Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Side 14
14
LAUGARDAGUR 20. NÓVRMBRR 1993
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HORÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RViK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÓMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SiMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIOLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Varnarliðið fer
Þjóöinni er ekki gerður greiði með örvæntingar-til-
raunum stjómvalda til að fá bandarísk stjómvöld til að
fresta brottför vamarliðsins á íslandi eða draga hana á
langinn. Nær væri að taka af festu á afleiðingum þess,
að vamarliðið er að leka brott að loknu kalda stríðinu.
Hér í blaðinu hefur í nokkur ár verið bent á, að tíma-
bært sé að mæta óhjákvæmilegri brottför vamarliðsins
í stað þess að stinga höfðinu í sandinn eins og ekkert hafi
í skorizt. ísland hefur færzt úr miðju átakasvæði heims-
veldanna yfir í hernaðarlegan norðurhjara veraldar.
Fyrir tæpum tveimur ámm héldu öryggismálafræð-
ingar íslands ráðstefnu, þar sem þeir stungu sameigin-
lega höfði í sand og komust að þeirri niðurstöðu, að hem-
aðarlegt mikilvægi íslands væri hið sama og áður. Ráð-
stefnan sýndi, að oft kemur menntun að engu gagni.
Síðan hefur vamarliðið verið að fara. Það hefur fjar-
lægt ratsjárþotur og fækkað ormstuþotum. Það hefur
reynt að stöðva framkvæmdir og tekizt að draga töluvert
úr þeim. Þegar núverandi athöfnum lýkur, er ekki hægt
að reikna með frekari uppbyggingu á þess vegum.
Gamanfréttir berast af, að fomstumenn ríkisstjómar
íslands séu að reyna að telja bandarískum viðmælendum
sínum trú um, að kalda stríðinu sé ekki lokið og að enn
stafi ógn af erfðaríkjum Sovétríkjanna. Sagnfræðingar
af slíku tagi tala fyrir daufum eyrum viðmælenda.
Eina haldbæra röksemdin er, að varnarhðið megi ekki
fara alveg, því að í gildi sé langtímasamningum milh rikj-
anna um vamir íslands. En viðmælendumir geta haldið
fram, að þrjátíu menn dugi til þess, úr því að 3000 manns
hafi dugað í mestu frosthörkum kalda stríðsins.
Komið hefur fram, að hinir bandarísku viðmælendur
hafa ekki tök á öhum þáttum á sínum enda. Stjómmála-
menn í þinginu vilja í auknum mæh láta leggja niður
úreltar herstöðvar 1 útlöndum th að spara peninga til
ýmissa mála heima fyrir, sem þeir telja brýnni.
Framkvæmdir á vegum varnarhðsins hafa verið að
dragast saman og munu fljótlega leggjast af. Þjónusta við
starfsmenn vamarhðsins mun minnka hratt 1 hlutfalh
við fækkun þeirra. Og í auknum mæli verður kostnaði
við rekstur Keflavíkurvahar þrýst á okkar herðar.
Hugsanlegt er, að Atlantshafsbandalagið vilji kosta
einhverju til að halda opnum flugbrautum á Keflavíkur-
velh fyrir óvænta hðsflutninga og að Alþjóða flugmála-
stofnunin vflji taka þátt 1 að halda opnum varaflugvelh
fyrir tveggja hreyfla úthafsþotur 1 farþegaflugi.
Ennfremur er hugsanlegt, að Atlantshafsbandalagið
vflji halda uppi einhveiju af hinu nýtízkulega ratsjáreftir-
hti, sem komið hefur verið upp hér á landi. En það má
gera með tfltölulega fámennu starfshði íslenzku. Á sama
hátt er hægt að halda opnum vara- og viðlagaflugvehi.
Hermang íslenzkra aðalverktaka er um það bfl að
leggjast niður og þar með mestöh vinna við framkvæmd-
ir á Keflavíkurvelh. Einnig mun minnka mikið vinna við
rekstur mannvirkja. Þar á ofan er og verður krafizt, að
ísland auki þátttöku sína í kostnaði við flugvöllinn.
Fyrir löngu hefðu íslenzk stjómvöld átt að vera farin
að skflja gang sögunnar. Þau hefðu fyrir löngu átt að
hætta að þjónusta einokunaráráttu Flugleiða og búa í
þess stað í haginn fyrir alþjóðlegt vöruflug um Keflavík-
urvöll og íslenzk fríhafnarsvæði í tengslum við það.
Aumar hafa verið tilraunir stjómvalda tfl að efla at-
vinnutækifæri á Suðumesjum í stað þeirra, sem óhjá-
kvæmflega fara forgörðum vegna fráfalls kalda stríðsins.
Jónas Kristjánsson
Samþykkt
NAFTA ætti að
greiða fyrir GATT
Samningurinn um Fríverslunar-
svæði Norður-Ameríku (skamm-
stafaður NAFTA á ensku) var gerð-
ur í forsetatíð George Bush. í sigur-
sælli kosningabaráttu gegn honum
lýsti Bill Clinton stuöningi við sam-
komulagið að því tilskildu að nokk-
ur ákvæði, einkum varðandi meng-
unarvarnir, fengjust hert. Eftir þau
atriði endurskoðuð lagði hann
samninginn fyrir þingið.
Brátt kom á daginn að andstaðan
við NAFTA í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings kom einkum frá demó-
krötum, flokksbræðrum Clintons
forseta. Þar voru fremstir í flokki
Richard Gephardt, formaður þing-
flokks demókrata í deildinni, og
David Bonior, aðalatkvæðasmali
fyrir þingílokkinn. Utan frá bættist
þeim öflugast liðsinni í baráttunni
gegn NAFTA frá verkalýðsfélögun-
um sem lagst höfðu eindregið á
sveif með Clinton í baráttunni fyrir
forsetakosningarnar.
Viðureignin síðustu vikur í Was-
hington hefur því í rauninni farið
fram fyrst og fremst innan Demó-
krataflokksins. Úrslitin urðu að
Clinton hafði betur, með því að ná
á sitt band 234 atkvæðum gegn 200.
En í þessum meirihluta var yfir
helmingur þingmenn Repúblík-
anaflokksins, stjórnarandstöðunn-
ar.
Gert er ráð fyrir að NAFTA eigi
greiða leið í öldungadeildinni í
næstu viku. Þá er enn eftir einn
þröskuldur því Jean Chrétien, ný-
kjörinn forsætisráðherra Kanada,
hefur áskilið sér rétt tii að fá tekin
upp að nýju ákvæði um úrskurð í
deilumálum, áður en hann gengur
frá lokafullgildingu af hálfu
Kanada. Vill hann reisa skorður
við tilhneigingu Bandaríkjanna til
einhliða aðgerða í ágreiningi, sem
Kandamönnum þykir gæta þrátt
fyrir tvíhliða fríverslunarsamning
sem þeir hafa fyrir við Bandaríkin.
Efnahagslegt vægi þess fríversl-
unarsvæðis eykst aðeins um einn
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
tuttugasta þótt Mexíkó bætist við.
En fyrir Bandaríkjastjórn vakir að
færa það út með tíð og tíma til landa
í Suður-Ameríku.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar á
fimmtudagsnótt í fulltrúadeildinni
hafa verulega þýðingu fyrir póli-
tíska stöðu Clintpns forseta. Hann
hefur annars vegar sýnt að hann
getur haft sitt fram á þingi, jafnvel
þótt mestu áhrifamenn þar í hans
eigin flokki leggist gegn honum.
Hins vegar hefur hann sannað sig
sem miðjumaður i Demókrata-
flokknum sem ekki er háður stuðn-
ingsaðiia eins og verkalýðsfélögun-
um.
Ósigur hefði þar að auki gert
stöðu Bandaríkjaforseta afar erfiða
á ráðstefnu Kyrrahafs- og Asíu-
ríkja í Seattle sem hófst daginn eft-
ir atkvæðagreiðsluna í fulltrúa-
deildinni. Að frumvkæði Clintons
sækja samkomuna æðstu menn
ríkjanna fimmtán og ljóst er að
Bandaríkjastjörn hefur í hyggju að
fá þar lagðan grunninn aö nánari
viðskiptasamvinnu á svæðinu.
Ýmsum Asíuríkjum er lítið um
shkt gefið og hefur til að mynda
Mahathir bin Mohamad, forsætis-
ráðherra Malasíu, ákveðið að sitja
heima af þeim sökum.
Með mestri eftirvæntingu verður
þess beðið hver áhrif samþykkt
NAFTA á Bandaríkjaþingi hefur á
samningaumleitanir um að ljúka
yfirstandanadi lotu um frekara af-
nám viðskiptahindrana á vegum
GATT, Almenna samkomulagsins
um tolla og viðskipti. Þar hefur nú
verið þráttað árum saman og um-
boð Bandaríkjaþings til forsetans
tii að ganga frá samkomulagi sem
þingið fær ekki breytt en verður
að samþykkja eða synja í heild
rennur út 15. desember. Borin von
þykir að það umboð verði fram-
lengt frekar.
Samningamenn Bandaríkja-
stjómar í GATT-viðræðunum hafa
ekkí fengist til neinna raunveru-
legra samningaviðræðna, meðan
kollhríð NAFTA stóð yfir i Was-
hington, til að flækja ekki máhn
fyrir Clinton. Nú standa vonir til
að þeir telji sig hafa frjálsari hend-
ur.
Samningamenn Evrópubanda-
lagsins, sem tekist hafa á misserum
saman við Bandaríkjamenn um
útfærslu samkomulags um lækkun
niðurgreiðslna á búsafurðum og
útflutningsbóta með þeim, þurfa
hins vegar ekki lengur að láta það
halda aftur af sér að óvissa ríki um
hvort Bandaríkjastjóm sé yfirleitt
fær um að gera viðskiptasam-
komulag, sem haldi þegar til kasta
þingsins kemur.
í baráttunni um atkvæðin fyrir
atkvæðagreiðsluna í fulltrúadeild-
inni hét Clinton sérvernd fyrir
ýmsa sérhagsmunahópa til að afla
sínum málstað atkvæða. Svo er til
að mynda um ræktendur sykur-
reyrs, súrávaxta og vetrargræn-
metis í suðurríkjunum. Ekki er að
efa að samningamenn frönsku
stjórnarinnar í GATT-viðræðunum
eiga eftir að vitna til þeirra for-
dæma i vöm sinni fyrir sérsjón-
armið franskra bænda.
Skipting atkvæða i fulltrúadeildinni um NAFTA-samkomulagið.
Mynd af sjónvarpssjá Reuters.
Skoðanir annarra
Haröindi í Bosníu
„Þegar hungursneyð og kuldatíð ógnuðu Bosníu
fyrir einu ári hófu Evrópuþjóðir og Bandaríkjamenn
mikla neyðarflutninga. Síðastliðinn vetur var óeðli-
lega mildur og þó svo að bardagar hafi haldið áfram
dóu fáir úr hungri og kulda. Úthtið í vetur er dekkra.
Utanríkisráðuneytið áætlar að rúmlega 2,7 milljónir
mannslífa séu í hættu vegna stríðaástandsins, sjúk-
dóma, vannæringar eða ófullnægjandi húsakosts.
Mesta hættan er í miðhluta Bosníu þar sem bardag-
ar koma í veg fyrir flutninga hjálpargagna.“
Úr forystugrein New York Times 16. nóvember.
Ekki ástæða til ótta
„Þegar allt kemur til ahs hafa stjórnarflokkarnir
ástæðu til aö hta á niöurstööu sveitarstjómarkosn-
inganna sem áminningu. En þeir hafa ekki ástæðu
til að óttast. Það er rúmt ár til næstu þingkosninga
og kosningaúrshtin (á þriðjudag) em í góðu samræmi
við síðustu skoðanakannanir sem benda til að mjótt
verði á mununum hjá stjórn og stjómarandstöðu
næstu tólf mánuðina."
Úr forystugrein Politiken 17. nóvember.
Dans heimsálfanna
„Evrópuþjóðir fylgjast með Bandaríkjunum ræða
við Asíuþjóðir í þessari viku um framtíð heimsins
en Evrópa er ekki bara áhorfandi. í þessum dansi
heimsálfanna verða Evrópubúar að skilja hvers
vegna Asía er Bandaríkjunum tiltölulega mikilvæg-
ari nú en áður. Þeir verða hins vegar að minna
Bandaríkin á hvers vegna Evrópa skiptir alltaf jafn
miklu máli. Og þeir verða að skilja að Evrópumenn
færu verst út úr sundurlyndi heimsálfanna."
Úr forystugrein Int. Herald Tribune 17. nóvember.