Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
Fréttir
Forsvarsmenn í skattkerfinu og dansleikjahaldarar um svarta starfsemi á sveitaböllum:
Hljómsveitir harðar á
að svíkja undan skatti
sveitaböll oft meira og minna í ólagi, segir skattrannsóknastjóri
„Þetta lagast ekkert og er mein-
laust kjaftæði. Það er skorið niður
flatt á skattaeftirlit eins og annað
þrátt fyrir yfirlýsingar allra fjár-
málaráðherra sem setið hafa í minni
tíð.“
Þetta sagði háttsettur aðili í skatt-
kerfinu í samtali við DV aðspurður
um þá stefnu sem ríkir í þeim málum
sem snúa að uppgjöri vegna sveita-
balla og dansleikjahaldi á lands-
byggðinni.
Hundruð þúsunda
aldrei gefin upp
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV hefur það tíðkast að stór hluti
tekna af dansleikjahaldi á lands-
byggðinni hafi verið dreginn undan
og hljómsveitir fái oftar en ekki
meirihluta þess ágóða, hundruð þús-
unda króna sem aldrei eru gefin upp.
Einn heimildarmanna DV sagði í við-
tali við blaðið í gær að forsvarsmað-
ur hljómsveitar hefði neitað að halda
dansleik í ákveðnu félagsheimili á
Suðurlandi ef stór hluti dansleikja-
haldsins yrði ekki dreginn undan.
Eins og skýrt hefur verið frá í DV
hefur komið í ljós að tvöfalt bókhald
félagsheimilisins Njálsbúðar olli
miklum titringi í hreppsstjórn. Það
mál er nú á leið til skattayfirvalda í
viðkomandi umdæmi enda kom á
daginn að starfsfólki höfðu verið
greidd svört laun og ekki var hægt
að gera grein fyrir hundruð þúsunda
króna tekjum af dansleikjahaldi sem
ekki höfðu verið taldar fram.
Oft mjög svart, segir
skattrannsóknastjóri
Skúli Eggert Þórðarson skattrann-
sóknastóri segir að sú starfsemi sem
snýr að fjármálum sveitaballa sé
meira eða minna í ólagi.
„Þegar menn eru með skemmtanir
í einkasölum er það mjög oft mjög
Fréttaljós
Óttar Sveinsson
svart. Einn þáttur í þessu er auðvitað
sveitaböll og slíkir hlutir. Þetta er
náttúrlega oft meira eða minna í
ólagi. Mótshaldararnir eru iðulega
ekki ákveðnir aðilar heldur laus-
beisluð grasrótarsamtök. Þá er undir
hæhnn lagt hvort það kemur nokkur
launamiði. Ef enginn launamiði
kemur á þá verktakagreiðslu sem
þarna er innt af hendi er óvíst hvort
þeir sem standa að þessari skemmt-
un telja tekjurnar fram,“ sagði Skúh
Eggert.
Hvernig fara svikin fram?
En hvernig hefur þessi undandrátt-
ur tíðkast? Heinhldarmaður DV, sem
mjög hefur komið að þessum málum,
segir að til dæmis sé haldinn dans-
leikur sem 600 manns sækja. For-
svarsmaður hljómsveitarinnar fer
þá fram á að staðarhaldari gefi að-
eins upp 350 gesti á skýrslu sem af-
henda á lögreglunni og síðan sýslu-
manni. Svartar tekjur fyrir þá 250
sem eftir eru nema þannig 450 þús-
undum króna, kosti hver miði 1.800
krónur. Þessu skipta hljómsveitin og
húsið með sér.
Háttsettur embættismaður hjá
skattayfirvöldum sagði við DV í gær
að hann kannaðist við dæmi um að
gestafjöldi á dansleik hefði breyst
verulega á „milli tveggja balla“ þó
svo að fjöldinn á þeim hefði verið
álíka mikill. „Ég býst við að þarna
hafi verið eitthvað svipað á ferðinni
og gengur og gerist annars staðar.
Aðspurður hvort ekki borgaði sig að
setja „mann á teljarann" sagði emb-
ættismaðurinn: „Það kemur marg-
falt til baka.“
Ríkisskattrannsóknastjóri er aö
taka saman tillögur fyrir íjármála-
ráðuneytið um aðgerðir gegn svartri
atvinnustarfsemi. Þar eru ýmsir
möguleikar tíundaðir. Þetta kemur
m.a. í kjölfar svokallaðrar skatt-
svikaskýrslu. „Ég er á því að á þessu
verði að taka,“ sagði Skúli Eggert
Þórðarson skattrannsóknastjóri.
-Ótt
Reiknistofan
lokuð sem fyrr
„Miðinn á að vera þar. Reynslan
hefur kennt okkur það,“ sagði Gylfi
Sveinsson, framkvæmdastjóri
Reiknistofunnar í Hafnarfirði," sem
heldur sérstaka hsta yfir fólk sem
lent hefur í vanskilum við banka og
aðra sem lána peninga, vöru og þjón-
ustu.
Töluverður íjöldi fólks hefur sem
fyrr reynt að hafa samband við
Reiknistofuna hf. í þeim tilgangi að
koma á framfæri athugasemdum við
skrána en fyrirtækið sendir út th-
kynningar til þeirra sem lenda á
skránni. Dyr fyrirtækisins eru hins
vegar læstar þeim sem koma á staö-
inn og þeim bent á að hafa samband
símleiðis eða bréflega.
„Þetta eru allt mál sem ahir geta
kynnt sér. Það er engin launung um
þessi mál. Það er enginn leyndar-
stimpih á þessum málaflokki," segir
Gylfi.
-PP
Kcik n ís{ ofa n
fziMnUS tr hiCgt ni hnfa
satoítutii vii ihiur i Sinut
tSllvi IS/3HÍ-
íitt sífakqu.
ýiarhfáikií
Maður kemur erindisleysu til Reiknistofunnar en dyr fyrirtækisins eru lokaðar þeim sem ætla sér að gera athuga-
semdir við skrána sem það heldur yfir vanskilamenn. Þeim er bent á að hafa samband símleiðis eða bréflega.
DV-mynd BG
í dag mælir Dagfari
Stalín er ekki hér
Sú var tíðin að Vesturlönd áttu sér
óvin í Kreml. Jósef Stalín var höf-
uðandstæðingur frelsis og lýöræðis
enda manna frægastur um heims-
byggðina fyrir einræði og alræði
og sveifst einskis í baráttu sinni
fyrir völdunum. Stalín átti sér af-
sökun. Hann var að beijast fyrir
alræði öreiganna og hugsjón kom-
múnismans þar sem alþýöan átti
að ráða og alþýðan gat auðvitað
ekki ráðið neinu nema Stahn réði
öhu.
Nú eru nýir tímar runnir upp í
Moskvu. Gamh Stalín er löngu
dauður og Borís Jeltsín tekinn við
í krafti þeirra afla sem vilja engan
kommúnisma og ekkert alræði ör-
eiganna, heldur frelsi, framfarir og
blóm í haga. Jeltsín vill lýðræði og
kosningar og markaðslögmál og
hann vhl nýtt siðgæöi og nýtt rétt-
arfar. Jeltsín vhl sem sagt vera
góður viö alla og að allir séu góðir
við hann. Þetta er góöur maöur og
vel látinn.
í þinginu í Moskvu hafa menn
verið aö ræða frelsið og markaðinn
og póhtíkina í ágætu bróðemi en
ekki er því að neita aö margir hafa
þar staðið upp í pontu th að lýsa
skoðunum sínum og athugasemd-
um á ýmsu því sem Jeltsín hefur
sagt og gert. Þessar umræður hafa
dregið mál á langinn og verið til
trafala fyrir góða dátann Sveik,
sem vih hraða framforunum og
frelsinu, svo sem kostur er. Þess
vegna greip Jeltsín th þess ráðs um
daginn að senda þingið heim og
boða th nýrra kosninga.
Þá gerist það í miðju lýöræðinu
í Rússlandi að gömlu kommarnir
rísa aftur upp frá dauðum og segj-
ast ekki vhja kosningar og mót-
mæla því að þingið sé sett af og
neituðu raunar að fara heim th sín.
Nú voru góð ráð dýr fyrir Borís
Jeltsín, sem vill frelsinu vel og vill
þess vegna kosningar til að velja
nýtt þjng sem skhur að frelsið er
ekki fólgið í því að vera með múður
gegn forsetanum, heldur að sam-
þykkja það sem forsetinn segir.
Vestrænir stjómmálaforingjar
studdu Jeltsín þegar hann sendi
þingið heim, vegna þess að Jeltsín
er maður lýðræöisins. Næst neydd-
ist Jeltsín til að siga hernum á þing-
húsið og svæla þingmennina út í
nafni lýðræðisins. Vestrænir leiö-
togar lýstu eindregnum stuðningi
við þær aðgerðir enda ekki í anda
lýðræðisins að þing sitji sem búið
er að reka heim.
Andóf gömlu kommúnistanna
hefur nú verið brotið á bak aftur.
Forsprakkarnir eru komnir á bak
við lás og slá og verða sennhega
dæmdir th dauða fyrir landráð.
Fjölmiðlar eru bannaðir sem og
flokkar sem eru forsetanum and-
vígir. Þessa dagana er Jeltsín önn-
um kafinn við að herða valdatök
sín og sparka þeim úr embættum
og frá áhrifum sem eru á móti hon-
um og lýðræðinu. Allir sem eru
með mótþróa fá að finna fyrir því
að vera með mótþróa, vegna þess
að lýðræðið í Rússlandi leyfir það
ekki að menn séu með aðrar skoð-
anir en þeir sem vhja koma lýðræð-
inu á.
Aht er þetta í anda lýðræðisins
og vestrænir stjórnmálaforingjar
keppast við að lýsa stuðningi við
aðgerðir Jeltsíns, vegna þess að
andstæðingar hans tefla fyrir fram-
gangi frelsisins.
Nú er tahð hklegast að Jeltsín
geti boðið einn fram í næstu kosn-
ingum, sem auðveldar vonandi
framgang lýðræðisins í Rússlandi.
Ef einhverjum dettur í hug að bjóða
sig fram gegn góða dátanum Borís
verða þeir líklega að heyja kosn-
ingabaráttu sína úr fangelsisklef-
unum í gamla KGB fangelsinu.
Jeltsín er maður lýðræðisins og
hann bannar mönnum ekki að
bjóða sig fram, en hann hleypir
þeim auðvitað ekki út á göturnar
meðan þeir eru hættulegir frelsis-
framförunum.
Vestrænir stjórnmálamenn og
flokkar hafa fuhan skilning á þess-
um ákvörðunum Jeltsíns, enda er
Stalín ekki hér, heldur átrúnaðar-
goð lýöræðisaflanna í heiminum.
Það er langt síðan Stahn féh frá
og sjálfsagt eru margir búnir aö
gleyma þeim aðferðum sem hann
notaði gegn þeim sem ekki gegndu
honum.
En Borís Jeltsín hefur engu
gleymt og kann ahar aðferðirnar.
Munurinn er bara sá að hann er
vinna að framgangi lýðræðis og
frelsis. Að því leyti henta Stahnsað-
ferðimar betur og raunar ljómandi
vel. Dagfari