Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 15 Reynslan af vaxtalækkun erlendis að undanförnu hefur verið sú, að i fyrstu lotu hafa heimili og fyrirtæki styrkt fjárhag sinn, en aukin umsvif hafa komið fram siðar. DV-mynd GVA Varanleg lækk- nn raunvaxta? Almenningur viU vita, hvort lækk- un raunvaxtanna verður varanleg. Allir þekkja, að raunvextir hafa lækkað um nálægt tvö prósentustig vegna aðgerða ríkisstjórnar og Seðlabanka. En fær þetta staðizt til lengdar? Margir spekingar hafa tjáð sig um þetta mikilvæga mál. Lítum nánar á þetta. Áætlun ríkisstjórnarinnar hvílir á tveimur aðalþáttum. Annars veg- ar er ríkissjóður reiðubúinn að draga sig tímabundið út af inn- lenda íjármagnsmarkaðinum, að því marki sem ekki bjóðast „ásætt- anleg" lánskjör, það er nógu lágir vextir, á þeim markaði. Auk þess stuðlar Seðlabankinn að lækkun vaxta með margvíslegum aðgerð- um, sem eiga að auðvelda lækkun vaxta á markaði. Þannig lækkar Seðlabankinn vexti í viðskiptum sínum við banka og sparisjóði, lækkar bindiskyldu og rýmkar reglur um lausafjárstöðu bank- anna. Seðlabankinn reynir aö lækka vexti í viðskiptum með spariskírteini á markaðnum. Allt þetta hefur borið mikinn árangur- sem stendur. Vextimir hafa lækk- að mikið á þeirri rúmu viku, sem þetta „kerfi“ hefur staðið. Fólk sem DV ræddi við á verð- bréfamörkuðum og hagfræöingar gera sér nokkuð góðar vonir um, aö vaxtalækkunin fái staðizt. Víðast lækkun um 2-3 prósentustig í Fréttabréfi verðbréfaviðskipta Samvinnubankans, eins og það kallast, er bent á, að þessar aðgerð- ir séu í sama anda og aðgerðir sem margar aðrar þjóðir hafa gripið til á undanfomum misserum. „Stjómvöld hafa einfaldlega stuðl- að að Iækkun vaxta með því að gefa lausari taum í peningamál- um,“ segir þar. „Þótt bæði tíma- setningar og aðferðir hafi verið mismunandi eftír löndum, hefur megininntak aðgerðanna alls stað- ar verið það sama. Með stjóm- valdsaðgerðum hefur peninga- magn verið aukið. Niðurstaðan er einnig sú sama. Raunvextimir hafa lækkað, víðast hvar á bilinu 2-3 prósentustig. Vaxtalækkunarhrinan hófst í Bandaríkjunum á árinu 1991. Fleiri lönd fylgdu fljótlega í kjölfarið, meðal annars Japan og Kanada. I Evrópu lækkuðu vextir hins vegar seinna. Gengisstefna Evrópuríkja stóð í vegi fyrir lækkun þeirra. Vöxtum var beitt til þess að halda gengi gjaldmiðla fóstu gagnvart evrópsku mynteiningunni. Það var í raun ekki fyrr en brestír komu í gengissamstarflð á áliðnu ári 1992 sem vextir tóku að lækka að ráöi í Evrópu." Samt hefur hagvöxtur aukizt hægt. En nú virðist kraftur vera að færast í efnahagslíf iðnríkjanna, og lengst era þau ríki komin, sem fyrst lækkuðu vextina. „Flótti" Ríkisstjómin hverfur nú frá þeirri stefnu að fjármagna lánsfjár- þörf sína eins mikið og kostur er á innlendum markaði. Þess í stað á að slá erlendis, ef kjör bjóðast þar, sem em betri en gerist hér heima. í þessu felst engin varanleg úrbót, heldur „flótti“ frá vandanum eins og vikuritið Vísbending segir. Eftírspum eftír lánsfé er hér meiri en spamaður þjóöarinnar leyfir. Þetta gildir bæði um heimili og fyrirtæki og ríkið. Umsvif ríkis- ins em aUtof mikil miðað við spamaðinn í þjóðfélaginu. Vís- bending segir, að stjómmálamönn- unum hafi ekki tekizt að ná niður fjárlagahallanum. Þessum um- framútgjöldum hafi að mestu verið varið til samneyzlu en ekki til arð- bærra fjárfestinga. Þá er rétt að undirstrika, að þorr- inn af öllum húsnæðislánum til einstaklinga er veittur af ríkissjóði á kjörum, sem em undir markaðs- vöxtum. Lánastofnanir í eigu ríkisins Laugardags- pistill Haukur Helgason aðstoðarritstjóri veita óarðbæmm fyrirtækjum lán á of hagstæðum kjömm miðað við lánshæfi þeirra. Allt þetta hefur valdið meiri ásókn í lánsfé en væri við aðstæöur þar sem ríkissjóður væri rekinn skynsamlega og lán- takendur þyrftu að greiða mark- aðsverð fyrir lánin sín. Enn er það lenzka, að „gæðingar" sem njóta velvilja stjómmálamanna fá ódýr- ustu lánin. En vandinn er miklu meiri en það. Allt kerfið leiðir til þess, að eftirspum eftir lánsfé verð- ur miklu meiri en markaðurinn leyfir. Meira þarf að skera Er von til breytinga á þessu? Er einhver von um, að Friðrik Sop- husson fjármálaráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanrikis- ráðherra komi með tillögur um að skera útgjöld ríkisins niður um svo sem tveim milljörðum meira en fjárlagafrumvarpiö segir? Veröi ekki undinn bráður bugur að því að koma hallarekstri ríkisins niður, mun vaxtalækkunin ekki standast. Hitt er svo annað mál, sem oft hefur komiö fram undanfamar vikur, að við höfum ekki efni á að stórauka erlendu skuldimar. Það er athyglisvert, að raunvext- ir verða hér hærri en víöast annars staðar þrátt fyrir lækkunina nú. Raunvextir ríkisverðbréfa vom hér fyrir aögerðimar 3-ri prósentu- stigum hærri en í flestum öðmm löndum. Það þýðir, að vextir hér verða enn með hinum hæstu, svo að ekki er gefið, að fjárfestar flýi til útlanda með fé sitt. Einungis í Kanada era vextir þessir hærri en 5 prósent. Að með- altali era raunvextir ríkisverð- bréfa nú 3,7 prósent í helztu við- skiptalöndum okkar. Semsé lægri en hér verður. íslenzk ríkisverð- bréf gætu enn talizt góður kostur í fjárfestingu. Vaxtalækkunin hér er svipuð og sú lækkun, sem þegar hefur komið fram víðast annars staðar. í þessu felst að hlutfallið milli raunvaxta hér á landi og 1 öðram löndum breytist ekki aö ráði frá því sem það var fyrir nokkram misseram, þótt vextimir hafi lækkað hér. En framhaldið byggist á því, að efnahagsmálum okkar verði stjórnað skynsamlega. Minnka veröur hallann á ríkissjóði í áfóng- um á næstu ámm. Annars verður lækkun raunvaxta ekki til fram- búðar. Framkvæmdin verður að vera án fums, svo að tiltrú skapist. Hættaá gengislækkun? „Enn er ekki ljóst, hvort þörf er á erlendri lántöku ríkisins í þvi skyni að raunvaxtalækkunin að undaníomu haldist næstu mánuði og misseri," segir Yngvi Harðarson hagfræðingur í fréttabréfi fyrir- tækis síns, Ráögjöf og efnahags- spár. „Fyrir því má þó færa gild rök. Erlend lántaka getur verið merki um, að stööugleiki í verð- lags- og gengismálum bresti. Þaö er hins vegar ekki sjálfgefið." Vegna efnahagsþrenginga hefur atvinnulífið þörf fyrir vaxtalækk- un. Lægri raunvextir stuðla að hærra verði hlutabréfa en ella, bæði vegna jákvæðra áhrifa á af- komu fyrirtækja og vegna lakari ávöxtunar á öðrum skuldaviður- kenningum. Við gildistöku EES-samningsins eykst frelsi í viðskiptum með er- lend verðbréf til langs tíma. í þess- ari stöðu geta fjárfestar valið um, hvort þeir geyma fé í tryggum inn- lendum skuldabréfum, sem bera háa ávöxtun, kaupa innlend hluta- bréf í von um jákvæð áhrif vaxta- lækkunarinnar eða kaupa erlend verðbréf. Yngvi nefnir meðal ann- arra orsaka, að fjárfestar gætu val- ið þann kost að kaupa erlend verð- bréf gagngert til að forðast hættu á gengislækkun krónunnar. í þessu tilviki gætu miklar fjárhæðir streymt úr landi á skömmum tíma. Aukin eftirspurn eftir gjaldeyri þýðir lægra gengi krónunnar að óbreyttu framboði. Ekki er víst, að ríkið hefði bolmagn til erlendrar lántöku á móti slíkum fjárstraumi úr landi. „Niðurstaðan er,“ segir Yngvi. „Ef fjárfesting í erlendum verðbréfum verður aðallega af ótta við gengislækkun, þá er hætta á að stöðugleikinn bresti. Hins vegar er ekki endilega neitt athugavert við erlenda lántöku á móti aukinni erlendri eign, sem er tilkomin vegna eignavals. Væntingar um gengisþróun eru lykilatriði," segir hann í fréttabréfinu. Anna Haröardóttir deildarstjóri hjá Landsbréfum, sagði í viðtali við DV, að vaxtalækkunin fengi tví- mælalaust staðizt. Stærstu fjárfest- arnir virtust hafa tiltrú á lækkun- inni. Markaðurinn sýndi það. Þetta myndi ganga, ef ríkisstjómin héldi sig við aö taka lán erlendis og Seðlabankinn styddi aðgerðirnar með kaupum á bréfum eftir þörf- um. Haukur Helgason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.