Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Side 2
2
LAUGARDAGUR 20. NOVLMBER 1993
Fréttir
Landbúnaðarráðherra snýr við blaðinu:
Segir nú styrki til land-
búnaðar 18,6 milljarða
- en sagði þá vera 11 til 12 milljarða á landsfimdi Sjálfstæðisflokksins fyrir mánuði
I GATT-tilboði ríkisstjómarinnar
segir að ríkisstyrkur til landbúnaðar
sé 18,6 milljarðar króna á ári. Þetta
er um 2 miUjörðum hærri tala en
fram kom í norrænni skýrslu Hag-
fræðistofnunar Háskólans í sumar
og Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra opinberaöi. Þar var
því haldið fram að ríkisstyrkur til
íslensks landbúnaðar væri 16,7 millj-
arðar króna.
Þessa niðurstöðu gagnrýndi Hall-
dór Blöndal landbúnaðarráðherra
heiftarlega og sagði hann um 12 millj-
arða.
Á landsfundi Sjálfstæðisílokksins
bætti Halldór um betur í ræðu sinni.
Þar kallaði haxm tölumar í norrænu
skýrslunni draugatölur. Hann sagð-
ist hafa látið vinna nákvæma úttekt
yfir heildarstuðning við landbúnað-
inn hér á landi eftir forskrift OECD
sem í framtíðinni ætti að tryggja að
draugatölur, eins og þær sem birst
hefðu í norrænu skýrslunni í sumar,
skytu ekki upp kollinum. Halldór
sagði orðrétt í raéðu sinni:
„Á grundvelli norrænu skýrslunn-
ar hefur því verið haldið fram að
stuðningurinn við landbúnaðinn
nemi 16-20 milljörðum króna sem er
fásinna. Samkvæmt OECD-reikning-
unum er það nær sanni að með því
að fullur markaðsstuðningur sé
reiknaöur inn í dæmið nemi þessi
stuðningur í ár 11-12 milljörðum
króna. Þar skakkar um 60-100 pró-
sent og munar um minna.“
Ástæðan fyrir því að landbúnaðar-
ráðherra skýrir frá því í GATT-til-
boðinu að styrkurinn viö landbúnað-
inn sé 18,6 milljarðar en ekki 11 til
12 milljarðar er sú að þar með fær
hann heimild til að haekka tolla á
innfluttar landbúnaðarvörur og
auka þar með vemdina til landbún-
aðarins meðan á aðlögunartímanum
stendur.
Hagfræðideild Háskólans hefur
gagnrýnt landbúnaðarráðherra fyrir
þennan talnaleik hans. Nú segi land-
búnaöarráðherra stuðninginn 2
milljörðum króna hærri en Hag-
fræðistofnun sagði í sumar og land-
búnaðarráðherra gagnrýndi hvað
ákafast.
Styrkir við landbúnaðinn
20 milljaröar
Skýrsia
GATT-tilboð Hagfræði- Landbúnaðar-
ríkisstjórn- stofnunar ráðherra á
— arinnar _iiáskólans_JandsfundS
Markaðsstuðningur við íslenskan heimsmarkaðsverði og innanlands-
landbúnað, sem er munurinn á veröi, er það sem menn kalla tollí-
gildi eða innflutningsvernd. Við mat
á erlendu viðmiðunarverði er í ís-
lenska GATT-tilboðinu stuðst við
sama verð og Norðmenn styðjast við.
Það er talið eðlilegt þar sem Noregur
liggur landfræðilega ámóta við
heimsmarkaði og ísland. Hins vegar
er ekki út í gegn stuðst við norska
viðmiðunarverðið. í ákveðnum
vöruflokkum, sem eru unnar kjöt-
vörur, unnar mjólkurvörur og í sum-
um tilvikum grænmeti, er fundið út
lægra viðmiðunarverð en í norska
tilboðinu.
Þetta gagnrýnir Hagfræðistofnun
líka. Hún spyr hvort hægt sé að
rökstyðja að lægra heimsmarkaðs-
verð á þessum vörum gildi fyrir ís-
land en hin Norðurlöndin. Og þannig
sé fundið út hærra tollaígildi og meiri
innflutningsvemd en hefði orðið ef
ráðuneytið hefði haldið sig við
norska tilboðiö út i gegn.
Ekki náöist í Halldór Blöndal vegna
þessa máls í gær þar sem hann var
á ferðalagi úti á landi.
-S.dór
Óveðursspá:
viðbúnaður
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík í gærkvöld var
talið líklegt að óveðursstjómstöð lög-
reglunnar í Reykjavík yrði mönnuð
vegna djúprar lægðar suður af land-
inu. Stjómstöð Slysavamafélagsins
var búin aö skipa björgunarsveitar-
mönnum í Mosfellsbæ, Seltjarnar-
nesi og Reykjavík í viðbragðsstöðu.
Á veðurstofunni fengust þær fréttir
i gærkvöld að lægð og 9 til 10 vind-
stig væra suður af landinu og gert
var ráð fyrir að lægðin myndi dýpka
aðeins meira þegar nær drægi land-
inu. Auk þess var búist við að hún
færi hratt yfir og henni fylgdi mikill
vindur. -pp
Lífeyrissjóðir:
Vextir lækka
Bónus- og KEA-NETTÓ-slagurinn:
Verðstriðið á Akureyri
harðnar með hverjum degi
- innkaupakarfan ódýrari 1 Bónusi en munurinn sáralítill
Aðalfundur Sambands almennra
lífeyrissjóða, SAL, samþykkti í gær
tillögu framkvæmdastjórnar þess
efnis að beina því til lífeyrissjóða
SAL, sem em 27 talsins, að lækka
vexti lífeyrissjóðslána um 1% eða úr
7% í 6% frá og með 1. desember nk.
Tillagan var samþykkt nær einróma.
Útistandandi lán hjá sjóðum SAL
nema núna 7 miUjörðum krór.a. -bjb
Mannvirkjasjóður Nato hefur
formlega samþykkt að veita 12 millj-
ónir dollara eða jafnvirði 850 millj-
óna króna til að ljúka við oliulagnir
á Keflavíkurflugvelli.
Samþykki Mánnvirkjasjóðsins
dróst á langinn þar sem óljóst var
hvert framlag Bandarikjanna yrði til
framkvæmdanna en nú er ljóst að
íslenskir aðalverktar munu sjá um
framkvæmdina. Frá þessu var greint
í fréttum Sjónvarps í gær.
Áætlaðurverktímiereittár. -pp
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyii:
„Innkaupakarfa DV“ var ódýrari í
Bónusi og KEA-NETTÓ á Akureyri
í gær en í könnun DV fyrir 10 dögum.
Lækkunin er þó umtalsvert meiri í
NETTÓ og var innkaupakarfan þar
í gær á 3.214 krónur miðað við 3.536
krónur fyrir 10 dögum en í Bónusi
kostaði karfan í gær 3.119 krónur
miöað við 3.247 krónur fyrir 10 dög-
um. Verðmunurinn, sem var 289
krónur í fyrri könnuninni, var því
ekki nema 95 krónur í gær.
Af 14 vöruflokkum höfðu 9 lækkað
í NETTÓ en 4 vom á sama verði og
ein hafði hækkað. í Bónusi höfðu 10
vöruflokkar lækkað, þrír vom á
sama verði en einn hafði hækkað.
í fyrri könnuninni lá mesti munur-
inn í verðinu Bónusi í vil í svínakóte-
lettum, þær kostuðu þá 899 krónur
en 1123 kr. í NETTÓ. í gær kostuðu
þær enn 899 kr. í Bónusi en 898 krón-
ur í NETTÓ og höfðu því lækkaö um
225 krónur.
Af 14 vöruflokkum vom mun fleiri
ódýrari í Bónusi í gær eða 10. Tveir
vöruflokkar vom jafndýrir en 2
ódýrari í NETTÓ. Góð dæmi um hina
höröu samkeppni er aö í Bónusi hafa
tómatar lækkað úr 205 krónum frá
fyrri könnun í 125 krónur og úr 204
krónum í 125 í NETTÓ. í mörgum
vöruflokkum var verðmunurinn 1-3
krónur og vöruverðið lækkar á tug-
um vöruflokka daglega.
Mjólkin er t.d. enn á niðurleið og
má segja að hún lækki að jafnaöi um
krónu á dag. í gær kostaöi lítrinn 54
krónur í báðum verslununum og
hafði lækkaö um 7 krónur í þeim
báðum frá fyrri könnun. Af öðmm
vöruflokkum, sem höfðu lækkað í
báðum verslununum, má nefna
smjörva, kínakál, haframjöl, Fanta
og Coco Puffs.
Stuttarfréttir
NýrforaiaðurSAL
Á aðalfundi Sarobands al-
mennra lífeyrissjóða, SAL, í gær
var kosinn nýr formaður. Bene-
dikt Davíðsson gaf ekki kost á sér
áfram og Gunnar J. Friðriksson
var kosinn í hans stað.
Daviðvillrifa
Korpúlfsstaði
Líflegar mnræður urðu á borg-
arstjómarfundi í fyrrakvöld um
Korpúlfsstaði. Þar tók Davfð
Oddsson m.a. til máls þar sem
hann sagðist vera fylgjandi þvi
að Korpúlfsstaöahúsið yrði rifið
og byggt aftur í sömu mynd.
Landbúnaður styrktur
mesthér
Samkvæmt skýrslu, sem Eirík-
ur Einarsson hefúr unniö og lögð
verður fram hjá OECD, þá nýtur
íslenskur landbúnaöiu- mestra
ríkisstyrkja meöal OECD-landa.
Bylgjan greindi frá þessu.
Breyting á simanúmerum
Póstur og sími hyggst gjörbylta
símanúmerakerfinu eftir rúmt ár
1 samræmi við reglur EES. Svæð-
isnúmerin verða lögð niður og ÖIl
símanúmer verða sjö stafa. Tölu-
stafurinn 5 mun bætast framan
við öll sex stafa númer á höfuð-
borgarsvæðinu og stafimir 55
fyrir framan fimm stafa númer.
Samkvæmt Bylgjunni veröur
gjaldskránni ekki breytt.
Vaxtaiækkanir
Vaxtabreytingadagur er á
mánudaginn. íslandsbanki lækk-
ar verötryggða vexti útlána um
0,15% og grunnvexti yfirdráttar-
lána um 1%. Innlánsvextir gjald-
eyrisreikninga lækka um 0,25 til
0,50% hjá Búnaöarbanka og 0,10
tll 0,50% hjá sparisjóðunum.
Sparí8jóöir lækka vextí afurða-
lána litillega. Þá lækka vextir
Seðlabanka við innlánsstofiianir
um0.1til0,5%. -bjb