Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Page 8
8
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
Vísnaþáttur
Þó að oft
séfátt
umföng
„Þú getur eignast fleiri vini á
mánuði með því að sýna þeim
áhuga en á tíu árum með því að
reyna að vekja áhuga þeirra á
þér.“ Þaö var bandarískur lögfræð-
ingur, Charles L. Allen að nafni,
sem á að hafa sagt þessa setningu,
en spumingin er: Hvers virði er
slík vinátta? Franski heimspeking-
urinn Francois de le Rochefocauld
segir aftur á móti að „Þaö sem karl-
menn kalla vináttu eru aðeins fé-
lagsleg samskipti þar sem sjálfs-
áhtið gerir alltaf ráð fyrir hagn-
aði“. Hvernig skyldi vinátta milh
kvenna þá vera? Því svarar franski
gagnrýnandinn Antoine Rivarol,
sem var uppi á síðari hluta 18. ald-
ar, á þennan hátt: „Vinátta milli
kvenna er aðeins stundar vopna-
hlé.“ Hefur það nokkuð breyst? Á
þetta ekki við um karlmenn líka?
I Fegurð himinsins, síðasta bindi
Heimsljóss Halldórs Laxness, segir
svo: „Sá vinur sem þú kvaddir í gær
er annar í dag, þú þekkir hann
ekki framar, heimurinn breytist á
einni nóttu, ekki einu sinni trygöin
getur sigrast á tímanum, þaö sem
maöur á það á maður á líðandi
stund: vinur, ástmey, vort eigið líf,
- aðeins ein stund, stundin sem er
að líða, á annarri stund er þaö ekki
framar til.“
Og þá er komið að því að kanna
hvert mat íslensk skáld og hagyrð-
ingar leggja á vini og vináttu og
byrium á stöku Höllu Eyjólfsdótt-
ur, skáldkonu á Laugabóli, sem
hún tileinkaði séra Páli Ólafssyni
í Vatnsflrði:
Sannra vina verðug laun
veröld mælt ei getur,
þeirra, er hafa reynst í raun -,
- reynst þar öðrum betur.
Margrét Jónsdóttir skáldkona
yrkir svo um vináttuna:
Sólargeisla gegnum ský
gott var oft að finna
og mæta hreinni ástúð í
augum vina sinna.
Magnús Kr. Gíslason, bóndi á
Vöglum í Blönduhlíð í Skagafirði,
hefur gert sér ljóst að allra veðra
gæti verið von í skiptum vina þegar
hann kvað:
Ástin lifa lengi má,
Ijúf á milh vina,
meðan hún rekst ekki á
eiginhagsmunina.
Þeir sem verða mjög gamlir verða
að sjá á eftir mörgum vina sinna
yfir landamæri lífs og dauða, eins
og berlega kemur fram í stöku
Hallgríms Jónssonar sem var lengi
skólastjóri Miðbæjarskólans í
Reykjavík:
Fækkar vinum, fjölga ár,
friður hjartans dvíiiar,
af því blæða opin sár
allar stundir mínar.
Vinátta getur á stundum tekið
um of á taugamar ef marka má
stöku Jóns S. Bergmanns sem
hljóðar svo:
Gæfan hefur lagt mér lið
lengi af nægtum sínum:
Ég hef orðið fullan frið
fyrir vinum mínum.
Honum hefur þótt ástæða til aö
telja kjark í einhvem vina sinna
með þessari stöku:
Aldrei hrelli huga þinn
hríðar fellibylur.
Haltu velli, vinur minn,
viijinn svelliö mylur.
Stefán Jónsson, rithöfundur og
kennari:
Þó aö oft sé fátt um fóng
finnst ei þörf að kvarta
þeim er getur gleðisöng
glætt í hvers manns hjarta.
Ekkert vinnur betur bug
böls á dökkum línum
en að vita vinarhug
vaka yfir störfum sínum.
Ókunnur höfundur:
Þó mín sé ævin undarleg
og eigi fátt af vinum,
það er varla víst að ég
verði á eftir hinum.
Ágúst Vigfússon kennari sendi
gömlum kunningja svohljóðandi
kveðju:
Þó að hárin gerist grá
glöggt við báðir finnum,
alltaf leynist ylur frá
okkar fomu kynnum.
Gísli Ólafsson skáld frá Eiríks-
stöðum í Svartárdal orkti til Bjöms
Sveinssonar bónda frá Gili í Skaga-
firði, hagyrðings og hestamanns,
sem var einn af elstu og bestu vin-
um hans, þessar stökur:
Með vor í huga og vinasátt
vöktum hláturs óra.
Viö höfum samleið oftast átt
áratugi fjóra.
Fátt hið skrítna fram hjá sveif
sem fólki stytti vökur.
vaktar upp á víð og dreif
vom beggja stökur.
Til að kitla kvenfólkið
og kanna innstu drögin
í tómstundunum tókum við
tvísöngs kvæðalögin.
Gjarnir að vekja galsaklið.
Geymdum mey í fangi.
Báöir hafa haldið við
hesti á réttum gangi.
Ævihjóhð áfram snýst,
óðum degi hallar.
En fram til grafar verða víst
vinir þessir kallar.
Stundum nægja smámunir til
þess að vinátta fari út um þúfur,
eða ekki verður annað ráðið af eft-
irfarandi ljóði Heiðreks Guð-
mundssonar sem hann kallar
Skuld:
Góður vinur var hann minn.
Ég vissi að hann skorti fé.
Og lítilræði að láni
lét ég honum í té.
Hann læst ekki sjá mig síðan.
En sífellt á verði er.
Og víkur sér hljóður til hhðar
hafi ’ann veður af mér.
Að glata þeim aumm var ekkert.
En undan hinu mig sveiö:
Að trúnni á þeim, sem ég treysti,
tapaði ég um leið.
„Vinir mínir sýna mér hvað ég
get gert, óvinir mínir hvað ég ætti
að gera“ er haft eftir ónafngreind-
um manni, sem bendir tíl þess að
hvorir tveggja séu nauðsynlegir,
eigi vel aö fara.
Torfi Jónsson
Torfi Jónsson
Matgæðingnr vikunnar_pv
Fiskréttur með
Krystal-osti
„Eg nota aldrei uppskriftir þegar
ég elda mat, heldur eigið hug-
myndaflug," segir Huld Goethe,
veitingastjóri á Gerðubergi, sem er
matgæðingur DV að þessu sinni.
Huld byrjar á því að gefa upp-
skrift að gómsætu brauði. Hún er
þannig:
l dl hörfræ
1 dl sesamfræ
2 dl sólblómakjarnar
Þetta er lagt í bleyti í um 8
klukkustundir. Gætið þess að vatn-
ið fljóti yfir kornið þótt það bólgni
upp.
Þegar baka skal brauðið er þessi
blanda sett í stóra skál eða fat og
50 g pressuger (5 tesk. þurrger)
leyst upp í 2 dl af ylvolgu vatni.
Gerblöndunni er bætt út í korn-
blönduna og einnig
1 'á dl hveitiklíði
1 Zi msk. salti
1 eggi
5 dl af ylvolgu vatni
Út í þetta er bætt hveiti, nægilega
miklu til að deigið geti lyft sér.
Þegar það hefur stækkað um helm-
ing er meira hveiti hnoðað saman
viö, aht í allt fara um 2 kg í upp-
skriftina. Nú er deigið hnoðað vel
og skipt i 7 hluta og mótaðar kúlur
úr þeim. Kúlunum er raöað þétt
saman á bökunarplötu, þær pensl-
aðar með eggi og mjólk og ein-
hverri af korntegundunum stráð
yfir. Látið lyfta sér.
Brauðiö er sett í 200 gráða heitan
ofn og bakað í 40 mínútur. Þetta
brauð má gjarnan frysta.
Hér kemur fiskuppskriftin:
1 stk. agúrka
Vi pakki Múhers old fashioned egg
noodles
50 g smjör eða smjörlíki
Huld Goethe veitingastjóri og mat-
gæðingur vikunnar.
60 g smálúðu- eða ýsuflök
1 stk. Krystal-ostur
11 vatn
2 teningar Knorr-fiskikraftur
Aðferðin
Dragið roðið af fiskinum og sker-
ið í fingurstóra strimla. Stráið salti
og pipar yfir. Afhýðið agúrkuna og
kljúfiö. Skafið kjarnahúsið innan
úr henni með teskeið og brytjið í
sneiðar (ekki of smátt) Komið upp
suðunni á vatninu og leysið upp
teningana í því og sjóðiö núðlurnar
í 7 mínútur. Hehið á sigti og látið
í eldfast mót. Geymið soðiö.
Hitið smjörið á pönnu og látið
gúrkubitana út í. Látið krauma
aðeins. Brytjið ostinn út í gúrkurn-
ar og látið hann leysast vel upp.
Setjið soðið af núðlunum þar út í
og látið suðuna koma upp. Þá er
fiskurinn settur ofan á núðlurnar
í mótinu og síðan það sem er á
pönnunni. Blandið vel saman, lok
eða álpappír settur yfir og bakað í
175° heitum ofni í 20 mínútur. Setj-
iö smábrauðin í ofninn eftir 10 mín-
útur. Borðið af djúpum diski með
gaífli og smábrauðinu.
Fljótlegtoggott
Huld gefur aðra uppskrift að fisk-
rétti, sem er bragðgóður og afar
fljótlegur í gerö. í réttinn þarf eft-
irfarandi:
3 msk. hveiti
4 msk. Maggí-uxahalasúpa (ath.
það verður að vera Maggí)
50-75 g smjörlíki (fer eftir þvi
hvernig panna notuð er)
600 g fiskflök eða 6 góð stykki
3 meðalstórir sveppir á mann
2Zi dl rjómi
2 Zi dl mjólk
Aðferð
Blandið saman hveiti og pakka-
súpunni. Veltiö fiskstykkjunum
upp úr blöndunni, síðan upp úr
svolitlu af mjólkinni og aftur upp
úr blöndunni. Steikið sveppina að-
eins upp úr smjörlíkinu og látið þá
til hliöar. Steikið fiskinn eins og
venjulega á pönnunni, setjið síöan
sveppina út í, hellið loks rjómanum
og því sem eftir er af mjólkinni á
pönnuna (ekki yfir fiskstykkin) og
hristið vel. Látið suðuna koma vel
upp og berið fram á pönnunni
STRAX, meðan kraumar vel í.
Borðið með soðnum kartöflum.
Huld skorar á Gerði H. Jóhanns-
dóttur, hússtjórnarkennara við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Hinhliöin
Langar að hitta Clinton
-segir Jón Hermann Karlsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Jón Hermann Karlsson, aðstoð-
armaður heilbrigðisráðherra, var
að góðu kunnur í landshðinu í
handbolta frá árunum 1972-1982.
Síðan var hann framkvæmdastjóri
Teppabúðarinnar. Nú hjálpar Jón
hins vegar mági sínum í hinu erfiöa
ráðuneyti. Og þess má geta að hann
er bróðir Heimis Karlssonar,
íþróttafréttamanns á Stöð 2. Það er
Valsarinn Jón sem sýnir hina hhð-
ina að þessu sinni:
Fullt nafn: Jón Hermann Karlsson.
Fæðingardagur og ár: 24. janúar
1949.
Maki: Erla Valsdóttir.
Börn: Ég á fimm dætur á aldrinum
frá tólf til tuttugu og tveggja og einn
son sem er 23ja ára.
Bifreið: Volvo árgerð 1991.
Starf: Aöstoöarmaður heilbrigðis-
ráðherra.
Laun: Samkvæmt launakjörum
opinberra starfsmanna og mættu
vera meiri.
Áhugamál: Þau eru mörg, t.d.
íþróttimar en ég hef leikiö fótbolta
og körfubolta með Old boys, gömlu
handboltaköppunum, og svo er ég
í golfinu.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég hef aldrei fenigð
fleiri en þrjár tölur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Það sem ég er að fást við
hverju sinni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að gera ekki neitt.
Uppáhaldsmatur: Það er jólamat-
Jón Hermann Karlsson, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra.
urinn, svínahamborgarhryggur
með öhu.
Uppáhaldsdrykkur: íslenskt kalt
vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Til skamms
tíma var það Michael Jordan en
þar sem hann er hættur nefni ég
Sigurð Sveinsson.
Uppáhaldstímarit: Úrval.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Ég hef líklega ekki séð hana ennþá.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Bih Clinton.
Uppáhaldsleikari: Róbert Am-
finnsson.
Uppáhaldsleikkona: Whoopi Gold-
berg.
Uppáhaldssöngvari: Gunnar Guð-
björnsson tenór.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Guð-
mundur Árni Stefánsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Ástríkur.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og
íþróttir.
Úppáhaldsmatsölustaður: Café ó-
pera.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hvaða
vamarliðs?
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Mér
finnst Jón Múh alltaf áheyrilegur.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Páll
Magnússon.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer
mjög sjaldan út að skemmta mér
en ætli það sé ekki nýja félagsheim-
ih Valsmanna þar sem við höldum
herrakvöld og þorrablót.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Valur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni að því að
standa mig vel í dag og á morgun
og sjá fjölskyldu minni farboða á
sómasamlegan hátt. Hvað gerðir þú
í sumarfríinu? Ég hef eiginlega
aldrei tekið mér frí nema í bitum
og þá helst tíl að njóta lífsins og
slappa af, t.d. meö því að fara í golf.