Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1993, Page 30
42
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
Fólk í fréttum dv
Margrét S. Björnsdóttir hefur veriö
ráðin aðstoðarmaður Sighvats
Björgvinssonar, iðnaöar- og við-
skiptaráðherra.
Starfsferilt
Margrét fæddist í Brookline i
Massachusets 1.7.1948. Hún lauk
stúdentsprófi frá MA1968, nam lög-
fræði við HÍ1968-70, lauk Diplom
soziologie-prófi frá Johann Wolf-
gang Goethe Universitát í Frankfurt
1975, lauk prófi í uppeldis- og
kennslufræði við HÍ1981 og stund-
aði nám í stjórnun menntastofnana
og endurmenntunar við University
of Minnesota í Bandaríkjunum 1989.
Margrét var kennari og deildar-
stjóri við FB1976-83 og endur-
menntunarstjóri við HÍ frá 1983.
Margrét var formaður Kennarafé-
lags FB 1977-78, sat í stjórn HÍK
1980-82, félagi í Alþýðubandalaginu
1977-90 og gegndi þar íjölda trúnað-
arstarfa, m.a. í miðstjórn ogfram-
kvæmdastjórn þess um árabil, í
stjórn Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur og formaöur þess
1980-81, í stjórn Birtingar um skeið,
félagi í Alþýðuflokknum frá 1990, í
flokksstjórn Alþýðuflokksins frá
1991 og í stjórn fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksfélaganna i Reykjavík og
formaður félags Frjálslyndra jafn-
aðarmanna frá 1992. Hún sat í stjórn
Þróunarsamvinnustofnunar ís-
lands 1983-90, í samstarfsnefnd
menntamálaráðuneytis um fullorð-
insfræðslu frá 1987, í skólanefnd
MS frá 1989 og hefur átt sæti i íjölda
nefnda um menntamál á vegum HÍ
og menntamálaráðuneytis.
Fjölskylda
Sambýlismaður Margrétar var
Skúli Thoroddsen, f. 6.8.1949, lög-
fræðingur, en þau slitu samvistir.
Sonur Margrétar og Skúla er Bolli,
f. 22.6.1981.
Sonur Margrétar og Péturs Ólafs
Rafnssonar forstjóra er Björn Ár-
sæll, f. 29.6.1968, verkfræðingur í
framhaldsnámi í Þýskalandi, en
kona hans er Eva Þengilsdóttir við-
skiptafræðingur.
Uppeldisbróðir Margrétar er Sig-
urður Björnsson, f. 13.1.1951, út-
gerðartæknir hjá Jóni Ásbjörnssyni
hf.
KjörforeldrarMargrétar: Björn
Ársælsson, f. 11.6.1917, d. 20.2.1985,
verslunarmaður í Reykjavík, og
Guðrún Sofíía Sigurðardóttir, f. 6.12.
1915, d. 12.5.1957, húmóðir.
Foreldrar Margrétar: Þórður Al-
bertsson, f. 3.6.1899, d. 14.4.1972,
umboðsmaður SÍF í Bilbao, og Guð-
rún Ásta Ársælsdóttir, f. 10.9.1918,
d. 1974, húsmóðir í Bandaríkjunum,
systir Björns, kjörföður Margrétar.
Ætt
Bróðir Þórðar var Kristján, rithöf-
undur og ritstjóri. Þórður var sonur
Alberts, aðalbókara Landsbankans,
bróður Matthiasar þjóðminjavarðar
og Ágústar Flygenring. Albert var
sonur Þórðar, b. á Fiskilæk Sigurðs-
sonar. Móðir Alberts var Sigríður,
systir Þórðar, fóður Björns forsætis-
ráðherra. Systir Sigríðar var Guð-
rún, kona Matthíasar Jochumsson-
ar skálds, langamma Ragnars Arn-
alds.
Móðir Þórðar var Steinunn, systir
Margrétar, móður Ólafs Thors for-
sætisráðherra. Steinunn var dóttir
Kristjáns, b. í Hraunhöfn Sigurðs-
sonar, og Steinunnar Jónsdóttur, b.
í Bergsholti í Staðarsveit, Sveins-
sonar. Móðir Jóns var Vigdís Ólafs-
dóttir, lögréttumanns á Lundum
Jónssonar, langafa Ólafs, langafa
Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra.
Guðrún Ásta var dóttir Ársæls,
skipstjóra í Keflavík, bróður Þuríð-
ar, ömmu Sturlu Böðvarssonar al-
þingismanns. Ársæll var sonur Þor-
steins, formanns í Njarðvík Þorleifs-
sonar, b. á Ytri-Ásláksstöðum Jóns-
sonar. Móðir Þorleifs var Sigríöur
Halldórsdóttir, hreppstjóra í Þóris-
dal í Lóni, bróöur Halls, langafa
Önnu, móður Þórbergs Þórðarson-
ar. Móðir Ársæls var Herdís Bjama-
dóttir, b. í Herdísaryík Oddssonar.
Móðir Guðrúnar Ástu var Jónína
Margrét S. Björnsdóttir.
Einarsdóttir, útvegsb. í Sandgerði
Sveinbjörnssonar, óðals- og út-
vegsb. í Sandgerði Þórðarsonar.
Móðir Jónínu var Gurðún Bjarna-
dóttir, b. í Vallanesi í Skagafirði
Stefánssonar, b. í Hvammi, bróður
Einars, fóður Indriða rithöfundar.
Stefán var sonur Magnúsar, prests
í Gfaumbæ Magnússonar, og Sigrið
ar Vídalín, systur Benedikts, lang-
afa Einars Benediktssonar skálds,
Jóns Þorlákssonar forsætisráð-
herra og Bjargar, móður Sigurðar
Nordaf.
Afmæli
Ingveldur Hallmundsdóttir
Ingveldur Hallmundsdóttir hús-
móðir, Þingvallastræti29, Akureyri,
er áttræðídag.
Starfsferill
Ingveldur er fædd á Strönd á
Stokkseyri en ólst upp á Blómstur-
völlum á Stokkseyri og að Brú í
Flóa. Hún lauk fullnaðarprófi úr
bamaskóla.
Ingveldur flutti til Reykjavikur
fyrir tvítugt og var þar í vist. Hún
var einnig tvö sumur á Hvanneyri.
Ingveldur fór til Akureyrar 1936 og
stofnaði þar heimili en hún hefur
sinnt húsmóðurstörfum frá þeim
tíma. Hún flutti að Arnarhóli í
Kaupangssveit 1940 og bjó þar til
1987 en hefur verið búsett í Þing-
vallastræti 29 á Akureyri frá þeim
tíma.
Fjölskylda
Ingveldur giftist 4.10.1936 Kristni
Sigmundssyni, f. 13.11.1910, fyrrv.
bónda. Foreldrar hans: Sigmundur
Bjömsson, f. 6.7.1862, bóndi á Ytra-
Hóli í Kaupangssveit, og Friðdóra
Guðlaugsdóttir, 30.8.1864.
Synir Ingveldar og Kristins: Hörð-
ur, f. 29.11.1937, prófessor í grasa-
fræði en nú forstöðumaður Nátt-
úrufræðistofnunar Norðurlands,
búsettur á Arnarhóli í Eyjafjarðar-
sveit, maki Sigrún Björg Sigurðar-
dóttir, f. 22.11.1948, Hörður var áður
kvæntur Önnu Maríu Jóhannsdótt-
ur, f. 3.1.1940, þau skildu, dætur
þeirra eru Fanney (kjörbarn Harð-
ar), f. 15.11.1961, röntgentæknirá
Akureyri, og Inga Björk, f. 21.11.
1964, gullsmiður á Akureyri; Magn-
ús, f. 13.6.1943, áður kennari við
MA en nú leiðsögumaður og þýð-
andi, búsettur á Akureyri, fyrri
kona hans var Kristbjörg Ingvars-
dóttir, f. 11.7.1949, þau skildu, seinni
kona hans var Harpa Geirdal Guð-
mundsdóttir, f. 1.1.1947, þau skildu,
sonur Magnúsar og Kristbjargar er
Hróar, f. 27.5.1972; Hallmundur Ein-
ar, f. 2.12.1946, leikmyndateiknari,
maki Anna Lilja Harðardóttir, f.
20.1.1955, þau eru búsett aö Brekku-
tröð 2 í Eyjafjarðarsveit, þau eiga
tvo syni, Hrafnkel Brimar, f. 2.8.
1981, og Arnór Blika, f. 17.6.1985;
Kristinn Örn, f. 29.8.1957, píanóleik-
ari og tónlistarkennari, maki Lilja
Hjaltadóttir, f. 16.8.1956, flðluleikari
og tónlistarkennari, þau eru búsett
í Reykjavík og eiga þrjú böm, Andra
Heiðar, f. 4.12.1982, Elfu Rún, f. 13.1.
1985, og Kristin Smára, f. 15.7.1990.
Systkini Ingveldar: Andrés, f. 26.8.
1915, verkamaður, maki Aðalheiður
Guðrún Elíasdóttir, þau eru búsett
í Reykjavík og eiga átta börn; Þór-
unn, f. 8.8.1918, húsmóðir, maki
Jens Valdimarsson, þau eru búsett
í Svíþjóö og eiga eitt bam; Agnes
Helga, f. 24.12.1920, húsmóðir í
Reykjavík, hennar maður var Svav-
ar Erlendsson, látinn, þau eignuðust
íjögur börn; Magnea Soffía, f. 13.6.
1922, myndhöggvari í Reykjavík,
fyrri maður hennar var Einar Sig-
uijónsson, látinn, vélstjóri, seinni
maður hennar var Einar Guð-
mundsson, látinn, bifreiðastjóri,
Magnea Soffía og Einar eignuðust
þrjú böm; Einar, f. 29.6.1924, húsa-
smíðameistari, maki Erla Blandon
Árnadóttir, þau era búsett í Kópa-
vogi og eiga tvö börn, Einar átti
barn fyrir; Bjarni, f. 11.12.1925, d.
16.4.1967, gullsmiður, hans kona var
Hjördís Pétursdóttir, þau eignuðust
fjögur börn; Hallberg, f. 29.10.1930,
rithöfundur og þýðandi, búsettur í
New York, maki May Beatrice Hall-
mundsson.
Foreldrar Ingveldar voru Hall-
mundur Einarsson, f. 5.2.1885, d.
26.2.1970, húsasmíðameistari, og
Ingibjörg Bjarnadóttir, f. 11.2.1890,
d. 6.2.1970, húsfreyja og sauma-
kona. Þau bjuggu á Stokkseyri, Brú,
og Barónsstíg 49 og Guðrúnargötu 1
í Reykjavík.
Ætt
Hallmundur var sonur Einars, b.
í Brandshúsum, Einarssonar, b. á
Ingveldur Hallmundsdóttir.
Butru í Fljótshlið, Einarssonar.
Móðir Einars í Brandshúsum var
Guðrún Hreinsdóttir. Móðir Hall-
mundar var Þórunn Halldórsdóttir,
b. og trésmiðs á Teigi í Fljótshlíð,
Guðmundssonar. Móðir Þórunnar
var Guöbjörg Guðmundsdóttir.
Ingibjörg var dóttir Bjarna, b. í
Túni í Hraungerðishreppi, Eiríks-
sonar, b. i Túni, Bjarnasonar. Móðir
Bjarna var Hólmfríður Gestsdóttir.
Móðir Ingibjargar var Guðfmna
Guðmundsdóttir, b. í Hróarsholti,
Tómassonar. Móðir Guðfinnu var
Elín Einarsdóttir.
Ingveldur er að heiman.
Jakobína Theódórsdóttir
Jakobína Theódórsdóttir húsmóðir,
Löngumýri 22b, Garðabæ, er fimm-
tugídag.
Fjölskylda
Jakobína er fædd á Bíldudal og
ólst þar upp fyrstu 3-4 árin en í
Reykjavík eftir þaö.
Jakobína giftist 26.12.1961 Erlingi
Guðmundssyni, f. 27.4.1940, sjó-
manni. Foreldrar hans voru Guð-
mundur Guðmundsson og Kristín
Magnúsdóttir en þau eru bæði látin.
Þau bjuggu í Tungu í Tálknafirði.
Jakobína og Erlingur eignuðust
fimm syni. Á lífi era Theódór Krist-
inn sjómaður, búsettur í Garðabæ,
tilvonandi eiginkona hans er Hanna
Kristín Gunnarsdóttir en þau verða
gefin saman í Garðakirkju í Bessa-
staðahreppi 16. október nk., og Guð-
mundur Níels sjómaður, búsettur í
foreldrahúsum.
Systkini Jakobínu: Ásthildur
ræstitæknir, búsett á Akranesi; Ól-
afur Ágúst verkfræðingur, búsettur
í Reykjavík; Sigurður Jón Arnfjörð,
dó ungur; Erla Hafdís sjúkraliði,
búsettíReykjavík.
Foreldrar Jakobínu: Theódór Ól-
Jakobína Theódórsdóttir
afsson, f. 29.5.1918, vélvirki, ættaður
frá Vatnsfirði í Ísaíjarðardjúpi, og
Kristín Karólína Sigurðardóttir, f.
1911, látin, húsmóðir, ættuð frá
Dynjanda í Amarfirði. Þau bjuggu
í Reykjavík og þar býr Theódór enn.
Jakobína tekur á móti gestum á
heimili sínu á afmælisdaginn frá kl.
16.
Til hamingju með afmælið 7. október
90 ára
60 ára
Þórdís Davíðsdóttir,
Vegamótastíg 9, Reykjavík.
75ára
Axel Rögn valdsso n,
Sogavegi 144, Reykjavík.
Valgerður Guðlaugsdóttir,
Austurvegi 23, Vík í Mýrdal.
Sigrún Sigur-
jónsdóttir,
fyrrv. verslun-
armaður,
Hjaltabakka30,
ReyKjavík.
Húntekurá
mótigestumá
heimili sínu
laugardaginn 9. október frá kl.
17-19.
Hildur Hansen,
Bámgötu 10, Dalvik.
Ragnheiður Gísladóttir,
Aðalgötu 40, Súöavík.
Magnea V. Þórðardóttir, Karl Þóróifur Berndsen
Heiðnabergi 12, Reykjavík. vélvirkjameistari (á afmæli 12.10),
Hún tekur á móti gestum á heimili strandgötu 10, Skagaströnd.
sínu á afmælisdaginn frá kl. 20. Eiginkona hans er Ingibjörg Fríða
Hafsteinsdóttir en hún varð sextug
6. septembersl.
Þau taka á móti gestum á heimili
sínu laugardaginn 9. októ-
berfrákl. 15-19.
50 ára
Skúli Magnús-
son,
Hólagötu 6,
Vogum.
40 ára
Ragnheiður B. Sverrisdóttir,
Heiðmörk 19, Stöðvarfirði.
Bima Garðarsdóttir,
Völvufelli24, Reykiavík.
Sigurgeir Már Jensson,
Hátúni 2, Vík í Mýrdal.
Þóranna Halldórsdóttir,
Jörundarholti 226, Akranesi.