, Sjó- mannahandbókin, sem er þýdd og staðfærð fyrir islenskar að- stæður, Saga Stýrimannaskólans í Reykjavík og Sjósókn og sjávar- hættir við suöurstörndina eftir Þórð Tómasson. Bækur þessar era allar ríkulega myndskreytt- ar. Coppeliai Operunni Uppsetning íslenska dans- flokksins á Coppelíu í vor vakti mikla athygli en uppfærslunni sijórnaði ein þekktasta ballerina samtímans, Eva Evdokimova, og vakti uppfærsla hennar athygli út fyrir landsteinana. Hefur Evd- okimovu verið boðið að setja Coppelíu upp fyrir ballettinn í Austin í Texas í vetur. Sýning þessi verður nú tekin upp aftur og verða fáar sýningar í Islensku óperunni. Þar sem sviöiö er minna en í Borgarleikhúsinu hafa verið gerðar nokkrar breyt- ingar til að aðlaga sýninguna smærra sviði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.