Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 13
FIMMTUÐAGUR 7, OKTÓBER 1993 13 Fátt er girnilegra en rjúkandi heitt kakó í kuldanum. Hundrað króna verðmunur getur þó verið á einum kakóbolla milli kaffihúsa. DV-mynd ÞÖK DV gerir verðkönnun á kaffihúsum: ÓdýrastáCafél7 - munar helmingi á veniulegu kaffi Nú þegar kólnar í veðri leita æ fleiri vegfarendur á náðir kaffihús- anna í miðbænum til að hlýja sér og þiggja molasopa. Ef marka má verð- könnun neytendasíðunnar er sopinn þó mjög misdýr eftir því hvar leitað er athvarfs. Kannað var verð í tíu kafflhúsum. Þau eru: Café Paris, Café Au Lait, Kaffi Torg, Hressó, Sólon íslandus, Prikið, Mokka, Te og kaffi, Tíu drop- ar og Café 17. í ljós kom að mikill verðmunur Var á þessum heitu drykkjum og athygh vakti að Café 17, í verslunninni Sautján, bauð þessa drykki í öllum tilfellum á lægsta verðinu. Þar var þó tekið fram að „ekta“ kakó fengist ekki alltaf og þá væri „instant" kakó selt á sama verði. Vert er að taka fram að ekkert mat var lagt á magn eða gæði drykkj- anna, sem er mjög mismunandi, og einnig er mjög mismunandi hvort ábót er innifalin í verðinu eða ekki. Sums staðar getur fólk fengið ábót að vild, annars staðar einn bolla og sums staðar engan. Á einum stað, Prikinu, var cappuccino og espresso ekki á matseðlinum. -ingo Verðkönnun á Kakó Cappuccino 250 kf. 150 kt Hæsta Lægsta 190 kt 120 kr. o ,0) 'O cö CO O Hæsta 190 kr. Hæsta 100 kr. Lægsta Venjulegt kaffi 180 kr. 90 kr. Hæsta Lægsta ESS9- Rafmagn lækkar Almennur taxti Rafmagnsveitna ríkisins lækkaði um 5% þann 1. okt- óber sl. og er það seinni áfangi gjald- skrárlækkunar sem alls hljóðar upp á 10%. í heild hefur gjaldskrárlækkunin í för með sér 4.150 kr. spamað fyrir meðalheimili sem notar 5000 kWst á ári. Lækkunin er að sögn möguleg vegna hagræðingar innan fyrirtæk- isins sem leitt hefur til lækkunar á rekstrarkostnaöi. -ingo ______________Neytendur Vitlaust verðmerkt Neytandi hafði samband og benti á að tvöfaldur verðmiði væri á skinku- bréfi frá SS sem keypt var í Nóa- túni. Límt hafði verið yfir uppruna- lega miðann og gefið upp nýtt kíló- verð, sem var 76 krónum hærra, meiri þyngd og hærra heildarverð. Guðjón Guðjónsson hjá Sláturfé- laginu sagði eðlilega skýringu vera á þessu. Umbúðirnar hefðu verið merktar vitlaust hjá þeim og því hefði Nóatún endurmerkt þær. „Það er mjög sjaldgæft að svona komi fyr- ir en í þessu tilfelli lá versluninni mjög á nýrri merkingu þar sem eftir- spurnin var mikil og skellti því sín- um miða yfir okkar. Raunverulega erum við þá ekki ábyrgir lengur og okkur er mjög illa við að þetta sé gert. Mestu máli skiptir þó að upplýs- ingar um síðasta söludag breytist ekki og svo var ekki í þessu tilfelli," sagði Guðjón. -ingo Grunsemdir neytanda vöknuðu þeg- ar hann sá nýjan merkimiða með hærra kílóverði og meiri þyngd. DV-mynd S Selur mjólkurvörur á kostnaðarverði Aliar mjólkurvörur eru seldar á kostnaðarverði í Brekkuvali í Kópa- vogi þessa vikuna, eða til sunnudags- ins 10. október. „Við höfum reyndar gert þetta áður og það mæltist vel fyrir. Við erum einfaldlega að þessu til þess að kúnn- arnir okkar fái betra verð í eina viku,“ sagði Skæringur Sigurjóns- son, annar eigandi verslunarinnar. Sem dæmi má nefna að mjólkur- lítrinn kostar 58 kr. (í stað 66 kr.), 'A 1 af ijóma kostar 123 (136), 500 g af skyri kosta 55 kr. (61), ávaxtasúr- mjólk kostar 68 (86), rjómaskyr kost- ar 121 (145), '/4 1 biomjólk kostar 37 (44), 500 g óskajógúrt kosta 79 (95) og 'A 1 kókómjólk kostar 34 (41). Sannar- lega búbót það. -ingo Áskriftargetraun DV: Fékk fullkomið sjónvarpstæki „Eg er svo aldeilis hissa, ég hef aldrei átt neitt svona fallegt. Hvað hef ég gert til að verðskulda þetta?“ spurði Helga Haraldsdóttir, einn af vinningshöfunum í áskriftarget- raun DV í september, þegar henni voru sögð tíðindin. Helga vann sér inn mjög fulikom- ið JVC sjónvarpstæki frá Faco með 28“ skjá, innbyggðu hátalarakerfi, íslensku textavarpi og samhæfðri fjarstýringu að verðmæti 139.900 kr. „Ég hef aldrei unnið neitt áður og fyrir mér er þetta stjarnfræðileg upphæð. Ég væri í marga mánuði að vinna fyrir svona tæki,“ sagði Helga, fimm barna móðir sem hefur venð ekkja í tíu ár. Áskriftargetraunin heldur áfram og verða fjórir skuldlausir áskrif- endur, bæði gamiir og nýir, dregnir út í hveijum mánuði fram að jólum. Einnig eru áskrifendur sjálfkrafa með í ferðaáskriftargetraun DV í október þar sem fjórar spennandi utanlandsferðir bíða heppinna Heiga stendur hér við sjónvarps- tækið sem komið er inn á stofu- gólf til hennar. DV-mynd Olgeir vinningshafa, þeirra á meðai hnatt- ferð. -ingo - sparaðu með kjaraseðlum Þessum réttum fylgir súpa, salat og desertbar. i framvísun kjaraseðils kr. 980,- i kjaraseðils kr. 1390,- ik bernaise seðils kr. 1090,- kr. 1790,- Þessi seðill gildir sem afsláttur á réttunum hér til hliðar fyrir alla fjölskylduna. 15. október 1993 ____ ________ Barnaréttir kr. í99,- ís í eftirrétt. POTTURINN OG VeWngastaður flötekyldunnar Brautarholti 22 Sími 11690 I I I I I I I I I I Kjaraseðillinn gildir sem 5000 kr. afsláttur af FAGOR þvottavél í versluninni sem tilgreind er hér til hliðar. 5000 KRÓIMUR þvottavél 5. kq. - 17 þvottakerfi þevtivinda 850/500 snúninqar sér hitastillir Staðgr.verð með spariseðli kr. 44.900,- Staðgr.verð án spariseðiis kr. 49.900,- RONNING SUNDABORG 15 7SÍMI'68 ,58 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.