Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
UÚönd
Stuttar fréttir
Breskri ástarsögu lauk með morði eftir flókinn og ítarlegan undirbúning:
Tilboð um kynlíf úti
í skógi kostaði Ivfið
- eiginkonanákvaðaðlosasigviðmannsinnfáumdögumeftirbrúðkaupið
„Samband þeirra byggist allt á
kynlífi," sagöi Timothy Lansgdale,
saksóknari í Surrey á Suður-Eng-
landi, um skötuhjú sem í gær voru
sek fundin um aö hafa myrt eigin-
mann konunnar eftir flókinn og æv-
intýralegan undirbúning. Bæði
fengu lífstíðardóm fyrir morðið.
Sandra Wingall hafði gengið að
eiga Bob Wigall en vildi halda áfram
fyrra ástarsambandi við Terrence
Bewley sem varð bílstjóri þeirra
Björn Borg
verðuraðborga
Sænski tenn-
isleikarinn
Björn Borg
veröur aö
borga 40 millj-
ónir íslenskra
króna í meölög
með börnum
sínum af fyrra
hjónabandi, hvort sem honum
líkar betur eða verr. Borg getur
ekki borgaö en dómstóll í Stokk-
hólmi tekur ekki mark á fátækt
hans og hefur bundiö enda á
langa þrætu um meðlög kappans.
Rússar bjarga
Fossabankanum
Danir hafa fyrir sitt leyti fallist
á aö Fossabankinn í Færeyjum
verði notaður til að flytja gjald-
eyri frá Vesturlöndum tU Rúss-
lands gegn því að eiginfjárstaða
hans verði styrkt. Þar með hefur
rússneskt fyrirtæki bjargað
bankanum frá gjaldþroti.
Lygariársinsver
nafnbótsína
„Ég held ég vilji ekki heyra
þessa sögu aftur," sagði formaður
dómnefndar eftir að ákveöið var
að láta Derek Martin halda nafn-
bótinni „lygari ársins“ i breskri
samkeppni. Hann sagði að Kín-
verjar hefðu keypt réttinn til aö
halda ólympíuleikana. Martin
sigraði líka í fyrra með sögu um
undirföt Elísabetar drottningar,
Reuterog Rltzau
Erlendar kauphallir:
Hámark í
New York
Hlutabréfavísitölur í helstu kaup-
höllum Evrópu og í Bandaríkjunum
hafa hækkað nokkuð undanfarna
viku. Dow Jones vísitalan í New York
náði sögulegu hámarki sl. miðviku-
dag þegar hún fór vel yfir 3700 stig.
Á fimmtudag fór talan í 3680 stig.
Vísitalan FT-SE100 í London hefur
hækkað um 126 stig á einni viku. í
kjölfar frétta um efnahagsbata Breta
hafa hlutabréfaviðskipti aukist.
NAFTA-samkomulagið hafði einnig
áhrif.
DAX-30 hlutabréfavísitalan í
Frankfurt hefur einnig hækkað
nokkuð að undanfómu, svo og CAC-
40 vísitalan í París. Hins vegar er
vísitalan í Hong Kong á niðurleiö.
hjóna. Samkomulag var lítið í hjóna-
bandinu og fór svo eftir fárra daga
sambúð að Sandra varð leið á Bob
og upp úr því ákváðu hún og bílstjór-
inn að myrða manninnn og fá greidd-
ar dánarbætur.
Undirbúningur morðsins hófst á
því að Sandra bað Bob að koma út í
skóg með sér að skoða refrna. Um
leið gaf hún í skyn að fleira gæti
fylgt. Þegar út í skóg kom varð
Sandra æst í samfarir og meðan hún
— London
DV
lét vel að Bob læddist elskhuginn
aftan að honum og stakk hann til
bana.
Sandra sagöi lögreglunni að ungl-
ingar hefðu ráðist á mann hennar
og drepið hann. Sagan þótti þó ótrú-
leg þegar hún fór strax fram á að fá
dánarbætur greiddar. Við yfirheyrsl-
ur játuðu hin seku á sig morðið og
greindu frá málavöxtum. „Morðið
var framið vegna losta og græðgi,“
sagðisaksóknarinn. Reuter
Karólina, prinsessa af Mónakó, tók þátt i hátiðahöldum í tilefni af þjóðhátiðardegi lands sins í gær. Börnin tvö,
Karlotta og Pierre, voru að sjálfsögðu með en ekki virtust þau skemmta sér tiltakanlega vel - nema þau hafi
lært hátignarsvip aðalsfólksins svona ung. Sögur ganga um væntanlegt brúðkaup Karólinu. Simamynd Reuter
Hlutabrvísitölur í kauphöllum
Dai /j\jj 21000 20000
Jj 19000
18000
17000
620 600 580 560 540 520
h/
480 J Á S O N
1500
1000
DV
GATTísjónmáli
Aðilar að GATT-viðræðunum
sögðu í gær að allar líkur væru á
nýju samkomulagi fyrir 15. des.
Assad í vígahug
Assad Sýr-
landsforseti
gefur lítið fyrir
friðarsamn-
inga við Isra-
elsmenn og
segir að boð
þaðan um frið-
arlíkur séu
mjög orð-
um auknar. Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna er á leið á svæðið.
Ósætti i Suður-Afriku
Búar í Suður-Afríku hafa lýst
yfir óánægju með samkomulag
de Klerks við blökkumenn.
Rannsaka íraka
Rannsaka á hvort írakar hafi
beitt efnavopnum gegn sjítum.
Serbar skammaðir
Serbar voru í gær skammaðir
fyrir að trufla neyðarþjálp.
Viðræður í Angóla
Friöarviöræður héldu áfram í
Angóla í gær.
Páfinnhressistseint
Jóhannes Páll páfi veitir
áheyrn en gerir ekki annað eftir
að hann fór úr axlarlið.
Reynolds í klemmu
Óstaðfestar
sögur um drög
aö samkomu-
lagi deiluaðila
á Norður-
írlandi hafa
skyggt á heim-
sókn Alberts
Reynolds, for:
sætisráðherra írlands, til norður-
hlutans. Allir afneita drögunum.
PLO-maður lést
PLO-maður, sem ísraelskur
landnemi særöi, er látinn.
Átök i Nígeríu
Lögreglan og stjórnarandstæð-
ingar börðust í Nígeríu í gær.
Kúrdarsleppagislum
Skæruliðar Kúrda hafa sleppt
síðustu vestrænu gislunum.
Mildiviðflóttamenn
Norska stjómin lofar að taka
mildilega á ólöglegu flóttafólki.
Gróði hjá Volvo
Verulegur liagnaöur hefur á
þessu ári verið af rekstri Volvo.
HartámótiNoregi
EB ætlar að leggjast gegn fyrstu
samningsdrögum Norðmanna
um inngöngu í bandalagið.
Rússana burt
Eistar krefjast tafarlausrar
brottfarar rússneska hersins.
Nygaard aftur á dagskrá
Norska lög-
reglan hefúr
sent frá sér
teikninguafer-
lendum manni
sem grunaöur
er um tilræðið
við bókaútgef-
andann Willi-
am Nygaard í síðasta mánuði.
SkoraðáPoulNyrup
Skorað er á Poui Nyrup, forsæt-
isráðherra Dana, að koma á friöi
á stjómarheimilinu eftir deilur
um Eyrarsundsbrúna.
Reuter, Ritzau, NTB, TT og ETA
t': jJ’Aieíl