Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1993, Page 18
18
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
Dagur í lífl Hólmfríðar Karlsdóttur fóstru:
Með uppsagnar-
bréfið í höndunum
Ég vaknaöi klukkan sjö eins og
aðra daga, burstaði tennurnar og
klæddi mig. Vakti strákana mína
sem eru tveggja og fjögurra ára. Þeir
eru báðir á leikskólanum Sunnu-
hvoli, sem rekinn er af ríkisspítölun-
um, þar sem ég starfa. Þegar ég var
búin að klæða strákana tókum við
saman það sem viö þurftum að hafa
með okkur og drifum okkur af stað.
Ég á að vera mætt í vinnuna klukkan
átta. Eldri strákurinn er ekki á minni
deild þannig að ég skilaði honum á
sinn stað en sá yngri er með mér.
Þegar við komum voru börnin að
dunda við rólega leiki eins og púslu-
spil og þess háttar.
Morgunmaturinn er hjá okkur um
hálfníu og á boðstólum var hafra-
grautur og Cheerios. Á minni deild
eru börn á aldrinum eins árs til
þriggja ára og þaö þarf að setja þau
á klósett eða skipta á bleium eftir
morgunmatinn. Síðan skiptum við
þeim í þrjá hópa efti aldri og erum
að vinna með skynfærin. Ég hef til
dæmis fjallað um munn og nef. Þar
sem nýtt barn var með okkur þennan
dag ákváðum við að breyta til og
höfðum frjálsan tíma. Ég þurfti að
einbeita mér aö nýja barninu og
ræða við móður þess.
Um tíuleytið fara öll börnin út að
leika sér. Það tekur nú dágóðan tíma
að klæða þau þegar þaö er orðið
svona kalt í veðri. Krakkarnir undu
sér vel úti við og léku sér eins og
hver vildi þangað til kallað var í há-
degisverð.
Við vorum með hakk í matinn og
Hólmfríður Karlsdóttir, fóstra og fyrrum Miss World, hefur fengið uppsagnar-
bréfið eins og aðrir starfsmenn barnaheimila ríkisspitala og börnin sem á
þeim dvelja. DV-mynd GVA
börnin voru ánægð með það. Síöan
burstuðu þau tennurnar en það er
alltaf gert eftir hádegismatinn. Þá
var komið að hvíldartíma barnanna,
sum lögðu sig á dýnu en önnur út í
vagn. Loksins þegar ég komst í mat
þurfti ég að skjótast heim til að sækja
snjógalla á strákana mína sem ég
hafði gleymt um morguninn.
Óvissan hefur áhrif
Þegar ég kom til baka var leik-
skólastjórinn nýkominn af fundi og
var að segja okkur hvað nýjast væri
í stöðunni með barnaheimilismál
sjúkrahúsanna. Okkur hefur öllum
verið sagt upp störfum, jafnt starfs-
mönnum sem bömum. Við erum
auövitað ekki sáttar við þessa stöðu
sem er komin upp enda er óvissan
mikil. En við erum ákveðnar að berj-
ast. Við ræddum málin fram og til
baka án þess að komast að nokkurri
niðurstöðu. Vart er talað um annað
þessa dagana. Það á jafnt við um
okkur starfsfólkið og foreldra barn-
anna en þeir hafa stofnað nefnd sem
hefur staðið fyrir ýmsu er tengist
þessu máli. Það er náttúrlega ekki
jafn gaman í vinnunni þegar maður
veit ekkert hvernig framtíðin verður.
Börnin vöknuðu nú hvert af öðru
og tvær stelpur af eldri deildinni
fengu að koma í heimsókn til okkar.
Okkur langar að efla meira sam-
skipti milli deilda. Stelpurnar vildu
spila og ég lánaði þeim bingó sem
þær stjórnuðu með röggsemi. Það
var mjög skemmtilegt. Bömin spil-
uðu bingó fram að síðdegishressingu
en eftir hana fara þau aftur út að
leika sér. Flest eru þau síðan sótt um
fjögurleytið en þá lýkur mínum
vinnudegi.
Mamma þvoði
þvottinn
Ég skrapp með strákana í heim-
sókn til mömmu. Viö fluttum í nýtt
hús í sumar og ég hef ekki ekki enn-
þá komið mér upp aðstöðu fyrir
þvottavélina og þurrkarann þannig
að ég ætlaði að þvo þvottinn minn
hjá mömmu. Hún var reyndar búin
að því þegar ég kom þannig að ég
þurfti ekkert að gera annað en brjóta
hann saman. Við stoppuðum hjá
mömmu smástund en fórum síðan
heim.
Eldri sonur minn settist fyrir fram-
an sjónvarpið meðan ég tók til mat-
inn og fljótlega kom eiginmaðurinn
heim. Hann lék við strákana þangað
til viö borðuðum. Eftir kvöldmatinn
fóru feðgarnir niður í kjallara til að
setja saman skápa en við erum stöð-
ugt að vinna eitthvað í húsinu. Ég
gekk frá í eldhúsinu áður en ég hátt-
aöi synina og kom þeim í rúmið. Síð-
an tók ég til föt fyrir næsta dag og
ákvað sjálf að fara snemma að hátta.
Aldrei þessu vant var ég sofnuð um
hálfellefu en ég hafði vakað lengi
fram eftir kvöldið áöur. Enginn dag-
ur er eins hjá manni en þessi var
fremur hversdagslegur.
Finnur þú fímm breytingai? 228
tffiJPIB
• — 'untMii
Hver skrambinn, eftir þessu hafði ég ekki tekið fyrr en þú bentir mér á Nafn:..
þaðl
Heimilisfang:.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Audio Sonic ferð-
aútvarpstæki frá versluninni
Hljómbæ, Hverfisgötu 105.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Mömmudrengur, Þrumu-
hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn
þrá. Bækurnar eru gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 228
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uö tuttugustu og sjöttu getraun
reyndust vera:
1. Jónas Kristjánsson,
Heiðarlundi 6 H, 600 Akur-
eyri.
2. Matthea G. Ólafsdóttir,
Brúarflöt 9, 210 Garðabæ.
Vinningarnir verða sendir
heim.