Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993 Fréttir Gj aldahækkanir og niöurskurður 1 bandorms-frumvarpi: Enn vantar hálfan annan milljarð Einhvern næstu daga verður lagt fram á Alþingi svonefnt band- orms-frumvarp til ýmissa breyt- inga á íj árlagafrum varpinu. Þar er gert ráð fyrir hækkunum á mörg- um opinberum gjöldum sem og nið- urskurði á ýmsum útgjöldum sem snerta velferðarkerfið og skóla- kerfið. Þetta er meðal annars til að mæta því tekjutapi sem ríkissjóður verð- ur fyrir vegna lækkunar matar- skatts úr 24 prósentum í 14 prósent um áramót. Þá um leið lækkar vörugjald á sælgæti, gosdrykkjum og áfengi úr 25 prósentum í 18 pró- sent. Tekjutap ríkissjóðs vegna þessa nemur þremur milljörðum króna á næsta ári. Þrátt fyrir þá tekjuöflun og þann niðurskurð sem gert er ráð fyrir í bandorms-frumvarpinu vantar enn hátt í 1,5 milljarða króna til að mæta þessu tekjutapi. Gert er ráð fyrir að niðurgreiðsl- um á fiski til innanlandsneyslu verði hætt í áfóngum á næsta ári. Tryggingagjald á launagreiðslur verður sett á og er það 0,35 pró- sent. Bifreiðagjöld hækka um 30 til 40 prósent og eiga að færa ríkinu 450 milljónir króna. Bensíngjald hækkar um 5 prósent og hækkar það verð á bensínlítra um 1,50 krónur. Á ýmsa vöruflokka, svo sem kaffi, te, ís, snakk, sultu og sykruð matvæh verður lagt 6 prósent vörugjald. Byggingavörur og snyr- tivörur fara úr 9 prósenta tolli í 10 prósenta toh. Þá er gert ráð fyrir að taka upp innritunargjald í bændaskólana sem og garðyrkjuskóla. Eins er gert ráð fyrir innritunargjaldi og fleiri gjöldum í tækniskóla. Frestað verður að taka upp heitar máltíðir í grunnskólunum. Sömuleiðis að fækka í bekkjardeilum eins og th stóð. Einnig verður frestað að fjölga kennslustundum í grunn- skólunum. Lagt verður nýtt gjald á allar seldar búvélar til að standa undir kostnaði af Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Ekkjulífeyrir veröur tekjut- rengdur. Sérstakt gjald verður tek- ið af þeim sem fara í áfengismeö- ferð. Atvinnuleysisbætur verði skertar hafi viðkomandi einhveij- ar aðrar tekjur. Loks er í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir að skerða lögbundnar tekjur ýmissa sjóða um 915 milljón- ir króna. Þar er um að ræða sjóði eins og Framkvæmdasjóð Ríkisút- varpsins, Ferðamálasjóð og Vega- gerð, svo dæmi sé tekið. -S.dór Hvar sem fólk hittist á Flateyri í gær var umræðuefnið hin óvænta ákvörðun stjórnar Hjálms hf. um lokun frysti- hússins. Til hægri er Sigurður Þorsteinsson, formaður Verkalýðsfélagsins Skjaldar. DV-mynd Reynir Traustason Óvænt lokun ftystihúss Hjálms h/f: Tekur nýtt f yrirtæki við rekstrinum? Reynir Traustasan, DV, Flateyri: „Sveitarfélagið hlýtur að hafa for- ystu um það að koma atvinnulífmu í gang aftur. í ljósi þess að stjórn Hjálms h/f hefur ákveðið að hætta vinnslu og loka frystihúsi nú sé ég ekki annað en þaö verði að koma til samstarfs þeirra aðila sem fyrir eru í byggðarlaginu og sveitarfélagsins. Ég sé þetta helst fyrir mér sem nýtt fyrirtæki sem myndi þá nýta þann húsakost og tæki sem fyrir eru á staðnum," segir Kristján J. Jóhann- esson, sveitarstjóri á Flateyri. Sú ákvörðun stjórnar Hjálms h/f að hætta fiskvinnslu alfarið um næstu áramót kom Flateyringum gjörsamlega í opna skjöldu. Aðeins er ár síðan togari fyrirtækisins var seldur og var sú skoðun ríkjandi að með þeirri aðgerð væri hag fyrirtæk- isins borgiö og rekstrargrunnur tryggður. Um 60 manns starfa við fiskvinnslu á vegum fyrirtækisins og hefur þeim öhum veriö sagt upp störfum, síð- ustu uppsagnir taka gildi um áramót og mun þá fyrirtækið hætta vinnslu. Að auki á fyrirtækið línubátinn Gyhi en áhöfn hans hefur ekki verið sagt upp störfum og skv. heimhdum DV munu vera áform um að gera hann út áfram og selja aflann á fiskmark- aö. „Þetta er auðvitað mjög slæmt mál þar sem um 40% af vinnandi fólki á staðnum missa vinnuna. Okkar stærsti vandi er sá að við erum kvótalaus. Viö höfum skipað þriggja manna starfshóp sem ætlaö er að skoða máhð frá öllum hhðum. Við munum á næstunni óska eftir fimdi með þingmönnum kjördæmis- ins og Byggðastofnun,“ sagði Kristj- án J. Jóhannesson. Stuttar fréttir Salmonelia í allf uglum Um 13 prósent alifuglaaiurða bera með sér salmonehusmit. Þetta kemur fram í ársskýrslu HoUustuvemdar ríkisins. Mælirgötumar Gatnamálastjórinn í Reykjavik heíúr komist að þeirri niðurstööu að lengd gatnakerfis borgarinnar sé 349,3 kilómetrar, Lengd fullfrá- genginna gangstíga er hins vegar 450,5 khómetrar. Íslendíngar taK íslensku Kvennalistinn hefur lagt fram þingsályktunarthlögu um að út- lendingum veröi gert að læra ís- lensku áður en þeir fai íslenskan ríkisborgararétt. Skv. thlögunni yrði aö tryggja veröandi íslend- ingum aögang að málanámskeiði. Ungmennafélag gert upp Þrotabú Ungmennafélags Hveragerðis hefur verið gert upp. Búiö reyndist eignalaust en kröf- ur í það voru 4,6 miUjónir. Timinn greindi frá þessu. Húsbóndahollir kennarar Kennarasamband Islands viU að stjórnvöld endurskoði þá ákvörðun að flytja rekstur grunnskólanna th sveitarfélag- anna Aö mati kennara er flutn- ingurinn ekki ráðlegur í Ijósi úr- sUta nýafstaöinna kosninga um sameiningu sveitarfélaga. SjáHvhrfcar veðurstöðvar Vegagerð rhdsins hefur teklð í notkun sjálfvirkar veðurstöðvar á HeUisheiði, Öxnadalsheiði og SteingrímsfjaröarheiðL Von er á fleiri slikum veðurstöðvum. Von í veiðileyf agjaldi Smábátaeigendur éru reiðu- búnir aö hetja viðræður við stjómvöld um upptöku veiöi- leyfagjalds. Á aðalfundi þeirra var stjóm félagsins veitt umboð th viðræðna enda eina bjargar- von fjölmargra bátseigenda að gerast leiguUðar. Mbl. skýrði frá þessu. Heiðursmerki i barminn Noregskóngur hefur útnefnt Svein Einarsson tíl riddara af fyrsta flokki hinnar konunglegu norsku konungsorðu fyrir árang- ursríkt starf aö menningarsam- skiptum Noregs og íslands. -kaa Einar Oddur: Reynir Traustason, DV, nateyri: „Það er mjög alvarlegt og mjög sárt að þurfa að grípa th lokunar en það var niðurstaða okkar og endurskoðenda fyrirtækisins að ekki yröi haldið áfram á sömu braut. Þess vegna ákváðum viö að hætta fiskvinnslunni. Hjálmar á fyrir öllum sínum skuldum en það er alveg ljóst að ef við heföum haldið afram rekstri þá heföi fljótlega komið upp enn verri staða en nú er,“ segir Einar Odd- ur Kristjánsson, stjómarformað- ur Hjálms h/f. Einar Oddur segir að nýtt fyrir- tæki Vestfirsk skelvínnsla h/f sé í burðarliðnum sem yfirtaki rekstur á kúfiskvinnslu Hjálms. Sú vinnsla verði komin í fuhan gang í febrúar eða mars nk. Það er fjóst aö kúfiskvinnslan mun ekki fyha það skarð sem lokun fiskvinnslunnar skhur eftir sig þar sem aöeins 15 manns munu starfa þar en um 60 manns missa vinnu sína hjá Hjálmi h/f. „Við teljum okkur ekld þurfe nauðasamninga og við getum og ætlum að borga skuldir okkar. Ég tel ekki ólíklegt að einhverjir vhji leigja þann húsakost sem við höfum yfir aö ráða,“ sagði Einar Oddur. Formaður Skjaldar: Reynir Traustason, DV, Flateyri: „Þaö er auðvitað hryllhegt reið- arslag fyrir fólk að standa aht í einu frammi fyrir því að verða atvinnulaust. Við gefumst hins ' vegar ekkert upp og ég trúi því að við náura elnhvers staðar lendingu hvort sem þaö verður með hjálp stjómvalda eða á ann- an hátt. Það er baráttuhugur i fólki hér,“ segir Sigurður Þor- steinsson, formaöur Verkalýðsfé- lagsins Skjaldar og hreppsnefnd- armaður. Sigurður segir lokunina koma á óvart, sérstaklega svo fljótt. Hann segir þá að flestir hafi verið meðvitaðir um að eitthvað slíkt gæti gerst þar sem vítaö sé að ástandið sé mjög slæmt hjá flest- um sjávarútvegsfyrirtækjum á Vestfjörðum. „Þetta er mikið högg fyrir sveit- arfélagið í heild ekki siður en þá einstaklinga sem missa vinnuna. Eg vh þó vera svo bjartsýnn að trúa því að á þessum 4 vikum sem em th stefnu takist að vinna úr þessum málum. Það eru ýmsir möguleikar i þeim efnum. Ef það tekst ekki er ljóst að hér verður mikið atvinnuleysi," sagði Sig- urður Þorsteinsson. Keflavík: Neitarnauðgun Ungur maður hefur játað að hafa átt samræöi við konu á fer- tugsaldri sem kom á lögreglu- stöðina i Keflavík eldsnemma á sunnudagsmorgun og kærði nauðgun. Hann vhl ekki kannast við að nauögun hafl átt sér stað heldur hafi samræöið átt sér stað meö fullum vhja hennar. Konan sagði aö ungur maður heföi ráðist á sig í skrúðgarðinum í Keflavík og náð að nauðga sér þrátt fyrir aö hún heföi veitt mikla mótspymu. Hún heldur enn við fýrri framburð og er máhðenn í rannsókn. Manninum var sleppt að loknum yfirheyrsl- umámánudagskvöld. -pp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.