Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 26
26
LAUGAKDAGUR 20. NÓVKMBER 19911
!
>
Sagan á bak við Jón Pál Sigmarsson:
f
S kemmtilegheitin
gerðu hann vinsælan
Ekkert mál. sagan á bak viö Jón
Pál. nefnist ævisaga kraftajötunsins
Jóns Páls Sigmarssonar sem lést fyrr
á þessu ári. í bókinni. sem Ólafur
H. Torfason skrifar, er leitast við að
ílétta saman sögu sterkasta manns
heims og þætti úr sögu íslenskra
kraftamanna frá öndverðu og yfirlit
um þróun ailraunaíþrótta og líkams-
ræktar. Það er bókaútgáfan ísland
og umheimurinn sem gefur bókina
út. Helgarblaöið fékk leyfi til að birta
kafla úr bókinni.
Hið fagra kyn
Fólk velti oft vöngum yfir ástalífi
og vinkonum Jóns Páls, eins og tíðk-
ast um alla fræga menn. Jón Páll var
vinsæll af hinu fagra kyni og hafði
bæði reynslu af því að vera í sambúð
og einn síns liðs.
- Palli var gróinn við Jakabólið, seg-
ir Sveinn Hólm, æfði í Jakabóli,
kynntist stelpum í Jakabóli. Hann
tók þessa hlið skipulega eins og aðr-
ar, en maður komst lítið að því hvað
var á ferðinni, það fer ekki margt frá
dulum mönnum.
- Kraftlyftingarnar og aflraunirnar
eru ýktar myndir af karlaheiminum
og testósterón-fnykinn leggur af æf-
ingastöðunum, segir Jón Oskar Sói-
nes, konur eru oft afgangsstærð í lífi
þessara íþróttamanna, þeir lifa í
öfgakenndasta karlaveruleika sem
til er. Það er eðlilegt að þeir sækist
í staðinn eftir ýktustu mynd af kon-
um. Og hvað er kvenlegra en grönn
og fmgerð kona?
- Ein konan sem Jón Páll varð ást-
fanginn af, segir Valbjörn Jónsson,
fór verulega í taugamar á honum og
var framhleypin. Hann var bara hrif-
inn af henni. Jón Páll var sérvitring-
ur í sambandi við kvenfólk. Einu
sinni hittum viö tvær stelpur og ég
fann strax að hann vildi ekkert ræða
nánar við þær. „Ég sá litla vörtu á
kinninni á annarri þeirra," útskýrði
hann á eftir, „getur þetta ekki verið
herpes?"
- Helstu kostir Jóns Páls voru meðal
annars að hann haföi gífurlegan
viljastyrk, segir Ragnheiður Jónína
Sverrisdóttir, barnsmóðir hans og
sambýliskona um skeið, og að hann
talaði aldrei illa um náungann, lét
ávirðingar liggja í þagnargildi. Hann
var ákaflega barngóður og sérstak-
lega góður faðir. A milli sonar okk-
ar, Sigmars Freys, og hans var sterkt
samband sem bar vott um mikla vin-
áttu og viröingu. Einnig sýndi hann
alltaf dóttur minni, Söru Bjarneyju,
hlýju og athygli. Við bjuggum saman
í íjögur ár á tveimur tímabilum. Á
milli okkar hélst alltaf góð vinátta,
þótt við værum ekki alltaf sammála,
enda ákaflega ólík.
- Mér finnst ýmsir íslendingar
býsna kvensamir, segir dr. Douglas
- en frægðarsólin var sterkari í útlöndum en hér heima
Jón Páll með sigurverðlaunin í World Muscle Power Championship 1989
en það var í þriðja sinn sem hann vann til þeirra.
Edmunds, en Jón Páll var ekki þann-
ig. Hann vildi eiga í traustum sam-
böndum og líkaði ekki að kærustur
væru eitthvað flöktandi. Hann eign-
aðist nokkrar vinkonur mér vitandi,
en vildi ekki festa sig til fulls, ætlaði
að vanda valið. Hann var mjög ást-
fanginn af finnsku stúlkunni Heli
Okkonen, sem hann bjó með í Finn-
landi, og sagði við mig: ,.Ég held að
ég eigi eftir að halda í þessa."
Áfengið
Fáum sögum fer af því að Jón Páll
bragðaði áfengi og yfirleitt fékk hann
sér ekki meira en eitt bjórglas á
kvöldi. færi hann út að skemmta sér.
Ab Wolders segir þó eina sögu um
öllu meira þamb. Þeir voru þá í heim-
sókn hjá Jamie Reeves vegna afl-
raunamóts nærri Sheffieid. Eftir
fyrri keppnisdaginn skruppu Kaz-
meier, Jón Páll og Wolders á hótel-
bar. Wolders var í slæmu standi og
hafði gengið illa í fyrstu greinunum.
Kazmeier og Jón Páil voru sífellt að
metast og þegar Jón Páll fékk sér
eitt glas af Tequila spurði Wolders
Kazmeier hvort hann gæti ekki gert
betur. Kazmeier stakk þá að bragði
úr tveim glösum. Þessi keppni endaði
þannig að Jón Páll drakk 20 glös en
Kazmeier 22. Wolders sigraði þá dag-
inn eftir. Eftir þetta spurði Wolders
Jón Pál í hvert skipti sem þeir hitt-
ust fyrir keppni: ,.Á ekki að fá sér
Tequila?"
Lyfin
Sú spurning kviknaði oft hvort lyft-
ingamenn og sérstaklega atvinnu-
menn í aflraunum notuöu vaxtar-
aukandi lyf. Jón Páll var ítrekað
spurður að þessu i blaðaviðtölum og
svaraði hann alltaf neitandi.
- Vitað er um ættarsögu Jóns Páls,
segir Ágúst Kárason læknir, í aettínni
eru kransæðasjúkdómar. Staðreynd-
irnar sem liggja fyrir um áhættu-
þættina eru hár blóöþrýstingur,
reykingar og kólesteról í blóði. Allt
annað eru meira og minna vanga-
veltur. Ég hef kynnt mér ýmis skrif
um áhættuna af hormónalyfjum og
ekki séð neitt ákveðið tilfelli um
kransæðasjúkdóma sem ótvírætt
getur talist tengjast þeim eða hægt
að rekja beint til þeirra. Vitað er hins
vegar með vissu um heilablóðfóll og
lifraræxli í kjölfarið, svo dæmi séu
nefnd. Þó svo að Jón Páll hefði mis-
notað hormónalyf, sem engar heim-
ildir eru um, eru engin slík tengsl
örugg sem dánarorsök hans. Það er
ónýt röksemdafærsla að dánarmein
hans hafi verið lyijanotkun.
Passasamur
- Jón Páll var passasamur á það sem
fór ofan í hann, segir Kjartan Guð-
brandsson, hvort sem það var
magnýl eða eitthvað bólgueyðandi.
Hann sagði oft að það sem maður
neytti mætti hvorki fara illa í mann
né illa með mann. Ef hann hefur á
einhverju tímabili tekið lyf til að
bæta árangur sinn þá er það víst að
hann hefur staðið skynsamlega að
því á allan máta. Hann fór með mik-
illi gát að öllu í samræmi við þær
upplýsingar sem hann hafði. Hann
breytti mataræði sínu þegar honum
varð betur ljóst hvaö gat verið
óheppilegt. Jón Páll hvatti menn
mjög áfram og margir þáðu ráö hjá
honum um æfingar og mataræði, og
hann lagði áherslu á að menn skyldu
ekki koma nálægt neinu sem færi
illa með þá.
- Atvinnumenn í íþróttum nota allir
sérstakt fæði, segir Jock Reeves í
æfmgastöðinni Fitness World í
Sheffield, en Jón Páll fór varlega i
aflri neyslu. Hann skammaði okkur
fyrir að drekka of mikið te og kaffi,
smakkaði nær aldrei áfengi og vildi
ekki einu sinni taka aspirín. Hann
var fyrirmynd annarra um heilbrigt
líferni og það hefði verið mjög ólíkt
honum að misnota lyf. Mér er vel
kunnugt að fjöldamargir aflrauna-
menn og vaxtarræktarmenn hafa
notað stera en hins vegar veit ég
engin dæmi þess um Jón Pál.
- Eg hef enga trú á því að Jón Páll
hafi misnotað lyf, segir Ilkka Kinn-
unen. Rógurinn kviknar eftir á, þeg-
ar hann er ekki lengur til svara.
Gróusögur
- Ég sá Jón Pál aldrei taka vaxtar-
aukandi lyf, segir Jóhann G. Möller,
og ég vissi ekki til að hann tæki þau
nokkurn tíma. Það var frá upphafi
yfirlýst stefna okkar í GYM 80 að
banna mönnum að hafa slík lyf und-
ir höndum hér í æfmgastöðinni, til
sýnis eöa sölu. Landlæknir lýsti því
eitt sinn yfir að slík efni væru í um-
ferö á líkamsræktarstöðvum en ég
hef að minnsta kosti aldrei séð þau
hér og held reyndar að þeir sem nota
slíkt flaggi því ekki og séu ólíklegir
til að hampa lyfjum á æfmgastöðum
sínum. Það hefur orðið þróun og við-
horfsbreyting í þessum efnum,
mörkin voru á sínum tíma óljós og
lítil fyrirstaða að fá hormónalyf gegn
lyfseðli hjá læknum, en nú er slíkt
liðin tíð og flestir sammála um skað-
leg áhrif misnotkunar lyfjanna. Mér
fannst lyfjaumræðan sem varð eftir
dauða Jóns Páls skammarleg, ekki
styðjast við heimildir og vera misvís-
andi. Andlát sonar míns, Jóhanns
G. Möller yngri, blandaðist inn í þá
umræðu leynt og ljóst, en hann hafði
stundað kraftlyftingar, var með okk-
ur hér í uppbyggingu GYM 80, en
fékk hjartaáfall 1992.
- Mér er ókunnugt um að Jón Páll
hafi notað lyf til að bæta árangur
sinn, segir dr. Ðouglas Edmunds, og
hafi hann gert það hefur það ekki
getað verið mikið. Við atvinnumenn
þekkjum einkennin vel, þau leyna
sér ekki, hvemig menn tútna út, fá
óhreina húð og ummerki á baki og í
andliti, stundum í augum. Hann
sýndi engin merki um slíkt. Ég
spurði Jón Pál einu sinni hvort hann
tæki amfetamín. Hann svaraði: „Nei,
ég er nógu óður.“ Ég hef alltaf verið
eindreginn andstæðingur lyfja-
Vlð Kleifarvatn 1992.
neyslu íþróttamanna en að mínu
mati er amfetamínið hættulegasta
lyfið sem þeir grípa til. Misnotkun á
sterum er mjög afbrigðilegt hátterni.
Ég tel næsta víst að margir banda-
rískir íþróttamenn, sem nota lyf, geri
það undir læknishendi og eftirliti
þeirra. Við látum nú lyfjaprófa alla
sem taka þátt í aflraunakeppninni
Sterkasti maður heims. Hins vegar
fmnst mér ódrengilegt að væna Jón
Pál um misnotkun lyfja þegar hann
getur ekki varið sig lengur og skýrt
hvað hefur verið á ferðinni, ef ein-
hver ummerki lyfja hafa fundist í
sýni frá honum.
Lyfjapróf
- Ég varð aldrei var við neitt vafa-
samt lijá Jóni Páli, segir David P.
Webster, sem var náinn kunningi
hans um margra ára skeið og oft
dómari í aflraunakeppni, það er ekk-
ert sem bendir til þess að hann hafi
misnotað lyf. Við sem fylgjumst vel
með í þessum efnum þekkjum og
sjáum strax einkennin, á brjóstvöðv-
unum og vöðvabyggingunni annars
staðar, óhreina húð, vatnssöfnun í
líkamanum og svo framvegis. Jón
var alltaf með sérstaklega fallega húð
og samræmda vöðvabyggingu. Ég hef
ævinlega varað iþróttamenn við
lyfjaneyslu og núna eru allir þátttak-
endur í keppninni Sterkasti maður
heims lyfjaprófaðir og sýnin rann-
sökuð hjá óháðri og viðurkenndri
stofnun. Ég þjálfa ekki íþróttamenn
sem neyta lyfja. Jón Páll átti árangur
sinn að þakka þrotlausum æfmgum
og nákvæmni.
Frægðin
Hversu frægur var Jón Páll Sig-
marsson í raun og veru? íslendinga
grunar oft, ef landar þeirra ná langt
í einhverjum greinum, að það sé
vegna þess að svo fáir í heiminum
stundi þær. Þegar menn vildu gera
lítið úr afrekum og frægð Jóns Páls,
Hjalta Árnasonar og Magnúsar Vers
Magnússonar í keppni um titilinn
Sterkasti maður heims var viðbáran
oft sú að þetta væri „bara“ sjón-
varpsskemmtiþáttur sem enginn
tæki alvarlega. Staöreyndin er sú að
þættimir hafa verið sýndir í um 60
þjóðlöndum og hafa reynst mjög vin-
sælir. Hundruð milljóna jarðarbúa
áttu þess kost að sjá íslenska „víking-
inn“ margsinnis á skjánum heima
hjá sér. Erlendis er líka sjónvarpað
frá Hálandaleikum, mótum eins og
World Muscle Power Championship,
sem Jón Páll vann fimm sinnum, og
fleiri slíkum. Hann kom einnig fram
í sjónvarpi í mörgum löndum, vegna
móta eða annarrar keppni. Þegar
leiðtogafundur Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta og Mikaíls Gor-
batsjovs, leiðtoga Sovétríkanna, var
haldinn í Reykjavík 1986 birtust við-
töl við Jón Pál og frásagnir af honum
í öllum helstu sjónvarpsstöðvum
vestan hafs. Blaðaúrkiippur um Jón
Pál sýna aö hann hefur verið umtal-
aður í flestum ef ekki öllum löndum
Evrópu, í Kanada, Bandaríkjunum
og Japan, svo dæmi séu nefnd.
Þrjú frægustu
- Hér í Bretlandi var á tímabili oft
bent á okkur þessa þrjá frægu íslend-
inga samtímis, segir Magnús Magn-
ússon í Glasgow, - Jón Pál, sterkasta
mann heims, Hólmfríði Karlsdóttur,
fegurðardrottningu heims, og mig,
sem sá um spurningaþáttinn Master
Mind í BBC-sjónvarpinu og átti þá í