Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Page 4
4 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 Fréttir Örbylgjusjónvarp vekur upp margar spumingar: Aðeins ein afrugluð rásséstíeinu Með tilkomu örbylgjusjónvarps eða Fjölvarps hafa ótal spurningar vakn- að meðal fólks og ekki laust við að þar gæti óvissu og jafnvel ótta gagn- vart tækninni sem slíkri og síðast en ekki síst gagnvart væntanlegum fjár- útlátum. Hjá íslenska útvarpsfélaginu eru tvær breytingar í gangi. Annars veg- ar á að skipta myndlyklunum út sem áskrifendur munu framvegis fá lán- aða. Hins vegar er um Fjölvarp að ræða, endurvarp margra erlendra sjón- varpsstöðva um örbylgjusenda auk endurvarps á Stöð 2 og Sýn. Sjón- varpið mun einnig nást með ör- bylgjuloftnetum, flýtur ótruflaö í gegn. Gömlu myndlyklunum skipt út Að sögn Páls Magnússonar sjón- varpsstjóra hefur tilkoma Fjölvarps- ins flýtt fyrir endurnýjun myndlykl- anna. Tími hafi lika verið kominn á gömlu myndlyklana og viðhald margra þeirra verið orðið kostnaðar- samt. Þá hafi þeir úrelst á sama hátt og tölvur og annar tæknibúnaður. Nýtt afruglarakerfi, sem tekið verður í notkun á næsta ári, gerir gömlu myndlyklana gagnslausa. Þeir sem verða áfram með Stöð 2 ein- göngu byrja að skipta um lykla næsta vor en búist er við að skiptin taki 8-12 mánuði. Þá verður einn lykill á hvem notanda. Fyrstu nýju myndlyklamir eru mono-lyklar en þeim mun fást skipt vilji áhorfendur frekar fá víöóma- lykla. Rétt er að geta þess að vilji menn ekki gerast áskrifendur að Stöð 2 eða Fjölvarpi en vilja sjá 19:19 þurfa þeir ekkert að aðhafast, geta notað gömlu loftnetsgreiðuna áfram. Ein afrugluö rás í einu Sú hugmynd hefur orðið æði lífseig að hægt verði að horfa á margar af- ruglaðar sjónvarpsrásir í einu. Þann- ig geti unglingurinn á heimilinu horft á tónlistarrásina MTV inni í herbergi meðan foreldrarnir sjá CNN eða BBC inni í stofu. Þetta er ekki hægt. „Það hefur alltaf legið ljóst fyrir að einn myndlykill afruglaði ekki nema eina mglaða rás í einu. Við höfum kannski litið á þessa stað- reynd sem of sjálfsagðan hlut þar sem annað hefur aldrei verið inni í myndinni," sagði Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri íslenska útvarpsfé- lagsins, við DV. Aðeins einn afruglari í heiminum, sænskur, mun gefa möguleika á að horfa á fleiri afmglaðar rásir í einu. Sá er hins vegar hannaður til notk- unar í kapalkerfum. Vilji fólk getur þaö aðeins valiö um tvær rásir: Horft á óruglaðar send- ingar RÚV annars vegar (t.d. í eld- húsinu) og raglaða sendingu Stöðvar 2 eða erlendra stöðva hins vegar (t.d. í stofunni). í stað RÚV geta þó komið óraglaðar sendingar Stöðvar 2 eins og 19:19. Taka má þá rás upp á mynd- band sem ekki er verið að horfa á. Fái menn sér nýjan myndlykil fá þeir nýtt númer og um leiö verður gamli myndlykillinn gagnslaus. Gagnar því lítið að halda upp á hann í þeim tilgangi að fjölga valmöguleik- unum. Ramminn sprengdur með samvinnu Með samvinnu íbúa í fjölbýlishúsi má hins vegar sprengja þessar tak- markanir af sér. I átta íbúða sambýl- ishúsi, þar sem aliir eru áskrifendur að Fjölvarpi, má setja alla 8 mynd- lyklana upp á hálaloft og eyma- merkja hvem þeirra einni rás. Þá á hver notandi að geta horft á margar rásir í einu í mörgum sjónvarpstækj- um. Ný lofnet Órbylgjusjónvarpssendingar kalla á nýjan loftnetsbúnað. Um er að ræða pinna með mörgum hringlaga skífum sem gengur hornrétt út úr spjaldi eða ívala grind á stærð við grind í útigrilli. Örbylgjuloftnet kostar nú um 16-18 þúsund krónur en verðið getur lækk- að með frekari samkeppni söluaðila. Með uppsetningu kostar loftnet því allt að 25 þúsund krónur. Mælt er með því að til verksins séu fengnir viðurkenndir aðilar. Þannig hafa um átta aðilar sótt námskeið á vegum Rafiðnaðarskólans í uppsetn- ingu örbylgjuloftneta og hafa fengiö hæfnisskírteini því til sönnunar. Er fólk hvatt til að gá að hæfni þeirra manna sem það kaupir til uppsetn- ingarinnar svo hún verði rétt í eitt skipti fyrir öll. Séu notendur í vafa geta þeir feng- ið upplýsingar um sendistyrk heima hjá sér hjá þessum aðilum. Þumal- fingursreglan er þó sú að skilyrði séu mjög góð í beinni sjónlínu við Perl- una. Ýmis aukakostnaður En kostnaðurinn getur orðið meiri, sérstaklega í fjölbýlishúsum. í sum- um húsum eru loftnetskaplar komn- ir verulega til ára sinna. Ekki er víst að burðargeta þeirra anni jafnmörg- um rásum og fara munu um lofínets- kerfið með tilkomu Fjölvarps. Getur því þurft að skipta um kapla til að ná sem bestum myndgæðum. Sömu sögu er að segja um magn- ara. Magnari magnar sjónvarps- merkið sem kemur frá loftnetinu svo að það geti borist langa vegu, t.d. í fjölbýlishúsi. Sumir magnarar, sem nú era í notkun, eru ekki hannaðir með margar rásir í huga og getur því þurft að skipta þeim út. Slík tæki kosta á bilinu 6-20 þúsund krónur. Þá getur þurft að skipta um tengla í íbúðum en gamlir tenglar hleypa miklu af sjónvarpsmerkinu aftur inn í kerfið í húsinu. Sé sjónvarpið bilað getur það þannig skemmt fyrir öðr- um notendum í fjölbýlishúsi. Ef eiga þarf við alla þessa þætti getur kostnaðurinn orðið allnokkur með vinnu og étur þá upp hluta af sparnaðinum sem felst í því þegar margir era um kaup á einu loftneti. Fyrsta árið 73 þúsund með stofnkostnaði Þá er það áskriftin. Áskrift að Fjöl- varpi eingöngu kostar 2.630 krónur á mánuði. en áskrifendur skuldbinda sig til að kaupa minnst þrjá mánuði. Kaupi menn hins vegar áskrift að Stöð 2 líka kostar fjölvarpið 923 krón- ur. Samtals kostar áskrift að Stöð 2 og Fjölvarpi því 4.000 krónur. Skila- gjald nýs myndlykils er nú 2.500 krónur en ekki er enn ljóst hvort skilagjald verður framvegis inn- heimt né hvert það verður. Ársáskrift að Ejölvarpi auk ör- bylgjuloftnets og uppsetningar kost- ar 56.500 krónur. Sé áskrift að Stöð 2 með í dæminu kostar þessi árs- pakki 73.000 krónur. Þeir sem taka bæði Stöð 2 og Fjölvarp geta reyndar selt íslenska útvarpsfélaginu gamla myndlykilinn sinn sem jafngildir þá þriggja mánaða áskrift að Fjölvarpi eða 2.769 krónum. j / j u// UrjJllOll RÚV eða ólæst SGIld’MfI C + Sé 8 myndlyklum jafnmargra áskrif- enda komið fyrir uppi á lofti í fjölbýl- ishúsi og tengdir sjónvarpskerfinu á Tæki Tæki 3 Kostnaður vegna Fjölvarps og gervihnattadiska FJölvarp, 8 erl. sjónvarpsst. ogRÚV að vera hægt að sjá margar af- ruglaðar sjónvarpsrásir í einu. Hætt að horfa í fríinu Áskrifendum verður frjálst að segja Stöð 2 og/eða Fjölvarpi upp tímabundið, t.d. í sumarfríinu. Páll segir að veriö sé að skoða þess mál nánar en menn horfi til Canal Plus í Frakklandi í þessu sambandi. Loftnet og uppsetning t"""'""""""* 25.000 eftir 12 raán. «•"'..........56.560 eftir 24 mán. ....!.'"r...'.ril RR12Q Gervlhnattadiskur 14. erl. sjónvarpsst. ■ Loftnet og uppsetning C eftir 12 mán. C eftir24mán. C —— ■ D 100.000 D ÍOO.OOO* 3 ÍOO.OOO* Fjölvarp og Stöð 2, 8 erl. sjónvarpsst. og 3 íslenskar Loftnet og uppsetning eftir 12 mán. Í^ÍHÉÍMÍfiHrillÍM 5 m 000 $48.000 eftir 24 mán. C D121.000 * Meö fyrirvara um lokun résa. Fleiri rásir dýrari? Mögulegt er, fái íslenska útvarpsfé- lagið úthlutað fleiri sjónvarpsrásum á örbylgjusviði, að aðgangur að rás- um utan núverandi pakka verði seld- ur sérstaklega. Segir Páll að svo geti t.d. orðið varðandi sérhæfðar rásir. Gervihnattadiskar Nokkur þúsund gervihnattadiskar eru í notkun á landinu öllu í dag. Á gervihnettinum Astra eru um og yfir 15 stöðvar sem má sjá hér á landi, þar á meðal nokkrar stöðvanna í Fjölvarpspakkanum. Til að ná þess- um hnetti þarf 1,2 m disk og móttöku- tæki sem kostar um 100 þúsund krónur með uppsetningu. Gæta ber að því að sumar stöðv- anna á Astra hafa boðað að þær læsi dagskránum á næstu misseram. Nokkrar hafa reyndar sífellt verið aö fresta slíkri lokun og því óvíst hverjar efndirnar verða í framtíð- inni. -hlh Litiö á skemmdirnar á brúnni. DV-mynd S Togari fékk ásigbrot Skuttogarinn Southella frá Hull kom til hafnar í Reykjavík eftir að hafe fengið brot á sig viö strendur Grænlands í óveðri á dögunum. Yfirbygging skipsins dældaðist þó nokkuð og komst sjór í vélarrúmið. Skipið var keyrt hingað á hálfri ferð í fylgd annars bresks togara. Ekki var í gær búið að taka ákvörðun um hvort gert yrði við skipið til bráðabirgða eða til fullnustu í gær. Ekki er vitað til þess að nokkur skipverja hafi slasast við óhappið. pp Knattspyma: Anthony tilBodö Anthony Karl Gregory, knatt- spyrnumaður úr Val, gekk í gær frá tveggja ára samningi við norska úrvalsdeildarfélagið Bodö/Glimt. Hann leikur því þar ásamt Kristjáni Jónssyni úr Fram næsta sumar en Kristján samdi við félagiö til tveggja ára í fyrrakvöld. „Ég er feginn að þetta er komið . í höfn því að málið var búið að dragast fulllengi. Það verður skemmtileg tilbreyting að spila í Noregi og ég fer þangað strax eft- ir áramótin," sagði Anthony Karl við DV í gær. Litlu munaði að ekkert yrði af samningum því Valur og Bodö/Glimt voru ekki ásátt um kaupverðið en úr því var íeyst í gær. Bodö/Glimt var þegar búið að setja sig í samband við Atla Einarsson úr Fram og hugðist fá hann í staðinn fyrir Anthony Karl. -VS Bónus opnar í Færeyjum Tvær matvöruverslanir undir nafninu Bónus verða opnaðar í Færeyjum í dag, önnur í Þórs- höfn og hin í Rúnavík. Sem kunn- ugt er keypti Bónus helming í þessum verslunum af eiganda Rúmfatalagersins en verslanim- ar hétu áður Kvettiö. í tilefni opnunarinnar var Bón- us með leiguflug með Fokkervél til Færeyja. Auk forráðamanna Bónuss vora fulltrúar ýmissa framleiðslu- og sölufyrirtækja með í för en meiri möguleikar eru nú á útflulningi íslenskra vara til Færeyja en áður. Um milliliða- lausan útflutning yrði að ræða. -bjb ASÍ gagnrýnt Á bandalagsráðstefnu BSRB í gær kom fram gagnrýni á forystu ASI við gerð kjarasamninga. í ályktun ráðstefnunnar segir m.a.: „Þegar gerðir era víðtækir kjarasamningar, sem fela í sér breytingar á skattlagningu og kjörum aUs almennings í land- inu, er óhugsandi að um þá náist sátt, nema því aðeins að að baki búi breið samstaða launafólks við samningagerðina.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.