Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Page 36
44 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 Fréttir Kjörstaðir í Reykjavík og nágra n na byggða rlögu m | Laugardalshöll | G'ÆfSS Mýrarhúsaskóii Ráöhúsiö Seltjarna' Foldaskóli Austurborg: Póstnr. 103 104 105 108 Fellaskóli Kjalnesinga Fólkvangur Árbæjarskóli Brelðholt östnr.: 109 V 111 losfellingar: umárskóli Garðabær \ og Bessastaöahreppi Flataskóli Miö- og vesturborg Póstnr.: 101 % 107 Kjosverjar: Félagsgaröur Árbær-Selás Póstnr.: 110 Atkvæöagreiösla um sameiningu sveitarfélaga fer fram í dag: Ágæt kjörsókn utan kjörf undar - gefur tilefni til bjartsýni um þátttökuna Stór hluti landsmanna gengur aö kjörboröinu í dag til aö greiða at- kvæði um tillögur umdæmanefnda um sameiningu sveitarfélaga. Víöa um land er búist við dræmri þátttöku í kosningunum þó aö aukin þátttaka í utankjörstaðaatkvæðagreiðslunni síöustu daga hafi gefið tilefni til nokkurrar bjartsýni. Anna Mjöll Karlsdóttir, deildarstjóri hjá Sýslu- mannsembættinu í Reykjavík, segir að kosningaþátttakan utan kjörfund- ar hafi farið stigvaxandi undanfarna daga. Utankjörfundaratkvæðin skipta nú nokkrum hundruðum. Umdæmanefndir og kjörstjórnir víða um land sjá um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar í þeim sveitar- félögum þar sem atkvæðagreiðslan fer fram. Vel á annað hundrað þús- und manns er á kjörskrá, þar af lang- flestir eöa rúmlega 100 þúsund á höf- uðborgarsvæðinu. Úti á landi fer at- kvæðagreiðslan yfirleitt fram í skól- um eða félagsheimilum en ekki er víst að í öllum tilfellum sé um sama kjörstað að ræða og í síðustu kosn- ingum. í litlum sveitarfélögum er hugsanlegt að atkvæðagreiðslan fari í einhverjum tilfellum fram á heimil- um eða skrifstofum oddvita. Rétt er að minna á að í öllum tilfellum koma viðeigandi tillögur fram á kjörseöl- um og eiga kjósendur að krossa við já eða nei. Kjörstaðirnir Venjulega er aðeins um einn kjör- stað að ræða í hverju sveitarfélagi nema í Reykjavík en þar eru fimm kjörstaðir auk smærri kjördeilda á Hrafnistu, Grund og í Hátúni. Eins og sjá má á meöfylgjandi korti eru kjörstaðirnir í Reykjavík í Ráðhús- inu, Laugardalshöll, Foldaskóla, Ár- bæjarskóla og Fellaskóla. Þá getur heimilisfólk á Hrafnistu, Grund og í Hátúni greitt atkvæöi í sinni kjör- deild eða a viðeigandi kjörstað og sérstakir kjörklefar veröa fyrir fatl- aða í Ráðhúsinu og Laugardalshöll. Vonast er til að kjörsókn veröi góð í sveitarfélögunum á höfuðborgar- svæðinu utan Reykjavíkur en íbúar þar geta greitt atkvæði á eftirtöldum stöðum: Kjalnesingar greiða atkvæði í félagsheimilinu Fólkvangi, Kjós- verjar í Félagsgarði, Mosfeliingar í Varmárskóla, Garðbæingar í Flata- skóla, Seltirningar í Mýrarhúsaskóla og íbúar í Bessastaðahreppi greiða atkvæði í Álftanesskóla. Á Suðurnesjum eru sjö kjörstaðir; einn í hverju sveitarfélagi. Það eru: Holtaskóli í Keflavík, félagsheimiliö Stapi í Njarðvik, Grunnskólinn í Grindavík, Grunnskólinn í Sand- gerði, Samkomuhúsið í Garði, Stóru-Vogaskóli í Vatnsleysustrand- arhreppi og Samkomuhúsið í Hafna- hreppi. Úrslitin skýrast fljótlega Tillögur umdæmanefndanna í landinu þurfa að hljóta meirihluta atkvæða í öUum sveitarfélögunum sem hlut eiga að máli til að skylt sé að sameina sveitarfélögin. Sam- kvæmt lögum er þeim sveitarfélög- um heimilt að ganga tij sameiningar ef 2/3 hiutar sveitarfélaganna hafa samþykkt sameininguna og land- fræðilegar aðstæður hindra ekki sameiningu. Þannig geta Reykjavík, Mosfellsbær, Kjalarneshreppur og Kjósarhreppur sameinast þó aö Sel- tirningar felU sameininguna, svo aö dæmi sé nefnt. Ef aðeins þrjú sveitar- félög samþykkja sameiningu en tvö hafna henni verður hins vegar að leggja fram nýja tUlögu um miðjan janúar og verða þá greidd atkvæði um miðjan mars á næsta ári. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan tíu í morgun á öllum stærri stööun- um á landinu en í minni sveitarfélög- unum opna þeir ekki fyrr en á há- degi. Öllum kjörstööum verður lokað klukkan tíu í kvöld og hefst þá taln- ing atkvæða. Fyrstu tölur ættu þá að koma fljótlega eftir að talning hefst og er búist viö að úrslitin í minnstu sveitarfélögunum Uggi mjög fljótlega fyrir. -GHS Atkvæöagreiösla í Reykjavík 20. nóvember 1993 Tillaga umdæmanefndar höfuðborgarsvæðisins um að eftirtalin sveitarfélög veröi sameinuö: Reykjavík, Sel- tjarnames, Mo.sfellsbær, Kjaíameshreppur, Kjósar- hreppur. Já Nel Þeir sem samþykkja tillöguna setja kross fyrir framan „já“, en hinir fyrir framan „nei“. Mg|H | ■ ■ ■ Tinogur um- dæmanefnda Umdæmanefndin á höfuðborgar- svæðinu leggur til að sveitarfélög- um fækki úr átta í fjögur með sam- einingu Reykjavíkur, Seltjarnar- ness, Mosfellsbæjar, Kjalarnes,- hrepps og Kjósarhrepps í eitt sveit- arféiag. Þá leggur nefndin til aö Garðabær og Bessastaðahreppur sameinist í annað en ekki er lagt til að Kópavogur og Hafnarfjörður sameinist öðrum sveitarfélögum. Þá leggur uradæmanefhdin á Suð- urnesjum til að öll sveitarfélögin á Suðumesjum sameinist. Vesturland Umdæmanefndin á Vesturlandi leggur til að sveitarfélögunum fækki úr 36 í niu. Samkvæmt tillög- unni verður Akranes áfram sérs- takt sveitarfélag. Hrepparnir sunn- an Skarðsheiðar, þ.e. Hvalíjaröar- strandarhreppur, Skilmanna- hreppur, Innri-Akraneshreppur og Leirár- og Melahreppur sameinast. Fimm hreppar norðan Skarðsheið- ar, þ.e. Andakilshreppur, Skorra- dalshreppur, Lundarreykjadals- hreppur, Reykholtsdalshreppur og Hálsahreppur sameinast og öll sveitaríélögin í Mýrasýslu samein- ast í eitt ef tiUagan nær frarn að ganga. Þá er lagt til að fjórir hrepp- ar austast á Snæfellsnesi sameinist en það eru Kolbeinsstaöahreppur, Eyjarhreppur, Miklalioltshreppur og Skógarstrandarhreppur. Þá er einnig lagt til að fjögur sveitarfélög vestast á Snæfellsnesi sameinist með samtals tæplega tvö þúsund íbúa. Eyrarsveit verður óbreytt en lagt er til að StykMshólmur og Helgafellssveit sameinist og verður íbúafjöldinn þar tæplega 1.400 manns. Þá gerir tillaga nefndarinn- ar ráð fyrir að s veitarfélögin i Dala- sýslu sameinist. Vestfirðir Umdæmanefndin á Vestfjörðum leggur til að sveitarfélögum fækki úr 24 í fjögur. Samkvæmt tillög- unni verður Reykhólahreppur áfram sérstakt sveitarfélag en fimm hreppar i Vestur-Barða- strandarhreppisameinast. Nefndin leggur til að Vestur-isafjaröarsýsla, Noröur-Ísaíjarðarsýsla, ísaftöröur og Bolungarvik verði eitt sveitarfé- lag í stað tólf nú. Þá er lagt til að sveitarfélögin sex i Strandasýslu sameinist Norðurland vestra Umdæmanefndin á Norðurlandi vestra leggur til fækkun sveitarfé- laga úr 30 í flmm. Samkvæmt tillög- unni verður eitt sveitarfélag í Vest- ur-Húnavatnssýslu. Nefndin legg- ur til að Vindhælishreppur, Höfða- hreppur og Skagahreppur samein- ist í eitt og að Ashreppur, Sveins- staðahreppur, Torfalækjarhrepp- ur, Blönduóshreppur, Svinavatns- hreppur, Bólstaðarhlíöarhreppur og Engihliðarhreppur sameinist í annað. Lagt er til að Siglufjörður haldist óbreyttur og að öll sveitar- félögin í Skagafirði sameinist í eitt. Norðurland eystra Umdæmanefndin á Norðurlandi eystra leggur til fækkun sveitarfé- laga úr 30 í fimm. Stærsta sveitarfé- lagið á Norðurlandi yrði þannig í Eyjafirði með ríflega 20 þúsund íbúa en næststærst yrði Suður- Þingeyjarsýsla austan Hálshrepps með rúmlega íjögur þúsund íbúa. Þannig er lagt tii að Ljósavatns- hreppur, Bárðdælahreppur, Skútustaðahreppur, Reykdæla- hreppur, Aðaidælahreppur, Reykjahreppur, Húsavík og Tjör- neshreppur sameinist. Þá er lagt til að Kelduneshreppur, Fíallahrepp- ur og hluti Öxarfjarðarhrepps sam- einist. Lagt er til að Raufarhöfn og hlutar Svalbarðshrepps og Öxar- fjarðarhrepps sameinist í eitt sveit- arfélag. Nefndin leggur einnig til að Þórshafnarhreppur, Sauðanes- hreppur og hluti Svalbarðshrepps sameinist. Austuriand Á Austurlandi er lagt til að sveit- arfélögum fækkí úr 30 í átta og er tillagan um nýja sveitarstjórnar- skipan svohljóðandi: Skeggjastaða- hreppur og Vopnafjarðarhreppur sameinast í þúsund manna sveitar- félag. Héraðssvæði sameinast í eitt sveitarfélag. Seyðisfjörður verður óbreyttur. Mjóaijarðarlu'eppur, Neskaupstaður og Norðíjaröar- hreppur sameinast og Eskiíjörður og Reyðarfjöröur sameinast í eitt. Þá leggur nefndin til að Fáskrúðs- fjarðarhreppur, Búðahreppur, Stöðvarhreppur og Breiðdals- hreppur sameinist. Samkvæmt til- lögunni verður óbreytt ástand á Djúpavogi en lagt er til að Bæjar- hreppur, Nesjahreppur, Höfn, Mýrahreppur, Borgarhafnar- hreppur og Hofshreppur sameinist. Suðurland Umdæmanefndin á Suöurlandi leggnr til að sveitarfélögum þar fækki úr 30 í sjö. Samkvæmt tillög- unni er gert ráð fyrir óbreyttri skipan í Vestur-Skaftafellssýslu. Rangárvallasýsla skiptist í tvö sveitarfélög austan og vestan Eystri-Rangár. Árnessýsla skiptíst í tvennt þar sem Skeiðahreppur, Gnúpverj ahreppur, Hrunamanna- hreppur, Biskupstungnahreppur, Laugardalshreppur, Grímsnes- hreppur, Þingvallahreppur og Grafningshreppur sameinast og sveitarfélögin í Flóanum og á Ár- borgarsvæði sameinast. Gert er ráð fyrir óbreyttri skipan í Vestmanna- eyjum. -GHS Keflavlkurflugvöllur: Hleðslumenn án matar neita sér um yfirtíð Hleðslumenn á Keflavíkurflug- velli hafa gripið til þess ráðs að sinna htt óskum yfirmanna sinna um að vinna yfirvinnu. Afleiðingin er seinkun á afgreiðslu flugvéla. Farþegar á leið úr landi þurfa að bíða í vélum eftir að hleðslu ljúki og að sama skapi þurfa farþegar, sem koma til landsins, að bíða leng- ur eftir farangri sínum. Að sögn Oskars Birgissonar, trúnaðarmanns starfsmanna hjá Flugafgreiðslunni hf., stafar áhugaleysi starfsmanna á yfir- vinnu af því að vinnuveitandinn er hættur að færa þeim frítt fæði í vinnutímanum. Þá hafi vaktfyrir- komulaginu verið breytt fyrirvara- laust um síðustu mánaðamót. Ósk- ar segir í bígerð að kæra Flugaf- greiðsluna til Kjaradóms vegna þessa máls. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.