Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993 17 Sviðsljós Þú ræður engu um greind þína, en... Konunglegt brúðkaup í London: Sonur Margrétar og Snowdons í hjónaband þú ræður öllu öðru um getu þína til náms. Margfaldaðu lestr- arhraða þinn og þættu námstæknina og árangur þinn í námi mun þatna verulega... með minni fyrirhöfn en áður! Ánægja af lestri góðra bóka vex einnig með auknum lestrarhraða. Viljir þú vera með á síðasta hraðlestrarnámskeiði ársins, sem hefst fimmtudaginn 28. október, skaltu skrá þig strax í síma 641091. H RAÐLESTRARSKOLINN ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! 3 1978- 1993 IM Breska konungsfjölskyldan fékk tækifæri til að sameinast fyrir stuttu er einn meðlimur hennar gekk í hjónaband. Það var David Linley greifi, sonur Margrétar drottningarsystur og Snowdons lá- varðar, sem gekk að eiga Serenu Stanhope en hún er dóttir Peters- ham greifahjónanna. Sex hundruð og fimmtíu gestum var boðið til brúðkaupsins en at- höfnin fór fram í St. Margaret’s kirkjunni í Lundúnum. Þúsundir manna höfðu safnast fyrir utan kirkjuna til að veifa til ungu brúð- hjónanna. Þeir gátu séð Elísabetu drottningu koma, Díönu prinsessu, Önnu prinsessu og Tim Laurence auk fjölmargra annarra frægra. Brúðurin, sem þykir mjög falleg, kom með foður sínum aövífandi í konunglegum Rolls Royce vagni. Brúðarkjóll Serenu var úr tjulli og satíni og þótti minna á brúðarkjól tengdamóður hennar, Margrétar, er hún gekk upp að altarinu ásamt fyrrum eiginmanni sínum, Snow- don lávarði, árið 1960. Athygli vakti að kjóllinn var hvorki skreyttur með perlum né blúndum og brúð- urin bar enga skartgripi ef frá eru taldir látlausir eyrnalokkar. Brúðkaupið hefur verið í undir- búningi í marga mánuði og síðasti mánuður hefur verið annasamur. Engu að síður var hin unga brúður taugaóstyrk er hún sá allar sjón- varpsmyndavélarnar og ljósmynd- arana sem þyrptust að henni. Á eftir henni gengu sex brúðar- meyjar og sveinar sem öll voru klædd í silfurlitan fatnað. Áður en þau gengu inn kirkjugólfið komu hárgreiðslu- og fórðunarmeistarar auk hönnuðarins Bruce Robbins, sem hannaði brúðarkjólinn, og lag- færðu það sem þurfti svo allt yröi fullkomið. Kirkjugestir voru enda konunglegir eða heimsfrægt fólk úr skemmtanaiðnaðinum. Að lokinni athöfninni gengu ungu brúðhjónin út í Rolls Royce frá árinu 1911. Þá var haldið í veislu þar sem Dom Perignon kampavín var tekið upp og skálað. Drottning- armóðirin, sem er 93 ára gömul, vakti athygli fyrir hversu ern hún er og full af lífskrafti. Brúðkaupsferðin var til Afríku þar sem brúðhjónin, hún 23ja ára en hann 31 árs, ætluðu í nokkurs konar safaríferð. Móðir brúðgumans, Margrét prinsessa, og systir, lafði Sara. David Linley og Serena Stanhope, nú greifahjón, voru gefin saman þann 8. október i St. Margaret’s kirkjunni í Westminster. Suöurlandsbraut 50 v/Faxafen - S. 682662 m öllum ptavinum okkar 20% afslátt af öllum geröum sjónglerja. í verslun okkar aö Suöurlandsbraut 50 bjóöum viö gott úrval umgjarða á mjög góöu verði. Tiiboó fyrir hópa: 2.000 kr. afsláttur á mann ef í hópnum eni 15 manns eöa fleíri. 40.000 kr. spamaóur fyrir kr, Vcittur cr 5% staðgrcidsluafsiáltur* a 7nannim í tvíbýli í 3 nœtur og 4 daga á Hotel Sheraton Towson. * Gildirfrá 1. nóv. til 3■ des. - íslensk Tararstjóm 28. okt. - 2. nóv.; 39.980 Brottfarir á miðviku-, fimmtu- og föstudögum. Heimflug á sunnu-, mánu- og mióvikudögum. I Baltimore bjóóum vió gistingu á eftirtöldum gæóahótelum: Holiday Inn Inner Harbor, Sheraton Towson, Hyatt Regency, DaysInnInner Harbor og The Latham. M.v. að greitt sé með minnst 14 daga íyrrirvara. Innifalið er flug og gisting og flugvallarskattar. Börn, 2ja - 11 ára, fa 15.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri greiða 3.500 kr. Enginn bókunarfyrirvari. Frábært tækifæri til þess aö gera hagstæö innkaup; m.a. stærsta verslunar- miðstöð á austurströnd Bandaríkjanna, Towson Town Center. Heillandi miðbær með aragrúa veitingastaða, verslana, leikhúsa og skemmtistaða. Einstök söfn. Örstutt til höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington D.C. Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.) FLUGLEIDIR Traustur tslenskur ferðafélagi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.