Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 Kvikmyndir I hléi. Kevin Costner og Clint Eastwood brosa og biða eftir að hægt verði að byrja á næsta atriði. Drengurinn sem Haynes rænir verður þó til þess aö hann fer að hugsa öðruvisi og verður öruggari um sig, en áralöng samskipti við glæpamenn gera það að verkum að hvað eftir annað kemur ofbeldið upp í honum, sem verður til þess að drengurinn hræðist hann jafnmikið og hann dýrkar hann. Á meðan á flóttanum stendur geng- ur fátt í haginn hjá Gamett. Mikið utanaðkomandi álag er á honum, að flnna Haynes áður en forsetinn kem- ur. Ekki bætir það ástandið, sam- skiptaörðugleikamir við Kerper sem er áhugasöm en reynslulaus. Sömu aðstoðarmenn A Perfect World er vegamynd í bestu merkingu þess orðs. Hún gerist nán- ast að öllu leyti á þjóðvegum í Texas Clint Eastwood leikstýrir Kevin Costner í Fullkominni veröld Það bíða sjálfsagt margir spenntir eftir hvernig viðtökur nýjasta kvik- mynd Clints Eastwood, A Perfect World, fær, minnugir þess hve frá- bærar viðtökur Unforgiven hlaut. Fyrir þá mynd fékk Eastwood ósk- arsverðlaun sem besti leikstjóri. Nú er Eastwood ekki á kunnuglegum slóöum í villta vestrinu, þótt enn sé það Texas sem er staðurinn, heldur á þjóðvegum nútímans. A Perfect World er sakamálamynd og varla er hægt að segja að Eastwood sé alveg ókunnugur þeim flokki kvikmynda. Clint Eastwood leikur, sem og oft- ast áöur, eitt aðalhlutverkið í mynd sinni, en þungi myndarinnar hvílir á herðum Kevins Costner og verður fróðlegt að sjá samstarf þessara frægu kappa. Það sem gerir A Perfect World enn forvitnilegri er að hlut- verk Costners er ekki jafn klæð- skerasaumað og í flestum nýrri myndum hans, heldur leikur hann frekar illa þokkaðan glæpamann á flótta. Áflóttameðgísl Kevin Costner leikur Butch Haynes sem hefur verið meira og minna bak við rimlana síðan í æsku. Þegar myndin hefst 1963 hefur Haynes flúið fangelsi í Texas þar sem hann hafði verið dæmdur til 40 ára fangelsisvist- ar. Sér til verndar tekur hann hinn sjö ára gamla Phillip Perry sem gísl. Sá sem stjórnar eftirleitinni er lög- regluforinginn Red Garnett (Clint Eastwood) og í hópnum sem hann stýrir er sálfræðingurinn Safly Ger- ber (Laura Dern) sem í fyrstu fer í taugarnar á Gamett. Það er talið mikilvægt að koma Haynes aftur bak viö lás og slá og ríkisstjórinn í Texas hefur lánað til leitarinnar sérstak- lega útbúinn vagn. Sá áhugi sem er fyrir handtöku Haynes er ekki vegna þess hversu mikill glæpamaður hann er, heldur aö von er á John F. Kennedy forseta til Dallas innan tveggja vikna. Garnett er ekki alveg ókunnugur Haynes og skilur hann sjálfsagt bet- ur en flestir aðrir þar sem hann var sá fyrsti sem handtók hann þegar Haynes var ungflngur. Þá hafði það veriö skoðun Garnetts aö fangelsið hefði góð áhrif á Haynes, en reyndin varð önnur. Kevin Costner leikur fangann Butch Haynes sem sloppið hefur úr fang- elsi og er á flótta ásamt sjö ára gömlum dreng sem hann hefur tekið sem gísl. T.J. Lowhter heitir ungi drengurinn sem leikur hinn sjö ára gamla Phillip Perry sem Haynes tekur með sér og vingast við. og þótti sviðsmyndahönnuðinum Henry Bumstead ekkert tiltökumál að finna smábæi sem höfðu lítið breyst á þrjátíu árum. Það var í raun nóg af slíkum bæjum með fram þjóð- vegum í Texas. Bumstead, sem hefur mikla reynslu af því að tímasetja sviðsetningar, var einn af mörgum kvikmyndagerðarmönnum sem unnu við A Perfect World, sem einn- ig unnu með Clint Eastwoodvið gerð Unforgiven. Frcunleiðandinn David Valdes var ekki aðeins einn framleið- enda Unforgiven, heldur framleiddi hann einnig In the Line of Fire. Af öðrum sem störfuðu við Unforgiven má nefna kvikmyndatökumanninn Jack Green, klipparann Joel Cox og tónskáldið Lennie Niehaus. A Perfect World er sautjánda kvik- myndin sem Clint Eastwood leikstýr- ir og hefur hann leikið í þeim öllum að undaskildum Breezy og Bird. Eastwood á aö baki langan og farsæl- an feril í kvikmyndum. Öfugt við flest önnur stórmenni innan kvik- myndanna fer honum fram eftir því sem árin verða fleiri; það er sama hvort litið er á Clint Eastwood sem leikstjóra eða leikara, hann er einn af þeim stóru í sögu kvikmyndanna og hefur afrekað meira en flestir aðr- ir sem enn eru starfandi. -HK Kvikmyndir Hilmar Karlsson Clint Eastwood leikur lögreglu- manninn Red Garnett sem varð fyrstur til að fangelsa Haynes þegar hann var unglingur. Laugarásbíó mun innan skamms taka til sýningar nýlega franska kvikmynd, Max og Jeremie, kvik- mynd sem fengið hefur hina ágæt- ustu dóma að undanförnu. Er hér um aö ræða sakamálamynd í létt- ari kantinum þar sem aðalpersón- urnar eru tvær, Max, sem leikinn er af Philippe Noiret og Jeremie sem Christopher Lambert leikur. Max er aldraður leigumorðingi sem er vinalaus og að veröa út- brunninn. Þar sem hann getur ver- ið hættulegur þeim sem hafa ráðiö hann tfl margra verka er ungur og ákafur leígumorðlngi, Jerenííe, fenginn til að drepa garala mann- inn. Hann getur samt ekki fengið sig til þess eftir að Max gerir hon- um freistandi tilboö. Myndin flallar síðan á gamansaman hátt um virt- skap þeirra, en félagamir tveir eru mjög ólíkir þótt þeir stundhsömu atvinnu. Max og Jeremie er þriðja kvik- mynd leikstjórans Claire Devers, en sú fyrsta sem vekur athygfl. Fyrri myndir hennar tvær voru listrænar myndir sem voru ekki fyrir hvern sem er. í Max og Jer- emie þykir hún aftur á móti slá á léttari strengi enda fór það svo að myndin var mjög vel sótt í Frakk- landi og hefur einnig fengið góðar viðtökur hvar sem hún hefur verið sýnd í Evrópu. Christopher Lambert og Phflippe Noriret sem leika títilhlutverkin eiga ekki margt sameiginlegt sem leikarar þótt báðir séu Frakkar. Noiret hefur í áraraðir verið einn af virtustu og vinsælustu ieikurum Frakka og leikið í fjölda kvik- mynda. Hann lék í sinni fyrstu kvikmynd 19S6. Noiret hefur unnið með flestum af þekktustu leikstjór- um Frakka, má þar nefna Agnés Varda, Louis Malle, Jean Del- annoy, René Clair, Yves Robert, Phillppe de Broca, Bertrand Ta- vernier, Alain Robbe-Griflet, Claude Chabrol og Claude Berri svo einhverjir séu nefiidir. Þá hefur hann leikið i mörgum bandarísk- um og ítölskum kvikmyndum með leikstjórum á borð við Anatole Lit- vak, Alfred Hitchcock, George Cukor, Peter Yates, Marco Ferreri, Francesco Rosi, Giuseppe Tomat- ore og Mario MoniceflL Nýlega sló hann eftirminnilega í gegn í ósk- arsverðlaunamyndinni Cinema Paradiso. Christopher Lambert hefúr aftur á mótí ieikið að mestu í enskumæl- andi kvikmyndum og er Max og Jereraie fyrsta franska kvikmynd- in sem hann ieikur í síðan hann lék i kvikmynd Luc Besson, Subway, árið 1984 og hlaut heimsfrægð fyr- ir. Árangur hans í bandarískum kvikmyndum hefur þó ekki verið mikill en þekktastur er hann í seinni tíö fyrir leik sinn í Highland- er myndunum. I ÍVrra lék hann í tveimur ágœtum spennumyndum Knight Moves og Fortress. -HK ast vináttubondum 1 Max og Jeremíe.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.