Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1993, Page 56
Frjálst,óháð dagblað
Útgáfa Tímans á heljarbrún ósættis og flárhagsörðugleika:
Uppgjðf til umræðu
- milljónir hafa tapast - algert ráðaleysi ríkjandi, segir Steingrímur Hermannsson
„Það veröur að segjast að það
hefur ríkt algjört ráðaleysi hjá
stjómendum Tímans. Fram-
kvæmdastjórinn fór því honum
fannst þetta svo stjómlaust. Það
eina sem hefur gerster að stjómin
kaus sér formann sem hefur pró-
kúmna. Ég hef hins vegar ekkert
skipt mér af þessum málum eftir
að ég sagöi mig úr stjórninni. Satt
að segja hef ég forðast að setja
nokkura framsóknarsthnpil á
þetta. En því míöur hafa fyrstu
sporin verið slæm og þeir hafa
misstigið sig illa,“ segir Steingrím-
ur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins.
Hörð átök hafa veriö að undan-
fömu innan stjómar Mótvægis hf.,
sem gefur út Timann, og í kjölfarið
hafa margir starfsmenn Tímans
sagt upp störfum. Ráðning Þórs
Jónssonar sem ritstjóra mæltist
víða illa fyrir og í kjölfarið hætti
fréttastjórinn, Birgir Guðmunds-
son.
Samkvæmt heimildum DV hefur
rekstur Tímans gengiö mjög ilia að
undanfómu. í raun rær stjórn
Mótvægis lífróður frá degi til dags
til að tryggja áframhaldandi útgáfu
blaðsins. Til tals hefur komiö að
hætta útgáfunni. Til að bjarga út-
gáfunni um stundarsakir hefur
Framsóknarflokkurinn hins vegar
lofaö einhverju flármagni.
í áætlunum var gert ráð fyrir að
tapið yrði um 11,7 milljónir á árinu
en nú er ljóst aö það verði mun
meira. Ljóst er að allt það nýja
hlutafé sem hefur safnast og fengist
greitt á árinu er uppurið, alls um
15 milljónir. Áskrifendum hefur
ekki flölgað þrátt fyrir áskriftar-
söfnun, auglýsingar hafa dregist
saman og mikill kostnaður verið
vegna flutnings í nýtt húsnæöi og
breytinga i starfsmannahaldi.
A fundi Mótvægis á fimmtudag-
inn var Bjami Þór Óskarsson kos-
inn nýr stjómarformaður í stað
Jóns Sigurðssonar sem sagði af sér
formennsku fyrir skömmu. Um
daglegan rekstur mun Ágúst Þór
Ámason sjá í umboði Bjarna Þórs.
Frá því Jón Sigurðsson sagði af sér
formennsku hefúr Steingrímur
Gunnarsson haldið um stjórnvöl-
inn. Honum til aðstoðar hefur verið
Guðmundur Löve sem tók að sér
rekstrarráögjöf eftir skyndilega
uppsögn Hrólfs ÖMssonar fram-
kvæmdastjóra.
Aðspurður segir Steingrímur
Hermannsson af og frá að Fram-
sóknarflokkurinn taki útgáfu
Timans yfir á nýjan leik. Flokkur-
inn taki af heiiindum þátt í að
byggja blaðið upp. Hins vegar komi
til álita aö gefa út nýtt blaö fari
núverandi útgefendur í þrot.
„Það er verið að kanna stöðu fé-
lagsins en það er of snemmt að
segja nokkuð til um framhaldið.
Vissulega eru erfiðleikar i rekstr-
inum og væntanlega verður tekin
ákvörðun um framhaldið á allra
næstu dögum. Við þurfum örlítið
andrými,“ segir Bjarni Þór Óskars-
son. -kaa
LOKI
Svonadrepa menn
tímann þarna!
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Hlýnar á mánudag
Á sunnudag verður víðast fremur hæg suðvestlæg átt, él sunnan- og vestanlands en bjart veður norðaustanlands, hiti 0-5 stig. Á
mánudag verður vaxandi sunnanátt og hlýnandi veður, rigning um mestallt land, fyrst vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 61
F R É X X 62 • A S K 25 •0 X 1 Ð 25
x Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur.
KiTstjorn - Augiysingar - Askríft - Dreifing: Sími 63 2700
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1993.
Hálsbrotin
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sextán ára stúlka liggur hálsbrotin
á sjúkrahúsi í Reykjavík eftir að hafa
lent í átökum á Akureyri um síðustu
helgi. Samkvæmt framburði vitna
mun stúlkan hafa sparkað til tveggja
pilta. Annar þeirra náði taki á fæti
hennar og skall stúlkan með höfuðið
í götuna. Hún var flutt á slysadeild
á Akureyri en var ekki talin alvar-
lega slösuð.
Stúlkan mun svo hafa verið komin
suður á land þegar í ljós kom hvers
eðlis meiðsli hennar voru.
lANDSSAMBAND
ÍSI . RAKVKRK l'AKA
Borgarspítalinn:
Óskar eftir
f undi með
ráðherra
Stjórn Borgarspítalans hefur sam-
þykkt ályktun þar sem stjórnin seg-
ist ekki geta tekið ákvörðun um
framtíðarrekstur leikskóla spítalans.
Stjórnin bendir á að heilbrigðisráð-
herra hafi hafnað tillögu stjómar-
innar um að halda rekstri leikskól-
anna svo til óbreyttum þar sem ríkið
greiddi 16 þúsund krónur, sveitarfé-
lögin sex þúsund og foreldrar 16.400
krónur á mánuði með hverju bami.
Stjórn Borgarspítalans hefur óskað
eftir fundi með Guðmundi Árna Stef-
ánssyni heilbrigðisráðherra vegna
þessa máls.
Starfsfólk Borgarspítalans hittist á
fundi á mánudag til að ákveða fram-
haldið en starfsfólkið haföi óskað eft-
ir svari frá stjórn spítalans um rekst-
ur leikskólanna í framtíðinni áður
en það tæki ákvörðun um endur-
ráðningu.
-GHS
Magnús Ver Magnússon og Manfred Höberl frá Austurríki voru efstir og jafnir á alþjóðlega aflraunamótinu, Víkinga-
keppninni, sem nú stendur yfir hér á landi, þegar DV fór í prentun í gærkvöldi. Þeir voru þá með 10 stig hvor
en Andrés Guðmundsson þriðji með 8 stig. Hleðslukeppni fór síðan fram í gærkvöldi en í dag klukkan 13 verður
flugvélardráttur á Reykjavíkurflugvelli og keppni lýkur i Kaplakrika í Hafnarfirði klukkan 17.30.
DV-mynd Brynjar Gauti