Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Blaðsíða 20
32 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 íþróttir Samaranch óskar stuðníngs viðKínverja Juan-Antonio Samaranch, for- seti Alþjóða ólyrapíunefndarinn- ar, hefur beöið forseta Suður- Kóreu, Kim Young-sam, að óska eftir stuðningi Bills Clinton Bandaríkjaforseta við það að ólympiuleikamir árið 2004 verði haldnir í Peking í Kína. Samar- anch er nú staddur í Suður-Kóreu og forsetinn hefur heitið honum fullum stuðningi við umsókn Kínverja, Kim Young-sam hittir Clinton á fundí í Bandaríkjunum ; næsta mánuði. -VS Sunderland skellti Leeds Sunderland, eitt botnliða ensku 1. deildarinnar í knattspyrnu, sigraði urvalsdeildarlið Leeds öðm sinni í 2. umferð deildabik- arkeppninnar í gærkvöldi og nú 1-2 á Elland Road í Leeds. Shrewsbury, sem leikur í 3. deild, sló út úrvalsdeildarlið Soutliampton. Meistarar Sout- hampton náðu að leggja 1. deild- arlið Stoke, eftir að hafa tapað fyrri leiknum, 2-1. Lee Sharpe og Brian McClair skoruðu mörkin. Úrslitin í gærkvöldi urðu þessi: A. Villa - Birmingham..í-o (2-0) Brighton Middlesbro....1-3 (1-8) Chelsea - WBA..........2-1 (3-2) Derby-Exeter...........2-0 (5-1) Everton-Lincoln........4-2 (8-5) Leeds - Sunderland.....1-2 (2-4) Leicester - Rochdale...2-1 (8-2) Manch.Utd - Stoke......2-0 (3-2) Norwich - Bradford.....3-0 (4-2) Nott. For. - Wrexliam..3-1 (6-4) Oldham - Swansea.......2-0 (3—2) QPR - Barnet...........4-0 (6—1) Reading-Man.City.......1-2 (2-3) Sheff. Wed. - Bolton....10 (2-1) Shrewsbury - South.ton ..2-0 (2-1) Tottenham - Bumley.....3-1 (3—1) Millwall-Watford.......4-3 (4-3) -VS Óvænttap hjá Lazio Lazio tapaði óvænt fyrir 3. deildar liðinu Avellino, 0-2, í ít- ölsku bikarkepprönni í knatt- spyrnu í gærkvöldi, Úrslit urðu annars þessi: Piacenza -Perugia..........3-1 Cosenza - Atalanta..........0-2 Ascoli-Torino...............1-3 Napoli - Ancona.............0-0 Lazio - Avellino............0-2 Fiorentina - Reggiana.......3-0 Juventus-Venezia............1-1 Parma - Palermo.............2-0 Brescia - Cremonese.........2-2 Cagtiari - Cesena..........1-1 Foggía - Triestina..........2-2 Sampdoria - Pisa............0-0 Udinese - Lecce.............2-0 -VS Lokssigurhjá Real Madrid Real Madrid vann langþráðan sigur í spænsku 1. deildinni i knattspyrnu í gærkvöldi, 2-1, gegn Racing Santander. Gestirnir leiddu mestallan leíkinn en á lokamínútunum skoruðu Emilio Butragueno og Michel fyrir Real. Barcelona vann Valladolíd létt, Beguristain skoraði 2 mörk og Romario eitt og er efst ásamt Valencia. Úrslit urðu þessi: Valencía - Rayo Vallecano...3-1 Celta- Lerida.................10 Sporting Gijon - Tenerife....1-2 Real Madrid - R. Santander...2-1 Sevilla - Atl. Madrid.......2-1 Sociedad - Real Oviedo.......2-2 Albacete - Dep. Corana.......0-0 Barcelona - Valladolid.......3-0 Zaragoza - Osasuna...........2-1 Barcelona er með 10 stig, Va- lencia 10, Bilbao 9 og leik til góöa, Sevilla 9 og Real Sociedad er með 8 stig. -VS ____________________________ Stuttar fréttir dv íslandsmótið í körfuknattleik hefst um helgina: Njarðvíkingum spáð titlinum - og flestir haliast að ÍBK í 1. deild kvenna Njarðvíkingar verða Islandsmeist- arar í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik, eða Visadeildinni eins og hún mun formlega nefnast í vetur, og Keflavík í 1. deild kvenna ef marka á spár forráðamanna liðanna og íþróttafréttamanna sem kunngerðar voru á blaðamannafundi sem KKÍ efndi til í gær í Viðey. Fundurinn var haldinn í tilefni þess að keppnistímabil körfubolta- manna er að hefjast að fullri alvöm en íslandsmótið hefst um helgina. Þjálfarar og fyrirliðar félaganna í Visadeildinni voru sammála um Njarðvíkingar verði meistarar. Þeim var aldrei spáð neðar en öðru sæti en röð félaganna samkvæmt spá forráðamannanna var þessi í stigum: 1. Njarðvík................160 stig 2. Keflavík................140 stig 3. Haukar.....................131 stig 4. Grindavík..................123 stig 5. Valur.......................94 stig 6. Skallagrímur................87 stig 7. KR......................75stig 8. Snæfell.....................52 stig 9. Tindastóll..................43 stig 10. ÍA.....................32 stig Stúlkurnar úr ÍBK spáð meistaratign í 1. deild kvenna lítur spáin þannig út: 1. Keflavík 92. stig. 2. KR 72 stig. 3. Grindavík 65 stig. 4. Valur 59 stig. 5. Tindastóll 50 stig. 6. ÍS 37 stig. 7. ÍR 15. stig. Spá íþróttafréttamanna er mjög svipuó íþróttafréttamenn gerðu sína spá og í Visadeildinni lítur hún þannig út: 1. Njarðvík 96 stig. 2. Keflavík 84 stig. 3. Haukar 75 stig. 4. Grindavík 70 stig. 5. Valur 54 stig. 6. KR 52 stig. 7. Skallagrímur 41 stig. 8. Snæfell 34 stig. 9. Tindastóll 26 stig. 10. ÍA18 stig. í 1. deild kvenna var niðurstaðan þessi: 1. Keflavík 68 stig. 2. KR 55 stig. 3. Valur 42 stig. 4. Grindavík 40 stig. 5. ÍS 31 stig. 6. Tindastóll 24 stig. 7. ÍR 15 stig. -GH lands og Visa-ísland hafa gert með sér samning þess efhis að Visa-lsland verður einn aðal- styrktaraðili KKí og mun úrvals- deildin bera nafn fyrirtækisins og heita Visa-deildin. RÚVsýnirbeint KKÍ, Visa og RÚV hafa gert samning um útsendingar frá leikjum í Visa-deildinni í vetur og mun sjónvarpið sýna leiki beint frá allmörgum leikjum úr deildinni i vetur. Settálaugardaginn islandsmótið í körfuknattleik verður formlega sett á laugardag- inn en þá mætast i Visa-deildinni Valur og Snæfell að Hlíðarenda og hefst leikurinn klukkan 16. Leikurinn verður sýndur í belnni útsendingu á RÚV. Stærsta íslandsmótið Þetta íslandsmót verður það stærsta sem haldið hefur verið til þessa. Alls taka 58 félagslið þátt í mótinu í ýmsum flokkum og leikjaööldi hefur aldrei verið meiri. Þá hafa aldrei íleiri félags- lið tekið þátt i 2. deild karla og í yngri flokkum. DóraogLeifur Rangt var farið með nafn Dóru Garðarsdóttur í kynningarblaði um körfuboltann sem fylgdi DV í gær. Dóra var sögð vera Guð- mundsdóttir en það rétta er að hún er Garðarsdóttir og leikur nú með ÍS. Þá féll nafn Leifs Sig- flnns Garðarssonar út af lista yflr dómara í deiidinni, en hann er nýkominn með alþjóðleg dóm- araréttindi. Beðist er velvirðing- ar á þessum mistökum. Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ, og Einar S. Einarsson, forstjóri Visa á íslandi, undirrita samstarfssamning í Viðey í gær. Samningurinn gildir næstu fjögur árin. DV-mynd Brynjar Gauti Tindastólsmenn 1 körfunnl kalla ekki allt ömmu sína: Vakna klukkan sex til að f ara á æf ingu úrvalsdeildarlið Akurnesinga og Borgnesinga og þóttu leika skín- andi góðan körfubolta. Það er „króatísk lína“ sem lögð hefur verið í körfuboltanum hjá Stólunum í ár. Þjálfarinn heitir Petar Jelic, 48 ára reynslumikill maður, sem meðal annars hefur þjálfað marga af kunnustu körfu- knattleiksmönnum í heimalandi sínu. Með liðinu leikur í vetur 31 árs gamall króatískur miðheiji, Robert Buntic. Hann þykir geysi- sterkur leikmaður og fellur vel inn í liðið. Þjálfarinn Jelic segist bjartsýnn á komandi tímabil. Þegar hann er spurður um markmiðin í vetur seg- ir hann: „Ég mundi segja að fimmta sætið í deildinni væri góð útkoma en við munum gera allt sem við getum til að komast í úrslit.“ Jelic líkar vel á Króknum. Hon- um finnst staðurinn svipa á marg- an hátt til heimabæjar síns í Króa- tíu. „Að vísu var veðrið ekki gott í sumar en fólkið hérna er ákaflega vingjarnlegt og elskulegt. Ég finn að áhugi á körfubolta er hér mik- ill. Efniviðurinn er fyrir hendi og hér era margir strákar sem geta orðið mjög góðir körfuboltamenn,“ sagði Jelic. Þórhallur Asmundsscai, DV, Sauðárkróki: Það þarf mikinn áhuga til að rífa sig upp klukkan sex á morgnana til að fara á íþróttaæfingu. En strákarnir í úrvalsdeildarliði Tindastóls í körfubolta verða sárir og leiðir komi það fyrir þá að sofa yfir sig. Þeir byrja æfingu klukkan hálfsjö á hverjum morgni virka daga vikunnar og æfa framundir átta. Síðan er eins og hálftíma æf- ing að kvöldinu einnig. Þetta er ótrúlegt þegar tekið er tillit til þess að hér er um áhugamenn að ræða sem annaðhvort vinna eða eru í skóla á daginn. En áhuginn á körfuknattleiknum á Króknum er líka ótrúlegur. Hann er engu líkari en múgsefjun. Á mörgum vinnu- stöðum er körfubolti aðalumræðu- efnið í kaffitímum. Á leikjum má sjá eldri bændur úr héraðinu skæl- brosandi út að eyrum af ánægju og gleði yflr hraða og spennu leiks- ins. Þá er líf í „Síkinu" eins og heimavöllur Tindastóls er jafnan kallaður. „Þeir em brjálaðir," sögðu for- ráðamenn annarra úrvalsdeildar- liða þegar þeir heyrðu af æfingaá- ætlun Tindastólsmanna. Sú skoö- un þeirra breyttist þó heldur eftir Greifamótið á Akureyri sem fram fór fyrir skömmu. Þar sýndu strák- verða ekki auðunnir í vetur. Án arnir í Tindastólsliðinu að þeir Páls Kolbeinssonar sigraðu þeir Robert Buntic ásamt ungum syni sínum og eiginkonu og þjálfaranum Peter Jelic.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.