Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Qupperneq 50
&8 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993 Afmæli Stefán Valgeirsson Stefán Valgeirsson, fyrrv. alþingis- maöur og bóndi aö Auðbrekku í Hörgárdal, til heimilis að Birki- grund 47, Kópavogi, er sjötíu og fimmáraídag. Starfsferill Stefán fæddist í Auðbrekku í Hörgárdal og ólst þar upp. Hann lauk búfræðiprófi frá Hólum 1942 og var síðan verkstjóri hjá Reykja- víkurborg í nokkur ár. Stefán starfrækti félagsbú í Auö- brekku með foreldrum sínúm og bræðrum frá 1948 en stundaöi jafn- framt ýmis störf á Suðumesjum á árunum 1953-62. Hann var alþingis- maður Norðurlandskjördæmis eystra fyrir Framsóknarflokkinn 1967-87 ogfyrir Samtök jafnréttis og félagshyggju 1987-91. Stefán var formaður Bindindisfé- lagsins Vakandi í Hörgárdal um ára- bil, var formaður FUF í Eyjafirði 1949-53, formaður Framsóknarfé- lags Eyfirðinga frá 1965 og sat þá jafnframt í blaðstjórn Dags. Hann sat í bankaráði Búnaðarbankans 1969-90 og var formaður þess frá 1973, sat í stjóm Stofnlánadeildar landbúnaðarins frá 1969-90 og for- maður frá 1973 og í stjórn Byggða- stofnunar frá 1987-90. Fjölskylda Stefán kvæntist 8.10.1948 Fjólu Guðmundsdóttur, f. 19.7.1928, hús- móöur. Hún er dóttir Guðmundar Njálssonar, b. á Böðmóðsstöðum í Laugardal, og konu hans, Karólínu Árnadóttur húsfreyju. Börn Stefáns og Fjólu eru Valgeir, f,10.6.1948, d. 15.7.1968, flugnemi, kvæntur Sólrúnu Hafsteinsdóttur húsmóður og eignuðust þau eina dóttur; Anna Karólína, f. 15.2.1949, fjölskylduráðgjafi við heilsugæslu- stöðina á Akureyri, gift Höskuldi Höskuldssyni sjúkraþjálfara og eiga þau þrjú börn; Guðmundur Valur, f. 3.9.1955, fiskeldisfræðingur við nám og störf í Noregi og á hann tvö börn; Valþór, f. 2.12.1957, heilsu- gæslulæknir á Siglufirði, kvæntur Onnu Sigurbjörgu Gilsdóttur svæf- ingarhjúkmnarfræðingi og eiga þau einn son og fósturdóttur; Lilja, f. 23.8.1959, verslunarmaður á Akur- eyri, gift Herði Hafsteinssyni skó- smið og á hún íjögur börn; Hildur, f. 14.12.1963, b. í Auðbrekku, gift Guðjóni Jónssyni b. og á hún þrjú börn. Bræður Stefáns voru Þorsteinn, f. 25.3.1921, d. 24.10.1980, skrifstofu- maður í Reykjavík; Einar Þórir, f. 2.6.1922, d. 6.4.1987, b. í Auðbrekku; Guðmundur Ámi, f. 11.11.1923, d. 17.4.1976, bifvélavirki í Reykjavík. Bróðir Stefáns, samfeðra, var Her- mann, f. 16.10.1912, nú látinn, b. í Lönguhlíð í Skriðuhreppi. Foreldrar Stefáns vom Valgeir Árnason, f. 10.12.1884, d. 9.8.1968, b. í Auðbrekku, og kona hans, Anna Mary Einarsdóttir, f. 4.4.1895, d. 2.7. 1982, húsfreyja. Ætt Meðal fööursystkina Stefáns er Hilmar, faðir Gunnars, bæjarstjóra á Raufarhöfn, og Þóris, fyrrv. brunamálastjóra. Valgeir var sonur Árna, b. í Auðbrekku, bróður Sig- urðar, föður Þóris námsstjóra. Árni var sonur Jónatans, b. á Hömmm í Laxárdal, Eiríkssonar, og Guðrúnar Stefánsdóttur. Móöir Árna var Guð- rún Jónsdóttir, b. í Auðbrekku Snorrasonar, b. á Böggvisstöðum, Flóventssonar. Móðir Snorra var Sigríður Snorradóttir, b. á Syðri- Reistará, Einarssonar, bróður Ólaf- ar, ömmu Baldvins Einarssonar þjóðfrelsismanns. Móðursystir Stefáns er Jóna Möll- er, amma Ríkarðs Pálssonar hljóm- listarmanns. Anna var dóttir Ein- ars, ráðsmanns á Háreksstöðum, bróður Sigurjóns, langafa Björns Guðmundssonar, oddvita í Lóni. Einar var sonur Péturs, b. á Hvappi í Þistilfirði, Guttormssonar. Móðir Péturs var Þorbjörg Þorsteinsdóttir, Stefán Valgeirsson. systir Páls, langafa Jóns, langafa Sigríðar Stefánsdóttur, forseta bæj- arstjórnar Akureyrar. Móðir Önnu var Þórey Jónsdóttir, b. í Álftavík, Guðmundssonar. Móðir Jóns var Sigríður Oddsdóttir, b. í Breiðuvík, Ögmundssonar, bróður Jóns, lang- afa Þórhöllu, ömmu Halldórs Ás- grímssonar sjávarútvegsráðherra. Móðir Þóreyjar var Ingibjörg Sveinsdóttir, b. á Eldleysu í Mjóa- firði, Hermannssonar, b. á Græna- nesi, Hermannssonar, bróður Hjálmars, langafa Vilhjálms Hjálm- arssonar, fyrrv. ráöherra. Þau hjónin veröa að heiman á af- mælisdaginn. Ester Guðmundsdóttir Ester Guðmundsdóttir, húsmóðir og afgreiðslukona, Dalbraut 23, Akra- nesi, ersjötugídag. Fjölskylda Ester er fædd á Sigurðsstöðum á Akranesi og ólst upp á Akranesi. Ester giftist 26.12.1941 Ragnari Leóssyni, f. 26.12.1920, bifreiða- stjóra. Foreldrar hans: Leó Eyjólfs- son, f. 10.11.1895, d. 1958, og Málfríð- urBjarnadóttir, f. 20.10.1896, d. 1986. Þau bjuggu á Akranesi. Börn Esterar og Ragnars: Fríða, maki Ásgeir R. Guðmundsson, þau eru búsett á Akranesi og eiga þrjú börn, Ragnheiði, Ásgeir og Pálínu; Kristín, búsett á Akranesi; Ragna, maki Helgi Guðnason, þau eru bú- sett á Akranesi og eiga þrjú börn, Guðna Steinar, Ester Sigríði og Ragnheiði; Bima, maki Kristinn Ei- ríksson, þau eru búsett í Reykjavík og eiga tvö börn, Aðalheiði og Hauk; Leó, maki Halldóra Gylfadóttir, þau eru búsett á Akranesi og eiga einn son, Ragnar, Leó á eina dóttir, Elínu Maríu. Systkini Ester: Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 4.2.1910, búsett á Akranesi; Halldór Guðmundsson, f. 19.5.1911, d. 1989; Sigurrós Guö- mundsdóttir, f. 22.6.1912, d. 1990; Guðmundur Guðmundsson, f. 19.9. 1913, d. 1990; Jónmundur Guö- mundsson, f. 2.9.1915, d. 1988; Gréta Guðmundsdóttir, f. 23.4.1917, búsett í Reykholtsdal; Júlíanna Guð- mundsdóttir, f. 30.7.1918, búsett á Akranesi; Petrea Guðmundsdóttir, f. 24.11.1921, búsett á Akranesi; Valdimar Sigurðsson, f. 17.4.1902, búsettur á Akranesi; Ástríður Þórey Siguröardóttir, dó ung. Ester Guðmundsdóttir. Foreídrar Ester: Guðmundur Guðmundsson, f. 4.9.1884, d. 1938, sjómaður, og Kristín Jónsdóttir, f. 10.8.1881, d. 1966, húsfreyja, þau bjugguáAkranesi. Estererað heiman. Kristín H. Karvelsdóttir Kristín Hálfdánar Karvelsdóttir fiskvinnslukona, Miöstræti 14, Bol- ungarvík, verður fertug á morgun. Starfsferill Kristín er fædd í Bolungarvík og ólst þar upp. Hún fór í Barnaskól- ann í Bolungarvík, Héraðsskólann að Núpi í Dýrafirði og Húsmæðra- skólann á Blönduósi. Kristín hefur sótt ýmis námskeið tengd fisk- vinnslu og einnig námskeið á vegum verkalýðsfélaganna. Auk starfa í fiskiðnaði vann Krist- ín lengi við verslunarstörf. Eftir að hún gifti sig bjó Kristín á ísafirði í nokkur ár en hefur síðan búið að Miðstræti 14 í Bolungarvík. Kristín hefur haft mikinn áhuga á söng og hefur verið í ýmsum kórum en síðustu árin í Kirkjukór Bolung- arvíkur. Hún hefur gegnt trúnaöar- störfum innan Verkalýðsfélagsins og einnig í Verslunarmannafélag- inu. Fjölskylda Eiginmaður Kristínar er Sigurður B. Hjartarson, f. 21.10.1951, skip- stjóri í Bolungarvík. Foreldrar hans: HjörturBjarnason, skipstjóri á ísafirði, og Svanfríður Gísladóttir húsmóðir. Börn Kristínar og Sigurðar: Sól- veig, f. 17.5.1972, maki Bjami Pét- ursson, f. 26.11.1969, þau eru búsett í Reykjavík og eiga eina dóttur, Kristínu Grétu, f. 12.4.1992; Bene- dikt, f. 23.3.1975, sambýliskona hans er Fjóla Bjarnadóttir, f. 27.9.1975, þau era búsett í Bolungarvík. Systkini Kristínar: Pálmi Árni, f. 31.8.1952; Steindór, f. 11.1.1958; Jón- ína, f. 2.6.1960. Kristín Hálfdánar Karvelsdóttir. Foreldrar Kristínar: Karvel Steindór Pálmason, f. 13.7.1936, fyrrv. alþingismaður, og Marta Kristín Sveinbjörnsdóttir, f. 27.8. 1935, fiskverkakona. Þau búa í Bol- ungarvík. Til hamingju með afmælið 20. nóvember 80 ára Þórdís Guðj ónsdóttir, Litlu-Árvík, Árneshreppi. 75 ára Bjami Bæringsson, Hraunbæ 146, Reykjavík. 70 ára Erla Sigurðardóttir, Háaleitisbraut 155, Reykjavík. Tómas Karlsson, Strandgötu2, Stokkseyri. Arilía Jóhannesdóttir, Brekku, Mýrahreppi. 60 ára Hreinn Sveinsson, Miöbraut 13, Vopnafiröi. Garðar Sigurðsson, Kaplaskjólsvegi 93, Reykjavik. Einar Gunnarsson, Hrauntúni 2, Keflavík. Margrét Loftsdóttir, Hjaltabakka 14, Reykjavik. Sigmar Bjami Ákason, Hamraborg 34, Kópavogi. 50ára Ar i Jón Baldursson, Hjallalundi 18, Akureyri. Guðmundur Ingimundarson, Kvistalandi 23, Reykjavík. Helga Aðalsteinsdóttir, Réttarbakka 7, Reykjavík. Ragnar Gunnarsson, Blikahóluml2, Reykjavík. Ámi Steingrímsson, Ingvörum, Svarfaöardalshreppi. Sigrún Gísladóttir, Sólbakka, Flateyri. Elísabet Stefánsdóttir, Hrólfsskálavör 14, Seltjamamesi. Eiður Steingrimsson. Goðabraut 13, Dalvík. Hjördis Aðalsteinsdóttir, Norðurgöturl, Siglufirði, 40ára María Erla Geirsdóttir, Höfðaholti 8, Borgarnesi. Kristján Jökulsson vélstjóri, Vesturbergi 138, Reykjavik. Konahanser KrÍstínÞor- steinsdóttir fiskvinnslu- kona. Kristján tekur á móti gestum í skála Ferðafélagsins á Hveravöll- umviðKjöl. Ólafur Rúnar Gunnarsson, Hafnarbyggð 27, Vopnafirði. Gunnar Rafn Sigurbjömsson Gunnar Rafn Sigurbjömsson, bæj- arritari í Hafnarfirði, Langeyrar- vegi 13, Hafnarfirði, verður fimm- tugur á mánudaginn. Starfsferill Gunnar Rafn er fæddur á Siglu- firði og ólst þar upp. Hann tók lands- próf á Siglufirði, lauk stúdentsprófi fr á MA1963, BA-prófi frá Háskóla ís- lands 1969 og uppeldis- og kennslu- ffæði fi-á Háskóla íslands 1978. Gunnar Rafn var stundakennari í Langholtsskóla í Reykjavík 1967-68, kennari í Gagnfræðaskóla Siglu- fjarðar 1969-74 og skólastjóri 1974-79, skólastjóri Grunnskóla Siglufjarðar 1979-82, skólastjóri Iðn- skóla Siglufjarðar 1977-82 og for- stöðumaður Námsflokka Siglufjarð- ar 1976-78. Hann var fulltrúi og deildarstjóri í félagsmálaráðuneyti 1982-86 og hefur verið bæjarritari í Hafnarfirði frá þeim tíma. Gunnar Rafn var bæjarfulltrúi á Siglufirði 1970-82. Hann hefur átt sæti í ýmsum nefndum og ráðum. Fjölskylda Gunnar Rafn kvæntist 11.2.1%7 ínu Illugadóttir, f. 5.9.1945, húsmóð- ur og kennara. Foreldrar hennar: Illugi Guðmundsson, skipstjóri, út- gerðarmaður og forstjóri BUH, og Halldóra Andrésdóttir. Þau eru bæði látin. Böm Gunnars Rafns og ínu: 111- ugi, f. 26.8.1967, nemi í HI; Guðrún Sóley, f. 4.3.1970, nemi í HÍ; Eysteinn Orri, f. 8.3.1981; Styrmir, f. 18.10. 1982. Bræður Gunnars Rafns: Bjöm Ingvi, f. 5.6.1946, skólastjóri og bæj- arfulltrúi á Sauöárkróki, maki Sig- urrós Stefánsdóttir, þau eiga fjögur börn, Kristínu Sóleyju, nema í HI, Sigurbjörn Rúnar, nema í FS, Ólöfu Elsu, nema í MA, og Jón Stefán; Kjartan Öm, f. 23.10.1948, sjúkra- húsprestur á Landakotsspítala, maki Katrín Þórhndsdóttir, þau eiga tvær dætur, Þórlindi, nema í MR, og GuðrúnuBimu. Foreldrar Gunnars Rafns: Sigur- bjöm Sveinsson, f. 1915, d. 1978, verkamaður og verkstjóri, og Guð- rún Þorbjömsdóttir, f. 1912, sjúkra- þjálfari, þau bjuggu á Siglufirði og í Hafnarfirði og þar býr Guðrún enn. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson. Gunnar Rafn og ína taka á móti gestum á afmæhsdaginn, 22. nóv- ember, í Fjöranni við Strandgötu í Hafnarfirði frá kl. 18-21.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.