Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 34
42
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993
Iþróttir
Hverjir skína skærast
á bandaríska sviðinu?
- margir frægir sitja heima á meöan aðrir fá tækifæri 1 lokakeppni HM
Michael Laudrup felldur af spænska markverdinum Andoni Zubizarreta og Danir felldir út úr heimsmeistarakeppninni af Spánverjum.
Símamynd Reuter
Margar af skærustu stjörnum
heimsbyggðarinnar fá tækifæri til að
sýna snilli sína á knattspymuvöll-
um Bandaríkjanna næsta sumar,
þegar úrslitakeppni heimsmeistara-
mótsins fer þar fram, en aðrar verða
að sitja heima og fylgjast meö úr fjar-
lægð.
Það var skammt á milli gleði og
sorgar á miðvikudagskvöldið þegar
síðustu leikir undankeppninnar fóru
fram en þá tryggðu átta Evrópuþjóð-
ir sér sæti í úrslitakeppninni og Arg-
entínumenn að auki.
Papin hættur?
<Mesta áfallið var án efa hjá Frökkun-
um, sem voru með HM-sætið í hendi
sér allan tímann, en töpuðu síðan
tveimur heimaleikjunum á marki á
síðustu sekúndum, fyrst gegn ísrael
og svo gegn Búlgaríu á miðvikudags-
kvöldið. Þetta þýðir aö Jean-Pierre
Papin og Eric Cantona fá ekki að
leika listir sínar vestan Atlantsála í
komandi júnímánuði. Ekki er ólík-
legt að Papin hafi leikið sinn síðasta
landsleik gegn Búlgaríu því hann
haíði þegar lýst því yfir að hann
myndi hætta með franska landslið-
"inu eftir heimsmeistarakeppnina en
hann ætlaði sér alltaf að spila í
Bandaríkjunum.
Schmeichel og
Laudrup-bræður
Dönsku Evrópumeistararnir misstu
líka af Bandaríkjafór þó þeim dygði
jafntefli í Sevilla og Spánverjar væru
manni færri í 80 mínútur. Peter
Schmeichel fékk aðeins tvö mörk á
sig í undankeppninni en skoðar
eflaust sigurmark Spánverja aftur
og aftur enda ljóst við nánari skoðun
að brotið var á honum þegar fyrir-
gjöfin kom fyrir markið. Félagar
hans, Michael og Brian Laudrup,
hefðu verið góðir skemmtikraftar á
þandaríska sviðinu.
Ryan Giggs, töframaðurinn frá
Wales, fær heldur ekki að sýna sig á
meðal þeirra bestu því Walesbúar
misstu rétt eina ferðina af HM-sæti
á siðustu stundu. Englendingar eru
líka úti í kuldanum en þar hefði
David Platt sjálfsagt verið atkvæða-
mikill, jafnvel Paul Gascoigne
ef hann hefði á annað borð getað
spilað.
Knattspyrnusögu Tékkóslóvakíu
lauk endanlega í Brussel á miðviku-
dagskvöldiö en Mið-Evrópuríkið
fyrrverandi státaði af einum silfur-
verðlaunum úr heimsmeistara-
keppni. Hiö sameinaða lið Tékka og
Slóvaka var einu marki frá því að
framlengja líf sitt til næsta sumars,
en markalaust jafntefli viö Belga
þýðir að héðan í frá leika Tékkland
og Slóvakía sitt í hvoru lagi og öflug
knattspymuþjóð er úr sögunni.
En þegar á hólminn verður komið
muna fæstir eftir þeim sem heima
sitja. Það verða bestu leikmenn
þeirra 24 liða sem bítast um heims-
bikarinn sem verða í sviðsljósinu.
Hverjar stjörnur keppninnar verða
er ekki auðvelt að spá um, þar eru
margir kallaðir en fáir útvaldir.
Síðasta tækifærið
hjá Maradona
Margra augu munu beinast að Diego
Maradona. Getur þessi fyrrum stór-
stjarna HM, fyrirlijjjjneistaranna frá
1986 og silfurverölaunahafi frá 1990
enn á ný heillað heimsbyggðina með
snilli sinni? Maradona er 33 ára og
ferill hans síðustu tvö árin hefur
verið í rústum en nú fær hann síð-
asta tækifærið.
Gullit eða Bergkamp?
Ruud Gullit hefur mikinn hug á aö
leika með Hollendingum í loka-
keppninni en hann hefur ekki gefið
kost á sér í landsliðið á ný. Johan
Cruyff mun væntanlega stjórna Hol-
lendingum í Bandaríkjunum og
Gullit vill leika undir hans stjórn.
Gullit er heldur betur að ná sér á
strik á ný og er til alls vís ef hann
fær að vera með vestra. Félagi hans,
Marco Van Basten, er meira spurn-
ingarmerki eftir langvarandi meiðsh
en þó er aldrei að vita. Hins vegar
gæti það orðið Dennis Bergkamp sem
myndi skína skærast hjá Hollending-
um ef þeir ná langt.
Hassler, Stoichkov
Baggio og Romario
Hjá þýsku heimsmeisturunum er
Thomas Hássler líklegastur til að
vekja aðdáun, Búlgarar koma með
hinn snjalla Hristo Stoichkov, Ro-
berto Baggio verður væntanlega í
aðalhlutverki hjá ítölum, og Romario
hinn brasilíski er einn sá flinkasti
sem nú er uppi og gæti hæglega
blómstrað næsta sumar.
Næsta HM-stjarna
frá Afríku?
En kannski er nú komið aö því að
stjarna HM komi ekki frá Evrópu eða
Suður-Ameríku. Afríska knattspyrn-
an hefur verið á gífurlegri uppleið
og menn skyldu ekki vanmeta lið
Kamerún, Nígeríu og Marokkó.
Margir telja að afrískt lið eigi eftir
að verða heimsmeistari en varla þó
strax á næsta ári. Kamerúnbúar, með
hinn aldna Roger Milla í fararbroddi,
sýndu í síðustu keppni á Ítalíu að
markmið afrísku liðanna í HM er
ekki lengur bara að vera með. -VS
PLÚS
Plús vikunnar fá handbolta-
strákamir úr ÍH í Hafnarfirði.
Þeir slógu 1. deildar lið Þórs
út úr bikarkeppninni og
minntu á að það eru orðin þrjú
marktæk lið í handboltabæn-
um. Það verður fróðlegt að
fylgjast með þeim í baráttunni
um 1. deildar sæti í vetur.
MÍNUS
Mínus vikunnar fær Körfu-
knattleikssambandið fyrir að
hieypa liði ÍR inn í 1. deild
kvenna eftir að búið var að
raða niður í mótið. ÍR-stelp-
unum er pakkað saman í
hveijum einasta leik og breytt
fyrirkomulag þýðir fækkun
alvöruleikja fyrir hin liðin á
tímabilinu.
fþróttamadur vikurmar
Lára Hrund Bjargardóttir
- bætti íslandsmetið í 200 m baksundi um 9 sekúndur
Lára Hrund Bjargardóttir, Ægi,
12 ára, vann það frækna afrek síð-
astliðinn sunnudag að sigra í 200
metra baksundi á unglingameist-
aramóti íslands sem fór fram í
Sundhöll Reykjavíkur. Hún gerði
gott betur því stúlkan setti einnig
nýtt glæsilegt íslandsmet, synti á
2:34,45 mínútum og bætti metið um
rúmar níu sekúndur. Það sem er
þó hvað athyglisverðast við þennan
glæsilega árangur er að hún var
að synda þessa vegalengd í fyrsta
skipti.
Guðmundur Harðarson, hinn
kunni sundþjálfari, hafði þetta að
segja um Láru:
„Það eru alls skráð 17 íslandsmet
í meyjaflokki og á Lára Hrund 12
þeirra. Styrkur hennar felst ekki
hvað síst í því hvað sund hennar
er tæknilega vel útfært. Hún hefur
stálvilja og áhuginn fyrir sund-
íþróttinni er geysilega mikill.
Best væri að Lára fengi að þróast
í takt við sinn andlega og líkamlega
þroska. Oft þegar efnilegir krakkar
koma fram er þeim ýtt áfram af
miklum ákafa.
Lára er alveg frábært efni í mikla
afrekssundkonu og er því mikið í
húfi. En það er mín skoðun að þetta
eigi að kpma allt saman í rólegheit-
unum. Ég held að það sé fullur
skilningur á þessu, bæði hjá þjálf-
ara hennar, Finnanum Petteri La-
ine og í nánasta umhverfi," sagði
Guðmundur.
Sundferill stúlkunnar hefur verið
mjög litríkur að undanfórnu, svo
ekki sé meira sagt, því í hvert sinn
sem hún hefur stungið sér í laugina
hefur nýtt íslandsmet séð dagsins
ljós.
-Hson