Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
17
Bjó til íslensk spáspil:
Byggð á gamalli
íslenskri hefð
- segir Guðrún Bergmann dulfræðirithöfundur
„Þessi spil eru hugsuð fyrir fólk
sem vill nota spáspil, hvort sem
þau eru notuð sem hjálpartæki í
almennum hugrenningum eða til
að leita svara við áleitnum spurn-
ingum í lífinu,“ segir Guðrún G.
Bergmann sem hefur gefið út 32
spákort, Víkingakort, auk bókar
með leiðbeiningum um notkun
þeirra.
„Hægt er að setja fram spumingu
og láta spilin svara, t.d. ef viðkom-
andi er að skipta um atvinnu og
langar að vita um framtíðarhorfur
sínar,“ segir Guðrún og telur að
venjuleg spil geri ekki sama gagn.
„Það er hægt að draga eitt spil ef
um eina spurningu er að ræða.
Þetta er ekki ósvipað rúnapokum
en þá dregur fólk eina rún og fær
leiðsögn."
Guðrún segir að þessi spil séu
ólík tarotspilum. „Tarotspil eru
fleiri og með þeim eru mun minni
leiðbeiningar um hvert spO. Ég
reyni að byggja mín spil á gamalli
íslenskri, andlegri hefð. Við höfum
mikið leitað út fyrir landsteinana í
andlegum hugleiðingum. Gamla
íslenska hefðin er hins vegar mjög
merkileg og ég reyni að draga hana
fram. Það er óþarfi að leita alltaf
langt yfir skammt."
Guðrún segist hafa búið spihn til
þar sem hún hafi fundið mikla þörf
á markaðnum. „Upphaflega held
ég að hugmynd mín að þessum spil-
um hafi kviknað þegar ég fór sjálf
að hugleiöa hin ýmsu andlegu mál-
efni og leitaði til dæmis mikið til
indíána. Ég bar saman hefðir indí-
ána við þær hefðir sem ríktu hér á
landi fyrir kristnitöku. í þeim sam-
anburði komst ég að því að við
ættum mjög ríkar og sterkar and-
legar hefðir. Út frá því fannst mér
að hægt væri að setja hefðirnar
fram á þennan hátt þannig að fólk
sýndi þeim einhverja viðurkenn-
ingu.
Eg hef fundið mjög fyrir þvi að
íslendingar eru að leita að innri
svörun. í framhaldi af þvi vildi ég
gjarnan veita stuðning en þá var
ekkert til á íslensku."
Las mikið um
heiðinn sið
Guðrún hefur unnið að Víkinga-
kortunum frá því í febrúar sl. „Ég
byrjaði fyrst á spilunum fyrir
tveimur árum en hafði síðan ekki
tima þar sem ég var að vinna í öðru.
Ég lagði spilin því til hliðar og fann
þau gögn ekki, þrátt fyrir mikla
leit, fyrr en fyrir nokkrum dögum.
Ég byrjaði því upp á nýtt með nokk-
uð mótaöar hugmyndir og skrifaði
niður hugmyndir að 32 spilum og
hvaða tákn ættu að vera á hverri
mynd. Síðan gerði ég skissur að
myndunum og fékk Ólaf Gunnar
Guðlaugsson myndlistarmann og
auglýsingateiknara til að hanna
kortin. Áður hafði ég lesið margar
bækur um heiðinn sið, íslendinga-
sögur og fleira í þeim dúr. Ég var
stöðugt að leita mér að upplýsing-
um þannig að þær komu úr ýmsum
áttum. Túlkunin sem ég set síðan
fram er útskýring mín á táknum.
Ég hef margprófað að leggja spilin
fyrir fólk og þau hafa virkað," seg-
ir Guðrún.
„Þegar ég var barn haföi ég
skyggnigáfu, sá það sem aðrir sáu
ekki. Ég þroskaði hins vegar ekki
með mér þann hæfileika fyrr en ég
fór að velta fyrir mér andlegum
málefnum miklu seinna. Ég skynja
og get miðlað þó ég hafi aldrei kos-
Guðrún Bergmann hefur búið til spáspil sem hún kallar Víkingakort.
DV-mynd Brynjar Gauti
ið að starfa sem opinber miðUl. í
eitt skiptið var ég stopp með spilin
og ákvað þá að miðla og athuga
hvort ég fengi þær upplýsingar sem
mig vantaði. Það var mjög
skemmtilegt að tíl mín kom maður
sem var klæddur eins og víkingur
og gaf mér hinar ýmsar upplýs-
ingar. Eftir það stUlti ég mig inn á
að leita eftir upplýsingum á þann
hátt.“
Kt
Sumir halda... En rétt er...
...að bændur vilji enga samkeppni og
kjósi einangrunarstefnu.
...að íslenskur landbúnaður á þegar
í mikilli samkeppni við innlendar og
erlendar vörur og styður frjálsari viðskipti
með landbúnaðarvörur innan GATT.
ISLENSKUR
LANDBÚNAÐUR