Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Blaðsíða 24
40 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993 Menning Hressilegt skammdegisinnlegg Jónas Árnason. Hressilegar fró- sagnir. Jónas Ámason varð sjötugur á liðnu vori og af því tilefni hefur Hörpuútgáfan gefið út bókina Á landinu bláa. Eflaust er Jónas þekktastur fyrir söngvísur sínar og leikrit en í þessari bók birtast gamlar greinar og fáeinar sögur sem Jónas skrifar um og eftir 1950. Það þarf ekki að orðlengja það: þetta eru afar skemmtilegar frá- sagnir, fullar af kímni, hlýju og lífs- gleði. Jónas setur sig í spor persóna sinna á þann hátt að þær verða ljós- lifandi í huga manns. Og þá gildir einu hvort verið er að lýsa drengj- um í sjóorrustuleik eða veðurbitn- um sjómanni á færeyskri skútu: allt verður jafn eðlilegt og lifandi hjá Jónasi. Þegar hann lýsir hugar- heimi bama verður frásögnin ofur- lítið bemsk, málfarið einfalt og sakleysislegt og í frásögninni af ferðalagi þeirra félaga Jónasar og Þórbergs Þórðarsonar stígur hinn eini sanni Þórbergur sprelllifandi fram á sjónarsviðið með öll sín skemmtilegu og skringilegu tils- vör. Þegar Jónas spyr hann hvers vegna hann hafi aldrei skrifað skáldverk svarar Þórbergur: „Mér dettur aldrei neitt frumlegt í hug .., þess vegna hef ég ekki skrifað skáldsögur. Hinsvegar hef ég gott auga fyrir því ófrumlega og leiðin- lega...“ (59) Eflaust em flestir les- endur Þórbergs ósammála þessari staðhæfingu, a.m.k. verða ófmm- legheitin frumleg í hans meðfórum og hversdagsleikinn skemmtilegri en aUt annað. Þaö sama gildir um skrif Jónasar. Hann einbeitir sér að því hversdagslega og gæðir það spriklandi lífi, dokar t.a.m. við og miðlar okkur samtali tveggja drykkjumanna sem húka undir bát og útkoman er óborganleg: fyndin, en Umfram allt manneskjuleg. Hann má líka vera að því að stoppa uppi á Landakotstúni til að fylgjast með nokknun strákmn í fótbolta. Þar er hann Gvendur hth skútu- karl, fjögurra ára patti, sem gerir aht sem í hans valdi stendur th að spiha leik hinna. Þegar leiknum er lokið dusta stóm strákamir af hon- um skitinn og leiða hann heim. „Þá sá ég að þeim þótti öhum, þrátt fyrir aht, vænt um hann Gvend skútukarl", segir höfundurinn aö lokum og miðlar okkur með þess- um orðum þeirri samstöðu og sam- kennd sem skín í gegnum ahar hans sögur. Verkamennimir eiga hug hans allan, þeir sem vinna hörðum höndum fram á rauðanótt en Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir syngja samt, æðrulausir og sáttir við sitt: „Sumt fólk gleður sig við tilhugsunina um langt og gott sum- arfrí og skemmtiferð th Ítalíu. Þessir menn gleðja sig við thhugs- unina um að heyja handa blessaðri beljunni sinni,“ segir Jónas um fé- laga sína, færeysku sjómennina á Kútter Carli. Það fer ekki á mihi mála hvort höfundinum finnst meira um vert. Það að gleðjast yfir hinu smáa, njóta þess sem er og kætast meðan kostur er, það er það sem máh skiptir. Ekki svo afleit skhaboð í svartasta skammdeginu og víst að brúnir margra eiga eftir að lyftast við lestur hresshegra frá- sagna Jónasar Árnasonar. Á landinu bláa, Jónas Árnason, Hörpuútgáfan 1993. Hvenær kemur fyrsti jólasveinninn til byggða?------------------- Kláraðu nöfnin á jólasveinunum: __________staur og____________gægir Hvað er símanúmerið hjá DV?-------- Nafn. Sími Heimili:. Staður Sendist til: Krakkaklúbbs DV - getraun Þverholti 14,105 Reykjavík Skilafresturtil 3. desember. Verölnun: 30 heppnir þátttakendurfá jólaföndurbókina "Þótt desember sé dimmur" frá Hagkaup og Almenna bókafélaginu. ALMENNA BOKAFELAGIÐ HF HAGKAUP gœöi úrval þjónusta mr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.