Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
23
John F. Kennedy ekur með Jacqueline sér við hlið um götur Dallas. Þarna varð örlagarikur atburður í sögu banda-
rísku þjóðarinnar fyrir 30 árum. Enn í dag ræða menn morðið á Kennedy, sumir segja vegna þess að alla langi til
að vita hvað hetði gerst ef forsetinn hefði ekki verið myrtur. Símamyndir Reuter
Þrjátíu ár liðin frá morðinu á John F. Kennedy í Dallas:
Myrtu Lee, Haryey
og Oswald Kennedy?
- búið að gefa út 506 bækur um forsetann og fleiri á leiðinni
„Þetta vissi ég, þeir voru þrír. Lee,
Harvey og Oswald myrtu Kennedy."
Þannig hljóðar nýjasta kenningin
um morðið á John F. Kennedy
Bandaríkjaforseta í munni þeirra
sem eru búnir að fá nóg af samsæris-
kenningum um þetta frægasta morð
allra tíma.
í bókasafni bandaríska þingsins er
að finna 506 bækur um málið og eru
þá ótaldar greinarnar, sjónvarps-
þættirnir og kvikmyndir þar sem
reynt að er að komast að niðurstöðu
um hver eða hverjir myrtu hinn ást-
sæla forseta.
Samsæriskenningar
Og í sannleika sagt eru menn engu
nær að öðru leyti en því að allar lík-
ur benda til að Lee Harvey- Oswald
hafi verið einn að verki - nema menn
vilji taka undir með gárungunum og
trúa að sá maður hafi verið þríeinn.
Á mánudaginn verða Uðin þrjátíu
ár frá því Kennedy var skotinn til
bana í Dallas. Enn í dag trúir meiri-
hluti Bandaríkjamanna því að opin-
bera skýringin um að einn maður
hafi staðið að morðinu sé röng og að
gert hafi verið samsæri um að ráða
forsetann af dögum.
Kvikmynd OUvers Stone - JFK -
á stóran þátt í að blása nýju lífi í
rannsóknir á morðinu. Þar er ýms-
um getum leitt að ástæðum morðsins
þótt ekki geti niðurstaðan taUst trú-
verðug.
Nýjar rannsóknir
Því er raunar haldið fram að tíma-
bih samsæriskenninganna hafí lokið
við mynd Stones. Eftir það hafa kom-
ið út ítarlegar rannsóknir á morðinu
og í öUum tilvikum er niðurstaðan
sú sama: Lee Harvey Oswald stóð
einn að baki moröinu.
Frægust nýrra bóka um Kennedy-
morðið er MáUnu lokið eftir Gerald
Posner. Þar er máUð rannsakað frá
grunni, nýjustu tækni beitt við að
rekja feril kúlunnar sem banaði
Lyndon B. Johnson sver embættiseið sem forseti Bandarikjanna um borð
í flugvél forsetans eftir morðið í Dallas. Við hlið hans er ekkjan Jacquel-
ine. Bandaríkjamenn hafa fylgst náið með lífi hennar og barna hennar.
rS»-
*'**»•' ftM.
; X< ilDIMUM < " '1' '=* *#»-.*J**
< M tttlWU jUMIUMII***#«,**<*♦..,*-» U}\
v»nté»<ife tt trwwixtí-it* Wtiu*
*«l í .' ts&i *>i JuonXtl
w. i'ti'.K ~:y,x(v-» »>,
«Í •-< » vt .íj** )*•**
. «<■*•» s’ ccta íut.1 yi~-*Uí.. »,»(, »».. » ,
;.tx-4 „ »x<,» •. >t<,^,
•><« 1A-Íi.u>-U
,#*:«*» }*&.< £*(*»;:*ffTTn ■j.ff.nf -f r,,
v&t .*».-teM*-v
Lee Harvey Oswald. Stóð hann einn
að morðinu eða var hann hand-
bendi CIA, mafíunnar og Kúbverja?
Kennedy og niðurstðan er sú sama
og i upphafi; ekkert samsæri.
Efasemdarmennirnir láta þó ekki
sannfærast. Jim Marra, höfundur
bókar sem Stone byggði mynd sína
á, segist enn vilja betri sannanir.
Skjal með ráðabruggi um að myrða
Fidel Castró á Kúbu. Var það undir-
rót morðsins?
Hann segir og að ef líf sé eftir þetta
líf þá muni hann láta það verða sitt
fyrsta verk á himnum að spyrja
Drottin allsherjar: Hver myrti
Kennedy?
-GK
HÁKARL
Erum að selja okkar sívinsæla skyr- og glerhákarl.
Tökum niður pantanir fyrir þorrann. Sendum um land
allt. Pantanir í síma 95-13179 frá kl. 10-22 alla daga.
Hákarlsverkun Gunnlaugs,
Hólmavík, sími 95-13179
Það er hægðarleikur
... að koma meltingunni í
lag með þeim náttúrulegu
efnum sem eru í
„Metamucir.
Sérfræðingar mæla með
Metamucil freyðidufti,
í skammtabréfum,
sem leysist upp í vatni
eða ávaxtasafa.
Fæst í öllum apótekum.
W1 LYF HF.